Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Page 14
Chaillot", þar sem bandarískar
háskólahljómsveitir leika. Einnig
verða kvöldtónleikar amerísku
hljómsveitarinnar „Waterways
Wind“ í húsbát, sem liggur við
akkeri á árbakkanum við „Hotel
de Ville“. Sama eftirmiðdag verð-
ur skrúðganga, sem 51 hljómsveit
frá 46 ríkjum Bandaríkjanna —
aðallega háskólahljómsveitir —
taka þátt í. Hljómsveitirnar munu
ganga frá „Hotel de Ville“ að
„Palais de Chaillot" (Trocadero).
13., 14. og 15. JÚLÍ. Hápunkt-
ur hátíðahaldanna verður þessa
daga. Að kvöldi hins 13. verður
„Opéra de la Bastille" opinberlega
vígð af forseta lýðveldisins — með
tilheyrandi dagskrá, bæði fyrir
opinbera gesti og aðra. Mikið
verður um dýrðir, þegar hljóm-
sveitimar birtast á Bastillutorgi —
„Place de la Bastille" — kl. 10
um kvöldið. Þær munu standa í
skugga „Colonne de Juillet" og
skemmta mannlj'öldanum með
hefðbundnum hætti, eins og
tíðkaðist með dansleikjum að
kvöldi „Bastillu-dags“.
14. júlí, á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn, að morgni mun hin hefð-
bundna hersýningar-skrúðganga
þramma frá l’Etoile-torgi að Con-
corde-torgi. Um kvöldið mun gey-
simikil skrúðganga leggja upp-
frá„Porte Maillot" og enda á Con-
corde-torgi. Skrúðgangan er
skipulögð o g sviðsett af Jean-Paul
Goude (þekktur í Frakklandi og
víðar). Gangan verður hin fjöl-
skrúðugasta, en í henni taka þátt
9.000 manns — allt frá tmmbu-
og fánaberum upp í leiksviðsklætt
listafólk.
26. ÁGÚST. Á 200 ára af-
mælisdegi mannréttinda og jafn-
réttis — mun línudansarinn
Phillippe Petit ganga yfir Signu,
á kaðli, strengdum frá Trocad-
ero-torgi að annarri hæð Eiffel-
turnsins. Djass- og rokkhljóm-
sveitir munu síðan sjá um fjörið.
Parísarsýningar í tilefhi
afinælisins
Frá því snemma í maí fram í
október er opið sýningarsvæði í
Tuileries-görðunum. Þar verða
fjölbreyttar sýningar, útileikhús,
tónleikar og yngri kynslóðin er
ekki höfð útundan. í stóru tjaldi
fýrir framan „Place de l’Hotel de
Ville" verður kvikmyndahátíð með
myndavali er beinist að þema
byltingarinnar. Meðal kvikmynd-
anna verða: „Danton" eftirWajda;
„La Marseillaise" eftir Renoir;
„Napoleon“ eftir Abel Gance, með
undirspili Colonne-hljómsveitar-
innar. Sýningartími er kl. 8 á
kvöldin, en aukasýningar á mið-
nætti föstudaga og laugardaga.
Miðana, sem eru ókeypis, er hægt
að nálgast sama dag og myndin
er sýnd, í hinum ýmsu borgarsvið-
um Parísar (Mairies d’arrondisse-
ment). (42.76.67.00)
Frá 27. október til 12. febrúar
verður yfirgripsmikil sýning í
Louvre- safninu á verkum David
hin fyrsta síðan árið 1948.
(42.60.39.26)
Frá 2.-27. maí verða í Grand
Palais“ sýningar á ballett Maurice
Béjart „1789“, sem var sérstak-
lega saminn í tilefni afmælisins.
Ballettflokkur Béjart „Ballett de
Lausanne" mun dansa undir tón-
um frá fyrstu, sjöundu, áttundu
og níundu sinfóníu Beethovens.
Miðaverð verður frá 850-2.050
króna. (48.78.75.00). Einnig má
panta miða frá: Entrée Spectales,
BP 27509, 75424 Paris Cedex 09.
Hagnýtar upplýsingar: Frá
miðjum april verða söluturnar
opnir, sem gefa allar upplýs-
ingar um hátíðahöldin og selja
dagskrárbæklinga (kosta um
80 kr.) Bæklingur yfir hátíða-
höld í öllu Frakklandi er fáan-
legur á „Mission du Bicentena-
ire, 7 Avenue Franco Russe,
75007 Paris (45.67.17.89). Bæk-
ur, skýrslur og upplýsingar um
frönsku byltinguna og hátíða-
höldin er líka að finna í „Med-
iathéque de la Revolution" inn-
an Beaubourg, frá mars fram
í september (42.77.12.33). Önn-
ur upplýsingamiðstöð, sem er
opin allt árið er að Espace 89,
á Rue du Pont-Neuf 31
(42.21.06.93). Að lokum hefiir
franska rikisferðaskrifstofan
og alþjóða ferðamálaráðið
komið upp tollfijálsu símanúm-
eri (800-891-2828), sem gefur
upplýsingar um helstu við-
burði, veður og veðurhorfur,
gengi á gjaldmiðlum og fleira.
Hátíðahöld utan Parísar
Af sögulegum, tæknilegum,
sjónrænum og ijárhagslegum
ástæðum munu aðalhátíðahöld
tvöhundruð ára afmælisins fara
fram í París og Versölum. Þetta
á samt ekki að hefta afmælis-
gesti frá því að fara út á lands-
byggðina eða út í „province"
(mjög franskt orð, sem nær yfir
öll frönsk landssvæði utan París-
ar). Aðalmerkisdagamir verða
haldnir hátíðlegir í sérhveiju
frönsku sveitaþorpi, bæ og borg.
Einnig verða hátíðahöld allt árið
víðsvegar um Frakkland, þó að
ekki sé ennþá búið að fastsetja
dagsetningar.
Dagana 9.-16. júlí verður mikið
um að vera í höfn Rúðuborgar
(Rouen), þegar 90 af stærstu segl-
bátum heimsins safnast þar sam-
an. Alla þá viku verða hljómleik-
ar, leikhússýningar og menning-
arviðburðir, sem beinast að þema
byltingarinnar — bæði innandyra
og utan í Rúðuborg. Upplýsingar
fáanlegar á „Mairie de Rouen“
(35.08.69.00) eða á aðalferða-
Margir koma við á hæðinni til að skoða hina undurfogru, hvítu
byggingu „Sacré-Cæur“ — kirkju heilags hjarta — og útsýnið
yfir París.
Dómshöllin og Conciergerie-fangelsið — séð frá Signu.
með gamlar bækur, málverk, myndir og fleira áhugavert — eru
Útimarkaðir í sýningarkössum —
víða meðfram Signubökkum.
skrifstofunni (35.71.41.77).
Franska borgin Montpellier í
Suður-Frakklandi mun sviðsetja
umfangsmikla rokktónleika 26.
ágúst. Tónleikamir heíjast
síðdegis á afmælisdaginn og
standa alla næstu nótt. Upplýs-
ingar í aðalferðaskrifstofu Mont-
pellier (67.79.15.15).
Borgin Marseille mun setja á
svið sinn eigin borgardómstól,
þegar mannréttindayfirlýsingin er
200 ára. Leikendur munu koma
fram fyrir hönd Marseille-borgar
og borgin verður dæmd „sek eða
saklaus “eftir því hvernig hún
reynist hafa rækt skyldur sínar
við borgarana. Dómur verður sett-
ur og áhorfendur munu dæma
fyrir framan dómshöllina í Mar-
seille, dagana 17., 18. og 19. júní.
Upplýsingar í „Marie de Mar-
seille“ (91.55.11.11).
Oddný Sv. Björgvins
Louvre
Hótelde
Ville
La Bourdonnais-
Endastöð
PortdeSolférino-^
Musée d’Orsay
Musée
d’Orsay
Dame
<3So
Quai Montebelio-
NotreDame
ÉÉá
Nýja feijuleiðin milli Eiffel-turns og Hótel de Ville.
Ný ferjuleið eftir Signu
Fyrsta maí verðúr farin ný
feijuleið eftir Signu í miðborg
Parísar, sem ber nafnið „Bate-
aux-leiðin“. Feijurnar munu
sigla milli Eiffel-tums og Hótel
de Ville, með þremur viðkomu-
stöðum á leiðinni — fara frá
La Bourdonnais-bakkanum við
Eiffel-tura, á 45 mínútna bili,
frá kl. 10 f.h. til kl. 8 e.h. Ferð-
in tekur um klst.
Þessi feijuleið var áður notuð
fram til ársins 1934. Ferðimar
bakkanum, á móti Louvre;
Monte-bello við Notre Dame
kirkju og á hægri bakka — við
Hótel de Ville. Fargjaldið er á
milli 160-240 krónur, sama hvaða
vegalengd er farin. Feijurnar
munu ganga fram til 30. septem-
ber, en þá verður ákveðið hvort
þjónustunni verður haldið áfram
með sama sniði eða hvort við-
komustöðum verður íjölgað upp í
11.
eru frábrugðnar þeim sem nú eru
famar eftir Signu, þar sem far-
þegar geta farið frá borði og kom-
ið um borð á hveijum viðkomu-
stað. Aðaltilgangur ferðanna er
að draga úr hinni geysiþungu
umferð með strætisvögnum og
Parísarbúar og ferðamenn eru
hvattir til að nýta feijurnar.
„Bateaux-leiðin mun þjóna fjór-
um viðkomustöðum — La Bour-
donnais við Eiffel-turn; de Sofém-
ino-Musée d’Orsay; Malaquais-