Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1990, Síða 9
FEREmBmÐ
LESBÓKAR
1. SEPTEMBER 1990
Porto 1870, séð með augum listamanns.
Á lítt þekktum slóðum í Norður-Portúgal
Hjarta Portúgals
slær í gömlu Porto
Gengið eftir öngstrætum Ribeira, milli kastalakirkju og hafnar
Það er faðmast og kysst á bökkum Douro við Ribeira. Á rúmhelg-
um dögum er markaður alltaf i gangi þar. Porto er besta verslun-
arborg í N-Portúgal.
Suðlægar sólarstrendur draga til sín — og íslenskir ferðamenn
þekkja Albufeira og Estoril næstum eins vel og Torremolinos og
Costa Brava. Portúgalskir landkönnuðir fyrri tíma hefðu ekki
náð langt, ef útþráin hefði alltaf dregið þá til sömu áfangastaða,
eins og marga „Iandkönnuði nútímans"! Fáir íslendingar þekkja
norðurhluta Portúgals eða Spánar. — Hvemig væri að gerast
landkönnuður og fara í ratleik út frá gömlu Porto? Allt er svo
ósnortið, að engu líkara en við séum fyrstu ferðamenn á þessum
slóðum! Við staðnæmust fýrst í hjarta Portúgal, gömlu höfuðborg-
inni Porto.
Góð þjónusta, bros og þægindi
á navigator-farrými styttir rúm-
lega tveggja tíma flug frá Lond-
on. Og Portúgal birtist fyrr en
varir. Hvítar húsaþyrpingar á
efstu hæðum, „castros“, svipaðar
kastalavirkjum, voru hér strax á
2. öld e.Kr. — Hvítar strandlengj-
ur í tugum kílómetra. Gróðursæl
fjöll í fjarska. Blár himinn. Gömul
menning, fagurt landslag, veð-
urblíða er allt á óskalista ferða-
mannsins. En hvernig þjóð býr
hér í vestuijaðri Evrópu — í ná-
grenni við Afríku — á mjórri
strandræmu, með ólgandi Atl-
antshafið eins og vegg á móti sér?
Portúgalar hafa alltaf skorið
sig úr öðrum Evrópuþjóðum. Haf-
ið var þeirra samgönguæð. Og á
gullöld þeirra, nýlendutímanum
voru tengslin meiri við Afríku en
Evrópu — meiri við fjarlægar
Asíuþjóðir, en Spánveija hinum
megin fjallsins. — Ekki skrítið,
þó skrautlegir bátar, „caravellas",
séu þjóðartákn. Ævintýraleg
fortíð umlykur Portúgal. Hingað
flæddu ótrúleg auðæfi frá öllum
heimshornum. Gull frá Brasilíu.
Silki, fílabein, dýrir steinar og
krydd frá Austurlöndum. — Ekki
undarlegt, þó að Portúgalar sjái
fyrir sér gullkistur fólgnar í jörðu,
kannski undir Maríustyttum við
veginn. Og portvínið streymdi úr
eikartunnum barkarskipanna og
varð heimsfrægt. Og ennþá sigla
skipin með portvín frá gömlu
Porto.
300 km hraðbraut milli
Lissabon og Porto
Lissabon og Porto. Systur eða
óvinir? Höfuðborgir eitt og tvö —
eða báðar númer eitt, eins og
N-Portúgali staðhæfir. Tvær
milljónir íbúá eru í Lissabon, ein
í Porto. Báðar standa við mikla
árósa út í Atlantshaf. — Hvað er
ólíkt með þessum stærstu borgum
Portúgals? Portúgalar segja sjálf-
ir, að þær sýni innri og ytri mann
portúgalskrar þjóðarsálar. Lissa-
bon er hin glaðlynda borg, opin
fyrir ytri áhrifum og tískufyrir-
brigðum. — í birtu Miðjarðarhafs-
ins taka húsaþyrpingar hæðanna
á sig bleikt endurskin. Lissabon
býr yfir líflegu nætur- og götulífí
eins og borgir við Miðjarðarhaf.
Porto er borg norðursins og öll
þyngri. Hér býr kjarni portú-
galskrar þjóðarsálar. Hætt við að
þeir ferðamenn, sem vilja aðeins
næturlíf og fjör, snúi fljótt héðan.
En oft eru falin sannindi í máls-
háttum og einn portúgalskur seg-
ir: „Þú ferð í gegnum Lissabon,
en kemur til Porto.“ Gamla Porto
leynir á sér.
Porto fastheldin á gamlar
siðvenjur
Meðfram árbökkum Douro bjó
áður aðalinn, sem er óðum að
víkja. Mörg þessi „hallarhús" hafa
breyst í fín veitingahús. Við sitjum
með Renato frá Porto á veitinga-
húsinu Antóníó og horfum út yflr
slagæð Porto. Ennþá er höfnin
iðandi af lífi. Flutningaskip og
togarar sigla fram og til baka.
En gömlu bátarnir, sem áður
fluttu víntunnur frá bændum, eru
nú söguleg prýði við fljótið og ýta
aðeins úr höfn með ferðamenn
innanborðs.
„Já, við vinnum mikið hér í
Porto, framleiðum mikið og flytj-
um út,“ segir Renato. í Lissabon
er meiri verslun og þjónusta, en
Porto er miðstöð fjármagnsins í
landinu. Vínið er mikilvægast. En
héðan koma líka margskonar iðn-
aðarvörur t.d. úr bómull og leðri,
dósamatur og leirmunir, framleitt
í nágrenninu. Porto er líka þekkt
verslunarborg. Við í Porto erum
fastheldin á gamla siði. Á meðan
hefðbundin 3 dagblöð eru gefin
út hér, eru 7-10 dagblöð gefin út
í Lissabon.“
Kastalakirkjan á hæðinni
Við horfum yfir Porto frá
kirkjuvirkinu eða dómkirkjutorgi.
í Porto þjónaði kirkjan hlutverki
kastalans. Dómkirkjan Sé var trú-
arvirki á 12. öld og minnir meira
á kastala en kirkju. Fjórtándu
aldar kirkjuturn úr graníti rís
stakur við torgið — biskupahöll