Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1990, Qupperneq 16
B I L A R
PREVIA
- ferða- og flölskyldubíll
frá Toyota
Previa heitir nýr bíll frá Toyota sem
kom á markað í Evrópu fyrr á
þessu ári. Hér er um að ræða einn
af þessum bílum sem hannaður
er fyrir þá sem vilja ferðast á þægilegan
hátt og geta tekið með sér hvort heldur er
nokkra farþega eða nóg af farangri eða
bara hvort tveggja. Previa verður hugsan-
lega fáanlegur hér á landi á næsta ári.
Previa er sjö manna bíil og farangursrými
er auk þess nokkurt en hægt að auka það
til muna noti menn ekki öll sætin. Hann
er framleiddur bæði afturdrifinn eða með
sítengdu aldrifi. Vélin er ný, 16 ventla, 2.400
rúmsentimetra og 132 hestafla. Hún er stað-
sett undir miðjum bílnum en þrátt fyrir það
er gólfið slétt og því þægilegt að ganga um
bílinn. Fjórhjóladrifsútgáfan er með fimm
gíra beinskiptingu. Bíllinn er 1.635 til 1.735
kg að þyngd, hann er með sjálfstæða gorma-
ijöðrun á öllum hjólum og vökvastýri.
Helstu mál eru: Lengd 4,76 m, breidd
1,80 m og hæð 1,84 m. Bensíntankur tekur
75 lítra og eyðsla í blönduðum akstri er
talin vera yfir 13 lítrar á hundraðið en fara
niður í tæpa 9 í jöfnum akstri á 90 km
hraða. Hámarkshraðinn er 170 km og bíllinn
er 11,5 sekúndur að ná 100 km hraða úr
kyrrstöðu. Verðið á Previa er í Þýskalandi
frá um .1.600 þúsund krónum en á þessari
stundu er ekki enn vitað hvenær von er á
bílnum hingað til lands né hvert verðið verð-
ur.
jt
Previa tekur sjö manns í sæti og hefur auk þess nokkurt farangursrými. Hægt
er að snúa miðjustólnum fram eða aftur.
VINSTRIAKREININ
Stórborgarbragurinn á umferðinni í
Reykjavík krefst þess að ökumenn að
lagist, rétt eins og við gerum kröfu til þess
að gatnakerfið aðlagist. Sú aðlögun gengur
þó hægt því á hveijum degi má sjá dæmi
þess í umferð inni hjá okkur. Eitt atriðið
er notkun á vinstri akreininni en það er
kannski að bera í bakkafullan lækinn að
minnast á það.
A tveggja akreina götum borgarinnar sem
eru farnar að teygja sig um hana þvera og
endilanga og yfir í nágrannabæina á hægri
akreinin að vera fyrir hægfara ökumenn en
sú vinstri fyrir þá sem hraðar fara yfir.
Þessa meginreglu virðist hins vegar oft erf-
itt að virða í raun. Ökumenn koma inn á
þessar götur og lenda á hægri eða vinstri
akrein og halda sig þar. Mörgum dettur
ekki í hug að skipta frá vinstri til hægri
af því þeir ætla einþvern tíma að taka vinstri
beygju.
Þegar umferð er lítil skiptir þetta kannski
litlu máli. Ef einhver ekur hægt á vinstri
akrein er næsta auðvelt að aka framúr hon-
um hægra megin. í mikilli umferð er þetta
hins vegar hvimleitt. Oft má sjá hvar öku-
menn sem lenda aftan við þessa rólegu
vinstri sinnuðu ökumenn taka að blikka ljós-
um og flauta til að vekja á sér athygli.
Ekkert fær hins vegar raskað ró þess rólega
og hann fer ekki að ómaka sig við að skipta
um akrein.
Ennþá hvimleiðara er þetta þegar stórir
bílar eiga í hlut. Stundum dettur mér í hug
að vörubílstjórar séu að reyna með sér við-
bragðið tii dæmis við götuljós þegar þeir
stilla tíu eða tuttugu tonna trukkunum upp
hlið við hlið, jafnvel steypubílum. Og þó að
þessir bílar nái góðri ferð þá er viðbragð
þeirra mun seinna en fólksbfla og þeir óþol-
inmóðu komast ekki framúr. Bflstjórar á
svona atvinnutækjum ættu því að reyna að
halda sig á hægri akrein. Það getur varla
verið að það dragi svo úr akkorðinu þótt
þeir bíði stundum einu ljósinu lengur.
Við látum þessa mynd fylgja þessari umfjöllun um Toyota en hún er úr tímarit-
inu um Toyota á Islandi. Þetta er Crown Deluxe, fyrsti Toyota-bíIIinn sem skráð-
ur var á Islandi, hinn 10. júní 1965. Páll Samúelsson stendur hér við bílinn sem
hefur nú verið endurbyggður frá grunni og verður sýndur í sýningarsal Toyota
við Nýbýlaveg.
Previa frá Toyota er skemmtilega hannaður bíll.
Tölvukerfi notað við
árekstratilraunir
Samanburður á útkomu upplýsinga eftir árekstratilraunir í tölvu og raunveruleg-
ar tilraunir. Heila línan sýnir upplýsingarnar úr tölvuherminum en brotna línan
raunverulegar tilraunir.
Tölvutæknin ryður sér sífellt meira til
rúms í bílaiðnaði. Tölvan er löngu orð-
in grundvallarverkfæri við svo til alla þætti
sjálfrar framleiðslunnar og hún er sífellt
meira notuð við hönnun. Auk þess hefur
hún á síðari árum í auknum mæli verið sett
í bílana sjálfa til að gegna þar ýmsum hlut-
verkum, stjórna innsprautun, sjálfskiptingu,
fjöðrun og svo mætti lengi telja. Tölvu má
líka nota til ýmissa rannsókna og eitt sviðið
eru. árekstrar. Hafa tæknimenn Nissan-
verksmiðjanna náð langt á þessu sviði. Með
tölvustýrðum hermi og tilheyrandi hugbún-
aði má kanna hvernig tiltekinn bíll verður
útleikinn eftir högg.
Öryggistilraunir eru stór þáttur í bíla-
framleiðslu og margir framleiðendur leggja
nú meiri áherslu á að sýna fram á og sanna
með dæmum hvemig bflar þeirra koma út
í árekstri. Og raunar ekki aðeins bílarnir
heldur einnig farþegamir. Hvaða meiðsli
hljóta þeir helst og hvað veldur þeim. Er
það þegar bijóstkassinn lendir á stýrinu,
þegar hnén rekast í mælaborðið, þegar höf-
uðið rekst í framrúðuna eða þegar farþeginn
aftur í hendist á þá sem sitja í framsætun-
um?
Fram til þessa hafa menn einkum athug-
að þessi atriði með því að koma fyrir sérbún-
um brúðum í bíla sem iátnir eru klessa á
hindran á sæmilegum hraða. Mælitæki og
myndavélar veita vísindamönnum síðan upp-
lýsingar um hvað raunverulega gerist. Með
þessu móti verður vitaskuld að eyðileggja
nokkra bíla og taka þessar tilraunir oft lang-
an tíma fyrir utan það hversu dýrar þær eru.
Flýtir fyrir hönnun
Tæknimenn japönsku Nissan-verksmiðj-
anna hafa fyrir nokkru hafið tilraunir með
tölvubúnað sem leysir sjálfa bílana af hólmi
- að nokkru leyti að minnsta kosti. Þeir
hafa i samvinnu við Þjóðveija hannað kerfi
sem gerir þeim kleift að athuga á tölvu-
skermi hvernig bíl reiðir af við högg. Það
tekur þá um hálfa vinnuviku að mata tölvu-
búnaðínn á upplýsingum um sjálfan bílinn
og ýmsar aðstæður en að því loknu má líka
„klessa“ saman bílinn eins oft og menn lyst-
ir. Ef ljóst er að hann stendur sig ekki nóg
vel verður bara að breyta hönnun bílsins
og prófa að klessa hann á ný. Þannig má
prófa sig áfram uns sterkur bíll er fenginn.
Þegar hér er komið sögu fara hins vegar
fram raunveralegar árekstratilraunir til að
ganga úr skugga um að hlutirnir séu í raun
eins og tölvan hefur upplýst. Línuritið sem
fylgir hér með sýnir að ekki er mikill mun-
ur á tölvunni og sjálfum bílnum. Þessi bún-
aður hefur sérstaklega flýtt fyrir hönnun
og endanlegum frágangi á framenda bílanna
en oftast nær kemur mesta höggið á fram-
endann.
Þétta á reyndar við um alla hönnun
bílsins. Þegar árekstratilraunir sýna að eitt-
hvað lætur undan eru ástæður þess kannað-
ar og bætt úr. Sem fyrr segir má síðan
hefja sjálfar árekstratilraunirnar þegar búið
er að hanna og prófa bílinn í tölvukerfinu
eða árekstraherminum. Frumgerðin sem þá
er smíðuð ætti að vera nokkuð endanleg
gerð og komi ekkert nýtt í ljós varðandi
hönnunargalla eða rangt val á efni má
líklega hefja sjálfa framleiðsluna. Tækni-
menn Nissan telja að þessi aðferð eigi eftir
að ryðja sér mun meira til rúms á næst-
unni. Segja þeir að tilraunatíminn sé nú lið-
inn og framvegis verði unnið á þennan hátt
við bílahönnun.
jt
16