Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Blaðsíða 7
Börn á eyjunni Ambon. Merkilegt að á þessari suðrænu paradísareyju skuli vera fólk með andlitsfall og litarhátt, sem minnir á Eskimóa í Grænlandi. unnar og einn presta hans, báðir uppdubbað- ir heldur ókirkjulega. Biskupinn var í íslenskum bol sem ég hafði fært honum árið áður og í stuttbuxum og presturinn í gauðslitnum gallabuxum og gömlum bol. Nokkru síðar vorum við komnir til smá- þorps rétt utan við Ambonborg, Amahusu, þar sem beið okkar lítill 20 feta bátur með 40 hestafla utanborðsmótor og segldúks- þekju til að veija okkur gegn sólinni sem þegar var orðin ruddalega ágeng. Áhöfnin var flórir menn. Einn stýrimaður, einn útkíksmaður, einn nokkurs konar veiði- sveinn og eftirlitsmaður með öllum veiðar- færum, og sá fjórði sá um afganginn, svo sem að fylla á vélina úr bensínkútunum eða á okkur úr bjórdósum og hnetupokum. Sá áttundi um borð var svo vinur okkar frá Þýskalandi. Sá spurði heldur efins hvort hann mundi nokkuð vita af því ef svo ólík- lega vildi til að hann setti í fisk. Heima- menn sögðu honum að hafa ekki neinar áhyggjur, það færi ekki á milli mála. Dagurinn reyndist dásamlegur á marga vegu. í fyrsta lagi var ijómastilla og hrein unun að sigla þetta 10-12 mflur út á opið haf. Við vorum varla komnir út úr Ambon- flóa þegar lumba-lumba tóku að elta okkur, höfrungar sem upphófu ýmsar sprellikúnst- ir sem maður sér venjulega ekki nema í sædýrasöfnum eða í sjónvarpi. Hvert risa- stökkið á fætur öðru, tveir og þrír í full- komnum takti, allir í sólskinsskapi, rétt til að hressa enn frekar upp á ferðina hjá okk- ur. Og þar sem er lumba-lumba er venju- lega líka túnfiskur. Engin hætta á að höfr- ungarnir taki beituna — þeir vita sínu viti. Nú er öllum sagt að hafa til græjumar og búa sig undir mikil átök. Við vorum með sex feta stengur úr trefjagleri og notuðum Rapala minnow nr. 9 frá Finnlandi, en það er vinsælasta beitan á Ambon fyrir utan lifandi beitu, sem ég afþakkaði kurteislega. Línan var 400 metra, 50 lbs einstrengslína með áföstu stálgimi eitthvað eins metra löngu. Veiðiaðferðin var fólgin í að draga u.þ.b. 100 metra af línunni á eftir bátnum á tveggja til þriggja metra dýpi. Línudrátturinn og leikur höfmnganna kveikti í þeim innfæddu sem tóku að syngja við raust — sko, þeir trúa líka á svona lag- að — kokolokokoo, kokolokokoo, kokolo- kokoo. Og viti menn, orang orang putih, hvítu mennimir, fundu hann taka samstund- is. Við vomm auðvitað mjög spenntir en einnig hálfskelfdir, því enginn okkar hafði áður sett í túnfisk. Stýrimaðurinn Fred drap strax á vélinni og hvinið í hjólunum magnað- ist um leið og fiskurinn tók á rás. Beint strik áfram, og maður greip um stöngina í dauðans angist. Ekki taka á móti, bara halda við línuna, var okkur sagt. Allt i einu slaknaði á línunni. Það var greinilegt að fiskurinn varð að kasta mæðinni, og það var vel þegið okkar megin. Það var ekkert smáverk að hala inn. í smáiykkjum innbyrtum við línuna, drógum fiskinn ögn nær, eða kannski bátinn nær fiskinum, þar til við sáum myndarlegan, rennilegan skærgulan fisk í kristaltæmm sjónum í Bandaflóa. Allt hafði þetta tekið svosem hálftíma. Fiskurinn var búinn að reyna að komast undan með miklum látum í snöggum rykkjum, ekki ólíkt laxinum heima á íslandi, nema töluvert kröftugri. Og, viti menn, rétt í þann mund sem krækja átti í túnfiskinn minn myndarlega tók hann undir sig glæsilegt stökk og sleit línuna beint fyrir framan nefið á aumingja mér. En vinur okkar átti ekki í neinum erfiðleik- um með sinn fisk, sem innbyrtur var með miklum gleðihrópum, enda 26 pund, sem ekki er til að fúlsa yfir. Við fengum tækifæri til að öskra tölu- vert þennan morgun, en stundum lá okkur líka við gráti þegar boldangamir réðust á beituna, og drógu meira að segja einu sinni alla 400 metrana út og slitu svo allt draslið. Minnisstæðastur er mér barrakúdafiskur- inn sem ég náði um borð. Þegar þessi 22 punda bolti smeliti sér á beituna varð eins og sprenging, og félagar okkar sáu strax að hér var á ferðinni barrakúda. Þegar loks tókst að krækja í hann þakkaði ég mínum •sæia- -fyrir- að- hafa- ekki -ient- með -löppina i uppi í ógurlegu gininu á honum. Þegar leið að hádegi vorum við búnar að missa fjóra fiska og næla okkur í jafn- marga. Þetta voru 30 punda túnfiskur og svo áðurnefndur 26 punda boldangur, 22 punda barrakúda og svo 20 punda fískur sem ég man ekki hvað heitir, mikill baráttu- fiskur sem veiðist einungis á þessum slóðum. Útataðir í blóði en notalega uppgefnir komum við aftur til lands um hádegisbil, fengum okkur vænan skammt af nasi gor- eng með kangkung (grænmetistegund, ekki óáþekk spínati), og ferskri kókoshnetumjólk og strengdum þess heit að fara í aðra eins veiðiferð áður en langt um liði. Ekki svo að skilja að veiði sé eina afþrey- ingin á Ambon. Eyjan er stijálbyggð, snyrti- leg þorp á víð og dreif, og fólkið sérdeilis indælt. Allt þetta rétt eins og klippt út úr rómantískum ferðapésa frá Vesturlöndum. Hvítar strendur, litrík kóralrif, og í bak- grunninum tíguleg kókostré. Og ef þú þreyt- ist á dýrðinni ofansjávar getur þú með sund- gleraugum meðtekið herlegheitin yfir kóral- rifunum, þar sem þúsundir litríkra físka líða um sjóinn í allri sinni tign. Á landi er líka margt um dýrðir. Til dæmis álamir „helgu" í Waai sem innfædd- ir lokka fram úr fylgsnum sínum með hráum eggjum. Ef þú ert svo heppinn að laða til þín vemlega myndarlegan ál, þetta tveggja metra langan, tryggir það þér velfarnað það sem eftir er dagsins. Eða dagsferð til ná- grannaeyjarinnar Seram, fyrrum heimahaga hausaveiðara, þar sem Rumakhai-fossinn fellur í allri sinni tign, o.s.frv. Engin hætta á að manni leiðist. Okkur í íjölskyldunni dreymir öll um það að fara til Banda-eyja — fram á 19. öld var það eini staðurinn á jarðríki þar.sem fannst negull og múskat — vera þar í svosem vik- utíma, snæða ferskan túnfisk, veiða, hvfla sig og grafast kannski fyrir um sögu eyj- anna. Meðal fomra menja þar má nefna hollenska Nassau-virkið frá 16. öld, sem nú hefur veirð endumýjað og uppgert, gömlu kirkjuna frá 17. öld. Þama var Mo- hammed Hatta, einn af feðmm Indónesíu, í útlegð á nýlenduárum Hollendinga, og þar, árið 1621, lét Jan Pieterszoon Coen, hinn grimmi landstjóri Hollensku Austur- Indía, japanska atvinnuhermenn strádrepa íbúa eyjanna, þannig að af 15.000 innfædd- um lifðu einungis af fimm hundmð. í fylkinu Maluku, en Ambon er höfuðborg þess, er ánægjulegt að fylgjast með hinu litríka og margþætta samfélagi Indónesíu, þar sem mótmælendur, kaþólskir, múslimar, hindúar og búddatrúarmenn hvarvetna að úr Indónesíu lifa saman í sátt og samlyndi. Og hvað kostuðu svo ósköpin? Ja, mér reiknast til að ef allt er til tekið, allt frá Keflavík til Ambon og heim aftur, tveggja vikna hóteldvöl, mat, drykk, bát, áhöfn, beitu o.s.frv. þá jafnast kostnaðurinn á við átta daga veiðitúr í nokkuð sæmilegri lax- veiðiá á íslandi þar sem veiðileyfið kostar ekki nema (!) 25.000 krónur dagurinn og gisting og trakteringar í veiði„kofanum“ aðrar 6.000. Höfundur er hagfræðingur og býr á íslandi Á víð og- dréif Islensk þjóðmenn- ing 1936 og fimmtíu árum síðar Arið 1936 kom út bókin „íslenskir þjóðhættir“ eftir sr. Jónas Jónasson á Hrafnagili. Bók þessi var fyrsta tilraun til heildarkynningar á íslenskri þjóðmenn- ingu, þjóðháttum, kristnihaldi, þjóðsögum, atvinnuháttum, tímatali o.fi. o.fl. Bókin vakti óskipta at- hygli og var mjög eftirsótt. Síðan hafa komið út fjórar útgáfur svo til óbreyttar. Viðtökurnar voru allar á eina lund, verk höfundarins var metið að verðleikum og áhuginn fyrir þessum fræðum sem hafði alltaf verið vakandi, jókst við útkomu rits- ins, eins og marka má af endurútgáfum. Fimmtíu árum síðar og einu ári betur kom út fyrsta bindi nýrrar þjóðmenningar- sögu, „íslensk þjóðmenning" 1987. Þetta verður safnrit í alls tíu bindum og eru nú komin út fjögur bindi. Ritið verður ítarlegt og þau bindi sem þegar eru komin bera vott um vönduð vinnubrögð og komu til skila þeim þáttum sem um er fjallað á greinargóðan og skýran hátt. Efnissviðið er mjög vítt: Uppruni og umhverfi íslenskr- ar þjóðar og menningar, jarðyrkja, kvik- fjárrækt, sjósókn, byggingarhefð, vinnsla landbúnaðarafurða og sjófangs, trúar- hættir, alþýðuvísindi, málmenntir og bók- menntir, samgöngur og félagslíf. Efnisval- ið er afmarkað við það forna samfélag, miðaldasamfélagið, sem lifði hér allt fram á þessa öld. Leitast er við að draga upp mynd af hvunndagsiðju og lífi fólksins í landinu, veita innsýn í meðvitund aldanna og sambúð lands, þjóðar og búsmala og not annarra úrkosta til lífsframfæris. Það eru nú liðin um 130 ár frá því að Benedikt Gröndal skáld tók sér fyrir hend- ur að afla sér heimilda til ritunar íslenskr- ar menningarsögu, en efnið reyndist hon- um ofviða, enda vart á færi eins manns að vinna slíkt stórvirki. En nú hefur þetta starf hafist og miðar vel áfram. Viðtökur þessarar nýju og ítarlegu menningarsögu eru þó mjög frábrugðnar viðtökum þjóðhátta Jónasar Jónassonar, á sínum tíma, fyrir fimmtíu árum. Fyrsta útgáfan seldist fljótlega upp, þótt ritið kæmi út á svonefndum Kreppuárum og þjóðin væri févana. Fyrsta bindi og þau þijú næstu sem út eru komin af „ís- lenskri þjóðmenningu", seldust dræmt, sem er furðulegt þegar um slíkt lykilrit í sögu þjóðarinnar er að ræða. Svo virðist sem áhugi landsmanna í menningarsögu og fortíð þjóðarinnar sé eitthvað daufari nú en fyrir fimmtíu árum. Þetta bendir óneitanlega til sljórri vitundar og skyns á menningu þjóðarinnar og sögu fram undir vora tíma, þótt stöðugt sé talað um „arf- leifðina“ og menningararf þjóðarinnar. Þær hvatningar og sú umíjöllun eiga sér takmarkaðri svörun en fyrir fimmtíu árum. Það er víða fjallað um menningarskil, sem ýmsir höfundar og hugsuðir telja merkjanleg síðustu áratugina (sbr. t.d. Carl Riedrich von Weizáker: Bewust- seinswandel og Alain Finkielkraut: La Défaite de la Pensée). Höfuðeinkennin eru lokun allrar menningar fortíðarinnar, sem hlýtur óhjákvæmilega að þýða hrun, menn- ingarlegt hrun, því að hlutur menningar hvers tíma er að mest öllu leyti grandvall- aður á menningarlegri arfleifð. Þjóðtungan er augljósasta dæmi þessa. Menningu og þjóðtungu fámennrar þjóð- ar er sérstaklega hætt, þegar tengslin við fortíðina rofna að einhveiju leyti, og verði lokun meðvitundarinnar, meðvituð eða ómeðvituð stefna „tíðarandans" allsráð- andi, þá breytast öll viðhorf, ekki síst þeg- ar einkenni „herra tíðaranda" er áberandi oft lágkúran. Útgáfa „íslenskrar þjóð- menningar" gengur þvert á lágkúrana. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. JÚLÍ 1991 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.