Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Síða 12
Staldrað við
1 Staðarskála
Frá
Byggða-
safninu
að Reykj-
um.
Tjaldsvæði, sumarhús og
veiði
Á bökkum Hrútafjarðarár er
snyrtiaðstaða fyrir tjaldfólk. Á
neðri hæð Staðarskála eru gisti-
herbergi og fyrir ofan veg er lítill
sumarbústaður til leigu. Þeir
Staðarbræður eiga sér draum um
að reisa hér orlofshúsabyggð. Að
efla ferðaþjónustu í sýslunni. Og
ferðamenn eiga eftir að leita í
upplýsingahornið í Staðarskála.
Já, kannski á Staður eftir að
breytast í áfangastað, ekki aðeins
viðkomustað á hraðleið. Klukku-
tímaleið er héðan upp á Arnar-
vatnsheiði, þar sem stöngin er á
um 2.000 kr. yfir daginn. Frá 15.
september og fram eftir hausti
er tími gæsaveiðimanna. „Ákveð-
inn kjarni íslendinga stundar
gæsaveiðar og kemur ár eftir ár,“
segir Magnús í Staðarskála.
„Veiðileyfið var á 600 kr. yfir
daginn í fyrra.“ Og nálæg heiða-
lönd eru mikið notuð fyrir vél-
sleðaleiðangra að vetrarlagi.
Byggðasafnið að Reykjum
Oft hefur mig langað til að
skoða Byggðasafnið að Reykjum
og nú læt ég verða af því. Áðeins
2-3 mínútur að aka afleggjara frá
þjóðvegi sem er vissulega þess
virði. Segja má að safnið hafi
orðið til vegna hákarlaskipsins
Ófeigs. Skáli var reistur yfir þenn-
an áttæring (eitt stærsta íslenska
skip á seinni hluta 19. aldar) — og
í framhaldi skipaskálans reis
byggðasafn. Hákarlaskipið er því
. happafley, bæði á sjó og landi!
Lifrartunnur, kræklingahrífur
og vaðsteinar frá 1860. Strangar
hákarlalegur hjá sjómönnum sem
sóttust aðeins eftir hákarlalifr-
inni. Upplýst líkan af þekktu
verslunarhúsi V-Húnvetninga á
Hvammstanga frá 1906-7. Pré-
dikunastóll frá Grímstungukirkju
sem var lögð niður 1881. Og brúð-
argjöf frá 1905, til Friðriks Jen-
sen kaupmanns og Sigríðar —
sykurker, kaffí- og rjómakanna -
frá Matthíasi Jochumssyni. Og
konur hafa ofið eiginmönnum
sínum úrfestar úr eigin hári. -
Voru þær kannski betri við eigin-
menn sína þá? Fordinn frá 1930
sýnir, að póstferðir á hestum eru
að leggjast niður - hann var
fyrsti leigubíll sýslunnar!
Týndur kirkjulykill
Allir ættu að koma við í Þing-
eyrakirkju, sem er ein merkasta
kirkja á landinu. En það getur
verið púsluspil fyrir ferðamenn
að fá að skoða hana. Kirkjulykill-
inn er geymdur á bænum Steins-
nesi. En ekkert skilti er við bæ-
inn! Athugið, þetta er fyrsti bær
til hægri við afleggjarann að Þing-
eyrum - gulmáluð bæjarhús.
Reykjavíkurkvartettinn var með
sumarhátíð að Þingeyrum í
síðustu viku og flutti tónlist dag-
lega í kirkjunni. Gott framtak sem
verður vonandi til þess að kirkjan
verði opnari og fólk sæki meira í
hana.
Þingeyrakirkja var byggð
1864-77 úr gijóti sem var sótt í
Nesbjörg og flutt á ís yfir Hópið.
Hún hefur að geyma marga
merka gripi, eins og altarisbrík
frá tímum klaustursins á 15. öld,
prédikunarstól frá 1696 og
skírnarfont frá 1697 (gjafir frá
Lauritz Gottrup). Klaustur var á
Þingeyrum frá 1133 fram að siða-
skiptum 1550 og eitt mesta
menntasetur landsins, þar sem
konungasögur og ýmsar Islend-
ingasögur voru ritaðar. Vítt og
fagurt útsýni er frá Þingeyrum.
Rennt við í Víðidalstungu
Einnig er fróðlegt að heim-
sækja Víðidalstungukirkju (reist
1889) sem geymir altaristöflu eft-
ir Ásgrím Jónsson frá 1916. Víði-
dalstunga var í 500 ár höfuðból
Vídalínsættarinnar. Þar var Flat-
eyjarbók rituð um 1400, ein merk-
asta íslenska skinnbók sem enn
er varðveitt. Af náttúruvættum
má skoða Kerafossa, sérkennileg-
ar flúðir og skessukatla í Fitjá,
skammt fyrir neðan hringveginn
í átt til Víðidalstungu. Skammt
innan við Víðidalstungu eru svo
Kolugljúfur í Víðidalsá, kennd við
tröllskessuna Kolu. Gijúfrin eru
óvíða geng - um 20-25 m djúp
og á annan km að lengd.
V atnsneshringur
Margir aka 90 km hring um
Vatnsnesið. Góð dagleið, því
margir athyglisverðir staðir' eru
til að skoða. Stuðlabergskletta-
borgin Borgarvirki rís upp úr ás-
unum milli Vesturhóps og Víði-
dals. Grjótveggur mikill hefur
verið hlaðinn í skarð og þar er
inngangur í virkið. Rústir af
tveimur skálum eru inni í virkinu.
í Heiðarvígasögu segir frá því er
Borgfirðingar hugðust svelta
Barða Guðmundsson og lið hans
inni í virkinu. En virkisbúar
blekktu umsátursliðið með því að
kasta síðustu matarleifum út fyrir
virkið!
Bærinn Ósar er 25 km frá aðal-
vegi. Þar er nú Farfuglaheimili.
Óvíða er skemmtilegra að ganga
um fjörur, sjá selina bylta sér
umhverfis klettadranginn
Hvítserk, hvítdritaðan af fugli.
Hvítserkur er tvímælalaust eitt
tígulegasta náttúruvætti sýslunn-
ar. Drangurinn rís 15 metra í
flæðarmálinu og minnir á fornald-
ardýr. Um tíma var óttast að
hann stæðist ekki sjávargang, því
voru undirstöður hans styrktar
með steinsteypu.
Vestan á Vatnsnesi er fjöl-
breytilegt landslag með kletta-
brúnum og stöpum, mikill §öru-
gróður. Fögur fjallasýn opnast til
austurs, en Eiríks- og Langjökull
í suðri þegar ekið er fýrir nestána
frá Hindisvík.
Hvammstangi
Að afloknum hring er tilvalið
að stoppa um stund í þjónustumið-
stöð sýslunnar, Hvammstanga.
Ég hafði ekki komið til Hvamms-
tanga um árabil. Því kom mér
skemmtilega á óvart að sjá hvað
bærinn hefur byggst myndarlega
upp. Falleg hús og garðar. Glæsi-
leg útisundlaug með rennibraut
og nuddpotti. Nýtt hótel, en mat-
seðill líkt og á góðum hamborga-
rastað við þjóðveginn.
Tjaldsvæðið er fallega staðsett,
en mætti vera í meiri tengslum
við bæjarlífið. Tjaldbúar í þéttbýli
vilja gjarnan geta gengið í versl-
anir og sundlaug. Stórkostlegt að
sjá afgirt kríuvarp við bæinn og
kríurnar hreyfa sig ekki af hreiðr-
unum þó að umferð sé fast hjá.
Gallerí Bardúsa í gamla verslun-
arhúsinu við höfnina er heimsókn-
ar virði. Ótrúlega vandaðir heima-
unnir munir á góðu verði. Málverk
eftir heimamenn. Smíðaðir kistlar.
Handmálaðir dúkar (um 750 kr).
Nælur úr leir (frá 350 kr.) og
eyrnalokkar úr hvalstönn. Já, það
er sannarlega þess virði að nema
staðar í V-Húnavatnssýslu.
Oddný Sv. Björgvins
Vatnaíþróttir á Svínavatni í Grímsnesi.
Grímsnes:
Vatnaíþróttir á Svínavatni
Á Svínavatni í Grímsnesi er
nú boðið upp á að leigja vatna-
sleða og sjóskíði. Nýjung sem
er örugglega vel þegin af þeim
fjölda fólks sem dvelur í sum-
arbústöðum í nágrenninu.
Leigðir eru eins manns leik-
sleðar, tveggja manna fjöl-
skyldusleðar, sjóskíði og þurr-
gallar í flestum stærðum. Að
auki er hestaleiga á 3-4 hestum
í boði og stangveiði í læk. Einn-
ig eru kaffiveitingar á bænum.
Upplýsingar í síma: 98-64437.
Finnland:
Byggingarlist,
risaferjur og
breysk skáld
ÞÓ AÐ Finnland teljist til Norðurlandanna og Islendingar kalli
Finna frændur þá hafa ferðalög þangað ekki verið ýkja algeng.
Tungumálið hefur auðvitað sitt að segja, en Finnar tala líka
margir afar skemmtilega og auðskiljanlega sænsku, svo þeir sem
slarkfærir eru í skandinavísku ættu að getað bjargað sér. Og
heimsókn til Finnlands er ferðarinnar virði. Flugleiðir fljúga
beint til Helsinki á mánudögum á sumrin, fram til septemberbyij-
unar, svo ekki ætti það að vefjast fyrir neinum að fara þangað.
Þegar hópur blaðamanna sótti
Finnland heim fyrir skömmu var
þó farin hin hefðbundna leið Svía,
þ.e. með stórri feiju frá Stokk-
hólmi til Helsinki. Eftir dálitla töf
á flugi frá Keflavík til Stokk-
hólms, vegna mikillar þoku, rétt
náði hópurinn um borð í feijuna.
Og slík ferð er svo sannarlega
þess virði að fara hana. Þessar
feijur eru engir flóabátar, heldur
risastór skemmtiferðaskip, með
fjölda skemmtistaða, veitinga-
staða, verslana, ráðstefnusala og
auðvitað er þar að finna hið ómiss-
andi fínnska gufubað. íslenski
hópurinn var því ekki einu sinni
kominn til Finnlands þegar gufu-
böðin hófust, sem urðu daglegt
brauð upp frá því.
Feijan Cinderella, sem við fór-
um með, er í eigu skipafélagsins
Viking Line og er nýjasta og
stærsta skipið í flota þess. Skipa-
félagið flytur 8 milljónir farþega
á ári hveiju. Svíar fara gjarnan í
helgarferðir með feijunum, neyta
ódýrra drykkja og matar um borð
og Tá að kaupa ákveðinn skammt
af áfengi og tóbaki tollfrj álst.
Svona njóta þeir lífins um borð,
sigla til Helsinki og heim aftur
um borð í risavöxnum skemmti-
stað. Þeir stíga margir hveijir
ekki einu sinni á land í Finn-
landi, heldur fara heim aftur í
„spritbáten“, eins og þeir kalla
feijuna.
Saga Finnlands
Finnland var hluti af Svíþjóð í
yfir 700 ár, eða allt til ársins
1809, þegar Rússar lögðu landið
undir sig. Helsta ástæða þess var
að Rússar vildu styrkja varnir
sínar í vestri, til að veija nýju
höfuðborgina, Sankti Pétursborg
(Leningrad). Rússar óttuðust að
á miklum ófriðartímum gæti
Svíþjóð, eða sjálfstætt Finnland,
í bandalagi við óvini Rússlands,
veitt óvinum Rússa árásarað-
stöðu. Finnland hélt þó löggjöf
sinni og þjóðfélagsformi; varð
stórfurstadæmi með eigin stjórn-
sýslustofnanir. Eftir byltinguna í
Rússlandi árið 1917 varð Finnland
fullvalda ríki, en átti þó eftir að
eiga í illdeilum við nágranna sína
í austri og er Vetrarstríðið 1939
líklega þeirra þekktast. Þá létust
25 þúsund Finnar í átökunum, en
að heimstyijöldinni síðari meðtal-
inni var tala látinna 86 þúsund,
auk þess sem 189 þúsund særð-
ust.
Finnar og byggingarlistin
Helsinki er snyrtileg borg og
þar er margt fallegra bygginga.
Borgin var endurbyggð úr rústum
eftir hernám Rússa og var ákveð-
ið árið 1812 að hún yrði höfuð-
borg Finnlands. íbúar þar voru
þá aðeins fjögur þúsund, en í dag
eru þeir hálf milljón. Margt glæsi-
legra bygginga var reist, svona
eins og til að sanna fyrir Finnum
að þeir væru vel settir undir
Rússakeisara. Finnlandsforseti
býr til dæmis í höll, sem áður var
höll keisarans. Nýrri byggingar
eru einnig margar glæsilegar,
enda hafa Finnar getið sér gott
orð víða um heim iyrir byggingar-
list sína og þaðan koma ýmsir
frægir arkitektar. Fyrir utan hinn
heimsþekkta Alvar Aalto má þar
nefna þremenningana Saarinen,
Gesellius og Lindgren, sem árið
1902 byggðu sér íbúðarhús og
vinnustofur í Hvittrásk skammt
frá Helsinki. Þangað ættu ferða-
langar að skreppa og skoða húsin,
sem eru úr steini og tré, hönnuð
með það fyrir augum að þau féllu
eðlilega að umhverfinu, finnska
skóginum og vötnunum. Þama
sátu arkitektamir og lærisveinar
þeirra og teiknuðu ýmis stórhýsi,
Heilsuræktar-
dvöl undir Jökli
Arnarstapi á Snæfellsnesi
í NÁTTÚRUFEGURÐ undir Jökli er nú boðið upp á heilsurækt-
arvikur í sumar. Þekktur þjálfari í líkamsrækt, Katrín Haf-
steinsdóttir (Katý í World Class), er umsjónarmaður og Ieiðbein-
andi og sér til þess að fólk fari frískara heim. Við leituðum
nánari upplýsinga hjá Hörpu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra.
„Við viljum bijóta upp ákveðið
ferli með dvölinni," segir Harpa,
„leggja höfuðáherslu á að fólk
gisti í tjöldum, stundi holla úti-
vist og líkamsrækt. En auðvitað
er líka hægt að fá gistingu inni
í Arnarbæ. Mikil áhersla er lögð
á hollan og góðan mat. Kokkur-
inn okkar er Steinunn Júlíusdótt-
ir. Og við verðum með einn besta
þjálfara í líkamsrækt á íslandi,
Katrínu Hafsteinsdóttur. Hún er
með eigin vaxtarræktaræfingar
sem sýna árangur mjög fljótt.
Gerum okkur vonir um að geta
náð öllum aldurshópum, til að
sýna hvað má ná góðum árangri.
Líkamsæfingar fara fram í
50-60 fermetra tjaldi. Ætlum að
vera með grillveislur niðri á
Bleikasandi. Fá fyrirlesara á
kvöldvökur, en vera líka með