Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Page 15
Volvo 850 GLT er ekki ólíkur Volvo 940 og 960 í útliti.
Ýmsar nýjungar
Meðal nýjunga í Volvo 850 má nefna
framdrifið og nýja fimm strokka, 20 ventla,
2,5 lítra og 170 hestafla þverstæða vél. Er
hún sögð ná mjög góðu átaki á nánast öllu
snúningssviði eða milli 2.000 og 6.000 snún-
ingum. lijöðrun afturhjóla er líka nýjung,
kölluð Delta-liðuð, og er hálf sjáifstæð fyrir
hvort hjól. Þá hefur Volvo fengið einkaleyfi
á sérstökum búnaði sem stillir sjálfvirkt hæð
öryggisbeltis miðað við öxl ökumanns í 850
bílnum og hliðarnar eru sérstaklega styrkt-
ar vegna hliðarárekstra, svo og undirvagn
og toppur. Þá er Volvo 850 búinn læsivörð-
um hemlum, rafmagni í læsingum og rúð-
um, vökvastýri og fleiri búnaði sem sjálf-
sagður er í vandaða bíla.
Flutningar á tíunda áratugnum verða að
vera hagkvæmir og öruggir, segja talsmenn
Volvo og segja að 850 falli undir þá skil-
greiningu. Hann sé tæknilega vel búinn,
öruggur og þægilegur, ekki stór hið ytra
en rúmgóður að innan. Segja þeir að bíll
nútímamannsins megi ekki vera of stór og
að lítill beygjuhringur skipti miklu máli
varðandi aksturseiginleika. Beygjuhringur
Volvo 850 er 10,2 metrar.
Þurfum og leiðsögu-
kerfí fyrir umferðina
að 850 bíllinn sé stærsta þróunarverkefni
verksmiðjanna til þessa og hafi farið fram
miklar fjárfestingar vegna þess síðustu
fimm árin. Kynningin í Svíþjóð sem fór fram
11. júní sl. var líka ein hin viðamesta sem
Volvo hefur staðið fyrir til þessa. Vél og
gírkassi eru framleidd hjá verksmiðjum
Volvo í Skövde og Köping, yfirbyggingin í
Þverstæð 2,5 lítra
öflug vél ásamt
nýjum fimm gíra
kassa eru helstu
nýjungarnar í
Volvo 850.
Rúmgott farþegarými
Með því að hafa þverstæða vél og fram-
drif hefur tekist að ná góðu farþegarými.
Það leyfir hins vegar ekki stóra vél eða
fyrirferðamikla en tæknimenn Volvo leystu
það með nýrri vél sem nær eiginleikum sex
strokka línuvélar en hefur þyngd og umfang
íjögurra strokka vélar. Nýr gírkassi var
einnig þróaður til að hæfa þessari vél og
þar unnu saman Svíar og Japanir.
Volvo 850 á í framtíðinni að koma í stað
700 bílanna frá Volvo. Óvíst er þó hvenær
það gerist því gera verður ráð fyrir að 700
línan verði í boði næstu árin, að minnsta
kosti meðan hún selst vel. Síðar mun 850
gerðin einnig koma í ódýrari útgáfum.
Sem fyrr segir er von á Volvo 850 GLT
hingað til lands kringum áramót en Brim-
borgarmenn geta ekki á þessu stigi sagt til
um nákvæmt verð en gera ráð fyrir að það
verði kringum 2,8 milljónir króna.
jt
Gautaborg en samsetning fer fram í Ghent
í Belgíu. Volvo 850 kemur á markað erlend-
is seint í sumar og til Islands kringum
næstu áramót að því er talsmenn Brimborg-
ar, Volvo-umboðsins á íslandi, segja.
Volvo 850 er mjög svipaður Volvo 960 í
útliti eins og sjá má af meðfylgjandi mynd-
um en hann er heldur styttri. Hann er 4,66
metra langur, 1,76 m breiður og 1,4 m
hár. Hjólhafið er 2,665 metrar og hann
vegur 1330 kg.
Volvo fyrirtækið sænska er um þess-
ar mundir að kynna nýja gerð:
Volvo 850 GLT. Hér er um að
ræða nýjan og öðruvísi Volvo,
framdrifinn og með ýmsum nýjungum. Ekki
er langt síðan Volvo kynnti 940 og 960
gerðirnar og er því skammt stórra högga á
milli hjá fyrirtækinu. Talsmenn Volvo segja
Nýr Volvo 850 á
markað seint í sumar
J afn ökuhraði er
hættuminnstur
Við verðum að horfast í augu við
þau vandamál sem samfara eru
bílaumferð og taka á þeim. Þar
á ég einkum við slys og mengun.
Bíllinn og verður jafnvel enn mikilvægara
flutningatæki í framtíðinni en núna og þess
vegna verðum við að leggja mikla áherslu
á að draga úr neikvæðum áhrifum hans,“
segir Yutaka Kume forstjóri Nissan í viðtali
í nýlegu fréttabréfi Nissan verksmiðjanna
japönsku. Forstjórinn er jafnframt spurður
hvemig helst megi draga úr umferðarslys-
um:
Margt hefur verið gert á sviði öryggis-
mála: þriggja punkta bílbeltið, öryggisbelti
í aftursætum og loftpúðar. Til að draga úr
slysahættu vegna gangandi vegfarenda eru
speglar Nissan bíla þannig útbúnir að þeir
brotna af við fremur létt högg og við mun-
um áfram reyna að auka öryggi á þessum
sviðum. En þetta er aðeins önnur hliðin á
málinu. Við þurfum að vinna ákveðið for-
varnarstarf og reyna að fækka slysum.
Hemlalæsivörn getur iðulega afstýrt
árekstri og við getum áreiðanlega fært okk-
ur tæknina meira í nyt hvað varðar umferð-
arstjórnun. Við þurfum sérstakt leiðsögu-
kerfi fyrir bílaumferð og þarna verða bæði
bílaframleiðendur og skipuleggjendur borga
að vinna saman.“
Forstjóri Nissan var einnig beðinn að lýsa
því hvernig hann sæi fyrir sér bílana árið
2000:
“Eg get nú ekki svarað því en ég er sann-
færður um að bíllinn og maðurinn muni
eiga meiri samleið í framtíðinni. Bílar verða
öruggari og ánægjulegri, við munum sjá
ný efni notuð við framleiðsluna og við mun-
um sjá enn skemmtilegri bíla. Þessir bílar
verða hins vegar aðeins raunveruleiki ef við
þróum jafnframt góð leiðsögukerfi fyrir
umferðina. Þegar ég ek upp hæð vil ég vita
hvað er handan hennar. Það verður hægt
ef bíll og leiðsögukerfið geta náð saman.
Það er margs konar þróun í gangi á þessu
sviði núna og um aldamótin verður margt
orðið að raunveruleika sem er fjarlægur
draumur í dag.“
Sumarumferðin er nú í algleymingi
og helgar jafnt sem virka daga
streymum við nú út úr þéttbýlinu
og út á þjóðvegina. Við þykjumst
að sjálfsögðu vera í góðri æfingu frá síðasta
sumri og ieikum okkur að því að aka iands-
hlutanna á milli á mettíma á malai’vegum
jafnt sem malbikuðum. Og förum fram úr
öllum lestarstjórum.
Umferðarhraði á þjóðvegum ætti ekki að
vera vandamál hjá okkur. Vegakerfið býður
ekki upp á mikinn hraða en hins vegar skap-
ast ekki síður hættur þegar ekið er of hægt
eða skrykkjótt. Þar sem hringvegurinn er
malbikaður er vandalaust að halda jöfnum
80 km hraða. Menn þurfa ekki að draga
snögglega úr hraða þótt örlítill hlykkur verði
á veginum. Beygjur á þjóðvegi númer eitt
eru ekki það krappar að það sé nauðsyn-
legt. Og það er þessi óþarfa hægagangur í
umferðinni sem skapar svo oft pirring hjá
ökumönnum og þeir leiðast jafnvel út í
tvísýnan framúrakstur.
Ef hægt er hins vegar að halda jöfnum
ferðahraða geta flestir unað glaðir við sitt
í lestinni og notið þess að aka góðum bíl
sínum.
jt
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. JÚLÍ 1991 15