Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1991, Blaðsíða 6
Samkeppni um mynd-
verk í Ráðhúsið
Ráðhús eru víðast hvar vettvangur myndlistar
og nægir að benda á þá áherzlu, sem Norð-
menn lögðu á myndlist í Ráðhúsinu í Osló.
Úr gamla borgarstjórnarsalnum við Borgartún
er mönnum minnisstæð sterk og áhrifamikil
mynd Jóns Engilberts og mynd Jóhanns
Briem af mönnum með öndvegissúlur, en
í nýtt ráðhús vildu menn fá myndlist sem
telja mætti að væri alveg í takt við tím-
ann. Það var einnig áskilið, að verkið væri
ekki svo sterkt, að það tæki athyglina um
of eða bæri salinn ofurliði.
Önnur tillaga Sigurðar Örlygssonar. Umsögn dómnefndar:„Þetta er vönduð til-
laga og vel unnin. Ferhyrnd lögun málverksins í andstöðu við mjúka boglínu
veggjarins. Litir tengjast rýminu vel. ”
70 íslenzkir
myndlistarmenn höfðu
áhuga á að spreyta sig á
myndverkum í Ráðhúsið
og af þeim voru valdir
12,sem tóku þáttí
samkeppninni.
Niðurstöður
dómnefndarinnar voru
gerðar kunnar í gær og
birtast hér.
Forsaga málsins er sú í stuttu máli, að
í júlí í sumar samþykkti borgarráð tillögu
verkefnisstjórnar Ráðhúss Reykjavíkur um
lokaða samkeppni varðandi myndverk í
húsið. Auglýst var eftir listamönnum, sem
áhuga hefðu á tvennskonar verkefnum:
A) Myndverk á vegg eða fyrir framan
vegg í borgarstjórnarsal. Sá veggur er lítil-
lega bogmyndaður, 6.2m á hæð og 15m
Iangur.
B) Klæðistjöld til að setja upp milli al-
menns samkomusalar, sem nefndur er
Tjarnarsalur og gönguleiðar á jarðhæð
hússins, - og einnig í op, sem þar verður
við hliðina á stiga.
Allir íslenzkir listamenn höfðu heimild
til þátttöku, en samtals lýstu 70 þeirra
áhuga sínum á verkefninu og sendu inn
upplýsingar um listferil sinn. Dómnefndina
skipuðu eftirfarandi:
Markús Örn Antonsson, borgarstjóri.
Jón G. Tómasson, borgarritari.
Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður
Borgarskipulags.
Anna Þóra Karlsdóttir, myndlistarmaður,
frá SÍM.
Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlistarmað-
ur, frá SÍM.
Til ráðuneytis nefndinni voru Gunnar Kvar-
an, forstöðumaður Listasafna Reykjavíkur
og Margrét Harðardóttir f.h. arkitekta
hússins.
A) Vegna myndverks í borgarstjórnarsal:
Daníel Þorkel Magnússon.
Kristin E. Hrafnsson.
Kristján Guðmundsson.
Níels Hafstein.
Sigurð Örlygsson.
Þorvald Þorsteinsson.
B) Vegna klæðistjalda:
Erlu Þórarinsdóttur og Guðrúnu Erlu
Geirsdóttur.
Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur.
Kristján Guðmundsson.
Sigurlaugu Jóhannesdóttur.
í septemberlok skiluðu þessir listamenn
inn 9 tillögum í A-flokki og 6 í B-flokki.
Höfundum hverrar tillögu voru greiddar kr.
300 þúsund, svo þeir höfðu nokkuð fyrir
snúð sinn þótt verkin næðu ekki 1. verðlaun-
um. Fyrir þau eru 'aukalega greidd 300
þúsund. Þetta fyrirkomulag að lýsa fyrst
eftir þeim sem hefðu áhuga og velja síðan
hóp úr þeim fjölda, virðist hafa mælst vel
fyrir.
NIÐURSTÖÐUR DÓM-
NEFNDAR
Allar tillögurnar uppfylltu skilmála sam-
keppninnar að mati dómnefndar, sem gefíð
hefur út svofelldan úrskurð:
1. verðlaun fyrir myndverk í borgarstjóm-
arsal, kr. 300 þús. em veitt fyrir tillögu
með heitinu VATN - SILFUR og reyndist
höfundurinn vera Kristján Guðmundsson.
Verðlaunafé fyrir klæðistjöld er skipt
milli höfunda tveggja tillagna. Önnur tillag-
an reyndist vera eftir Ingibjörgu Styrgerði
Haraldsdóttur, en að hinni stóðu þær Erla
Þórarinsdóttir og Guðrún Erla Geirsdóttir
saman. Ennfremur segir svo um þennan
úrskurð:
„Gerð tjalda í Tjarnarsal er óvenjulegt
og vandasamt verkefni, m.a. vegna hlut-
verks þeirra, forms og stærðar. Dómnefnd
telur að í tillögunum felist áhugaverðar
hugmyndir, sem leysa þó ekki eins og þær
liggja fyrir, verkefnið á sannfærandi hátt.
M.a. af þeim sökum eru veittar viðurkenn-
ingar fyrir þær tillögur sem þóttu áhuga-
verðastar.”
Um tillögur að myndverkum í borgar-
stjórnarsal, segir dómnefndin svo:
„Tillögur um myndverk í borgarstjórnar-
sal eru mjög mismunandi að gerð. Boga-
dregið form veggjarins og stærð hans
myndar bakgrunn sem yfirleitt nýtist ekki
að fullu í fyrirliggjandi tillögum. Sú tillaga
sem verðlaunin hlýtur fellur vel að aðstæð-
um í einfaldleika sínum.”
ÚR GREINARGERÐUM
LISTAMANNANNA
Tillögum sínum fylgdu þátttakendur í
samkeppninni úr hlaði með greinargerðum
og tæknilegum útskýringum. Styzt er
greinargerð Kristjáns Guðmundssonar með
verðlaunaverkinu. Þar segir svo:
„Á vegginn er málaður vatnsblár óreglu-
legur flötur með akryllit. Yfir hann eru sett-
ar fimm línur úr blaðsilfri. Áætlaður efnis-
kostnaður er er 50-100 þúsund krónur.
Reikna má með acj uppsetning taki eina
viku fyrir tvo menrí. Modelkassi 1/10 gefur
besta mynd af verkinu.
Kannski varð kveikjan að þessu verki sú
Eftirfarandi 12 listamenn valdi dóm-
nefndin til þátttöku í samkeppninni:
1. verðlaun fyrir myndverk í horgarstjórnarsal hlaut þessi tillaga Kristjáns Guðmundssonar. Umsögn dómnefndar: „Einfalt
og óhlutlægt verk og það athyglisverðasta að mati dómnefndar. Verkið fellur vel að lögun veggjarins og rými salarins.
Það hefur rólegt og Ijóðrænt yfirbragð og er Ijós vitnisburður um áræði og sjálfstæði listamannsins. Línur úr blaðsilfri á
bláum fleti veggjarins vísa til himinblámans og hinnar óskráðu framtíðar. Hugmynd höfundar er sú að stjórn borgar sé eins
og að semja tónverk sem aldrei lýkur. ”