Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1992, Qupperneq 6
Jl
ið fyrirferðarminni meðal íslendinga,
draugar, álfar, fyrirboðar og örlög, auk
heilagrar þrenningar í þúsund ár, en getur
ekki talist hafa þjónað öðrum félagslegum
tilgangi en bæta mönnum upp það sem á
skorti fjölbreytnina í umhverfinu.
Hvað sem erfðum líður eru lífskjör okkar
íslendinga svipaðri eskimóa en við höfum
viljað trúa. Við mætum öllum ókunnugleika
að hætti villimannsins. Framandleiki hefur
aldrei orðið okkur að öðru en spegli fyrir
eigin ásýnd. Víkingslundin íslenska gerir
strandhögg til að finna málefni sínu stað.
Hinir yfirveguðu ganga í berhögg við það
háttalag, jarðræktarmaðurinn við sitt
fræðagrúsk, klausturbúinn við söguritun,
vanmáttugur samfélagsgagnrýnandinn
með athugasemdum sínum. Saman gengur
ekki með þessum skapgerðareinke’nnum
þjóðinni til velfarnaðar, ekki frekar en með
blekkingu og þekkingu eskimóans. Sjálfum
þjóðarauðnum er varið til viðhalds hefð-
bundnum lifnaðarháttum þótt tilgangur
þeirra lifnaðarhátta hafi aldrei verið annar
en nytsemin ein, lánsfé og sköttum er var-
ið til útgerðar og byggðastefnu hvað sem
líður lýðræði og raunhæfari markmiðum.
Víkingslundin íslenska viðheldur með þessu
og fleiru sjálfri sér sem lifandi minnisvarða
um fortíð er hún þvert ofan í allt raunsæi
trúir að háfi verið glæsileg. Nýjustu dæmin
um baráttuhug sem hvergi kemst í snert-
ingu við veruleikann eru vatnsaflsvirkjanir
í þágu stríðsgróða án þess að nokkur kann-
ist opinberlega við þá merkingu álfram-
leiðslu. Og í framhaldi af þeim áætlanir um
háspennulínur sem risti ásýnd örævanna
eins og stríðsör andlit vígamanns. Skjár
tofbýlisins er enn, þrátt fyrir tölvur og
tækni, sá skjár sem landinn horfir út um
til fjarlægari heima, ekki hinn sem sýnir
okkur í önnur lönd.
Allt Er Gott í S jálfu Sér
Ekkert síður en hjá eskimóum er samfé-
lagsbyggingin íslenska ískastali sem kann
að bráðna einhvern daginn. En lífsskoðanir
okkar íslendinga hafa enst betur en esk-
imóa. Ólíkt því sem gilti um þá höfum við
um alda skeið þekkt yfirvöld í öllum mynd-
um, innlend sem erlend, en jafnan ríkt sú
vissa með þjóðinni að væru af hinu illa
hvaða nafni sen nefndust. Sú lexía ný-
lendubúans að taka undir með yfirvaldi í
þeim tilgangi einum að halda sínu óskertu
hefur mótað samskiptahætti þjóðarinnar til
þessa dags. Það hversu rækilega hún hefur
tileinkað sér þessa lexíu á ríkan þátt í
hversu fáranlegir lifnaðarhættirnir hafa
orðið á sjálfstjórnartíð hennar. Bijóstvitið
segir íslendingi nú og áður að tilvistin sé
hlutlaus og láti sig engu varða siðferðilegar
hugmyndir. Fruntaskapnum, jafnt náttúru
sem samfélags, hæfi því að mæta af æðru-
leysi, ósvífni og einstaklingshyggju. Af
sömu ástæðum eru tiifínningar taldar best
geymdar í sálarhylkinu, brothættu og
merkilegu eins og fjöreggi.
Við horfum í suður og austur til upp-
runans. Að okkur standa margir stofnar.
Vor daglega hagfræði færir okkur heim
sanninn um að við erum af Irum komin,
þjóðinni sem lifír svo fjölskrúðugu draum-
lífi að hún getur ekki vaknað. Grænlend-
ingurinn Leifur heppni var Norðmaður í
einhveijum skilningi eins og við hin. Eftir
því sem sjá má á skjánum af íslendingslegu
fasi fólks í nýfijálsum löndum við Eystra-
salt kann Barði Guðmundsson að hafa haft
rétt fyrir sér eftir allt saman, af þessum
slóðum hafi Herúlar komið til landsins í
fyrndinni, eftir að hafa farið hálfhring um
meginlandið. Við Islendingar höfum horft
í þessar áttir eftir menningarlegum rótum
okkar en aðallega niður á það fólk sem
fáfróðir meginlandsbúar hafa löngum
ruglað okkur saman við. Við íslendingar
búum ekki í snjóhúsum og höfum aldrei
gert, aldeilis ekki. Við erum hvorki
skrælingjar né hráætur. En lexían er þarna,
bæði mataræði og ástalíf ínúíta hafa reynst
af því tagi sem nú er álitið mönnum helst
til farsældar. Ekki þarf að orðlengja um
yfirburði vistfræði eskimóa fram yfir þá sem
hvítir menn hafa aðhyllst til skamms tíma.
Siðfræði þeirra er hárrétt, allt er gott í sjálfu
sér. Hið illa er afleiðing þess að menn eiga
sér valkosti. Af heilsufarsástæðum er list-
feng verkmenning ínúíta verð eftirbreytni
fyrir hvern mann nú um stundir eins og
alltaf endranær, listfengi í lífsbaráttunni
og aukin sjálfstilfinning dregur úr andleg-
um hörgulsjúkdómum eins og hjartveilu,
krabba, heilablóðfalli, það er sannað mál.
Og yfirleitt ætti líf eskimóa í jökuljaðrinum
svo árþúsundum skiptir að vera lexía í bjart-
sýni, fólki sem komið hefur sér upp svipuð-
um lífsskilyrðum viljandi.
Höfundur er rithöfundur og býr á ísafirði.
A R K I T
Fyrir 100 árum var þetta nýjasta nýtt í arkitektúr: Wainwright-byggingin í St.
Louis í Bandaríkjunum eftir Sullivan. Hann var stórmerkur brautryðjandi, not-
aði skreytingar í hófi, en áherzlan var á hreinleika og rými. Skýjakljúfar hans
urðu aldrei sálarlausir kassar eins og þeir sem síðar komu.
Frank Lloyd Wright: Winslow-húsið
(efri myndin) í River Forest, 1893, talið
fyrsta hús þessa frábæra arkitekts. Að
neðan: Wright teiknaði Robie House í
Oak park árið 1909, tímamótahús, sem
sýnir vel þá stefnu sem hann hafði tek-
ið.
F áein atriði um
þróun bysgingarlistar
síðustu 100 árin
egar litast er um í heiminum fyrir
100 árum, sést að ýmislegt er í
deiglunni í byggingarlistinni, sem
síðan þróaðist og gekk sér til
húðar eins og gengur um list-
stefnur. Alveg eins og í myndlistinni hefur
öldin verið eitt órofa skeið tilrauna. Á ár-
inu 1892 voru þau tímamót í Bandaríkjun-
um, að brautryðjandinn Luis Sullivan var
þá búinn með ýmsar tímamótabyggingar
sínar í Chicago, en annar og ekki minni
snillingur, Frank Lloyd Wright, var rétt
að byija; ári síðar var lokið við byggingu
á einbýlishúsinu Winslow House, sem talið
er í bókum að sé fyrsta hús hans.
Bæði Sullivan og Wright voru framúr-
skarandi, en afar ólíkir; Sullivan fyrst og
fremst brautryðjandi í gerð skýjakljúfa
vestur í Chicago. Hann teygði sín hús uppí
loftið, en Wright teygði sín hús á breidd-
ina, en ineð svipmóti, sem er einstætt enn
þann dag í dag. í Winslow-húsinu, sem
hér er mynd af, er hann ekki byijaður á
preríu-stílnum, sem hann nefndi svo og
einkenndist af mörgum láréttum Iínum
ásamt stærð og fyrirferð, sem ekki þurfti
að spá í þá. Einna frægast þeirra er Robie
House í Oak Park í Illinois. Þar er hann
kominn út í allt aðra sálma en í Winslow-
húsinu, sem líka var byggt í Illinois. Eins
og myndin ber með sér er húsið að mestu
samhverft (symmetrískt), efri hæðin inn-
dregin, en þakið látið ná langt út fyrir.
Þetta hús hefur yfir sér tímalausa fegurð
og þokka, en það hefur ekki verið
byltingarkennt á neinn hátt.
Á meðan Frank Lloyd Wright var að
teikna hús fyrir vestan, sem að mestu leyti
byggja á samspili beinna lína og hreinna
flata, var allt annað uppi á teningnum í
gömlu Evrópu. Þar hafði orðið til nýr stíll
um 1890, sem entisttil 1910 og var nefnd-
ur Art nouveau, nema í Þýzkalandi, þar
sem hann var kallaður Jugendstíll og í
Austurríki, þar sem hann hét Sezession-
stfll. Þetta er fullkomin andstæða við mód-
ernismann og International-stílinn, sem
síðar komu til sögu og hafa sett mestan
svip á húsagerð aldarinriar. Áherzlan í Ait
nouveau var á sveigðar línur og lífræn
form, og er talið að þetta eigi uppruna
sinn í handíðahreyfingu (Arts and Crafts)
sem upp kom í Englandi. Nafnið er hins-
vegar dregið af verzlun, sem opnuð var í
París 1895. Þetta var mjög rómantísk
stefna, sem sóttist eftir beinum áhrifum
frá náttúrunni og var á móti symmetríu
eða samhverfu; í raun og veru eru þarna
sterk áhrif frá rókókóstíl 18. aldar. Undir
merki Art nouveau var að sjálfsögðu unn-
ið í allskonar skreytilist, bókakápur og
plaköt voru oft í þessum stíl; einnig hús-
gögn, innréttingar og glervarningur.
Dæmið sem hér er birt um Art nouveau
(framb: ar núvó) er úr Tassel-húsinu í
Brússel í Belgíu - og er einmitt 100 ára
núna. Arkitekt var Victor Horta. Hér sjást
stíleinkennin mjög vel: Mósaíkskreyting
lögð í gólfið úr sveigðum línum og sams-
konar náttúrulegar blómasveigjur koma
víða fyrir í smíðajárni, sem var ríkulega
notað. Til dæmis í handrið, ef ekki beinlín-
is í skreytingar sem ekki höfðu neitt prakt-
ískt gildi. Hér var það haft í fyrirrúmi,
að augað þyrfti að hafa sitt.
Þennan stíl bar víða fyrir augu í borgum
Evrópu um og uppúr aldamótunum - og
sum þessi hús standa sem betur fer enn.
Metro í París - neðanjarðarlestirnar - voru
í þessum stíl og stórverzlunin Samaritaine
stendur enn á hægri bakka Signu, rétt
Art
í Br