Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1992, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1992, Page 4
Vetr arr íki í Jerúsalem að var hressileg síðdegisganga til baka. Ég hafði verið rúmar 10 mínútur að fara sömu leið stuttu fyrr. Þá var sæmilega bjart og lítils- háttar rigning. Nú var ég nærri klukkustund að bijótast til baka í þreifandi byl. Engan leigu- Það var rétt eins og heima að fá snjóbolta í hnakkann frá nokkrum hlæjandi krökkum, sem nutu snjókomunnar. Við fréttum að miðdegis- fundinum hefði verið aflýst — enginn í Knesset ísraelska þinginu. Starfsfólk þess og þingmenn náðu ekki til vinnu fremur en aðrir. Eftir ÁRNA R. ÁRNASON bíl að fá — þeir sem þorðu voru jafn harð- an fastir í næstu brekku, hinir sögðust ekki rata. Ekki var kalt, en bylurinn slíkur að varla sá út úr augum, og yfirhöfnina mátti vinda þegar inn kom. Eg hafði skot- ist út til að kaupa fáeina hluti og bjóst við að verða rúman hálftíma. Það varð gott betur. Já, það er hressandi að vera úti í svona veðri ef klæðnaður hentar, og svo heppinn var ég. En það átti engan veginn við um alla heimamenn. Þeir eiga ekki allir skjól- góð hlífðarföt við slíkum veðurham og van- búnir þessum snöggu veðrabrigðum. Að ganga berfættur á sandölum í snjó og krapaelg hlýtur að vera kulsamt. Svona vetrarveður hefur ekki gengið á í um 70 ár. Allt borgarlíf lagðist af um kvöldið — fólk komst ekki leiðar sinnar vegna snjó- komu. Það var mánudagur 24. febrúar 1992. Ég var kominn til Jersúsalem. í BORGINNI ElLÍFU Um kvöldið áttum við von á nokkrum gestum til kvöldverðarfundar, en þeir kom- ust hvergi. Að morgni var enn snjókoma en vind hafði lægt. Allir vegir að og frá borginni voru tepptir, borgarstrætin aðeins fær fuglinum fljúgandi og manninum gang- andi. Af morgunfundum okkar varð ekki — ráðuneyti lokuðu því starfsfólk, emb- ættismenn og ráðherrar komust ekki til vinnu. Herstöðvar lokaðar svo herforingjar komust ekki þaðan út. Við fórum því gangandi inn í gömlu borgina, en við gistum örskammt þaðan. Enn kyngdi niður snjó en hann var bfautur og krapaði mjög hratt á götum og gang- stéttum. Gamla borgin er sú Jerúsalem, sem var reist á rústunum eftir að Titus sonur Vespianusar Rómarkeisara lét brenna borgina árið 72 e. Kr. eftir miklar uppreisnir og innaniandsróstur, og bannaði gyðingum þar búsetu, sem leiddi til þess Pílagrímar í Jerúsalem á páskum. að þeir fluttu burt og leituðu skjóls og búsetu víða um heim, dreifðir og oft smán- aðir ogjafnvel ofsóttir, einkum af kristnum mönnum. Musterið og aðrar byggingar voru ekki brenndar. Aðrar þjóðir (arabar) sem í landinu bjuggu fluttust í borgina 6g endurbyggðu, en að vísu hafa þar alla tíð síðan, bæði í Jerúsalem og víða um landið búið gyðingar, múslímar og kristnir menn saman, t.d. eru nálega 14% Palestínu- manna kristnir, svo og nokkur hluti afkom- enda gyðinga. Musterið var síðar brotið til grunna en kristnir menn réðu borginni, frá 4. og fram á 7. öld. Innan borgarmúranna eru götur þröngar og hús öli sambyggð — hvergi blettur til spillis. Við gengum inn um Nýja hliðið, um kristna borgarhlutann með armenska hverfið á aðra hönd, fram hjá Kirkju Hins Heilaga Frelsara og að hinu mikla guðs- húsi Kirkju hinnar heilögu grafar. Hún er raunar margar kirkjur og myndar hring yfír og um helgustu staði kristninnar, og var upphaflega byggð sem moska músl- íma, því í Islam er Jesús Kristur helgur maður. Þar skoðuðum við klettinn sem álit- inn er hafa verið Golgatahæð og á honum blettinn sem talið er að kross frelsarans hafi verið reistur á. Síðan litum við staðinn þar sem fannst hauskúpan sú hin forna sem hæðin dró nafn af, og var haldin haus- kúpa Adams. Enn gengum við um og sáum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.