Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1992, Síða 6
A
Islenskt vísindaafrek í erfðafræði:
Ný hvalateg-
und við ísland?
Eftir RAGNHEIÐI
GUNNARSDÓTTUR
rið 1986 veiddist sérkennileg hvalkýr vestur
af íslandi sem um þessar mundir er orðin
heimsfræg. íslenskir hvalvísindamenn og þar
með taldir erfðafræðingar, rannsökuðu dýrið
með sameindaerfðafræðilegum aðferðum og
reyndist hvalkýrin vera blendingur tveggja
stærstu dýra jarðar, steypireyðar og lang-
reyðar, og auk þess með fóstri. Þessar rann-
sóknaniðurstöður birtust í hinu virta erfða-
fræðitímariti The Journal of Heredity nú í
haust en hér er um að ræða fyrstu vísinda-
legu sönnunina á því að blöndun tveggja
hvalategunda geti átt sér stað úti í náttúr-
unni og að kvenkynsafkvæmi slíkrar blönd-
unar sé ftjótt.
Hvalir hafa lengi þótt áhugaverðir af
margvíslegum ástæðum. Þeir eru einu spen-
dýrin sem eingöngu lifa í sjó og stærð þeirra
er 2-30 metrar og er steypireyðurin þar
stærst og um leið stærsta dýr jarðar. Upp-
haflega voru hvalir landdýr en talið er að
þeir hafi gengið í sjó fyrir um 50-60 milljón-
um ára og má enn finna leifar aftari gang-
lima hjá hvöium.
Margar og gamlar sögur eru til af hval-
veiðum bæði í Norður- og Suðurhöfum en
veiðar á stórhvölum gátu verið gríðarlegt
hættuspil með ófullkomnum veiðarfærum.
En til mikils var að vinna því hvalafurðir
voru dýrmætar. Olía unnin úr búrhval þótti
til dæmis afbragðs vélarolía og hvalskíði
þóttu ómissandi í ýmsan tískufatnað kvenna.
Milli 70 og 80 hvalategundir eru til í
heiminum og af þeim hafa 15 tegundir sést
á íslandsmiðum og eru 12 þeirra algengar.
Heimildir eru til um að hvalfangarar telji
sig hafa séð undarlega hvali, frábrugðna
öllum öðrum sem þeir höfðu séð áður og
ganga þeir oft undir nafninu bastarðar. Ein
slík skjalfest heimild, um 100 ára gömul,
er frá Noregi og önnur rússnesk frá 1965,
um undarlegan hvai í Norður-Kyrrahafi.
Sagnir um slíka furðuhvali við ísland eru
til meðal íslenskra hvalveiðimanna og stað-
fest er að 1983, 1986 og 1989 veiddust
hvalir við ísland sem höfðu mjög afbrigði-
legt útlit og svipaði þeim bæði til langreyða
og steypireyða. Allir voru þeir þó veiddir á
Við útlitsskoðun kom í
ljós að þetta var hvalkýr
sem í útliti var blanda
af langreyði og steypi-
reyði. Hún var tæplega
70 fet á lengd, jafnlöng
allrastærstu langreyðum.
Séð á bakið var hún mjög
lík langreyði en kviður-
inn hinsvegar miklu lík-
ari steypireyði.
Gísli Benjamínsson, fyrrverandi skip-
stjóri á hvalbátum.
þeim forsendum að um langreyðar væri að
ræða enda steypireyður alfriðuð hvalateg-
und frá árinu 1959.
Getgátur’um uppruna þessara dýra hafa
verið ýmsar í gegnum tíðina og sú sem
þótti líklegust var að um einhvers konar
blöndun tveggja hvalategunda væri að ræða.
Sönnun þess að svo væri fékkst árið 1990
þegar þrír hópar vísindamanna, þau Remi
Spilliaert, Ástríður Pálsdóttir og Alfreð
Árnason, þá við erfðarannsóknadeild Blóð-
bankans, Gísli Víkingsson og Jóhann Sigur-
jónsson frá hvalarannsóknadeild Hafrann-
‘sóknastofnunar og Úlfur Árnason hjá
Wallenberg-rannsóknastofnuninni í Lundi
lögðu saman.
VEIÐIFERÐIN 1986
Það var svo í júní 1986, nánar tiltekið
rétt um miðnætti aðfaranótt 19. júní, að
Hvalur 8 var á veiðum vestur af íslandi.
Blendingur langreyðar og steypireyðar. Myndin er af karldýri sem veiddist við ísland 1989. Engin greinileg litaskil er
að finna milli baks og kviðar. Ljósm.: Alfreð Arnason.
ssggasaga
allavega var ég nokkuð viss að þetta væri
skrýtið dýr. Hvalurinn var síðan dreginn
upp, mældur, skoðaður og sýni tekin, en
mitt hlutverk var einmitt að taka sýni fyrir
erfðam af k aran nsók n i r. “
Ú TLITSSKOÐUN
Við útlitsskoðun kom í ljós að þetta var
hvalkýr sem í útliti var blanda af langreyði
og steypireyði. Hún var tæplega 70 fet á
lengd, jafn löng allra stærstu langreyðum.
Séð á bakið var hún mjög lík langreyði en
kviðurinn hins vegar miklu líkari steypi-
reyði. Skíðin, sem eru nokkuð ólík hjá lang-
og steypireyðum voru í þessu dýri eins kon-
ar blanda frá báðum tegundum. Höfuðlagið
var mjög svipað og á langreyði en bægsli
í stærra lagi fyrir langreyði. Samkvæmt
aldursgreiningu reyndist dýrið vera 6-7 ára.
Við rannsókn á legi kýrinnar kom í ljós að
hún var með fóstri og fóstrið var aðeins um
20 cm langt. Þá kom einnig fram að þetta
var önnur meðganga hennar og í því svipar
henni til steypireyða sem verða kynþroska
5 ára og eru þá 70-74 fet. Langreyðar verða
yfirleitt ekki kynþroska fyrr en þær eru 9
ára þó til séu dæmi um að þær séu yngri
og þá eru þær um 60 fet að lengd. Allar
tölur sem vísað er í um steypireyðar eru
erlendar rannsóknaniðurstöður.
Rannsóknir á Erfðum
Og Uppruna
Allt frá árinu 1971 hafa íslenskir vísinda-
menn unnið að rannsóknum á mismunandi
erfðamörkum nokkurra hvalastofna. Fram
til ársins 1980 var einungis um að ræða
Skipstjóri var Gísli Benjamínsson, en hann
hefur stundað hvalveiðar í um 40 ár. „Mér
er þessi ákveðna ferð í fersku minni enda
afrakstur hennar óvenjulegur. Hvalablástur
sést yfirleitt í um það bil 2-5 mílna fjarlægð
en lengra í mjög góðu skyggni og svo auð-
vitað ef kíkir er notaður. Blásturinn gefur
góða vísbendingu um hvaða tegund er á
ferðinni, þannig er blásturinn bæði hærri
og mjórri hjá langreyði heldur en hjá steypi-
reyði. Þegar maður svo nálgast dýrin á ró-
legri ferð sést liturinn, þannig er langreyður
nær svört á bakið og með stóran bakugga
eða horn eins og við köllum það en steypi-
reyðurin er bláleit og hornið lítið. Sandreyð-
urin er hins vegar minnst og hraðsyndasti
hvalurinn.
í þessari ferð sigldum við fram á fjórar
langreyðar í hópi og ákveðið var að veiða
éitt dýrið í hópnum. Það er alls ekki sama
hvaða dýr er veitt. Þannig má t.d. aldrei
skjóta móður frá unga, en það kemur alltaf
í ljós þegar farið er að skera hvalinn, þótt
engan sjáum við ungann, því við skurðinn
vellur mjólkin úr ungakerlingum. Hendi slíkt
er hrísinn á þá sem ódæðið frömdu að slík
veiði reiknast frá til hlutar.
Hvalurinn verður líka að hafa náð ákveð-
inni stærð, langreyður verður að vera lengri
en 50 fet og sandreyðurin þurfti að ná 35
fetum. Sé maður í vafa um að dýrið sé
nógu stórt er siglt frá. Hvalurinn sem við
völdum í þessum hópi var stór langreyður,
rétt um 70 fet, og það gekk bæði fljótt og
vel að fanga dýrið og það var dregið að
síðunni. Þá sáum við að litaskilin milli baks
og kviðar voru allt öðruvísi á þessum hval
en á venjulegri langreyði. Eðlileg skil eru
skörp, þannig að bakið er svart og kviður-
inn hvítur, en á þessu dýri voru enginn slík
skil. Bakið var svart og liturinn gránaði
niður á kviðinn og þar var dýrið hvítflekkótt.
Við héldum nú samt ró okkar því á bak-
ið var hvalurinn nákvæmlega eins og hver
önnur langreyður. Við gátum ekki skoðað
skíðin því hausinn liggur nokkuð djúpt í
sjónum. Við veiddum bara þennan eina hval
í þessari ferð en mest megum við koma að
landi með tvo hvali og má sá fyrri ekki
vera nema 26 tíma gamall þegar við komum
með þá og er það til þess að tryggja að
kjötið skemmist ekki. Þegar við komum að
Hvalstöðinni er settur vír í hvalinn og hann
dreginn upp á planið. Við förum hins vegar
ekki í land nema ef okkur vantar kost eða
olíu og í þetta skipti sigldum við strax út
aftur til veiða.“
Þegar Hvalur 8 kom í land í Hvalstöðinni
í Hvalfirði úr umræddri ferð, voru viðstadd-
ir á planinu eins og ávallt fulltrúar hinna
japönsku kaupenda, en þeir hafa eftirlit með
því þegar hvalirnir eru flensaðir og flokka
síðan kjötið.
Þar voru líka, fyrir utan starfsmenn Hvals
hf., tveir hópar vísindamanna, báðir í þeim
erindum að taka sýni úr öllum hvölum sem
komu á land. Annar hópurinn var frá Haf-
rannsóknastofnun og var að safna sýnum
fyrir vefjafræðibankann og hinn hópurinn
vegna rannsóknar á mismunandi erfðamörk-
um nokkurra hvalategunda sem verið var
rannsóknir á íslenskum hvalastofnum en
árið 1981 voru þessar rannsóknir auknar,
meðal annars vegna hvatningar frá vísinda-
nefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þær hvala-
tegundir sem aðallega hafa verið rannsakað-
ar eru langreyður, sandreyður og hrefna,
en einnig lítillega búrhvalur, grindhvalur,
háhyrningur og steypireyður. Þannig eru til
mörg sýni úr hveijum hval sem veiddur
hefur verið við ísland allt frá 1981, bæði
vegna sýnatöku fyrir erfðamarkarannsóknir
og einnig er til vefjafræðibanki sem hvala-
Langreyður veidd við ísland. Litaskil eru mjög greinileg, en dýrið sem er karlkyns er ljóst á kviði, en dökkt á bakinu.
Ljósm.: Sveinn Guðmundsson.
óvenjulegt á seyði því Japanirnir urðu ókyrr-
ir, fóru að benda og kalla sín á milli og flýttu
sér frain á planið. Smám saman áttaði ég
mig á, að þeim fannst eitthvað athugavert
við hvalinn sem verið var að koma með.
Þetta var bara 5. hvalurinn sem ég hafði
séð á þessum tíma, svo ekki var mín þekk-
ing mikil, en ég sá að hann var dökkur á
kviðinn, en ekki ljós eins og venjuleg Iang-
reyður. Skyggnið var ekki gott eins og ég
sagði áðan og kannski hefur mér dottið í
hug að þetta væri ekki rétt hvaltegund,
Alfreð Árnason, erfðafræðingur.
að vinna í erfðarannsóknadeild Blóðbank-
ans.
Remi Spilliaert, franskur lífefnafræðing-
ur, var í seinni hópnum. „Það var um há-
nótt að hvalbáturinn kom inn og þó það sé
ekki myrkur um júnínótt á Islandi, var samt
frekar dimmt því himinn var alskýjaður.
Ég skil ekki japönsku og á þessum tíma
sáralitla íslensku, en þarna stóð ég ásamt
flensurunum, Japönunum og félögum mín-
um.
Allt í einu skildi ég að það var eitthvað
Remi Spilliaert, lífefnafræðingur.
3B1
A myndinni má sjá
hvernig erfðaefni (1)
langreyðar, (2) hval-
kýrinnar, (3) fósturs- kb
ins, (4) steypireyðar
raðast eftir lengd. 3.5
Skammstöfunin kh
stendur fyrir mæli- 3,0
eininguna sem notuð
er fyrir lengd og Taq £ ~J
er skerðiensímið sem
notað var til að bijóta 2 .S
erfðaefnið niður. Með
því að skoða myndina
má sjá að langreyður
hefur búta að lengd
3,5 og 3,0. Steypireyð-
ur (4), liefur búta að 1 O
lengd 2,7 og 2,5. Hval-
kýrin undarlega (2),
hefur báða búta
steypireyðar og báða
búta langreyðar og hefur því átt foreldra af báðum tegundum. Fóstrið (3),
hefur erft steypireyðarbútana frá móður sinni og faðir þess er greinilega
steypireyður því það hefur engan langreyðarbút. En er möguleiki að greina
af hvorri tegund foreldrar hvalkýrinnar voru? Var faðir hennar steypireyður
eða var það móðir hennar sem var steypireyður? Úr þessu má skera, því
erfðaefnið sem er í hvatberum fruma erfist einungis í móðurlegg og hér
sést niðurstaðan úr því þegar hvatberaerfðaefni hvalkýrinnar og fóstursins
er borið saman við hvatberaerfðaefni steypireyðar og langreyðar.
Bam HI og Eco RI eru
skerðiensím og niður-
staðan á myndinni er
úr tveimur rannsókn-
um. í báðum tilvikum
(1) steypireyður, (4)
og (5) langreyður, (3)
hvalkýrin og (2) fóstr-
ið. Á myndunum báð-
um má sjá, sömu búta
hjá steypireyðinni,
hvalkúnni og fóstr-
inu, en allt aðra búta
hjá báðum langreyð-
unum sem notaðar
voru til samanburðar,
þannig að móðir hval-
kýrinnar var steypi-
reyður og fóstrið erf-
ir svo þann steypi-
reyðarbút frá móður
sinni.
Bam Hi
tco Rí
■*» *** €»
m m
rannsóknadeild Hafrannsóknastofnunar
hefur verið að safna og er hér samanlagt
um ómetanlegan gagnabanka að ræða fyrir
þá vísindamenn sem í framtíðinni hafa
áhuga á að stunda rannsóknir á hvölum.
Þar sem steypireyður er friðuð tegund eru
steypireyðasýnin húðsýni af steypireyðum
og voru fengin hjá Úlfi Árnasyni í Lundi.
Alfreð Ámason hjá erfðarannsóknadeild
Blóðbankans í Reykjavík hefur verið í for-
svari fyrir erfðamarkarannsóknirnar og á
grunni þeirra byggðist rannsóknin á hval-
kúnni undarlegu. „Fyrir utan að mæla dýr-
ið og útlitsskoða það voru framkvæmdar
flóknar sameindaerfðafræðilegar rannsókn-
ir á sýnuin sem voru tekin bæði úr ýmsum
vefjum hvalkýrinnar og á sýnum sem náð-
ust af fóstrinu, en fóstrið var aðeins 20 cm
langt og illa farið. Allar þessar rannsóknir
byggjast á að bera saman ákveðna erfða-
þætti steypireyða og langreyða við erfða-
þætti í óþekkta dýrinu og fóstrinu.
Til þess að slíkur samanburður sé mögu-
legur þurfa að vera til upplýsingar um erfða-
þætti hjá þeim dýrum sem við getum kallað
venjulegar steypi- og langreyðar, en við
höfum einmitt verið að afla þeirra upplýs-
inga í rúm 20 ár.
Upplýsingar um arfgerð einstaklinga ber-
ast frá foreldrum til afkvæma og þar sem
arfgerð steypireyða og langreyða er ekki
sú sama, þó að hún sé lík, enda báðar teg-
undirnar reyðarhvalir, byggðust þessar
rannsóknir okkar á að einangra erfðaefni
hvalkýrinnar og bera það saman við áður
einangrað erfðaefni frá steypireyði og lang-
reyði.
Við tókum sýni úr lifur, milta og af blóði
hvalkýrinnar og vefjasýni úr fóstrinu og
einangruðum erfðaefni úr sýnunum. Það er
síðan skorið niður með sértækum ensímum
og myndast við það mislangir bútar. Síðan
er rafdrætti beitt og raðast bútarnir þá í
rafsviði eftir stærð. Að því búnu eru notað-
ir geislamerktir erðaefnisbútar, svokallaðir
þreifarar, til að þekkja þá búta sem áhuga-
verðir þykja hveiju sinni.
Niðurstaðan úr öllum þessum rannsókn-
um er sú að steypireyður og langreyður
geta blandast og átt saman fijótt kvenkyns-
afkvæmi. Ef hins vegar afkvæmið er karl-
kyns hefur það verið ófijótt en það kom í
ljós, þegar sambærilegar rannsóknir voru
gerðar af sömu vísindamönnum á tveim
dýrum sem veiddust við ísland 1983 og
1989. Þar var í báðum tilfellum um karldýr
að ræði, annað reyndist 7 ára og hitt 23
ára og voru þau bæði ófijó. í því sambandi
gæti sú spurning vaknað hvort einhveiju
máli skipti af hvorri tegundinni móðirin og
faðirinn væru. Svo reyndist ekki vera því í
ljós kom að annað ófijóa karldýrið átti
steypireyði fyrir móður og langreyði að föð-
ur en hjá hinu dýrinu var þessu öfugt farið.
Birting Niðurstaðna
Mjög margir hafa áhuga á rannsóknum
um uppruna og þróun tegunda og fjölbreyti-
leika náttúrunnar ekki síst þegar hægt er
að sýna fram á jafn merkilega niðurstöðu
og þá að stærstu dýrategundir jarðarinnar
geti átt saman fijó afkvæmi og þannig komi
fram einstaklingar með eiginleika tveggja
tegunda. Alfreð Árnason, umsjónarmaður
með erfðamarkarannsóknunum, sá um
kynningu og útgáfu á niðurstöðunum:
„Remi Spilliaert vann mest af þeim rann-
sóknum sem gerðar voru á sýnunum úr
hvalkúnni ásamt Ástríði Pálsdóttur, en mik-
ilvægur hluti þeirra var unninn með aðstoð
og í samvinnu við Úlf Árnason, sem er
þekktur fyrir hvalarannsóknir og starfar hjá
Wallenberg-rannsóknastofnuninni í Lundi í
Svíþjóð. Enn annar hluti var svo unninn af
Hafrannsóknastofnun. Það var nú ekki fyrr
en 1990 að niðurstöðurnar lágu fyrir og
hægt var að hefjast handa við að skrifa,
því rannsóknirnar tóku langan tíma og voru
unnar samhliða öðrum verkefnum. Sú und-
arlega staða kom upp þegar niðurstöðurnar
voru sendar fullunnar til tveggja útbreidd-
ustu og almennustu náttúrufræðitímarita
veraldar, að hvorugt blaðið taldi sig geta
birt niðurstöðurnar. Annað þeirra, Science,
taldi sig ekki' hafa pláss fyrir greinina en
hitt blaðið, Nature, taldi hana ekki á sínu
áhugasviði. Hvorugt blaðið gagnrýndi hana
hins vegar á vísindalegum forsendum.
Bandaríska erfðafræðitímaritið The Journal
of Heredity sem er sérrit um erfðafræði,
taldi greinina hins vegar sér fullboðlega og
þar birtist hún nú í haust. Maður getur
ekki annað en velt því fyrir sér hvort vísinda-
legs hlutleysis sé gætt þegar svona staða
kemur upp eða hvort tilfinningar, hagsmun-
ir eða annarleg sjónarmið einstaklinga eða
hópa ráða ferðinni," sagði Alfreð að lokum.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og býr í Stykkishólmi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25.APRÍLI992 7