Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1993, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1993, Page 2
Að bægja frá nýjungum - um viðhorf 17. aldar manna til breytinga rynjólfur biskup Sveinsson (1605-1675) taldi það vera viðfangsefni íslenskra embættis- manna að bægja frá landinu nýjungum og í Vídalínspostillu eru íslendingar áminntir um að taka sér forfeður sína til fyrirmyndar. Segja Enda þótt hér sé brugðið upp myndum frá 19. öld, má segja að flest sé í sama farinu. Hér eru orfhólkar, sem halda Ijánum við orfið, nýlega komnir til sögu. Það er til marks um úrræðaleysið í margar aldir, að ljárinn var festur við orfið með ólum, sem ævinlega teygjast og má þá nærri geta hverskonar amboð þetta hefur verið. í hinum umdeildu sjónvarpsþáttum Baldurs Hermannssonar var m.a. vikið að því að markvisst hafi verið staðið gegn breytingum á hinu staðnaða íslenzka þjóðfélagi fyrri alda. í þessari fyrstu grein af þremur um sama efni er tekið undir þá söguskoðun og hún rökstudd. Þegar skoðaðar eru samtímaheimildir frá 17. öld má víða fmna dæmi um íhaldssöm viðhorf íslenzku valdastéttarinnar til þjóðfélagsbreytinga. Eftir ÁRNA ARNARSON má að þama endurspeglist- viðhorf 17. aldar þjóðfélagsins, þ.e. leitast skyldi við að við- halda óbreyttu ástandi á sem flestum sviðum. Þetta átti við verslun, viðskipti og þau mál er vörðuðu samfélagið almennt, svo sem málefni sjúkra, fátækra- og atvinnumál. Trú- mál voru þó undantekning, því í sakamálum sem tengdust rétttrúnaðinum, t.d. í galdra- málum, þótti sjálfsagt að dæma eftir erlend- um lögum og biblíunni. Þegar skoðaðar eru samtímaheimildir frá þessu tímabili, má víða finna dæmi um íhalds- söm viðhorf íslensku valdastéttarinnar til þjóðfélagsbreytinga. Brynjólfur biskup benti lögmönnum á það í bréfi til Arna Oddssonar árið 1649 að: „eins og landið væri ei til ann- ars byggt en hafa fyrir ómögum" og að maður skuli: „blífa við það, sem hans föður land af sér gæfi“. HÖFÐINGJAVALD Oddur Einarsson biskup (1559-1630) hafði ekki mikið álit á höfðingjaveldinu. Hann seg- ir í íslandslýsingu sinni frá því í lok 16. ald- ar, að enginn komist til metorða, nema með mútum og fégjöfum: Þetta eitt út af fyrir sig, svo ég sleppi öðru, bakar þjóðfélaginu ómælanlegt tjón, þar sem óhæfir menn og ágjamir margnota sér og misnota, hve konungurinn er víðs ijarri, þegnunum til mesta tjóns. Allt misferli og óstjóm, sem heiti hefur, er því hvorki grand- vömm konungi að kenna né góðum lög- um,... Þetta vom engar ýkjur hjá Oddi. Menn fóm ekkert leynt með mútur á 17. öld og nefndu fínum nöfnum eins og festarpeninga og æmskenk. Þetta átti ekki eingöngu við um veraldlega höfðingja því biskupar höfðu ekki hreinan skjöld í þessum efnum, hvorki hvað varðar mútur né misbeitinu valds. Brynj- ólfur biskup hafði t.d. forgöngu um að „skenkja" Henrik Bjelke fjárapphæð í því skyni að hann beitti áhrifum sínum gegn nýrri skattlagningu og Oddur Einarsson var m.a. sakaður um að hafa mismunað skólapilt- um og hyglað skyldmennum. Mikil valdatog- streita var á milli veraldlegra höfðingja og kirkjuvaldsins og töldu biskupar hafa hallað á sig eftir siðaskiptin. í bréfi frá Brynjólfi biskupi Sveinssyni 1655 kemur fram að hann telur að staða sýslumanna hafi styrkst síð- ustu áratugina á undan, í krafti konungs- valdsins: Fiölde kongabrefanna er fiölde laganna, fi- ölde laganna opnar dymar fyrer fiölda sekt- anna, fiölde sektanna margfaldar þridiunga sysslumannanna, fiölde þridiunganna þyn- ger pungana. Siaed til hvemin fiölgan kongsbréfanna safnar i sioda sysslumanna! Árið 1616 kvartaði Herluf Daa hirðstjóri til konungs um framkomu, embættisverk og drykkjuskap íslenskra valdsmanna: att en part aff Sysselmendene. saavell som andre. ind i samme deris Logret indtrede meget dmckne oc ubeschedelige. som med Bulder. Bmsen oc Snorcken de andre offu- erfuser ... Och dog Logmendene saadanne Dmckenbolte affviser. da ackter de det ecki. og dog de undertiden lidet affvige. da komme de med det förste igien end fuldere og galnere. oc spilde fattige folckis Sager. Hann benti einnig á, að sýslumennimir sýni fátækum yfirgang þannig að þeir ættu erfitt með að ná rétti sínum. Amgrímur lærði (1568-1648) taldi að höfð- ingjaveldið á 13. öld hafi verið orðið svo sið- spillt, að breytingar á stjórnskipuninni hafi verið óumflýjanlegar. Því hafi það verið ís- lendingum til góðs, að komast undir konungs- stjóm, sem gat myndað mótvægi gegn höfð- ingjavaldinu. Segja má að þessi röksemd hafi verið í fullu gildi á 17. öld. Þjóðfélagið leitaðist við að viðhalda kyrrstöðunni innan- Iands, en vaxandi miðstjórnarvald erlendis frá þrýsti á um breytingar. Kyrrstaða Og Framtaks- LEYSI Eitt megineinkenni kyrrstöðuþjóðfélagsins var framtaksleysið. Páll Vídalín segir í rit- gerð sinni Deo, regi, patriae árið 1699, að þetta hafi verið þjóðarógæfa. Menn gleymdu jafnóðum erfiðleikunum og reyndu ekki að bæta neitt. Þeir hafi verið of uppteknir af réttargæslu, ekki sinnt atvinnuvegunum og að lögmenn og embættismenn hafi almennt ekki haft áhuga á framfaramálum. Þetta var vegna þekkingarskorts og af vantrú á að hægt væri að gera neitt. Að hans mati var hirðuleysi embættismanna hið mesta mein, það hafi átt dijúgan þátt í því hversu illa sé komið hag landsins. Erlendir embættismenn hafi sjaldnast dvalið hér nógu Iengi til að kynnast landinu. Þeir áttu hér heldur engra hagsmuna að gæta og stóð því á sama um úrbætur. Páll Vídalín bendir á Pál Bjömsson í Selárd- al sem merkilega undantekningu frá fram- taksleysinu. Hann hafi tekið við rým brauði en komið sér upp skútu, sem hann sigldi á haf út og fyllti á 3-4 dögum, þegar aðrir fengu lítinn afla. En hér var um sérstakt til- felli að ræða. Það má einnig benda á merkileg- ar tillögur Vísa-Gísla frá miðri öldinni, sem fjalla ítarlega um breytingar á stjómkerfi og atvinnuháttum. Hann taldi m.a. nauðsynlegt að hér myndaðist aðall að erlendri fyrirmynd. Sú stétt átti síðan að hafa fmmkvæði að fram- fömm. Hann vildi byggja fátækrahæli hér og þar um landið, því þá taldi hann að flakk myndi leggjast af. Þama skyldi kenna fólki vinnubrögð og handiðnir, sem yrði til þess að þorp mynduðust í kringum fátækrahælin. Hann gerði einnig merkilegar tilraunir í garð- rækt. En þjóðfélagið var ekki tilbúið að taka við nýjungum. Undantekningar vom fáar en sýna þó að til hafa verið einstaklingar, sem leituð- ust við að tileinka sér nýjungar. Jón Eggertsson frá Okmm (1643-1689) skrifaði ritgerð um ástand mála á íslandi. Hann segir þar að hugsunarleysi og leti lands- manna sé versta landplágan. Unglingar fáist ekki til vinnu nema með barsmíðum og land- ið sé fullt af flökkulýð. Þegar vel ári nenni ménn ekki á sjó nema rétt til þess að ná sér í soðið og kasti þorskhausum og öðm ætu. Smálúðu og síld hirði þeir ekkert um. Og svo latir séu Islendingar, að í góðum árum heyji menn ekki meira en venjulega, hugsi ekkert um fymingar og leggist í leti og ómennsku. í samtímaheimildum frá 17. öld, þ.e. Al- þingisbókum, og skjölum og bréfum embætt- ismanna, koma greinilega fram þau mál sem menn töldu mestu skipta fyrir sig og samfé- lagið. Eins og við má búast era það einkum þau mál sem snerta afkomu manna beint og þá horfa menn fyrst og fremst til þess hvern- ig hlutimir vom áður. Á síðari tímum hefur afstaða manna til einveldistökunnar 1662 verið túlkuð fyrst og fremst sem mótstaða við konungsvaldið, en þegar heimildimar eru skoðaðar má glöggt sjá, að það sem menn höfðu áhyggjur af var að engar breytingar yrðu sem vörðuðu afkomu manna og ef um breytingar yrði að ræða, yrðu þær á kostnað annarra. Klerkar skrifuðu konungi í tilefni af einveldistökunni og er þetta bréf gott dæmi um viðhorf hinnar andlegu yfirstéttar. Þar er lögð áhersla á að halda fornum kirkj- unnar og landsins lögum og „befrijes fra alle novis gravaminibus som iche sedvaneligt j gammel tid“. Það er lögð áhersla á að engar hömlur verði lagðar á rétt þeirra til þess að leigja út kirkjunnar jarðir til leiguliða, eins og verið hafi frá fornu fari, en konungsvald- ið hafði gert sér far um að auka réttindi leig- uliða. Þeir vilja hafa leyfi til að vísa þeim bændum burtu, sem sýna mótþróa, þannig að þeim líðist ekki að setja sig upp á móti húsbændum eins og nú tíðkaðist. Það er greinilegt að þessi mál hvíla mun þyngra á klerkum heldur en einveldistakan sem slík. Þeir eru þó ekki alveg sjálfum sér samkvæmir hvað varðar fom lög, því þeir kvarta yfir því, að þurfa að hlíta framfærslu- skyldu í þriðja og fjórða lið, eins og Jónsbók mælir fyrir um. Þetta virðist hafa verið um- deilt á 17. öld og hefur klerkum ekki líkað að fá dæmda á sig til framfærslu fjarskylda ættingja. Þetta var eitt af fáum ákvæðum Jónsbókar, sem einhver þrýstingur var á um að breyta. Þetta er áhugavert atriði í ljósi þess hve mikil áhersla var lögð á það að halda í forn lög. Þeir fara einnig fram á að fá klaustummboð á þeirri forsendu að klaustrin hafi tilheyrt kirkjunni til forna. Þeir freistuðu þess þannig að rétta hlut sinn gagnvart hinum veraldlegu valdsmönnum. Síðan kemur sígilt umkvörtunarefni valdastéttarinnar, þ.e. áhyggjur vegna agaleysis: Eftersom dette fattige land höyligen besver- is af örcheslöshed, lösgangere og uskrickel- ig giftemaal, at enhver vil gaa hen og gifte sig naar hannem lyster, vere sig halt, blind, spedalsk Eller J andre maader udygtige til saadan stand. Að lokum fara þeir fram á að konungsvald- ið skerist í leikinn til að koma í veg fyrir slíkt. Og verðlagsmálin fá sína umfjöllun eins og við mátti búast: „mens vij maatte forblive ved den oprettede taxt og med gode daglige va- hre forsörges for en billig pris ..." Valdsmenn bmgðust yfirleitt illa við þegar konungsvaldið reyndi að raska hinu innra jafnvægi þjóðfélagsins. Árið 1619 mæltist konungsvaldið til þess, að ef húsbóndi félli frá, þá héldist leigumáli gagnvart ekkjunni. Þetta hefur verið gert með hagsmuni ekkjunn- ar í huga. Lögrétta neitaði þessu á þeirri forsendu að þetta væri andstætt íslenskum landsrétti. Menn stóðu vörð um Jónsbók og litu á hana sem óbreytanlega lögbók í flestum tilfellum. Þá mæltist konungur til þess að landskuld af konungsjörðum hækkaði ekki og hefur hann granað að umboðsmenn reyndu að hafa landskuld óhóflega háa. Síðar í sama bréfí áminnti konungur valdsmenn um að framfylgja fyrirmælum um letingja og lausa- menn og það tóku menn undir athugasemda- laust. Þar fóm saman hagsmunir konungs- valds og innlendrar valdastéttar. Það sem menn höfðu fyrst og fremst áhuga á, var að halda öllum breytingum í skeíjum, vöruverði niðri og komast hjá útgjöldum. Höfundur er sagnfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.