Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1995, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1995, Side 2
FAGRISKÓGUR. Útsýni austur yfir Eyjafjörð. DA VÍÐ með móður sinni, Ragnheiði Davíðsdóttur. eftir lesturinn var það hlutskipti bóndans í Fagraskógi að hugga son sinn. Víst mun Stefán hafa getað betur en ella lifað sig inn í Sturlungaöldina vegna hinnar illvígu stjómmálabaráttu sem hann komst ekki hjá að eiga í um þessar mundir. En frásögn Davíðs kennir okkur að skáldskapartilfinningu fékk hann úr báðum ættum. Hljómgáfan mun þó fremur hafa verið úr móðurættinni, þótt einhvem tíma væri sagt í Danmörku að Brímarnir væru „dárlige sangere". í Fagraskógi ólst Davíð upp við gott atlæti. Hann lék sér'sem önn- ur börn og var látinn sinna þeim störfum sem töldust við hæfi bama og unglinga. Snemma var hann látinn ganga að hey- skaparstörfum og sitja yfir kvíaaám. Það verk leiddist honum, eins og Halldóri Guð- jónssyni í Laxnesi, seinna skólabróður og skáldbróður. Davíð lærði ungur sund vestur í Fljótum. Bjó þá á Hraunum í Holtshreppi Guðmund- ur Davíðsson móðurbróðir hans. Síðan fóru þeir frændur, Einar Guðmundsson og Dav- íð, í Gagnfræðaskólann á Akureyri. Þar var ekki í kot vísað, því að þeir höfðu húsnæði hjá maddömu Þórunni Stefáns- dóttur Ottesens og sr. Jónasi Jónassyni kennara sem löngum var kerindur við Hrafnagil. Davíð var ekki mjög kappsamur nemandi í skóla og mun snemma hafa unað því fremur illa að láta skammta sér 'iesefni. En hann gaumgæfði með því meiri velþóknun þjóðkvæðasafn Ólafs móður- bróður síns. Einar Guðmundsson segir: „Davíð gat bókstaflega gert gælur við eina og eina ljóðlínu, gleymt sér og tautað: „Mikið er þetta fallegt. Hún ber allar li- stimar í brjósti sér. .. Með gullband um sig miðja..Hann hafði í skólanum einn- ig tekið að yrkja, eins og ungum mönnum var þá títt. En ekki fékk hann að því sinni annað fyrir en háðsglósur bekkjarbræðra sinna. Þeir voru margir hverjir miklir garp- ar. Davíð var yngstur. Hann segist hafa sneypst og steinhætt. Gagnfræðaprófi lauk hann 1911, og er frá því prófi meðal ann- ars svo sagt í skólaskýrslu: „Stjómarráðið skipaði þá herra Geir biskup Sæmundsson og héraðslækni Stein- grím Matthíasson prófdómendur. Tóku þeir til öll verkefni og sátu yfir í skriflega prófinu, ásamt einum kennaranna... og tók yfirsátið all-mikinn tíma.“ III „Vafalaust hefði ég hlotið vist í moldinni, ef ég hefði ekki notið ástríkis og umhyggju foreldra minna og systkina. Þegar vel viðraði, var ég borinn út í sólskinið. “ (Spurningum svarað 1956.) Ekki ætlaði Davíð rakleiðis í Hinn al- menna menntaskóla í Reykjavík, enda þyrmdi brátt yfir hann af veikindum. Hann fékk bijósthimnubólgu, sem oft var undan- fari drepsóttarinnar, berklanna. Ekki var þó svo kallað, að hann fengi berkla. En hann veiktist mikið og beið þess aldrei full- ar bætur. Um hríð var hann á berklahælinu á Vífilsstöðum, þar sem margir trúðu að þeir ættu ekki útkvæmt í daglegt líf. En Davíð komst heim og segist í tvöföldum skilningi eiga foreldrum sínum líf sitt að launa. Veikindin áttu mesta sök á því, að skólanám hans tafðist. En fleira kom til. Hann var nú orðinn tvítugur, og nýjar regl- ur Hins almenna menntaskóla sögðu, að svo gamlir menn eða eldri skyldu ekki tekn- ir í skólann. En nítján ára gamall hafði hann tekið nýja ákvörðun. Hann skrifaði húsfreyjunni á Hraunum, Ólöfu Einarsdótt- ur, árið 1914: „Ég ætla að verða skáld.“ Sama ár hugsaði hann sér mjög til hreyf- ings að hressa sig eftir veikindin með því að sigla til Kaupmannhafnar að hitta Einar frænda sinn frá Hraunum sem þangað var kominn. Davíð sagðist þá vera „orðinn all- hraustur". Eigi að síður ætlaði hann sér alltaf að ljúka stúdentsprófi, en honum féllst hugur í bili, þegar fyrrnefnd breyting var gerð á reglum menntaskólans. Ætlaði hann þá fyrst að gerast sjómaður, en síðan rafvirki og lýsa upp íslenska sveitabæi. Forlögin ætluðu honum að lýsa þá upp á annan hátt en þann sem hann þá hugsaði sér. En eftir að hafa enn hitt frænda sinn á Hraunum, verður hitt ofan á, að sigla til borgarinnar við Eyrarsund. IV „Og þegar hann fór með þetta er- indi: Ekki skal það kvelja þig skó- hljóðið mitt; ég skal ganga berfætt um blessað húsið þitt - hríslaðist eitthvað um mig, sem var allt annað en éggat fundið til af kvæðum hinna ungu skáldanna." í Kaupmannahöfn bjuggu þeir saman frændumir, Davíð og Einar frá Hraunum, við sæmilegan kost, þó að úr drægi eftir því sem leið á styijöldina miklu. Þá var í Höfn, sem fyrr og síðar, frítt lið ungra íslendinga, og skáldin í hópnum stofnuðu félagið Boðn. Skiptust Boðnarbræður á að lesa upp úr ljóðum sínum. „Allir heilluðust af Davíð við fyrstu sýn,“ segir Einar frændi hans. En skáldskap Davíðs kunnu þá fáir að meta í fyrstu aðrir en Sveinn Jónsson Framtíðarskáld sem þá þegar þótti Davíð skyggja svo á sig, að minnstu munaði að hann legði skáldárar sínar í bát. En svo kom Sigurður Nordal til sögunnar og átt- aði sig fljótt og skildi og skynjaði hvað í hinu unga skáldi bjó. Hann kom því til leiðar að Davíð lét nokkur ljóð til prentun- ar í tímaritinu Eimreiðinni 1916. Þau eru: Komdu, Brúðarskórnir, Allar vildu mey- jarnar, Léttúðin og Hrafnamóðirin. Svo / Iðunni: Mamma ætlar að sofna, Skugginn, Myndhöggvarinn, Svefnljóð og Á Dökkum- iðum (árg. 1916-17) og Krummi, Er árin færast yfir og Abba-Iabba-Iá (árg. 1918-19). Sum þessara ljóða urðu brátt á allra vörum. V „Síðan hefur stúdentaöskrið orðið mér hvimleiðara með hveiju árí, en vinsemd mín til bændafólksins vaxið að sama skapi." (Frostavetur, 1963.) Haustið 1916 komst Davíð svo í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík, inn í mikinn skáldahóp, og varð umsjónarmaður í fjórða bekk B. Hann lauk bekkjarprófi 1917, en næsta vetur var fimmti bekkur ekki haldinn, og var kallað í sparnaðar- skyni vegna stríðsins. Þá fór Davíð heim í Fagraskóg og las þar, og frá þeim vetri er ein áhrifamesta frásögn hans í lausu máli, Frostavetur (Mælt mál 1963). Haust- ið 1918 fór hann svo í sjötta bekk og varð inspector scholae. Ekki vildu veikindin sleppa með öllu taki sínu á honum. Hann lá rúmfastur fimm vikur í spönsku veik- inni. Stúdentsprófi lauk hann með engum glæsibrag vorið 1919. Reyndar voru fæstar lokaeinkunnir stúdenta 1919 mjög glæsi- legar og kannski ekki við því að búast, eins og skólahaldi hafði verið háttað. Ef til vill má líka færa það á reikning stríðs- ins, eða svokallaðra sparnaðarráðstafana, vegna þess, að nokkurt los virðist hafa verið á menntaskólanum. Af 29, sem luku stúdentsprófi 1919, voru tólf utanskóla. Þess var fyrr getið, að Davíð Stefánsson mun hafa kunnað miðlungi vel við skóla- aga, að því leyti að honum væri sett fyrir ákveðið námsefni. Hann var hins vegar reglusamur nemandi í hátterni sínu og hlaut hæstu einkunn sem fáanleg var í hegðun. En hann var lausninni feginn í próflok. Veisluhöld voru engin. Og nú þykir rétt að gefa honum sjálfum orðið: „Vorið 1919 tók ég stúdentspróf. Að því loknu fór ég einn upp í Öskjuhlíð og velti mér þar í moldinni, líkt og hestur, sem losaður hefur verið við reiðinginn." Haustið 1919 komu Svartar fjaðrir út. Inn í Lögréttu smaug þessi vísa án höfund- arnafns: Davíð rauðar rósir að ritlaunum fær. Fjallkonan lætur lesa honum þær. Lifandi og heitari konur lásu honum ekki síður lof og rósir, og norður á Akur- eyri greip sr. Matthías til penna síns. Hann var þá mjög aldri orpinn, sextíu árum eldri en Davíð, en óhrömaður andlega eins og Sigurður Nordal hefur best lýst. Hann kallaði bókina hinu nýju Davíðssálma og bað menn taka henni vel. Þjóðskáldið sagði: „Form og efni mætist jafnan hjá höfundi í miðju trogi, svo hvert bam skilur þá meiningu, sem næst liggur, hann þekkir ekki mærð né íburð, enda er hann allur háður hugmyndum og þjóðsagnablæ. „Og enn sagði skáldið á Sigurhæðum: „Eitt vald er almáttugt og sigrar allt illt. Og það vald heitir góðleikur. Og hver, sem með hug og hjarta ann góðleik, hann elskar um leið sannleik og réttlæti. Þannig hljóðar hin eina sáluhjálplega trú, sem engin þjóð þorir á móti að mæla, hveiju sem hún annars trúir eða læst trúa. Og lesi menn ofan í kjölinn Davíðs Svörtu íjaðrir, munu allir skynsamir menn skilja, að hann fer ekki villur vegar í þeirri einu trú, sem heimsku og vonsku heimsins sigr- ar.“ (Signrður Nordal: Minningarorð 1964.) DAVÍÐ STEFÁNSSON Farfuglar Þeirkoma úrfjarska, finna síngömlu vé, er fönnin þiðnar og laufgast blóm og tré. Og grasið er mjúkt, eins og gljáandi silkiflos, og gamla landið verður eitt sólskinsbros. Þeir elska svo heitt, að himinninn verður blár, að hrynja af blómunum lítil daggartár. Og birtunni fagna bæði menn og dýr og blessa þessi fljúgandi ævintýr. Og alltaf eru þeir syngjandi sama lag, en samt geta allir hlustað nótt og dag, því óður þeirra er engilhreinn og skær, svo öllum verður söngurinn hjartakær. Og búið er reist og byggt í kyrrð og ró, í blásnum holtum og grænni mosató. Þar vefja þeir saman visin lauf og strá, svo verpa þeir litlum eggjum og sitja á. Og óskabörnum með augu skær og dökk er öllum fagnað með söng og hjartans þökk, og móðirin sækir maðk í gras og sef og matar þessi litlu, gapandi nef. Og vorið og sólin vekja unga þrjá, og vaéngina seiða loftin heið og blá. En hljóta þeir ekki fáir frið á jörð, sem flytja himininum söng og þakkargjörð? II Er fennir í hlíðar, fölna strá og blóm, og fuglinn verður að þola sinn skapadóm. En sumum veitir söngurinn þrek og dug, og svo er að þreyta Iangt og mikið flug. Þeir stefna út yfir höfm blá og breið. í bylgjunum farast sumir á miðri leið, en sárast er þeim, sem dreymir dagsins lönd, að deyja í hafí, er blánar fyrir strönd. Þó hinna bíði fjöll og firnindi nóg, þá finna þeir hvergi íslenzka mosató. Ef myrkrið felur mörkina, kalt og hljótt, er mesta kvölin að þrá hina björtu nótt. Ó, hver sem gæti fundið sin fenntu spor í íjallahlíðunum heima, næsta vor. Ari Gísli Bragason valdi. Höfundur er fyrrverandi menntaskólakennari á Akureyri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.