Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1995, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1995, Side 10
MEXÍKÓBORG er glæsileg yfir að líta frá Chapultepec-garðinum. INDÍÁNAKONUR sitja við nýlega uppgrafnar leifar af Musterinu mikla, mesta helgistað Aztekanna í höfuðborg þeirra, Tenochtitlan, nú í miðri Mexíkóborg. MEXÍKÓBÚAR halda fast í sérstæða tónlistarhefð sína og þjóðlegir dansar, sem varðveizt hafa frá tímum Azteka, eru afar sérstæðir og eftirminnilegir. LÍKAN af miðju Aztekaborgarinnar Tenochtitlan með Musterinu mikla, pýr- amídum og höllum. Spánveijar jöfnuðu það allt við jörðu. voru búnir að sigra Azteka. Þetta er stein- bákn; stærsta kirkja í latnesku Ameríku, sem var byrjað á 1567 og tók 250 ár að ljúka við bygginguna. Ymsar arkitektonísk- ar breytingar urðu á kirkjunni á því tíma- bili, en utanfrá að sjá svipar henni til kirkna á Spáni og Máraáhrifin, komin austan úr Arabalöndum, leyna sér ekki. í kór hefur verið tekið mið af Péturskirkjunni í Róm, en fegurðin hefur einhvernveginn orðið við- skila. SAGA MEXÍKÓ í FRESKUM RIVERA OG OROZKOS Önnur stórbygging við Zokalo er Palacio National - Þjóðarhöllin- sem landvinninga- maður Spánveija, Hemán Cortes, lét byggja eftir að hafa splundrað og eyðilagt Muster- ið mikla, aðalhelgistað Aztekanna, sem stóð í fárra skrefa fjarlægð. í höllinni er m.a. aðsetur forsetans og nokkurra ráðuneyta. Eins og fjölmargar fyrri tíma byggingar er hún reist á hugmynd frá Rómveijum: Atr- iumhúsinu, þar sem bygggt er utan um skuggsælan garð. Þar höfðu menn rennandi vatn, sem bæði var svalandi og merki um auð og vald í þessum heitu löndum. Ferðamenn koma þó oftast í Þjóðarhöllina til þess eins að sjá frægar og risastórar freskur mexíkanska málarans Diego Rivera, sem virkur var á fyrriparti aldarinnar. Hann var pólitískur listamaður, sanntrúaður kommúnisti og Stalínisti og hefur greinilega notið velvildar og samþykkis þáverandi stjórnvalda við verk sitt. I raun og veru er Diego Rivera sósíal-realisti, sem nær að lyfta verkum sínum á listrænt plan með því að stokka þau saman, ekki ósvipað og Erró gerir í sínum verkum. Maður „les“ þetta myndverk frá hægri til vinstri jafnframt því sem gengið er upp tröppur, Rivera byijar á goðsögninni um Quetzalqoatl, guð austanvindsins í trúarbrögðum Az- teka; það var meðan veröldin var óspillt og friðsöm. Síðan sést Cortes koma til sögu og allur djöfulgangurinn sem fylgdi í kjölfar- ið; þar á meðal þegar prelátar kirkjunnar pynta indíánana til að láta af trú sinni og taka kristni. Beztu myndskeiðin hjá Rivera eru þar sem hann lýsir menningu og háttum einstakra indíánaþjóða svo sem Tarasca og Zapoteca. Verst er hinsvegar það sem snýr beint að hinu kommúnistíska trú- boði. Yfir ófögrum lýsingum á mis- rétti og kúgun kirkju og auðvalds, er Lenin í gervi guðs og bendir til fyrirheitna landsins; þar spýr hver verksmiðjan af annarri eiturbrúnum reyk út í andrúmsloftið. Þetta var sú paradísarsýn sem sanntrúaðir kommúnistar höfðu þá. Önnur mikilfengleg freska með sögu landsins er eftir Orozco, reyndar ekki í Mexíkóborg, heldur í Guadalajara. Orozco er sterkari teiknari og meiri expressjónisti. Þessi freska lýsir byltingunni 1910 og er líka rammpólitískt verk, en magnað. Ut úr henni virðist mega lesa þá spá í hrapandi myndhluta, að hakakrossinn og hamarinn og sigðin fari allt sömu leið. Mexíkóbúar eiga geysilega sterka hefð að þessu leyti og þessi túlkun á sögunni er um leið áminning um að gleyma engu. Það er sagt að landsmenn séu langminnugir og hvergi annarsstaðar en í Mexíkóborg er til sérstakt „Áreitnisafn" þar sem séð er til þess að árásarmenn og óvinir þjóðarinnar gleymist ekki. Fyrir utan Diego Rivera og Orozco eru Sigueiros og O’Gorman frægir fýrir stórar freskur utan- og innan á byggingum; ein er til að mynda í flugstöðinni í Mexíkóborg. Ásamt með þeim má segja að Mexíkóbúar eigi eina heimsfræga listakonu, málarann Fridu Kahlo, sem raunar var eiginkona Die- gos Rivera. Einnig Ruffino Tamayo; safn yfir list hans er i höfuðborginni. Öll hafa þau í list sinni meðtekið áhrif frá list indí- ána; öll eru þau í frásagnarlegri myndlist af því tagi sem nánast er bannfærð á ís- landi síðan á bannárunum eftir 1950 og ævinlega í einhveijum hrikalegum misskiln- ingi heimfærð uppá bókmenntir. GLÆSIGÖTUR OG ALÞJÓÐLEGUR BRAGUR Fátæktin blasir við í Mexíkóborg; eins er með andstæðu hennar, allsnægtirnar. Hafir þú fullar hendur fjár eða krítarkortið í lagi, þá er fátt af unaði heimsins sem ekki fæst hér. Það væri þá helzt íslenzkt hangikjöt eða eitthvað þvíumlíkt. Öðru megin glæsigötunnar Paseo de la Reforma er Zona Rosa, hverfi sem þykir hafa sérstaka töfra og nafnið, Bleika hverf- ið, gefur til kynna að það sé ekki beint gleði- húsahverfí, en eitthvað í áttina. Því hefur verið líkt við Greenwich Vil- lage í .New York. Þar er fjöldi smá- verzana og veitingahúsa; þar á með- al tehús, en einnig næturídúbbar og barir. Mexíkóborg þykir hafa frá- bæran matarkúltúr og úrvals veit- ingahús þar sem hinn bragðsterki, mexíkanski matur og alþjóðleg mat- arkúnst standa sér eða renna sam- an. Þessa veitingahúsamenningu var sérstaklega eftirminnilegt að sjá í nokkurra alda gömlu mósaíklögðu atriumhúsi í mið- borginni. Þessu húsi hafði verið breytt í veitingahús á tveimur hæðum og þar ríkti stemmning rósemi og afslöppunar, enda enginn músíkhávaði hafður uppi. Borgin er glæsileg yfir að líta frá Chapul- tepec-garðinum þar sem m.a. stendur - eða liggur - mósaíklagður skúlptúr Diegos Ri- vera: Regnguð Axtekanna; sá hét Qetzalqoatl. Það er heldur ekki margt að byggðinni í Las Lomas - Hæðunum - þar sem fjöldi einbýlis- húsa efnaðra borgar stendur. Meðal þess sem reist hefur verið af menningarlegum metnaði er Fag- urlistahöllin - Palacio de Bellas Art- es - skammt frá Þjóðarhöllinni. Mér sýndist þetta í fyrstu vera barkokbygging og gat þá verið 200 eða 300 ára gömul. Það ótrúlega reyndist hinsvegar vera að húsið var byggt eftir byltinguna 1910 og fyrst lokið við það í miðri kreppunni 1934. Þessi mikla höll hýsir Þjóðaróperuna, Sinfó- níuhljómsveit, þjóðlega ballettinn (folkloric) og einnig listasafn. Þama hefur verið myndarlega staðið að verki. En húsið er engan veginn barn síns tíma að utanverðu, heldur hefur það vísun aftur í aldir. Og enn skrýtnara er að koma í hinn glæsta forsal og sjá að þar er allt annar stíll ríkjandi, nefnilega Art deco, með ívafi frá Vínarskólanum, sem var í tízku um síðustu aldamót. Leiðsögumaðurinn sagði að þetta væri svona vegna þess að sjálfir ættu Mexíkóbúar enga hefð til að styðjast við og yrðu að sækja sér fyrirmynd- ir til annarra þjóða, einkum Evrópu. Það er vitaskuld bull; víða um landið standa musteri Axteka og Maya í mjög sérstæðum stíl og hefðu átt að geta orðið miklu verð- ugri fyrirmynd. Vegna gengisfalls pesóans getur verið afar hagstætt að verzla, ekki sízt í dýrum og fínum verzlunum eins og Aquascutum, Burberrys og Polo Ralph Lauren. Eða borða á Maxims de Paris og Raffaello. Þeir sem hafa meiri áhuga á menningarverðmætum en að kaupa í sig og á, verða hinsvegar ekki sviknir af dagstund á Mannfæðisafninu sem er til húsa í yfirlætislausri byggingu eftir mexíkanska arkitektinn Petro Ramirez Vazquez og var opnað 1964. Á safninu er meðal annarra merkisgripa hringlaga almanak Aztekanna, sem hefur orðið að einskonar þjóðartákni. Það er höggvið í stein og var ef til vill litskreytt upphaflega og þannig fæst þetta „Calend- ario“ í óteljandi útgáfum handa ferðamönn- um. Á safninu er sögð í myndum sú saga að þjóðir frá Asíu fluttu sig austar og norðar og annaðhvort yfir Beringssundið til Norð- ur-Ameríku, eða þá að hægt hefur verið að ganga þurrum fótum þar sem Beringssund er nú. Ein kvísl úr þessum straumi lenti á Grænlandi og ílentist þar og í Norð’ir- Kanada. Eskimóar hafa mongólsk einkenni eins og indíánaþjóðirnar, sem á mörgum árþúsundum flæddu suður um Ameríku unz þær höfðu dreifst um Norður- Mið- og stór- an hluta Suður-Ameríku. Sumar indíánaþjóðir sem náðu háu menn- ingarstigi í Mexíkó, komu af einhveijum ástæðum að sunnan; Mayar til dæmis. Dag- legt líf þeirra, Aztekanna og fleiri horfinna indíánaþjóða, virðist hafa mótast mest af guðatrú, sem tók á sig grimmilegar myndir með einhveijum hroðalegustu mannfórnum sem sögur fara af. Síðar verður sagt frá því. Eitt lykilverkið á Mannfræðisafninu er mikilfengleg höggmynd frá menningarskeiði Azteka: Móðir allra guða. Sú er nú ekki mild á svipinn. En myndin er líkt og ótal aðrar hliðstæðar myndir, frábært listaverk með ríkulegri tilfinningu fyrir formi og hlut-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.