Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1996, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1996, Blaðsíða 1
GÖNGUHÓPURINN við listasafn Samúels Jónssonar í Selárdal. Greinarhöfundurinn tók myndirnar og þessvegna vantar hana eina á þessa mynd. Þrútið var loft . . . Gönguhópurinn „Fríða og föruneyti“ ákvað að fara sína árlegu ferð til Vestfjarða sumarið 1995. Fyrir utan Hornstrandir er enn ekki algengt að fólk fari í hópum í gönguferðir um Vestfirði. Aðrar leiðir eru fjölfarnari svo sem Þessi dagur sem átti að vera nokkuð auðveldur, reyndist mikil þrekraun fyrir ýmsa, ekki síst þar sem við þurftum að ganga lengi í stórgrýti, sem er mjög slítandi, sérstaklega þegar gengið er í þoku. Eftir KRISTÍNU EINARSDÓTTUR leiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur eða „Laugavegurinn“, Kjalvegur hinn forni, leiðin milli Snæfells og Lóns og eyðibyggðir milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Eftir nokkra könnun á möguleikum var ákveðið að velja gönguleiðir á sunnanverð- um Vestfjörðum að þessu sinni. Áætlunin miðaði viþ að fara akandi til Stykkishólms og taka far með ferjunni Baldri til Brjáns- lækjar með viðkomu í Flatey. Dvelja fyrstu nóttina í skóla að Birkimel við Hagavaðal. Þaðan átti að fara inn Mórudal og yfir í Reykjafjörð í Arnarfirði. Við völdum þessa leið til þess að geta notað sundlaugina í Reykjafirði að lokinni göngu. Einnig hefði verið hægt að fara Fossheiði yfir í Fossfjörð en sú leið var fjölfarnari en okkar göngu- leið hér áður fyrr. í Reykjafjörð átti að sækja okkur og aka til Tálknafjarðar og daginn eftir í Selárdal til að ganga yfir Selárdalsheiði til baka til Tálknafjarðar. Ferðinni átti svo að ljúka með því að ganga Miðvörðuheiði frá Tálknafirði yfir á Barða- strönd og enda ferðina á sama stað og hún hófst. En veðurguðirnir láta ekki ferðaáætl- anir þéttbýlisbúa ráða ferðinni eins og göngufólkið átti eftir að komast að. Hagavaðall-Suðurfirðir Lagt var af stað miðvikudaginn 26. júlí og gekk allt samkvæmt áætlun til að byrja með. Nítján manna hópur gekk af stað dag- inn eftir glaður í bragði, en ætlunin var eins og áður sagði að ganga í Reykjafjörð í Amar- firði þennan dag. Mórudalur er fallegur kjarrivaxinn dalur inn af Hagavaðli. Við gengum inn dalinn að austanverðu. Innarlega í dalnum eru heitar lindir sem notaðar voru til að byggja frum- stæða laug þar sem börnum var kennt sund hér áður fyrr. Við lindirnar vex m.a. skolla- burkni og annar fallegur gróður og er vel þess virði að ganga upp í hlíðina og skoða þetta svæði. Upp úr dalnum þarf hins vegar að fara vestanmegin ár en víðast er auðvelt að komast yfir hana. Ef vel er að gáð, má sjá leifar af götu upp úr dalnum og þegar komið er hærra upp vísa vörður veginn í vest- ur inn á Fossheiði. Slóðinni var fylgt nokkra stund í vestur en svo var ákveðið eins og fyrr sagði að sveigja til norðurs og stefna á skarðið milli Skarðsfjalls og Hádegisfjalls og fara þar niður í Reykjafjörð. Þegar þarna var komið var komin mikil þoka og skyggni innan við 50 metra. Ákveðið var að halda fyrri áætlun þótt eftir á að hyggja hefði e.t.v. ver- ið vænlegra að fylgja vörðuðu leiðinni yfir Fossheiði niður í Fossfjörð. Áttavitar og hæð- armælir voru nú dregnir fram og tekið mið á skarðið. Guðrún Ólafsdóttir á Bíldudal sem er frá Reykjafirði var búin að segja, að það væri auðvelt að rata á skarðið en hún gerði auðvitað ekki ráð fyrir því skyggni sem var þennan dag. Hún sagði jafnframt að mjög gott útsýni væri frá Hádegsfjalli og hvatti eindregið til að þangað yrði gengið upp og þess notið ef veðrið væri gott. Þrátt fyrir góða leiðsögn fór hópurinn of austarlega og lenti í þokunni upp á Hádegisfjall en auðvitað var útsýnið ekkert. Við gengum síðan í þok- unni austur með fjallinu að norðanverðu og svo niður í Trostansfjörð en þangað var orðið styst niður úr þokunni. Við vorum ósköp feg- in þegar við komun niður á þjóðveginn og rúta frá Torfa Andréssyni birtist til að aka mannskapnum í náttstað á Tálknafirði. Að- staða fyrir ferðafólk á Tálknafírði var að okkar mati mjög góð. Gist var í grunnskólan- um rétt við sundlaugina, en þar er góð að- staða til að elda og smyija nesti og veitinga- hús skammt undan með góðum mat að lokn- um degi. Ef fólk vill tjalda eða gista við meiri þægindi er einnig boðið upp slíkt á staðnum. Margt Býr í Þokunni Þessi dagur sem átti að vera nokkuð auð- veldur, reyndist mikil þrekraun fyrir ýmsa, ekki síst þar sem við þurftum að ganga lengi í stórgrýti, sem er mjög slítandi sérstaklega þegar gengið er í þoku. En öll nítján kom- umst við heilu og höldnu til byggða. Það má ekki síst þakka því að hópurinn var mjög

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.