Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1996, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1996, Page 12
RANNSOKN I R I S L A N D I Umsjón: Sigurður H. Richter Illviðrislægð við ísland Eftir SIGURÐ ÞORSTEINSSON, JÓN EGIL KRISTJÁNSSON og GUÐMUND FREY ÚLFARSSON. 30 20 Lengdargráda (°V) 2. MYND. Braut lægðarinnar. Sýnd er staðsetning lægðarinnar við yfirborð (•), dagsetning/klukkustund: loftþrýstingur í lægð- armiðju (mb) sem og staðsetning háloftalægðar (x). Tölur í svig- um sýna þrýstingsbreytingu á hverjum 6 klst. við yfirborð. Lengdargráda (°V) 1. MYND. Veðurkort, sem sýnir jafnþrýstilínur við sjávaryfirborð og veðraskil svo og veðurathuganir (vindátt, vindhraða (heilt strik = 10 hnútar), skýja- hulu og hitastig (°C) á nokkrum stöðvum. 250 300 1 400 | 500 '& 700 850 1000 -7“ / - ' Xí— t'. \ ..ZL ...............-j- JlT.I m — —» — ! -X m — ~4 \. - V- -f— : £60.i\ •OjJ -- • - -----X~m - — rn.rn.rn mX ---------------4-i- -A—— /' »» ' || V 30 j! \ —Vt - -*r---V- -r- *--- —/..... 90 r..-s ■ / ...4 45 40 53.#fN —r— 35 30 25 20 Lengdargráda (°V) 10° V 46.80°N 3. MYND. Þverskurður gegnum lofthjúpinn á milli staðanna A og B sem sýndir eru á 1. mynd. Sýnt er rakastig (slitrótt lína, %) kl. 18 2. febrúar. 40 30 20 Lengdargráda (°V) 4. MYND. Loftþrýstingur við yfirborð (í mb), ásamt hita- og kuldaskilum kl. 12 3. febrúar 1991 samkvæmt útreikningum HIRLAM-Iíkansins. Öflugt tölvulíkan eykur skilning á orsökum óveðra. VEÐURSTOFA f ÍSLANDS UM nokkurt skeið hafa staðið yfir hér á landi rannsóknir á orsaka- þáttum krappra lægða við ísland. Rannsóknir af þessu tagi eru ís- lendingum mikilvægar, þar sem vænta má að þær leiði til þess að hægt verði að segja betur fyrir um lægðir, styrk þeirra, stefnu, varanleik og hugsanlegan eyðileggingarmátt. Um leið er markmiðið að kynnast betur tölvu- líkaninu HIRLAM (Hlgh Resolution Limited Area Modelling), en það er þróað í samstarfi Norðurlandaþjóða, Hollendinga og íra. NÚTÍMA VEÐURSPÁR Veðrið myndar fjölbreytt og flókið kerfi. Aðalþættir þess eru hegðun vinda, hita, vatnsgufu, skýja og úrkomu, auk áhrifa yfir- borðs hafs og lands. Vegna þess hve flókið veðurkerfið er þurfa veðurfræðingar öflugar tölvur til að reikna út veðrið fram í tímann. Ferli veðurspárinnar er hægt að lýsa á ein- faldan hátt þannig: 1. Eðlisfræðilögmál sem stjórna hreyfing- um og orkuskiptum andrúmsloftsins eru sett fram sem stærðfræðilíkingar og mynda þann- ig veðurlíkan. 2. Með tölvu er fundið sem nákvæmast ástand veðurkerfisins á því augnabliki sem reikningar veðurlíkansins eiga að hefjast. Til þess eru notaðar samtímis veðurathuganir frá jörð og upp í 20 kílómetra hæð eða meira. 3. Afkastamikil tölva er notuð til að reikna út úr líkingunum breytingarnar frá upphafs- ástandi fram í tímann. Séu stórar eyður í veðurathugunum á einhverjum svæðum verða upphafsgildi líkansins meira eða minna röng og spáin ónákvæm eftir því. 4. Ut frá niðurstöðum reikninganna fást síðan nánari spár um veðrið sjálft. Myndun Og Þróun Ofviðrislægðar á Norður-atlantshafi Hafið umhverfis ísland er eitt af þeim svæð- um jarðarinnar þar sem lægðir eru einna tið- astar. Þessi mikla lægðavirkni er af ýmsum rótum runnin. Þar til má telja mikla sjávarhita- breytingu á lengdareiningu en hér kólnar sjór einmitt ört þegar norðar og vestar dregur og þessi breyting orkar á lofthitann. Lægðir eru tíðastar og verða dýpstar yfir sjó því að þar er viðnám yfirborðsins gegn vindinum lítið og raki nógur. Við þetta bætist að á Norður- Atlantshafi mætist oft geysikalt meginlands- loft frá Kanada og hlýtt hafloft að sunnan. Það er því tilvalið að prófa veðurlíkön á þessu hafsvæði og rannsaka í hveiju spánum er áfátt, m. a. vegna skorts á veðurathugunum. í þessu skyni er hér valin mikil óveðurs- lægð sem myndaðist á skilum norður af Azoreyjum að morgni 2. febrúar 1991. Klukkan 12 var lægðarmiðjan stödd um 2000 km suð-suðvestur af landinu og sést staðsetn- ing hennar á 1. mynd. Að norðan kom kalt loft og þungt frá Kanada að skilunum og þrengdi sér undir hlýtt og létt loft sunnan úr hafi. Þessi hita- og þyngdarmunur loftm- assanna kemur af stað lóðréttum og láréttum loftstraumum sem snúast að nokkru leyti upp í hvirfilhreyfingu og þar með lægðarmyndun, og rakaþétting í uppstreyminu veldur líka dýpkun lægðarinnar vegna varma sem hún leysir úr læðingi. Braut lægðarinnar að íslandi og dýpt henn- ar frá klukkan 12 2. febrúar til kl. 12 dag- inn eftir er sýnd á 2. mynd þar sem hver depill táknar stað lægðarmiðjunnar við yfir- borð jarðar. Á myndinni sést önnur braut, merkt með krossum, en það er braut sam- svarandi háloftalægðar. Hlutverki hennar verða gerð skil síðar. Á 3. mynd sést tölvureiknaður þverskurður í gegnum lofthjúpinn frá yfirborði upp í u.þ.b. 15 km hæð klukkan 18 2. febrúar. Staðsetn- ing þverskurðarins er sýnd á 1. rnynd sem strik á milli punktanna A og B. Á þessari mynd eru jafnrakalínur sýndar með slitrótt- um strikum. Skyggðu svæðin tákna að þar er rakastig 90% eða meira og þar er því um ský að ræða. Skýin hafa myndast af upp- streymi og rakaþéttingu og eru einkum vest- an við kuldaskilin og bæði lágt og hátt í lofti í geiranum milli hitaskila og kuldaskila. En lægðin dýpkar ekki einungis vegna þess, að stöðuorka breytist í hreyfiorku og að dul- varmi losnar úr læðingi við rakaþéttingu, heldur kemur fleira til. Á 12 klukkustundum frá kl. 18 2. febrúar til kl. 6 að morgni 3. febrúar hrapaði þrýst- ingur í lægðarmiðju um 32 millíbör eins og sést á 2. mynd. Næstu 6 klukkustundir þar á eftir varð frekara þrýstingsfall um 13 mb. Útreikningar okkar hafa leitt í ljós að hálofta- lægðin sem nálgaðist yfirborðslægðina úr suðvestri átti stóran þátt í dýpkuninni á síð- astnefndu tímabili. Víxlverkun af þessu tagi á milli yfirborðslægðar og háloftalægðar sýn- ir glögglega hið þrívíða eðli veðursins. Lægðin dýpkaði ört þegar hún færðist nær landinu og um hádegi 3. febrúar hafði loft- þrýstingur í miðju hennar náð 943 mb. Þá var fárviðri víða á Suður- og Vesturlandi, þ.e. 10 mínútna meðalvindhraði yfir 33 m/s (119 km/klst). Einstaka hviður geta orðið miklu hvassari og oft eru það einmitt þær sem valda mestum usla. Þann 3. febrúar mældust vindhviður allt upp í 62 m/s (222 km/klst) bæði á Stórhöfða í Vestmannaeyjum og við Þyril í Hvalfirði, en það er hámark þess sem vindmælar gátu mælt á þessum stöðum. Þetta er vindstyrkur á við það sem gerist í öflugum fellibyljum. Flest veðurspárlíkön á þessum tima van- mátu dýpkun lægðarinnar. Ástæðurnar voru meðal annars þær að ekki var nóg um mæling- ar úr háloftum á svæðinu þar sem lægðin myndaðist. Því vantaði nauðsynleg gögn til að hægt væri að segja rétt fyrir um lægðarþró- unina. Við höfum endurkeyrt HIRLAM-líkan- ið með nákvæmari upplýsingum sem fengust síðar um ástand lægðarinnar klukkan 12 á hádegi 2. febrúar og notuðum þær sem upp- hafsgildi. Okkar niðurstöður benda til að líkan- ið geti þá sagt fyrir um alla meginþætti lægð- arþróunarinnar eins og sést á 4. mynd. Ákveðið samhengi er á milli staðsetningar og dýpkunar; því meiri dýpkun, þeim mun meira sveigir braut lægðarinnar til vinstri. Því er mikilvægt að spáð sé rétt um dýpkun- ina ef braut lægðarinnar á að vera rétt. Þessi rannsókn, sem hér er stuttlega lýst, er einungis fyrsta skrefið í víðtækari könnun illviðralægða við ísland. Rannsóknarráð íslands styrkti þessa rannsókn og auk þess er Páli Bergþórssyni, fyrrverandi veðurstofustjóra þakkaður stuðningur. Sigurður veðurfræðingur og Guðmundur Freyr eðlisfræðingur starfa við Veðurstofu íslands og Jón Egill veðurfræðingur starfar við Óslóar- háskóla. Rannsóknarráð íslands stendur að birtingu þessa greinaflokks.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.