Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Qupperneq 11
IBSEN, KANT
OG SANNLEIKS-
RUKKARINN
Villiöndin eftir Henrik Ibsen verður jólaleikrit Þjóð-
leikhússins. KRISTJAN G. ARNGRIMSSON fjallar hér
um siðferði og sjólfsblekkingu í Villiöndinni.
IBÓKINNI Drög að frumspeki siðlegrar
breytni sem kom fyrst út árið 1875
fullyrti þýski heimspekingurinn Imm-
anuel Kant að einungis það sem maður
gerði af skyldurækni hefði siðferðilegt
gildi. Það sem maður gerði af ein-
hverri annarri ástæðu, eins og til dæm-
is vegna hræðslu við refsingu eða af
gróðafíkn, væri annaðhvort siðlaust eða hefði
alls ekkert með siðferði að gera. Ein kunnasta
setningin sem höfð er eftir Kant er þessi: „Ein-
ungis tvennt vekur mér lotningu, stjömuhi-
minninn yfir höfði mér og siðalögmálið í btjósti
mér.“ Það er einungis þegar athafnir manns
ráðast af virðingu fyrir siðalögmálinu að at-
hafnir manns hafa siðferðilegt gildi.
Persóna Gregers Werle í leikritinu Villiönd-
in, sem Henrik Ibsen skrifaði á árunum
1882-4, virðist við fyrstu sýn vera skýrt dæmi
um mann sem gerir einungis það sem skyldan
býður honum án þess að leiða hugann að afleið-
ingunum. Hann er sannfærður um að þær lyg-
ar og blekkingar sem fjölskylda Hjálmars Ek-
dals er flækt í sé að gera útaf við dótturina,
Hedvigu, og að honum beri að gera vini sínum
Hjálmari ljóst hver sannleikurinn í málinu er.
Afleiðingar sannleikstrúboðs Gregers eru
skelfilegar og fjölskylda Hjálmars, og líf fólks-
ins í kringum hann, er í rúst. Eins og Relling
læknir kemst að orði, lífíð væri ekki svo slæmt
ef maður fengi að vera í friði fyrir sannleiks-
rukkurum á borð við Gregers.
Sióferóilegt gildi athafna
Til þess að komast að raun um hvort athöfn
hefur siðferðilegt gildi, samkvæmt siðfræði
Kants, þarf maður að athuga tvennt: hver er
ástæða athafnarinnar, og hvaða grundvallar-
reglu lýtur hún? Sýna þarf fram á, að grundvall-
arreglan geti gilt fyrir alla jafnt. í þessu er
fólginn kjarninn í siðfræði Kants og nefndur
er skilyrðislausa skylduboðið. Það kveður á um,
að athafnir manns eigi að vera í samræmi við
grundvallarreglu sem maður getur viijað að
verði að almennu lögmáli. Kant hélt því fram,
að einungis virðing manns fyrir siðalögmálinu
gæti orðið til þess að athöfn hefði siðferðilegt
gildi. Langanir og einkahagsmunir eða hlýðni
við yfirvöld svipta athafnir öllu siðferðilegu gildi.
Hvernig getur maður vitað hvort grundvall-
arreglan sem maður hlýðir geti orðið að al-
mennu lögmáli? Maður athugar hvort einhver
mótsögn sé fólgin í því að ætla henni altækt
gildi. Kant nefndi sem dæmi mann sem fær
peninga að láni en veit sem er að hann mun
ekki geta endurgreitt þá. Hver er sú grundvall-
arregla sem liggur að baki gjörðum þessa
manns? Hana mætti orða eitthvað á þessa leið:
Þegar ég er í fjárhagsvanda er mér leyfílegt
að fá peninga að láni án þess að ætla mér að
endurgreiða þá. Kant benti á, að ef þetta yrði
að almennri reglu myndi „loforð" hætta að
vera til, því öllum yrði ljóst að sá sem gæfí
„loforð“ þyrfti alls ekki að hafa nein fyrirheit
um að standa við orð sín og þess vegna hefði
„loforð“ í raun glatað merkingu sinni. Þar er
mótsögnin komin.
Dálítið öðru vísi mótsögn kemur í ljós ef
tekið er annað dæmi, sem Kant nefndi einnig.
Þar segir af eiginhagsmunasegg nokkrum sem
ekki tekur tillit til hlutskiptis annarra en sjálfs
sín. Hann lítur ekki svo á að sér beri skylda
til að aðstoða þá sem eru illa stæðir, heldur
skuli hann fyrst og fremst hugsa um eigin
hag. Eins og Kant benti á þá er ekki hægt
að finna röklega mótsögn í þessu viðhorfi
mannsins, en hins vegar er þetta ákaflega
óskynsamlegt, því ef allir hugsuðu fyrst og
fremst um sjálfan sig og létu'sig afkomu ann-
arra engu varða gæti sá dagur komið að slík
staða mála bitnaði á manni sjálfum. Það er
að segja, með því að vilja að allir hugsi einung-
is um sjálfa sig gæti maður verið að grafa
sína eigin gröf.
En sagan er alls ekki öll sögð. Þótt maður
aðhafist eitthvað sem rekja má til fullkomlega
rökréttrar og skynsamlegrar grundvallarreglu
er ekki þar með sagt að sú athöfn hafi siðferði-
legt gildi, að mati Kants. Ef kveikjan að athöfn
manns er eitthvað annað en virðing fyrir siðalög-
málinu (það er, skyldurækni) er athöfnin án
alls siðferðilegs gildis. Jafnvel þótt athöfnin sé
í samræmi við það sem skyldan krefst, það er
að segja, þótt maður geri nákvæmlega það sem
manni ber skylda til að gera en gerir það af
annarri ástæðu en skyldurækni þá hefur athöfn-
in ekki siðlegt gildi. Kant nefndi sem dæmi
verslunareiganda sem gætir þess jafnan að
snuða aldrei viðskiptavini sína. Ef verslunar-
maðurinn telur þetta einfaldlega skyldu sína,
burtséð frá hagsmunum, þá hefur athöfn hans
siðlegt gildi. En ef hann gerir þetta til að halda
í viðskiptavinina eða vegna þess að faðir hans
sagði honum að maður ætti aldrei að snuða
viðskiptavini sína, þá hafa athafnir mannsins
ekkert með siðferði að gera.
Kant lagði alla áherslu á að kveikjan að sið-
legum athöfnum gæti einungis verið skyldu-
rækni vegna þess, að einungis slíkar athafnir
eiga rætur að rekja til vilja manns sjálfs. Það
er að segja, einungis það sem manns eigin
skynsemi býður manni að gera hefur siðferði-
legt gildi. Einungis slíkar athafnir eru óháðar
Iöngun manns, þrá og ytri áhrifum. Kant var
því á endanum að hugsa um frelsi manns.
(Það er ekki þar með sagt að manni ber engin
skylda til að rétta öðru fólki hjálparhönd, þvert
á móti, samanber orð Kants um eiginhags-
munasemi.)
Sennilega er það út af þessu sem' svo mörg-
um er í nöp við siðfræðikenningu Kants. Mað-
ur myndi svo gjaman vilja að tilfínningar
manns séu ekki bara réttlætanlegar heldur líka
göfugar, svo að maður geti verið stoltur af
þeim. Mann langar til að geta fundist maður
vera göfugur og góður af því að maður hefur
samúð með öðrum. Kant virðist hafa viljað
meina okkur þéssa göfgi.
Vefwr blekkingar
Gregers Werle er sannarlega ömurleg per-
sóna. En er hann dæmi um mann sem einung-
is gerir það sem skyldan býður, það er, leiðir
sannleikann í ljós, hvað sem það kostar, og
veldur þannig öðru fólki ómældum hörmung-
um? Má líta á hann sem fórnarlamb kantísks
skyldusiðferðis? Hugmyndir Hjálmars Ekdals
um sjálfan sig og hlutskipti sitt eru út í hött.
Hann telur sig vera uppfínningamann, elsk-
andi föður og fyrirvinnu fjölskyldu sinnar. Allt
er þetta blekking. Það er í raun kona hans,
Gina, sem heldur ljósmyndastofunni gangandi
og sér fyrir fjölskyldunni. Og Hedvig er, að
því er virðist, ekki dóttir Hjálmars, heldur
Werles, föður Gregers.
Gregers álítur það vera skyldu sína að leiða
hið sanna í ljós og kveðst vilja „leggja grunn-
inn að sönnu hjónabandi". Hann gerir Hjálm-
ari grein fyrir hvernig málum er í raun hátt-
að, og Hjálmar hafnar fjölskyldu sinni og hót-
ar að flytja burt. Hedvig, sem ekki veit betur
en Hjálmar sé pabbi hennar, óttast að honum
þyki ekkert vænt um hana lengur. Gregers
hvetur hana til að sýna Hjálmari hversu mjög
henni þyki vænt um hann með því að fóma
því sem henni er kærast. Gregers á reyndar
við villiöndina, en Hedvig ákveður að fóma
sjálfri sér.
Gregers segist einungis hafa viljað vel. Hon-
um var í mun, það hann hélt að minnsta kosti,
að Hjálmar og Gina tækju hvort öðru eins og
þau í raun eru, í stað þess að lifa í blekkingu
og blindni. Og hver myndi ekki vilja það? Gre-
gers segir að þetta verði hann að gera, vegna
þess að „hugsjónin krefst þess“. Þessa hugsjón
kveður hann búa í brjósti sér, kannski ekki
ósvipað og Kant sagði um siðalögmálið. En
hér er spumingin sú, hvort Gregers þekki í
raun og veru þetta siðalögmál, eða hugsjón,
og hvort hún sé raunverulega kveikjan að at-
höfnum hans. Ef svo er ekki, þá er ekki hægt
að segja að hann sé rekinn áfram af skyldu-
rækninni einni saman, jafnvel þótt hann haldi
það sjálfur.
Ljósmynd/Þjóöleikhúsið
VILLIÖIMDIN var sýnd í Þjóðleikhúsinu 1954, Gestur Pálsson í hlutverki Hjálmars Ek-
dals, Valur Gíslason í hlutverki Werles stórkaupmanns, Katrín Thors í hlutverki Hedvig-
ar, Jón Aðils í hlutverki Gregers Werles og Regína Þórðardóttir í hlutverki Ginu Ekdal.
Ibsen Kant
Það blasir við að þótt Hjálmar haldi sig
hamingjusaman þá er Ekdalfjölskyldan fjarri
því að vera heilbrigð fjölskylda. Áður hefur
verið nefndur sá blekkingaheimur sem Hjálmar
lifír í, og dóttirin Hedvig er ekki síður ringluð,
enda bara barn, og veit ekki betur en Hjálmar
sé pabbi hennar og að hann sé gáfaður og
vinni mikið. Jafnvel þótt hún sinni sjálf þeim
störfum sem hún dáir hann fyrir, það er að
segja, vinni á ljósmyndastofunni sem fjölskyld-
an hefur lífsviðurværi af. Og Gina tekur þátt
í blekkingunni - á nútímamæli myndi hún lík-
Iega kallast meðvirk.
Gregers sér í gegnum þennan blekkingavef,
og vill frelsa Hedvigu úr klóm þessa „mýrar-
fens“, rétt eins og veiðihundurinn snjalli kafar
niður í djúpið til að sækja villiöndina sem hefur
bitið sig fasta í botngróðurinn og mun drukkna
ef enginn kemur henni til bjargar. (Hugleiðing-
ar Gregers um Hedvigu og villiöndina eru reynd-
ar alveg einstaklega ófrumlegar og bera fremur
vott um oflátungshátt en innsæi.)
Gregers virðist vera samviskusamur maður
sem telur það skyldu sína að leiða sannleikann
í ljós og þannig bjarga Hedvigu (sem er, þrátt
fyrir allt, hálfsystir hans) frá þeim grimmilegu
örlögum - sem hann ef til vill þekkir einum
of vel sjálfur - að alast upp í óheilbrigðri fjöl-
skyldu. Það virðist göfugt markmið. En er eitt-
hvað til í því að Gregers sé með þessu að gera
skyldu sína? Er hann einungis knúinn áfram
af virðingu fyrir siðalögmálinu? Svo virðist
ekki vera. Margt af því sem hann segir bendir
til þess að kveikjan að athöfnum hans sé öllu
lítilsígldari (að ekki sé minnst á einfaldari),
nefnilega hatur og hefndarþorsti. Hatur Gre-
gers beinist gegn föður sínum, sem var móður
hans ótrúr; Gregers lítur því svo á, að faðir
sinn sé höfundurinn að þeim blekkingavef sem
Ekdalfjölskyldan
er flækt í, og því
hafi faðir sinn
neytt sig til að
leiða Hjálmari
fyrir sjónir
hvernig málum
er í raun háttað.
Af ofansögðu
má draga þá
ályktun að Greg-
ers sé ekki fjarri
því að vera dæmi
um mann sem er
mótaður af kant-
ísku siðferði. At-
hafnir hans gætu
auðveldlega átt
rætur í grund-
vallarreglu sem
ekkert mælir
gegn að verði að
almennu lögmáli.
Hann hefur bitið
í sig að hann sé
að gera skyldu
sína og því séu
gjörðir hans ekki
einungis réttlæt-
anlegar heldur
beinlínis göfugar.
En það blasir við að hann er ekki rekinn áfram
af skyldurækninni einni saman, þótt hann telji
sjálfum sér trú um að svo sé.
Þótt það komi ekki beinlínis fram í leikritinu 1
er ljóst að Gregers er umhugað um velferð
vinar síns, Hjálmars, og barnsins, Hedvigar.
Hann fær ekki betur séð en þetta fólk sé í ■
bráðri hættu, án þess að því sé það sjálfu ljóst,
og sér því ekki önnur úrræði en að hafa vit
fyrir því. Þannig mætti orða grundvallarregl-
una sem Gregers hlýðir þannig, að manni beri
að hjálpa þeim sem er í hættu staddur að hon- t
um forspurðum, ef hann veit ekki sjálfur að
hann er í hættu. Það er engin mótsögn fólgin
í þessu og fjarri því að þetta sé óskynsamlegt.
Gregers heldur að hann vilji vel, vegna þess
að hann heldur að hann sé að gera skyldu sína
og hlýði einungis siðalögmálinu í bijósti sér.
En hann er í raun og veru á kafí í mýrarfeni
sjálfsblekkingar og ekki að gera skyldu sína,
heldur lýtur ofurvaldi hvatanna, hefndarþorst-
ans, og hefur gert skylduræknina að skálka-
skjóli. Honum yfírsést sú einfalda staðreynd
að manni getur skjátlast í siðferðisefnum. Þa-ð‘
er því ekki hægt að segja að Gregers sé fórnar-
lamb skyldusiðferðis á borð við það sem Kant
greindi. Þvert á móti, það er ekki fráleitt að
Gregers sé í raun og veru að notfæra sér
Ekdalfjölskylduna til þess að koma fram hefnd-
um fyrir móður sína og ná sér niðri á föður
sínum. Ef sú er raunin þá hefur Gregers geng-
ið þvert á mikilvægasta skylduboð kantískrar
siðfræði, sem hljómar svona: „Komdu aldrei
þannig fram við nokkra manneskju, sjálfa þig
eða aðra, að þú sért bara að nota hana í ein-
hveiju skyni, heldur ber þér að virða það sjálf-
stæða takmark sem sérhver einstaklingur hef-
ur með lífi sínu.“
Ef í ljós kemur að Gregers er í raun og veru,
þrátt fyrir að hann sjálfur haldi annað, að nota
Hjálmar til þess að ná fram sínum eigin mark-
miðum þá er útilokað að athafnir hans geti
samræmst þeirri grundvallarreglu sem nefnd
er hér að framan. Sú regla sem liggur að baki
athöfnum hans hlýtur að vera á þá leið, að mér
sé heimilt að vanvirða einkalíf annars fólks ef
gjörðir þess samræmast ekki þeim hugmyndum
sem ég hef um hvemig manni beri að lifa líf-
inu. Það er með öllu óhugsandi að þessi regla
geti orðið að almennu lögmáli.
ÚtSÖIUStaðír: AKRANES: HJA ALLV • AKUREYRI: ISABELLA • E6ILSSTAÐIR: OKKAR A
MILLI • GAROABÆR: SNYRTIHÖLLIN • HAFNARFJÖRDUR: HB-BÚÐIN • HÚSAVlK: ESAR • HÖFN
HORNAFJÖRÐUR: TVÍSKER • ISAFJÖRÐUR: SNYRTIHÚS SÓLEYJAR • KEFLAVlK: SMART •
KÓPAVOGUR: SNÚT • REYKJAVlK: ARSÓL, DEKURHORNIÐ, VERSL. FLIP, SNYRTIV. GLÆSIBÆ,
SÚLBAÐST. GRAFARVOGS, HELENA FAGRA • STÓRAR STELPUR • SELFOSS: TÍSKUHÚSIÐ •
SIGLUFJÖRÐUR: GALLERÍ HEBA • STYKKISHÓLMUR: HEIMAHORNIÐ • VESTMANNAEYJAR: NINJA
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. DESEMBER 1996 1 1