Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Page 6
ÚR Bláu kápunni sem naut mikilla vinsælda leikhúsgesta vorið 1961. Frá vinstri eru Jóhann Konráðsson, Björg Baldvinsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdótt- ir, Brynhildur Steingrímsdóttir, Halldór Helgason, Júlíus Oddsson, Egill Jónasson, Sigtryggur Stefánsson, Sigríður P. Jónsdóttir, Haraldur Sigurðsson og Árni Valur Viggósson JÓN Norðfjörð f hlutverki Skrifta-Hans f Ævintýri á gönguför árið 1933. UPPHAF sjónleikja á Akur- eyri má rekja allt aftur til ársins 1860 að því er fram kemur í bókinni Saga leik- listar á Akureyri eftir Harald Sigurðsson. Danir settu þá mark sitt á bæinn og þótti leiklistin nærtæk upplyfting í fásinninu uppi á íslandi. í fyrstu voru danskir leikþættir alls ráðandi í leiklist- arlífi bæjarins og var leikið í vöruskemmum, salthúsum og sláturhúsum. Er fram liðu stundir var farið að leika á íslensku og verk eftir íslenska höfunda sett á svið. Þá urðu það mikil umskipti er Samkomuhúsið var reist en þangað hafa bæjarbúar og gestir sótt leiksýningar í um 90 ár. Blósió mönnum eldmóó í brjóst Nokkrir áhugamenn gengust fyrir því árið 1916 að koma Skugga-Sveini á svið og og í mars 1917 setti Kvenfélagið Framtíð- in Andbýlingana upp. „Telja má sennilegt að hinar ágætu undirtektir sem sýningar á Skugga-Sveini og Andbýlingunum hlutu hafi glætt áhuga manna til skipulegra starfs og glæsiieikinn á sýningum frú Stefaníu kann einnig að hafa blásið mönnum eldmóð í brjóst og sveipað leikstarfið einhvers konar dýrðarljóma," segir í Sögu leiklistar á Akur- eyri um stofnun Leikfélags Akureyrar vorið 1917, en stofnfélagar voru 14 talsins. Atvinnuleikhús merk timamót Ein merkustu tímamót í sögu Leikfélags Akureyrar urðu árið 1973 þegar atvinnuleik- hús var stofnað á Akureyri, en þá voru 5 fyrsta skipti fastráðnir leikarar, alls átta, á LEIKFELAG AKUREYRAR 80 ARA ATVINNULEIKHÚSIÐ VAR HEIMSMET r Attatíu ár eru í dag, laugardaginn 19. apríl, lióin frá stofnun Leikfélags Akureyrar. Tímamótanna er minnst í kvöld meó hátíóarsýningu á Vefaranum mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness í leikgeró Halldórs E. Laxness og Trausta Olafssonar en þetta afmælisverk var frumsýnt um liðna helgi. MARGRET ÞORA ÞORSDQTTIR kynnti sér sögu leikfélagsins. REGÍNA Þórðardóttir og Ágúst Kvaran í hlutverkum sínum í Fröken Júlíu, sem sýnt var 1933.. vegum þess. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir allt landið að slík starfsemi sé ekki bundin við höfuðborgarsvæðið, þó það gangi kraftaverki næst að halda úti atvinnustarf- semi í leiklist í svo litlu bæjarfélagi,“ segir Trausti. „Leiklist er það listform sem fram- ar öðru hentar til að sýna lífið í öilum sínum ijölbreytileika og gefa áhorfendum tækifæri á að lifa sig inn í aðstæður annarra og spegla sjálfa sig í þeim.“ Trausti segir að það að vera atvinnuleik- hús á landsbyggðinni sé stolt Leikfélags Akureyrar, en geri um leið miklar kröfur til þess. „Eins og vera ber eru sömu list- rænu kröfur gerðar til þess og atvinnuleik- húsanna á höfuðborgarsvæðinu," segir hann og bætir við að samkeppnisaðstæður þess séu nokkru erfiðari þó ótrúlega oft hafi tek- ist að fá allra bestu listamenn á sínu sviði til starfa fyrir norðan. Ekki á brauói einu saman Jón Kristinsson hefur mjög komið við sögu Leikfélags Akureyrar, var á sviðinu meira og minna í yfir 40 ár og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið var m.a. formaður þess í 12 ár. I hans huga er stofnun atvinnuleikhúss fyrir tæpum ald- arfjórðungi stærsta skrefið sem stigið hefur verið i sögu þess. „Þetta var þróunin, Leikfé- lag Reykjavíkur var orðið atvinnuleikhús og maður fann fyrir vaxandi kröfum um að slíkt hið sama myndi gerast hér. Það var líka sífellt erfiðara að manna þrjú til fjögur leikverk á ári með áhugafólki sem var við æfingar í frítíma sínum. Ég hef einhvern tíma sagt að það væri líklega heimsmet að starfrækja atvinnuleikhús í 12 þúsund manna bæ eins og Akureyri var á þessum árum, en þetta var mikill merkisatburður," segir Jón. Á þessum tíma þótti mörgum að pening- um sem varið var til atvinnuleikhúss væru betur komnir í önnur og þarfari verk að 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. APRÍL1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.