Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Page 7
SIGURVEIG Jónsdóttir og Þráinn Karlsson íhlutverkum Höllu og Kára í Fjalla-Eyvindi leikárið 1972-3. DJÖFLAEYJAN var tekin til sýninga fyrir tveimur árum, hér eru þær Sigurveig Jónsdótt- ir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sunna Borg og Bergljót Arnalds í hlutverkum sínum. ÞÓRHALLA Þorsteinsdóttir í hlutverki Úlfhildar húsfreyju að Rauðá og Guðmundur Gunnarsson sem Hrafn, hinn seki skógarmaður, í Úlfhildi, sem sýnt var 1955. RAGNHEIÐUR Steindórsdóttir og Arnar Jónsson í hlutverkum Elísu Doolittle og Henry Higgins í My Fair Lady sem frum- sýnt var í október 1983. sögn Jóns, en hann benti á að ekki lifði maðurinn á brauðinu einu saman. Það hefði líka sýnt sig i áranna rás að ákvörðunin var rétt og nú væri heilmikil starfsemi kringum Leikfélag Akureyrar og fjöldi fólks legði leið sína til bæjarins að sjá leikritin sem sett væru upp. Jón segir að oft hafi komið erfiðir tíma í leikhúsinu, verið erfitt að láta enda ná saman. „En minningarnar eru góðar og án þeirra vildi ég alls ekki vera,“ segir hann. Jón lék á milli 40 og 50 hlutverk, stór og smá. Eitt erfiðasta hlutverkið var Georg í Mýs og menn, þá nefndi hann að skemmti- legt hafi verið að leika Pat í Gísl „og svo man ég vel eftir Pabba, það var hlýlegt hlut- verk sem maður þekkti sig svo vel í,“ rifjar hann upp. Metnaóarfullt leikfélag „Leikfélag Akureyrar hefur sett upp leik- sýningar sem borið hafa hróður þess langt út fyrir bæjarmörkin, vakið athygli bæði lærðra og leikra. Að mínu mati hefur Leikfé- lag Akureyrar frá fyrstu tíð verið gríðarlega metnaðarfullt félag, verkefnavalið hefur verið það metnaðarfullt að á stundum er teflt á tæpasta vað,“ segir Trausti. MARTEINN skógarmús og Lilli klifurmús, þeir Skúli Gautason og Aðalsteinn Berg- dal í Dýrunum í Hálsaskógi sem sýnd voru í vetur. Til marks um það hversu öflugt starf hefur verið á vegum félagsins nefnir hann söngleiki og óperettur sem það hefur sett upp í gegnum árin, Leðurblökuna, My Fair Lady, Fiðlarann á þakinu svo dæmi séu nefnd um stórvirki félagsins. Þá hafi félag- ið einnig ævinlega kappkostað að setja upp sýningar sem líklegar eru til að falla áhorf- endum vel í geð. Og ekki hefur félagið gleymt yngstu kynslóðinni á hveijum tíma, en barnaleikrit eru reglulega sett upp. Gott fólk við stýrió „Að mínu mati er starfsemi Leikfélags Akureyrar þróttmikil, það fólk sem verið hefur í forsvari fyrir félagið hefur staðið sig með miklum ágætum og ég vona sannarlega að félagið beri áfram gæfu til að hafa gott fólk við stýrið, það skiptir öllu máli. Á þess- um tímamótum er ég bjartsýnn fyrir hönd félagsins,“ segir Jón Kristinsson. „Það er ástæða til að færa þessum átt- ræða unglingi, Leikfélagi Akureyrar, bestu óskir í tilefni dagsins og Akureyringum og landsbyggðarbúum öllum til hamingju með að hér skuli vera rekið atvinnuleikhús sem kappkostar að bjóða upp á leiklist sem stenst allar gæðakröfur," segir Trausti. 3 > LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. APRÍL 1997 T

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.