Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Qupperneq 10
KÍNVERJU/' UM 15MILL EFTIR SÓLVEIGU K. EINARSDÓTTUR Þaó tekur sinn tíma fyrir yfirvöld aó kenna hundr- uóum milljóng Kínverjg aó stara ekki ó útlendingg og þó Peking sé ef til vill vanari feróamönnum en margar aórar borgir í Kína gleymg þeir sér og stara óspart enda sumir feróamenn hólfgeró vióundur í þeirra augum. Kínverjar eru samt kurteisir og hjólp- samir - engipn skyldi þó búast vió bióraóamenn- ingu hvorki ó pósthúsum né matsölum.. : KÍNVERSK klippimynd, vitnisburður um tryggð við fornar hefðir og fádæma fínlegt handverk. IMANNÞRÖNGINNI inni í miðborginni í hita og raka hásumarsins stóð at- hafnasamur maður með sveðju á lofti. Á gangstéttinni fyrir framan hann lágu þrír svínsskrokkar - til hliðar stóð vog. Hlutaði slátrarinn sundur skrokkana að ósk vegfarenda og gátu þeir fengið hvern þann part sem þeir kusu helst. Brá hann síðan kjötbitanum á vigtina, vafði inn í bréf og afhenti gegn borg- un. Peking er ein af stærstu borgum heims, miðstöð menningar- og stjórnmálalífs í Kína. íbúar taldir yfir 10 milljónir og nær borgin yfír 16.000 ferkílómetra svæði eða á stærð við Belgíu. Öldum saman hafa safnast hing- að ómetanlegar minjar sögu og menningar kynslóðanna. Múrinn mikli, Keisarahallirnar, Sumarhöllin og Ming-grafirnar eru heims- fræg. Byggingalist þessara staða sannar snilli kínverskrar alþýðu og laðar að ferða- menn úr öllum heimshornum. Peking er í senn sögulegur gimsteinn og iðandi stórborg sem sogar nú að sér menningu Vestur- landabúa eins og til þess að glæða austur- lenskar menningarhefðir. Hitt er svo annað mál hvort menn telja hamborgara og Mikka mús sérstaklega vel til slíks fallna. En Pek- ingbúar sækjast eftir að gera borg sína að nútímalegri heimsborg og lái þeim hver sem vill. Júlí eða ágúst er ekki rétti tíminn til þess að dvelja í Peking. Hiti, raki og mengun gera ferðalangnum erfítt fyrir. Mengunin svífur eins og hvít þoka yfir öllu. Á sumrin (júní, júlí, ágúst) er meðalhitinn 26 gráður á Celcíus, mjög heitt og rakt, auk þess moskító- flugur og regn í júlí. Haustið er best til heimsókna. Vorið (apríl-maí) er stutt, rykugt og þurrt en vetur- inn hins vegar kaldur, frost allt niður í mín- us 20 stig. Ef ferðalangar eiga þess nokkurn kost, þurfa þeir að komast út úr borginni og sjá sveitina og landið. Enn búa þrír af hveijum fjórum Kínvetjum utan borga. Land- rými er afar verðmætt og fólk býr þétt til þess að meira land sé aflögu fyrir kornrækt. Það tekur sinn tíma fyrir yfirvöld að kenna hundruðum milljóna Kínveija að stara ekki á útlendinga og þó Peking sé ef til vill van- ari ferðamönnum en margar aðrar borgir í Kína gleyma þeir sér og stara óspart enda sumir ferðamenn hálfgerð viðundur í þeirra augum. Kínveijar eru samt kurteisir og hjálp- samir - enginn skyldi þó búast við biðraða- menningu hvorki á pósthúsum né matsölum. Einhver komst þannig að orði að maður yrði að vera snar í snúningum og grípa gæsina þegar hún gæfist eða grípa í tómt. Milli flautandi farartækja Það er óbjörgulegt ástand að vera einn í framandi landi. Þóttist blaðamaður því hafa himin höndum tekið er kínversk vinstúlka birtist honum til halds og trausts. Reyndist HIMNAMUSTERIÐ er stærsti og best varðveitti helgidómur i Kína. Musterið var byggt 1420. Bænasalurinn er hringlaga, 38 m undir loft og 30 m í þvermál. Á myndinni sést loftið í bænasalnum, sem þykir einstakt. Hér færðu keisarar Ming- og Quing-ættar fórnir og báðu um góða uppskeru. hjálp hennar ómetanleg. T.d. slapp blaðamað- ur oft ódýrar úr klóm leigubílstjóra en Vestur- landabúar sem áttu sér engan kínverskan málsvara. Að taka strætó er ævintýri í sjálfu sér. Strætisvagnar og reiðhjól eru aðalfarartækin fyrir utan gula fólksflutningavagna (sem taka 12-15 farþega) og leigubíla. Allir í strætó! Þeirri kínversku fannst fjarskalega gaman að taka strætó en blaðamaður var á glóðum um að týnast gjörsamlega eða bráðna í troð- fullum vagni í hitanum. Eiginleiki Kínveija - reyndar Japana líka - til þess að sofna í lestum eða strætisvögnum - er með eindæm- um. Ævinlega virtust þeir þó vakna til þess að fara út á réttri stöð. - Einnig bygginga- verkamenn sem unnu við stækkun hótelsins, þar sem blaðamaður dvaldi, sváfu á vinnupöll- unum í hádegishléinu. Nánast hvergi voru umferðarljós. Öryggis- belti óþekkt fyrirbæri. Fólk þræðir leið sína milli flautandi farartækja. Lögregluþjónar stjóma umferðinni frá litlum umferðareyjum. Eru þeir ekki öfundsverðir af starfinu. Samt virðast vera reglur í óreglunni en víst er um það að blaðamaður þakkaði sínum sæla í hvert sinn er hann komst heilu og höldnu gegnum borgina. Sjái maður út um glugga á farartækinu ber margt fyrir auga saman- ber svínin hér í upphafí. M.a. sá blaðamaður tvo kínverska karlmenn sitja á stólum á gang- stéttinni með hvít klæði yfir sér. Létu þeir klippa hár sitt á þessari gangstéttarhár- greiðslustofu. Hvar sem er í heiminum virðist þveginn þvottur á mánudögum og svo er einnig í Peking. Þvottur hékk á snúrum milli tijáa á aðalgötunum og betra að taka það ekki svo að hann sé til sölu. Hvergi sáust klemmur enda óþarfar í stafalogni. Eru Kínverjar eink- ar hreinlegir og snyrtilega til fara. Gífurleg- ar byggingarframkvæmdir stóðu yfir í Peking og kvað sú kínverska hið sama vera tilfellið í öðrum kínverskum borgum. Vonandi gleyma yfirvöld þó ekki sveitunum því þá mun bilið milli hinna ríku og fátæku dýpka og stefna í óefni. í hótelþorpi blaðamanns sást fjöldi glæsilega klæddra Kínveija, margir hveijir akandi í Mercedes Benzum. Virtist enginn vafí leika á því að stétt nýríkra er risin upp. Kínveijum fjölgar um 15 milljónir á ári vegna betri heilsugæslu og fæðu þannig að í sífellu er þörf á meiri mat. Mikil áróðursher- ferð stjórnvalda hvetur fólk til þess að eiga aðeins eitt barn og sérstakt leyfi þarf frá staðaryfirvöldum til þess að eignast annað barn og fylgja því aukin skattgjöld. Bændur og ýmsir minnihlutaþjóðflokkar mega þó eignast tvö og jafnvel þijú börn. Fjöldinn allur vill eignast son svo á áróð- ursveggspjaldi sést kínverskur stjórnmála- leiðtogi fagna sérstaklega lítilli stúlku. Allt til þess að fá fólk til þess að sætta sig betur við dóttur. Áberandi er hversu mikið dálæti Kínveijar höfðu á börnum. Hvar sem farið er, sæta þau sérstakri umönnun og ástúð. Hreinum og fallega klæddum er þeim hamp- að á allan máta. Eitt af s|ö undrum veraldar Keisari Qin (221-210 f.Kr.) sá sem hóf byggingu múrsins mikla til þess að veija Kína frá nágrönnum í norðri, réð aðeins yfir einum þriðja þess sem við köllum Kína í dag. Síðar var haldið áfram að bæta við múrinn uns hann varð 5.000 km langur. í dag er múrinn eftirlæti ferðamanna - einkum hlutinn rétt norður af Peking. Þangað streyma tugir rútubíla fullir af útlendingum og Kínveijum - og múrinn þar sem áður gátu riðið fimm riddarar samhliða, ganga nú 15 ferðamenn hlið við hlið - mannþröng eins og í miðborg Peking - einkum ef um sunnudag er að ræða. Skemmir þetta tals- vert fyrir þar sem þetta veraldarundur er eitt hið tilkomumesta sem ferðamaður sér á lífsleiðinni og nokkuð sem best er að njóta í næði. En sé maður á eigin vegum og kaup- ir sér far aðra leiðina snemma dags er hægt að dvelja þarna yfir daginn. Freista gæfunn- g ar með far heim. Gangan upp múrinn líkist h helst afar brattri fjallgöngu. Kemur sér þá 10 LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. APRÍL1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.