Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1997, Blaðsíða 12
MÓÐURGEIMSKIPIÐ kemur til jarðar í Návígi. DÆMIGERT atriði úr Horfnum heimi.
DRAUMASMIÐ-
URINN FRÁ
HOLLYWOOD
Reynsluleysió varó Steven Spielberg gott veganesti
og til mikillar gæfu segir JÓNAS KNÚTSSON í grein
um þennan margfræga kvikmyndaleikstjóra, sem
hefur gert sex gf tuttugu vinsælustu bíómyndum
kvikmyndasögunnar og tvær þeirrg eru best sóttu
myndir allra tíma.
„FÉLAGARNIR" ókindin og Spielberg.
LEIKARINN Roy Scheider segir frá
því að eitt sinn var hann fenginn til
að leika í mynd um blóðþyrstan há-
karl. Leikstjórinn var bamungur. Þá
sjaldan sem vel viðraði var vélknúni
hákarlinn bilaður svo að illa sóttist
að ljúka tökum. Leikarar kvörtuðu
undan reynsluleysi leikstjórans og spurðu sig
hvers vegna hann hætti ekki við myndina
úr því sem orðið var. Á löngum síðkvöldum
styttu þeir sér stundir, léku af fingrum fram
og breyttu handritinu í samræmi við spun-
ann. Nokkrum mánuðum síðar höfðu fram-
leiðendur myndarinnar grætt hundruð millj-
'* óna Bandaríkjadala og leikstjóri og leikarar
orðnir heimsfrægir í einni svipan. Leikstjór-
inn ungi hét Steven Spielberg.
Ókindina gerði Spielberg árið 1975 eftir
skáldsögu Peters Benchleys. Myndin kostaði
átta og hálfa milljón Bandaríkjadala. Hagn-
aður af miðasöiu í Bandaríkjunum einum var
áætlaður 130 milljónir Bandaríkjadala.
Steven Spielberg á að baki sex af tuttugu
vinsælustu bíómyndum kvikmyndasögunnar.
Nægir þar að nefna Ókindina (Jaws), Leitina
að týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark)
að ógleymdum E.T. og Júragarðinum (Ju-
rassic Park), tveimur best sóttu myndum
allra tíma. Fyrsta mynd Spielbergs var gerð
fyrir sjónvarp og nefndist Einvígi (Duel).
Ókunnur vörubílstjóri hundeltir mann á þjóð-
vegum Bandaríkjanna. Þessi litla mynd vakti
' verðskuldaða athygli. Fyrsta bíómynd Spiel-
bergs, Sykurlandshraðlestin (The Sugarland
Express), var eins konar nútímatilbrigði við
lífshlaup Bonniear og Clydes, skötuhjúanna
sem frömdu hvert bankaránið á fætur öðru
í Bandaríkjunum á kreppuárunum. Þótt efni
myndarinnar væri síður en svo frumlegt bar
Sykurlandshraðlestin vott um fagmennsku
Spielbergs og menn bundu bjartar vonir við
nýliðann.
„Þetta er ekki vísindaskáldskapur. Þetta
er framtíðarspá,“ sagði Steven Spielberg.
Risaeólurnar snúa altur
Spielberg heldur enn á vit ævintýra í fram-
haldinu af Júragarðinum, Horfnum heimi.
Undir niðri fjallar Júragarðurinn um graf-
■ alvarlegt efni. Erfðarannsóknir virðast gera
mönnum kleift að umbreyta eðli og náttúru
manna og dýra. Fyrir hálfri öld hefði slíkt
verið talið galdrar og fjölkynngi. Hvar skal
draga mörkin? Er maðurinn þess umkominn
að nýta þessa nýju tækni til góðs?
Auóvelt aó vera vitur eftir á
Menn binda næstum lygilegar væntingar
við myndir Spielbergs. Verði hver mynd hans
ekki metsölumynd er litið svo á að Spielberg
hafí brugðist bogalistin. Ekki verður annað
sagt en hann standi enn fyllilega undir þess-
um kröfum.
, Steven Spielberg hefur tekist að gera
feykivinsælar myndir úr ólíklegustu hug-
myndum. Engan óraði fyrir því að myndir
um mannýgan hákarl (Ókindin), geimálf sem
lærir á hjól og síma (E.T.) eða háskólapró-
fessor sem leggur í svaðilfarir í frístundum
(Leitin að týndu örkinni) ættu eftir eiga miklu
fylgi að fagna. Nú hafa þessar myndir slegið
öll aðsóknarmet.
Aflakúngur kvikmyndasögunnar
Spielberg er að líkindum sá maður sem
hagnast hefur mest á kvikmyndaferð á þess-
ari öld. Vitaskuld á hann sér marga öfundar-
menn og illt umtal um verk hans verður að
skoðast í ljósi þessa.
Ekki má gleyma að Spielberg er einnig
atkvæðamikill kvikmyndaframleiðandi. Næg-
ir að nefna Drauginn (Poltergeist) árið 1982,
Hrekkjaálfana (Gremlins) árið 1984, Aftur
til framtíðar (Back to the Future) árið 1985
og Hver skellti skuldinni á Roger kanínu?
(Who framed Roger Rabbit?) árið 1988.
Steven Spielberg er afsprengi sjónvarps-
kynslóðarinnar. Myndir hans virðast draga
dám af öðrum kvikmyndum frekar en bók-
menntum eða öðrum listformum. Hann sæk-
ir mikið í ódýrar myndir sem gerðar voru
fyrir unglinga á sjötta áratugnum. Vísinda-
skáldsögur, hasarmyndir og hrollvekjur þóttu
ekki góð latína á árum áður. Slíkar myndir
voru taldar uppfyllingarefni og gerðar af
vanefnum. George Lucas, höfundur stjörnu-
stríðsmyndanna, og Spielberg hafa hafið
þessa tegund kvikmynda til vegs og virðing-
ar. Myndir af þessum toga skipa nú hærri
sess en nokkru sinni áður jafnt meðal áhorf-
enda sem margra gagnrýnenda.
Enginn getur dregið vald Spielbergs á
miðlinum í efa. Hvert myndskeið er þaulhugs-
að og myndavélin ávallt á réttum stað. Öðrum
þræði minna bíómyndir Spielbergs um margt
á verk átrúnaðargoðs hans Davids Leans.
Sá gerði Ástarfundi (Brief Encounter), Davíð
Copperfield, Brúna yfir Kwai-fljótið, Arabíu-
Lárens (Lawrence of Arabia) og Dr. Zhivago.
Spielberg hefur gert stórmyndir í framandi
löndum líkt og Lean. Einnig minnir hand-
bragð hans að mörgu leyti á efnistök Leans.
Þótt Spielberg hafí mátt sæta óréttmætri
gagnrýni eru myndir hans ekki fullkomnar
fremur en önnur mannanna verk. Spielberg
er hávaðaseggur. Þegar verst lætur reiðir
hann sig um of á tæknibrellur, íburðarmikla
kvikmyndatöku og magnþrungna tónlist í
stað þess að kafa ofan í kjöl á persónum
verksins.
Spielberg á það sameiginlegt með aðal-
sögupersónu Króks, Pétri Pan, að hafa aldr-
ei fullorðnast. Þetta upplag hins síunga leik-
stjóra er helsti styrkur hans í myndum á
borð við Indíana Jón, Ókindina og E.T. Hins
vegar er barnaskapur Spielbergs Akkilesar-
hæll hans í myndum eins og Purpuralitnum
og Lista Schindlers.
Timarnir breytast. . .
Fyrirrennarar Spielbergs af sextíu og átta
kynslóðinni, til að mynda Martin Scorsese
og Hal Ashby, sóttu margt í smiðju evr-
ópskra leikstjóra og lögðu áherslu á þjóðfé-
lagslega gagnrýni. Framan af lét Spielberg
slíkt með öllu afskiptalaust.
Þegar Spielberg kemur til sögunnar um
miðjan áttunda áratuginn höfðu stórmyndir
ekki sést að ráði frá því að myndin Kleóp-
atra reyndist dýrustu mistök kvikmyndasög-
unnar. Stórvirki Davids Leans Dóttir Ryans
(Ryans Daughter) hlaut dræma aðsókn og
gagnrýnendur töldu myndina tímaskekkju.
Litlar, persónulegar myndir; Riddari þjóðveg-
anna (Easy Rider), Gaukshreiðrið (One Flew
Over the Cuckoos Nest), Heimkoman (Com-
ing Home) ruddu sér rúms. Skýrir það að
hluta til hvers vegna Spielberg hefur aldrei
verið í miklum metum hjá sporgöngumönnum
sextíu og átta kynslóðarinnar.
Spielberg er fulltrúi þeirra gilda sem voru
í hávegum höfð á gullaldarárum Hollywood-
myndanna fyrir seinni heimsstyijöld. At-
burðarás er hröð í myndum hans. Áhorfend-
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. JÚLÍ 1997