Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1997, Síða 2
SAN FRANCISCO-BALLETTINN FÆR GOÐAR UMSAGNIRI EDINBORG
„LISTAHÁTÍÐIR GERAST
EKKI BETRI EN ÞETTA“
SAN Francisco-ballettinn á bjarta framtíð, segir m.a. ídómunum. Helgi Tómasson
sést hér á æfingu með einum dansara sinna.
SAN FRANCISCO ballettinn undir stjórn
Helga Tómassonar hefur í þessari viku kom-
ið fram á Edinborgarhátíðinni og er með
sýningar til morguns, sunnudags. Flokkur-
inn hefur fengið jákvæðar umsagnir í bresk-
um blöðum og í blaðinu The Scotsman sagði
„það er mikið af hæfileikafólki í þessum
mjög svo aðlaðandi dansflokki og við fáum
að njóta þess í næstum heila viku. Listahá-
tíðir gerast ekki betri en þetta.“
Ballettinn hefur í Skotlandi lagt áherslu
á verk Balanchines sem var stjórnandi New
York-ballettsins þegar Helgi var meðal aðal-
dansara þar. í The Scotsman sagði að ball-
ettinn gerði rússneska danshöfundinum, sem
flutti til Bandaríkjanna, verðug skil, en
gagnrýnandi dagblaðsins The Times var
ekki jafn hrifinn: „Þótt [dansararnir] hafi
tileinkað sér tungumál Balanchines tókst
flokknum ekki alveg að ná fram ágengninni
eða glæsileikanum sem danshöfundurinn
hafði vissulega í huga.“
í dagblaðinu The Herald var farið lofsam-
legum orðum um dansarana, jafnt konurnar
sem karlana.
„Tækni er eitt af því sem rnaður tekur
aðeins eftir þegar það vantar - við höfum
öll séð óstöðugleika þegar dansarar lenda
og þvingaðar lyftur og gefið frá okkur and-
varp,“ sagði í blaðinu. „En yfir SFB hvílir
andi þöguls sjálfstrausts sem fullvissar
áhorfandann um að slíkt muni ekki setja
blett á skemmtunina: þau eru þjálfuð, ein-
beitt og sem meira er hafa þau að sama
skapi einsett sér að fá sjálfsfullnægju úr
dansinum."
Ballettinn hefur einnig flutt dansa eftir
David Bintley, Mark Morris og Helga í Edin-
borg. The Herald finnur að dansinum „Criss-
Cross“ eftir Helga. í blaðinu segir hins veg-
ar að á meðan Helgi færi upp verk eftir
höfunda á borð við David Bintley ætti San
Francisco-ballettinn að eiga glæsta framtíð.
VERK SVERRIS HARALDSSONAR A HULDUHOLUM
Á ANNAÐ ÞÚSUND GESTA
SKOÐAÐ SÝNINGUNA
1979, Móðir náttúra, blýantur 32x32.
YFIRLITSSÝNINGU á verkum Sverris
Haraldssonar, Sýnishorn úr ævistarfi á
Hulduhólum, lýkur 31. ágúst. A annað
þúsund manns hafa heimsótt Hulduhóla
síðan sýningin var sett upp í samstarfi
við Mosfellsbæ í tilefni 10 ára afmælis
bæjarins 9. ágúst síðastliðinn. A sýning-
unni eru 134 verk, skúlptúrar, málverk,
teikningar, skreytingar og fleira, sem
spannar allan feril Sverris, frá tólf ára
aldri til síðasta aldursárs. Utilokað reyn-
ist að framlengja sýninguna af þeirri
ástæðu að flest verkanna eru í einkaeign
og hefur því daglegum opnunartíma
verið breytt og er nú opið frá kl. 14-21
nema mánudaga.
„LIF OG STARF
SÉÐ GEGNUM
BLEIK GLER-
AUGU LANG-
ANNA MINNA“
SÝNING á verkum Urs Liithi, EIle-Mie
Ejdrup Hansens og James Grahams verður
opnuð í Norræna húsinu í dag kl. 15. Þessi
sýning er liður í ON ICELAND 1997, sem
er alþjóðleg sýning sem einkum lýtur að
tímatengdri myndlist, það er verkum þar
sem ljósmyndir, myndbönd, tölvur og gern-
ingar eða afleidd tækni eru megin miðlarnir.
Á sýningunni mun Urs Liithi sýna ljós-
myndaverk í 180 hlutum sem nefnist „Líf
og starf séð gegnum bleik gleraugu Iang-
anna minna“. En í því verki kemur hann
inn á mörg helstu svið ljósmyndarinnar
eins og hún er notuð sem nyndlistarmiðill.
Elle-Mie Ejdrup Hansen sýnir einkum
verk sem byggjast á upplýsinga- og fjar-
skiptatækni. Arið 1995 framkvæmdi Elle-
Mie hið umdeilda verk „Friðarskúlptúr"
þar sem lasergeisla var skotið þúsundir
kílómetra eftir vesturströnd Danmerkur á
milli rústa þýskra varnarvirkja frá seinni
heimsstyijöld.
James Graham kallar sýningu sína
„IKEA“. Hann raðar Ikea-húsgögnum upp
Morgunblaóið/Jim Smart
ELLE-Mie Ejdrup Hansen að hengja upp verk sín í Norræna húsinu en þau byggjast
einkum á upplýsinga- og fjarskiptatækni.
í líki verka Kasimirs Malevich. í texta sem
fylgir sýningunni setur James upp hlið-
stæður inilli hins einkennandi nytjastíls
Ikea-húsgagnanna og viðhorfa sem birtast
jafnt í mótmælendatrú og ýmsum grund-
vallarstefnum innan módernismans, svo
sem De Stijl og suprematisma.
ON ICELAND er viðamesta verkefni
sinnar tegundar sem sett hefur verið upp
á íslandi en sýningin hófst 26. júlí með
gerninga- og myndbandahátíð í Nýlista-
safninu.
Verkefnið er unnið í samvinnu við fjölda
stofnana og einstaklinga en aðalskipu-
leggjandi þess er Hannes Lárusson. Um-
rætt verkefni er styrkt af Norræna menn-
ingarsjóðnum.
Sýningin verður opin daglega kl. 14-19.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á Islandi.
Listasafn Islands
í dag opnar sýning þriggja svissneskra
listamanna sem er á vegum ON ICE-
LAND; sýningin stendur til 28. sept. Sögn
í sjón; sýning á verkum sem byggð eru á
íslenskum fornritum.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
- Ásmundarsalur
íyar Valgarðsson sýnir til 24. ágúst.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Árbæjarsafn
I sumar verða sýndar Ijósmyndir frá
Reykjavík, ásamt ljóðum skálda.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
íslensk myndlist til 31. ágúst. í Vestursal
eru landslagsmálverk frumheijanna og
verk abstraktmálara, í miðrými og á gang-
inum verk eftir David Askevold og Árna
Haraldsson. í Austursal eru verk yngri
málara.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ás-
grím.
Norræna húsið - við Hringbraut
í anddyri er ljósmyndasýning frá Sama-
byggðum Finnlands eftir Jukka Suvilehto.
í kjallara er sýning á verkum Urs Liithi,
Elle-Mie Ejdrup Hansen og James Gram-
ham.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Sögn í sjón. Hátíðarsýning handrita, opin
daglega kl. 13-17.
Þjóðarbókhlaða
ísland - himnaríki eða helvíti. Sýning út
ágúst.
Hafnarborg
Þrjár sýningar í eigu safnsins: í Aðalsal
sýnd landslagsmálverk eftir marga af
þekktustu listmálurum landsins; í Sverris-
sal valin verk eftir Eirík Smith; í kaffi-
stofu tréristur eftir Gunnar Á. Hjaltason.
Sjónarhóll
Gunnar Karlsson sýnir til 31. ágúst.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Fæner/Spostamenti. ítölsk samtímalist.
Valgerður Hafstað í setustofu.
Gallerí Hornið
Sýning á verkum fínnsku listakvennanna
Helenu Junttila og Ullamaija Hánninen til
10. september.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox: Elsa D. Gísladóttir
Gailerí Barmur: Finnur Arnar Arnarson.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga
70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sýning á málverkum Lore Bert.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Fjarvera/nærvera - sýning á verkum
Christine Borland, Juliao Sarmento og
Kristjáns Guðmundssonar.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum - Af lífí hafnfírskrar
alþýðu til 30. sept.
Sjóminjasafn íslands við Vesturgötu í
Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjarna Jónssonar.
Listaskálinn í Hveragerði
Yfirlitssýning á verkum Einars Hákonar-
sonar.
Norska húsið, Stykkishólmi
Sýning á verkum R. Weissaves. Opið dag-
lega kl. 11-17.
Hulduhólar
Sýnishorn úr ævistarfí Sverris Haraldsson-
ar listmálara. Opið kl. 14-21 til 31. ág-
úst, lokað mánudaga.
Perlan
Sýning á verkum Ingu Hlöðversdóttur til
Laugardagur 23. ágúst
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar. Kári
Þormar leikur.
Sunnudagur 24. ágúst
llallgrímskirkja. Tónleikar kl. 20.30. Kári
Þormar, orgelleikari, leikur.
Þriðjudagur 26. ágúst
Listasafn Siguijóns kl. 20.30. Ilólmfríður
S. Benediktsdóttir sópran ásamt Guðna
Franzsvni og Gerrit Schuil koma fram.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Hár og Hitt laug. 23., sun. 24. ágúst.
Loftkastalinn
Veðmálið fös. 29., laug. 30. ágúst.
Islenska óperan
Evíta lau. 23., sun. 24., fös. 29. ágúst.
Light, Nights, Tjarnarhíói.
Sýningar laug. 23., fös. 29. og laug. 30.
ágúst kl. 21.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. ÁGÚST 1997