Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1997, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1997, Side 5
RAGNHEIÐUR Jónsdóttir. og þessi sama heimsmynd birtist svo síðar í íslenskum bókmenntum, ljóðum atómskáld- anna, en þau róttækustu í hópi þeirra vildu ekki einungis formbyltingu heldur hugsa allt upp á nýtt og töldu sig ekki geta stuðst við neitt úr fortíðinni. Þetta gekk náttúrulega ekki upp enda sama vitleysan og meðferðar- form, þar sem stórgallaður einstaklingur er brotinn niður og síðan byggður upp á nýtt eins og kenningin mælir fyrir um: sögulaus, gallalaus - plast. Við eigum kannski erfitt með að skilja stemmningu þessara ára en þegar maður sér kvikmyndir frá Evrópu eftir stríð þar sem eyðileggingin blasir við verður manni ljósari þessi vantrú á tjáninguna en ítrasta form hennar er þögnin. Þess vegna reyna lista- mennirnir frekar að sýna en segja - form- hyggjan nær yfirhöndinni. Formið á að koma skipulagi á óreiðuna og svipaða formþvingun sér maður í heimspekinni. Samkvæmt tilvist- arstefnunni er - „veran“ karlkyns, neindin, þ.e.a.s. neikvæða hliðin, er kvenkyns. Þetta er að sjálfsögðu einföldun og ég vona að Sartre snúi sér við í gröf sinni! Hlutverk kvenna er einungis að styrkja hina sködduðu sjálfsmynd karla og þær skulu vera þarfir þjónar. Einstaka mennta- og listakonum, svo sem Simone de Beauvoir, tekst að marka sér sérstöðu með því að hafna hinu hefðbundna kvenhlutverki - taka sér stöðu með strákun- um. Ég sé ekki að íslenskar listakonur hafi farið þá leið. Að vísu fór Ásta Sigurðardóttir óhefðbundnar leiðir og ögraði borgaraskapn- um í lífi sínu og listsköpun. Menn hafa talað sorgmæddir um að þessi sami borgaraskapur hafí drepið í henni listamanninn en þegar maður skoðar gagnrýni og önnur skrif um bókmenntir frá þessum árum er ekki einleikið hversu lítið er skrifað um Ástu og lítið mark tekið á því sem hún var að gera. Það skyldi þó ekki vera að ungu uppreisnarmennirnir hafi átt þátt í að svo fór sem fór? Deilur þvert á pólitiskar linur Þótt myndlistarmennimir hafí rutt braut fyrir módemisma í bókmenntum og að vissu leyti tekið á sig skellinn á undan atómskáldin og verið kallaðir úrkynjaðir og siðspilltir var þrætan um bókmenntir háværari enda áttu þær miklu meiri ítök í íslendingum, heldur Dagný áfram. - Þessara deilna sér stað í dagblöðum og hámenningarritum svo sem Nýju Helgafelli, Birtingi og Tímariti Máls og menningar og þær ganga þvert á allar pólitísk- ar línur. Menn skiptast í fýlkingar, atómskáld- in annars vegar fulltrúar hefðarinnar hins vegar og svo þeir sem vilja fara milliveginn, hleypa nýjungum inn í bókmenntimar án nokkurra byltinga. En hvað sagði almenning- ur? Nú, smám saman gerðist það sama og með myndlistina, almenningur lét þetta yfir sig ganga, maldaði ekki í móinn, leyfði menn- ingarvitunum að geisa en fór sjálfur í bíó og hélt þess á milli áfram að lesa bækur sem úthrópaðar höfðu verið sem hallærislegar og gamaldags. Fólk yppti öxlum og sagðist bara ekki skilja það sem ungu skáldin voru að gera. Hefðbundin ljóðagerð og raunsæisskáld- sagan héldu velli meðal lesenda. Dagskipanir frá Laxness - Þú segir á einum stað í ritgerðinni að móderníska skáldsagan hafi átt erfitt upp- dráttar hér á landi og skýrir það beinlínis svo: - Yfír skáldsögunni ríkti Halldór Laxness. - Margir bókmenntamenn voru á þessum tíma sárir út í Halldór fýrir það sem þeir túlk- uðu sem dagskipanir í greinum og fyrirlestrum um hvernig menn ættu að skrifa og hvernig ekki. Hann sagði að menn ættu að skrifa raunsætt og menn tóku mark á því sem hann sagði. En það var rétt sem Drífa Viðar hélt fram í grein í kvennatímaritinu Melkorku að hann var of stór til að vera viðmið, enginn íslenskur rithöfundur, hvorki karl né kona, stóðst þar samjöfnuð. Eigi að síður voru menn stöðugt að miða sig við hann og sumir rithöf undar stældu eldri verk hans sér til vansa. í þeim hópi voru engar konur. Þær héldu sig þó fast við raunsæið eins og hann en voru að reyna að breyta því innan frá - eins og hann var líka að gera á sjötta áratungum. En hvort sem það er Halldóri að þakka eða kenna urðu ekki umtalsverðar formbreytingar í íslenskum prósaskáldskap fýrr um miðjan sjöunda áratunginn og hafa þar helst verið nefnd Guðbergur Bergsson og Svava Jakobs- dóttir en á undan þeim höfðu Thor Vilhjálms- son og Steinar Siguijónsson verið að gera róttæka hluti. Bókmenntir eftirstríðsáranna hafa bara svo lítið verið kannaðar og sjálf- sagt á margt markvert eftir að koma í ljós. Og eitt og annað er þegar komið í ljós. Þú manst kannski eftir því að hver át það eftir öðrum að 79 af stöðinni eftir Indriða G. Þor- steinsson, sem kom út 1955, væri ekkert annað en stæling á Hemingway. Nýjar túlkan- ir á sögunni staðhæfa að þetta sé bara kjaft- æði. Kristján B. Jónasson hefur t.d. skrifað mjög sannfærandi greiningu á henni þar sem hann segir að þarna komi Indriði með vélina og tæknina, hin nýju viðmið borgarbúans inn í íslenskar bókmenntir. Ný boðskipti taka við af gömlum, fjölmiðlunin er komin til valda, eins og skipandi röddin í hátalaranum I 79 af stöðinni minnir okkur á. Kellingabækurnar Skýrslur um útlán almenningsbókasafna voru talsverður mælikvarði á vinsældir höf- unda. Árið 1957 sýndu þessar skýrslur að Elínborg Lárusdóttir og Guðrún frá Lundi voru meðal þeirra höfunda sem mest voru lesnir. Báðar skrifuðu þær sveitalífssögur en mjög ólíkar. Sögur Guðrúnar eru að mínu mati sambærilegar við sögur Jóns Trausta og Elínborg fjallar mikið um spíritisma og stenst að mörgu leyti samjöfnuð við Einar H. Kvaran í skáldsagnagerð. Nú, opinber stað- festing á vinsældum þeirra virðist hafa komið illa við suma. A.m.k. skrifar Ragnar í Smára grein í Nýtt Helgafell þar sem hann fer háðu- legum orðum um þessa ágætu rithöfunda og af skrifum hans má draga þá ályktun að sé það staðreynd að þjóðin lesi bækur eftir þær sé það svo skammarlegt að best sé að þegja um það! Og þögnin varð hlutskipti þeirra og ann- arra skáldkvenna. Að vísu má segja að þær hafí allar verið spyrtar saman í óskilgreindan hóp kellingabókahöfunda og sumir voru jafn- vel svo riddaralegir að bæta nokkrum ónafn- greindum köllum í þann hóp. Ungir og vel menntaðir bókmenntafræðingar gerðu harð- vítugar árásir á hið epíska raunsæi sem árum saman hefði verið allsráðandi í íslenskri sagna- gerð og beindu spjótum sínum einkum að körlum, svo sem Guðmundi G. Hagalín og Kristmanni Guðmundssyni. Þó að sumir risu upp til varnar raunsæinu höfðu ungu mennirn- ir fljótlega betur í bókmenntalegri umræðu og fulltrúar hefðarinnar urðu smám saman að sætta sig við að vera álitnir gamaldags og hallærislegir. Á konumar var varla minnst en þó mátti lesa milli línanna að stöðnun og niðurlæging íslenskra bókmennta væri þeim að kenna. En almenningur las þessar bók- menntir og gat með engu móti skilið hvað var niðurlægjandi og hallærislegt við þær. Það er því lítið samræmi milli þess sem almenning- ur vildi lesa og þess sem bókmenntafræðing- arnir vildu að liann læsi. Og þetta kemur fjöldabókmenntum ekkert við; aldrei hefur verið þýtt jafnmikið af þeim og á sjötta og sjöunda áratugnum og þangað sótti fólk drauma og skemmtun á meðan íslenskir kven- höfundar voru frekar í því að reyna að vekja fólk af draumunum og segja óskemmtilega hluti, a.m.k. á köflum. Þetta bara varð svona... Ólafur Jónsson bókmenntafræðingur skrif- aði mjög athyglisverða grein í Skími árið „Hún hverfur aldrei frá raunsæinu en hreytir pví innan frá. Hún heldur fast í tenginu vid raunveru- leikann, birtir sann- fœrandi svipmyndir úr lífmu sjálfu enger- ir sérjafnframt Ijósa grein fyrirpví ab hún er ab skrifa um sinn eigin veruleika, ekki lífib sjálft. “ 1981 og fjallar þar um hvemig samfélag skálda og lesenda hafí verið farið að gliðna I sundur eftir stríðið. Hann segir þar að sam- tímis atómljóðunum hafí þróast alþýðleg af- þreyingarsaga sem hann kennir sérstaklega við Guðrúnu frá Lundi og hafí notið almenn- ingshylli og útbreiðslu þrátt fyrir „harða hleypidóma" eins og hann orðar það. Og hvað- an komu þessir hleypidómar? Væntanlega frá þeim sem skrifuðu um bókmenntir og töldu sig hafa vald til að segja hvað væri gott og hvað slæmt. Það læðist að manni sá grunur að þeir sem höfðu þetta vald hafí ómeðvitað flokkað allar bækur allra kvenna á ámnum eftir stríð sem alþýðlegar afþreyingarsögur. Að vísu er þetta aldrei sagt bemm orðum enda þurfti kannski ekki að segja það. „Þetta vissu allir," eins og ég segi á einum stað í lokakafla ritgerðarinnar. Það hefur voða lítið upp á sig að spyija gömlu menningarvitana um þetta. Annað- hvort taka þeir því illa og fínnst verið að ráð- ast á sig fyrir eitthvað sem hafði allt aðra merkingu fyrir 35 ámm en það hefur núna eða þeir segja: „Þetta var ekki meiningin, það vildi enginn útiloka konurnar, það var aldrei nein stefna. Maður bað bara stráka sem mað- ur þekkti að skrifa um áhugaverðar bækur og þeir skrifuðu um stráka sem þeir þekktu og svo varð þetta bara svona...“ Ég get vel skilið þessi viðbrögð en mér finnst nú meiri mannsbragur á því að reyna að greina það sem gerðist í stað þess að sópa því undir teppið fræga á þeim forsend- um að hér hafi eitthvað óskiljanlegt, jafnvel yfirnáttúrulegt, átt sér stað. Stefán, Ragnheióur og sálfreeóin Því hefur stundum verið haldið fram að Ragnheiður hafi ekki verið tekin alvarlega sem rithöfundur vegna þess að hún skrifaði líka barnabækur og þess vegna hafi hún verið litin svipuðum augum og Stefán Jóns- son sem ekki hlaut verðuga viðurkenningu fyrir þær bækur sem hann skrifaði fyrir full- orðna. Það er mikið til í þessu og I ritgerð, sem Ingibjörg Axelsdóttir er að skrifa um hina metnaðarfullu bók Stefáns, Vegurinn að brúnni, sem kom út árið 1962, sýnir hún fram á að hún er mikið listaverk þar sem djúpt er kafað, en það virðist hafa farið fram hjá gagnrýnendum á sínum tíma - kannski vegna þess að hann hafði einkum skrifað fyrir börn. Það er ýmislegt líkt með þeim Ragnheiði og Stefáni en munurinn er helst sá að Stefán er mun „retórískari" höfundur en Ragnheiður notar fá orð. Og I bókmennt- um getur minna verið meira. Bækur Ragnheiðar og kvenlýsingar hennar eru líka svo dásamlega þversagnakenndar, konurnar eru bæði veikar og sterkar í þung- lyndi sínu og dellum. Hún er nefnilega mjög sálfræðilegur rithöfundur og það var ekki fyrr en ég var komin á kaf í Freud og þá einkum þunglyndiskenningar hans að ég fann lykilinn að henni. Á þessum árum var ég mjög virk í Rauðsokkahreyfingunni og söng á mannamótum: „Ég þori, ég get og ég vil,“ en þess á milli sat ég uppi í Árnagarði og kafaði í texta Ragnheiðar og kenningar Fre- uds þar sem sagði að konur væru móral- lausar, hefðu tilhneigingu til sjálfspyntinga og óþroskað jrfírsjálf. Ég var eins og dr. Jekyll og mr. Hyde og sá ekkert athugavert við það. En með því að beita aðferðum sál- greiningarinnar auk margs konar bók- menntakenninga í glímunni við Ragnheiði tel ég mér hafa tekist að sýna fram á að hún og raunar fleiri konur, sem skrifuðu metnað- arfullar bókmenntir á þessum árum, hafi undirbúið jarðveginn fyrir módernismann sem á eftir kom. Einnig finnst mér hún eiga það sameiginlegt með mörgum módernistum að efast um tjáningarhæfni tungumálsins - að orðræðan verður smám saman merkingar- laus og þunglyndið nær yfirhöndinni og þar erum við komnar aftur að umræðunni um tómið I listsköpun eftirstríðsáranna. Þó að ég vilji ekki lasta breiða epíska frásögn eða alþýðlega skemmtisögu er fráleitt að telja Ragnheiði fulltrúa þeirra bókmenntagreina. Hún hverfur að vísu aldrei frá raunsæinu en breytir því innan frá. Hún heldur fast í teng- ingu við raunveruleikann, birtir sannfærandi svipmyndir úr lífinu sjálfu en gerir sér jafn- framt ljósa grein fyrir því að hún er að skrifa sinn eigin veruleika, ekki lífíð sjálft. Það er ekkert náttúrubamslegt við skrif Ragnheiðar Jónsdóttur. ■nn er hcegl aó reióast í ritgerðinni fjalla ég um nokkrar aðrar konur sem skrifuðu á svipuðum tíma og Ragnheiður texta sem einkennast af þung- lyndi. Vettvangur sagna þeirra er oftast nær borgin og sumar fjalla þær um hlutskipti listakonunnar sem þarf að fórna sér í þágu annarra, eiginmanns, barna eða gangast undir aðra fjötra sem samfélagið leggur á hana. íslenskt samfélag eftirstríðsáranna hafði enga þörf fyrir listakonur, allra síst þunglyndar listakonur, og þeir sem fjölluðu um listir í atvinnuskyni virtu þær ekki viðlits. í allri þessari vinnu með Ragnheiði hef ég að sjálfsögðu stundum efast um mína eigin dómgreind og oft hefur sú spurning vaknað, hvort mér hafi ekki bara skjátlast, hvort Ragnheiður hafi virkilega verið svona góð fyrst aðrir bókmenntafræðingar vom ekki búnir að koma auga á það fyrir löngu. En viðbrögðin, sem ég hef fengið frá lesendum ritgerðarinnar minnar og þó enn frekar frá lesendum Ragnheiðar sem eru ótrúlega stór og fjölbreyttur hópur, hafa yfirleitt verið svo góð að það hafa vaknað hjá mér aðrar spurn- ingar. Þó að ein kona eða fjórar hafí fengið uppreisn æru þýðir það að sjálfsögðu ekki að endurmati og endurskoðun á þessum kafla íslenskrar bókmenntasögu sé lokið. Fjölmörg- um spurningum er enn ósvarað. Maður heyrir stundum að mesti broddurinn sé farinn úr umræðunni um kvennabók- menntir, að allir séu orðnir góðir vinir eins og Dýrin í Hálsaskógi. En þegar ég vann að ritgerðinni minni varð ég oft reið og hneyksluð sérstaklega þegar ég var að vitna í fáránlegar umsagnir. Þá gat ég ekki stillt mig um að koma með með athugasemdir eins og þessa: „Hvað meinar maðurinn eigin- lega?“ Og nú veit ég að ýmsir hafa hneyksl- ast með mér, - segir dr. Dagný Kristjánsdótt- ir að lokum. Höfundur er kennari. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. ÁGÚST 1997 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.