Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1997, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1997, Page 13
HIÐ NYJA OFURMENNI? Bandaríski óskarsverólaunaleikarinn Nicholas Cage er genginn í lió meó mönnum eins og Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone sem einn gf eftirsóttustu hasarmyndaleikurum dagsins, aó sögn ARNALDS INDRIÐASONAR, sem skoóar hvaó Cage sér vió hasarmyndirnar og m.g. hvernig hann ætlar aó fara aó því aó leika Superman eóa Ofurmennió í væntanlegri mynd Tim Burtons. HVER hefði trúað því að Nicholas Cage yrði ein- hverntíma eftirsóttasta hasarmyndahetja kvik- myndanna? Ólíklegri leik- ari er varla til í buffhlut- verkin og það var sannar- lega ekkert sem benti til þess að hann yrði ofurhetjuleikari þegar hann hreppti, mjög svo verðskuldað, Óskarsverð- launin fyrir besta leik í aðalhlutverki í mynd- inni „Leaving Las Vegas“, Ferðinni frá Veg- as, fyrir tveimur árum. Ekkert í fyrri og bet- ur þekktari myndum leikarans benti til þess: Peggy Sue giftir sig, „Birdy“, „Raising Ariz- ona“, „Moonstruck". Hann var yfirleitt fremur veikluleg, rómantísk hetja oft haldinn ein- hverri sjálfseyðingarhvöt í jaðarmyndum, sem margar hverjar sáust ekkert alltof mikið. Skapandi ad leika ■ hasarmynd Núna allt í einu er hann hasarmyndahetja númer eitt. Hann mun leika sjálfan Superman eða Ofurmanninn í endurgerð Tim Burtons myndarinnar um sterkasta klæðskipting has- arblaðanna, Clark Kent. Cage í hlutverki Stál- mannsins? Hvernig ætlar hann að fara að því? „Mig langar að sýna fram á að hetjudáð- ir hans eru sprottnar af því að hann vill njóta viðurkenningar. Hann er utangarðs, var tekinn í fóstur, finnur að hann er öðruvísi og veit hvað það er að vera öðruvísi en aðrir og er óöruggur með sig.“ Á hitt ber að líta að kannski er enginn leik- ari í dag sem fer betur með formúluhlutverk hasarmyndanna en Nicholas Cage. Við höfum fengið tvö fín dæmi um það tvö undanfarin sumur, Klettinn og Fangaflugið. Eini verulega ferski þátturinn í formúluafþreyingunni var Cage. Hann er einnig væntanlegur þetta sum- ar í nýjustu hasarmynd Hong Kong leikstjór- ans, John Woos, „Face/Off“, á móti John Travolta. Og Cage er ekki alfarið genginn í björg hasar- myndanna. Næstu tvær myndirnar sem hann gerir á und- an Ofur- menninu eru amerísk end- urgerð Wim Wendersmyndarinnar Himinninn yfir Berlín frá 1987 og spennumynd leikstjórans Brian De Palma, Snákaaugu, „Snake Eyes“. En af hveiju ætti óskarsverðlaunahafinn að vilja vera í formúluhasarmyndum? Af hveiju ekki setja markið hærra? „Á ýmsan hátt finnst mér það meira skapandi að leika í þessari tegund bíómynda en næstum því nokkurri annarri," segir hann í viðtali við Time. „Hasar- myndir njóta stórkostiegrar útbreiðslu, allir fara og sjá þær. Og almennt séð hefur karakt- erleikurinn í þeim ekki verið upp á marga fiska - boðið er uppá brot af samtölum og svo er klippt yfir í sprengingarnar." í öðru viðtali segist hann vilja sjá fleiri myndir í ætt við „High Noon“ með Gary Cooper og sem lýsa „. .. riddaramennsku er fær mann til þess að fresta brúðkaupinu sínu og gera það sem gera þarf.“ Tilvalin endurnýjun Endurnýjunar er sannarlega þörf þegar skoðuð eru þijú helstu hasarmyndabuff sam- tímans og Cage getur sem best verið leikarinn sem tekur við af þeim. Schwarzenegger er fimmtugur, Stallone er 51 árs og Harrison Ford er hálfsextugur. Cage er aðeins 33 ára. Og ólíkt hinum þremur, kannski að Ford und- anskildum, getur hann raunverulega leikið. Stallone, hetja hinna þöglu Rambómynda, seg- ir: „Nic gefur karakter hasarhetjunnar aukna vigt, dekkri, margræðnari og samræðufúsari." Cage sjálfur segir að hasarhetjur hans „geti fundið til ótta og eru ekki hræddar við að gráta“. Eins og mörgum er kunnugt heitir Nicholas Cage ekki Cage heldur Coppola og er bróður- sonur leikstjórans Francis Ford Coppolas. Þegar hann leitaði að nýju eftirnafni til þess að mynda fjarlægð frá hinum fræga frænda sínum fór hann í hasarblöðin og fann hetjuna Luke Cage með hnefa harða eins og stál og bijóstkassa, sem hrinti frá sér byssukúlum. Þannig varð Nicholas Cage til. Francis frændi notaði hann í nokkrar myndir sínar („Rumble Fish“, „The Cotton Club“, Peggy Sue giftir sig) en Cage var staðráðinn í að komast áfram á eigin spýtur. „Ég er ennþá Coppola," segir hann, „en ég varð að heita Nicholas Cage til þess að vita hvort ég kæmist áfram á eigin forsendum. Ég breytti aldrei nafninu lagalega séð en það er í vegabréfinu og í ökuskírtein- inu. Það er ég.“ ER ÞETTA fugl, er þetta flugvél, er þetta Nicholas Cage? Næsti Superman. Nýjasta myndin, „Face/Off“, er 28. myndin sem hann leikur í á 15 árum. Hann er kvænt- ur leikkonunni Patricia Arquette og þau eiga það sameiginlegt ásamt öðru að hafa bæði farið með aðalhlutverk í myndum David Lynch, hann í „Wild at Heart“ en hún í Truflaðri veröld, „Lost Highway“. Cage og Lynch smullu saman eins og aldavinir og skildu hvor annan fullkomlega eftir því sem Lynch segir. „Einu sinni við upptökur á myndinni sagði ég við Nic að hann þyrfti að syngja óperu,“ er haft eftir leikstjóranum. „Hugmyndin var að hann vaknaði eftir að hafa dreymt bómullar- hnoðra um nóttina. Þegar hann lítur undir rúmið sitt er hnoðrinn auðvitað þar og hann krýpur niður að honum og tekur að syngja óperu framan við einn einstakan bómullar- hnoðra í tunglskini. Það eru ekki margir sem maður getur talað við um atriði eins og þetta, sem raunverulega vissu hvað maður er að fara, en Nic ljómaði allur upp eins og jólatré." Nicholas greifi Cage á það til að sýna af sér kynduga hegð- un; hann lagði húsvagninn sinn í rúst við tök- ur á „The Cotton Club“, át lifandi kakkalakka í „Vampire’s Kiss“ og þegar hann lék í Fanga- fluginu gerði hann það reglulega að hlaupa upp um alla veggi og hljóða af lífs og sálar kröftum, eftir því sem leikstjórinn, Simon West, segir. Að sögn vina Cage er hann þó mjög tekinn að róast í seinni tíð. Líkt og starfsbróðir hans, Robert De Niro, undirbýr Cage sig vandlega áður en kemur að upptökum. Þegar hann lék pönkara í „Valley Girl“ bjó hann í bílnum sínum. Þegar hann „ r i Æ 1 ■ Á J lék blinda víetnamhermanninn í „Birdy“ gekk hann um alla daga með sáraumbúðir. Þegar hann lék drykkjusjúklinginn, sem er ráðinn í að drekka sig í hel í Ferðinni frá Vegas, tók hann myndir af sér dauðadrukknum á mynd- bandsupptökuvél. Þegar hann hitti fyrst nú- verandi eiginkonu sína, Patriciu, reyndi hún að losna við hann með því að setja honum óframkvæmanleg skilyrði fyrir þeirra hjúskap. Ef hann uppfyllti þau skyldi hún giftast hon- um. Á meðal þess sem hann útvegaði henni áður en hún blés leikinn af voru svartar orkíde- ur og eiginhandaráritun bandaríska rithöfund- arins J. D. Salingers, sem verið hefur í felum frá frægðinni hálfa sína ævi. Patricia og Cage slitu samvistir í nokkur ár, áttu börn með öðrum en kvæntust fyrir tveimur árum. Þá tekur Cage gamlar Drakúlamyndir mjög alvar- lega, að sögn, og horfir reglulega á „Nosfer- atu“ eða „Dracula" og „The Phantom of the Opera“ er einnig í miklu uppáhaldi. Hann sagði einhverntíma að hann mótaði sinn lífs- stíl talsvert eftir Drakúla greifa. Og svo er það Ofurmennið. Tim Burton er réttur leikstjóri fyrir myndina. Um það er engum blöðum að fletta. Kannski má búast við jafnmyrku og drungalegu borgarlandslagi og í fyrstu tveimur Batmanmyndunum, sem Burton gerði að metsölumyndum, og hetju sem syrgir æsku sína. Cage hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig síðasti Kryptonbú- inn á að vera. „Ég mundi gera Su- perman að viðrini, en fallegu viðr- ini að því leyti að hann lætur sér annt um fólk. Ég ætti ekki í erfíð- leikum með að tala um einmana- kennd hans og hvernig honum líð- ur eins og ókunnugum, fellur aldr- ei inn í samfélagið og þarf því stöðugt að vinna hetjudáðir svo fólki falli vel við hann.“ Gæti eins verið að tala um Bat- man. Þeir Burton eiga sjálfsagt eftir að falla í faðma á tökustað. A MOTI John Travolta í „Face/Off“ OLA I LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. ÁGÚST 1997 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.