Tíminn - 22.11.1966, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.11.1966, Blaðsíða 5
I’ ÞRIÐJUDACituR 22. nóvember 1966 TIMINN s iirtntt Útgefandi: FRAMSÓKNARiFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- iýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusimi 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr. 105.00 á mán. lnnanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Bjarni M. Gíslason Nú, þegar íslendingar fagna mikilvægum áfanga í' handritamálinu, er margra vaskra manna að minnast og þakka úr langri sögu liðinnar baráttu. Erfitt er að sjálf- sögðu að dæma um það, hverjir eigi þar niestan hlut, enda þarflaúst að gera upp reikninga með þeim hættti. En einn er sá maður, sem óhæfilegt er að gleyma, þegar menn baráttunnar eru nefndir. Það $r Bjarni M. Gísla- son, rithöfundur. Við upprifjun málsins síðustu daga hefur það komið fram, að þegar handritamalinu var fyrst hreyft af ís- lenzkri hálfu við danska ráðamenn og fræðimenn, hafi þar verið komið að algerlega lokuðum dyrum. Það var ekki fyrr en málið komst á hinn pólitíska vettvang, sem það tók að þokast áleiðis. En bak við þá þróun var mikið og þrotlaust starf við að vinna málinu það almennings- fylgi, sem gerði stjórnmálamönnunúm fært að byggja á afhendingartillögur. Fáir eða engir munu eiga meiri hlut á þeim akri en Bjarni M. Gíslason. Hann hefur lengi verið búsettur í Danmörku, og fulla tvo áratugi var hann vakinn og sofinn við að kynna málið í erind- um 1 skólum og á mannfundum um þvert og endilangt landið, í samtölum og blaðagreinum. Þega-r málið var af- flutt í dönskum blöðum, greip hann pennann og flutti þau rök, sem fólkið skildi. Úrslit málsins á vettvangi stjórnmála byggðust öðru fremur á því að vinna málinu fylgi í Radikala flokknum og Vinstri flokknum, því að það fylgi var fyrir meðal jafnaðarmanna og sós- íalista- Þétta tókst, og það var öðrum fremur Bjarna, Jörgen Jörgensen og Jörgen Bukdahl að þakka, svo og öðrum þeim, er þeir höfðu samvinnu við. Fiskleysi Svo er að sjá, sem yfir vofi nú mjög alvarlegt fisk- leysi í höfuðborginni og jafnvel nágrenni hennar. Má slíkt telja 'undarlegt fyrirbæri hjá mestu fiskveiðiþjóð heimsins, en eigi að síður er þetta ekki alger nýlunda. Mjög lítill eða oft nær enginn fiskur berst um þessar i mundir á land til fiskbúðanna, og fiskkaupmenn eru að reyna að gera út báta á fjarlægum stöðum eða kaupa fisk á öðrum landshornum. Þetta ástand er að sjálfsögðu alveg óviðunandi bæði fyrir neytendur og fiskkaupmenn. Það hefur nýjast gerzt í málinu, að samtök fisksala hafa leitað til verð- lagsnefndar og sótt um hækkun fiskverðs vegna óhóf- legs kostnaðar við fisköflunina langt að. Verðlagsnefnd- in mun ekki hafa talið sér fært að leyfa verðhækkun og vísað málinu til ríkisstjómarinnar. Þar situr það nú. Borgaryfirvöldin virðast einnig eitthvað vera að fálma um málið, og búast má við, að ekki greiðist úr, nema opinberir aðilar greiði einhverja uppbót á þann fisk, sem veiddur er fyrir borgarmarkaðinn. Af hálfu borgaryfirvalda hefur rikt alveg ótrúlegur sofandaháttur 1 málinu árum saman, og fisksölumálin eru nú í svipuðu öngþveiti og mjólkurmálin, áður en lögformlegt skipulag komst á þau. Borgárfulltrúar Framsóknarflokksins hafa hvað eftir annað reynt að hreyfa málinu í borgarstjórn, síðast snemma í október s.L, er þeir fluttu tillögu um að fela borgarstjóra að hefjast handa um ráðstafanir, sem koma mættu í veg fyrir fiskleysi í vetur. En slíku var ekki sinnt. Sæmilegt og viðunandi skipulag í fisksölumálum kemst sennilega ekki á, nema með félagslegu frumkvæði löggjafans og borgaryfirvalda. Ágúst Þorvaldsson alþm.: Verndum Vélamenningin svokallaða eykur sífcllt getu manna til að láta greipar sópa unn gæði náttúrunnar á öllum sviðum. Margir óttast — og það ekKi að ástæðulausu — að dýralífi víðsvegar á jörðinni, bæði á landi og í sjó sé bráð hætta búin, því nú gengur mjög á margar tegundir veiðidýra. Þó er hættan kannske mest við- víkjandi sjávardýrum. Hvölum hefur fækkað stórkostlega í höfunum og sums staðar er sclastofninn á sömu Ieið. Fiskistofnamir voru til skamms tíma taldir svo torsótt ir, að þar væri lítil sem engin hætta fyrir hendi. Nú er hins vegar talið, að veiðitæknin hafi aukizt svo mikið á síð- ustu árum, að stór skörð hafi vxerið höggvin í liina mikiu mergð, og að sjórinn, þetta stóra matarbúr sé byrjaður að gefa frá sér tómahljóð, að minnsta kosti á vissum svæðum- Hér yið strendur íslands, — sem hefur verið álitið eitt allra auðugasta fiskisvæði heims- ins — hefur veiðhnagn minnk að ár frá ári miðað við hverja sóknareiningu, sem á hafið ieit ar til fanga, að undantekinni síldveiðinni, en hina mikla yeiði síldarinnar, er þó eins og allir vita eingöngu að þakka nýrr veiðitækni og1 hinum Stóru skipum, sem til þessara veiða em notuð. Fáar þjóðir munu eiga eins mikið afkomu sfna liáða fisk- veiðum eins og íslendingar- Þeir þurfa þvi að hugsa með mikilli alvöru til ókomna tím- ans hvað snertir þann þátt at- vinnulífsins. Útfærsla fiskveiði lögsögunnar 1958 mátti ekki seinna vera. Það spor sem þá var stigið mun verða því meira metið í stjórnimálasögu íslands sem lengra líður. Ekki er þó svo að skilja, að þar hafi verið um lokaskref að 1 ræða. Landgrunnið allt yerða fslendingar einir að eiga og nytja ef þeir ætla lífi að halda í landinu. Það er því mik ið verk framundan, að vinna á þessu sviði. Hér þarf unga fólkið ekki sízt, að láta til sín taka í baráttunni fyrir þessu máli, þvj það á landið að erfa. Landgrunnsmálið verður stærsta baráttumál þjóðarinn ar á næstu árum. ísland er auðugt af frjóeína ríkri gróðurmold, sem enn er lítt nytjuð. Landið er vel fall ið til grasræktar og getur gefið góða uppskeru. Búpeningsrækt verður því sennilega aðalþátt- urinn í starfi íslenzkra bænda enn um langt skeið. Aðrar landbúnaðargreinar munu þó einnig þróast og vaxa, eins og t. d. ræktun fjölmargra marjurta við jarðhita. Skógræktin á vafalaust framtíð á vissum svæðum og mun það starf, sem á því sviði er unnið bæði af vís indalcgum og hugsjónalegum krafti góðra manna eiga eftir að auðga og fegra landið. Þá mun kartöfluræktin, sem hef- ur reynzt talsvert ótrygg vegna stuítra og kaldra sumra, verða árvissari þegar tímar líða og ef kartöflustofnar finnast, sem betur þola íslenzka veðráttu og þau sníkjadýr, sem þessa jurt ásækja- Ungur vísindamaður Einar I. Siggeirsson, vínnur að því öt- ullega að rækta og kynbæta kartöflur bæði með tilliti til frostþols og ónæmis fyrir landlægum kartöflusjúkdomi. Þetta starf vinnur þessi maður af vísindalegum áhuga ein- göngu og á eigin kostnað, og hefur orðið mikið ágengt. Er þessu starfi hans of lítill gaum ur gefinn af hálfu þeirra aðila sem vísindin eiga að efla. Matarþörf mannkynsins eykst mjög, en framleiðslan ekki að sama skapi. Fátt mun geta hent fólk, — einstakúnga eða þjóðir — ömurlegra en það, að hafa lítið eða ekkert til matar. Hungurdauði er sennilega einhver örvæntingarfyllsta bar átta, sem menn heyja. Fáum athurðum lýsa íslenzkir annál- ar jafnátakanlega eins og því þegar hallæri gengu og fólk dó úr ófeiti eða hungri. Slíkir atburðir eru sem betur fer fjarlægir í vitund unga fólks- ins, en margt eldra fólk man eftir því, að of lítið var til að eta og sultur í búi suma tíma árs. Nú eru góðu heilli aðrir og betri tímar upp runnir, þvi að með þeirri þekkingu og tækni, sem fyrir hendi er þá hefur ísland þótt norðlægt sé, mörgum löndur fremur góða möguleika til öflunar hollra matvæla bæði úr jurta- og dýraríkinu. Það hlýtur þess vegna að verða hlutverk ís- lendinga öðru fremur að fram leiða fæðu. Þetta þarf þjóðin að skilja og þeir sem stýra mál um hennar. Efling undirstöðuatvinnu- veganna, fiskiveiða og land búnaðar er ekki aðeins málefni dagsins í dag, heldur og ekki síður grundvöllur þess, að næstu kynslóðir geti lifað hér við allsnægtir. Það er íslendingum lífsnauð syn, að ná réttinum til land- grunnsins, efla Iandbúnaðarvís indi og tryggja bændastéttinni góð og batnandi kjör, svo að hinn kjamgóði bændastofn, sem enn þraukar í sveita- byggðum landsins geti og vilji halda þar áfram störfum við að nytja og vcrnda landkostina, sem þjóðin þarf svo mjög á að halda, og eiga að geta veitt henni lífsskilyrði og undir- stöðu að fjölbreyttu atvinnu lífi og frjórri menningu. ÞRIÐJUDAGSGREININ Bjami /1/1. Gísla■ son gleymdist Margt er það í sanlb. við hand- ritamálið svonefnda, sem hefur verið rifjað upp nú, þegar séð er fyrir endann á því deilumáli, und angenginna áratuga. Og nú hina allra síðustu daga hafa blöð og útvarp flutt viðtöl og umsagnir margra okkar fræðimanna og annarra um það, sem gerzt nefur í handritamálinu,, og sumir tíund- að flesta þá, sem að þessari lausn hafa unnið, sem fengin er. Og þeir, eru að sjálfsögðu margir, $em þar eiga miklar þakkir. En einn er sá maður, sem ýmsum mun hafa fundizt að ekki mætti gleymast, þegar pær þakk- ir voru fluttar. Og það er Bjarni M. Gíslason. rithöf. Hann hefur lengi verið búsettur meðal Dana, vel þekktur og vinsæll maður. Og hann hefur um 2ja átatuga skeið verið ötull talsmaður okk ar í handritamálinu, flutt ótelj- andi ræður um það í skólum og á mannamótum og skrifað um það bækur og bæklinga, og ver ið sífræðandi danskan almenning um mál þetta og rétt íslands til þess að fá handritin heim. Ég minnist þess, hve oft ég (heyrði Bjarna nefndan í samb. við þetta mál, meðan ég á fyrri árum sótti kennaramót og fundi þar í landi, einkum á Jótlandi, og Fjóni. Og á siðasta móti: sem ég var þar og átti að ræða ögn um sambúð þjóðanna, fann ég i-mjög glöggt áhrif Bjarna M. Gíslasonar i ræðum þeim, sem á Bjarni M. Gíslason eftir komu. Enda vissu það allir, að andi lýðháskólanna dönsku til þessa máls, sem vitað er, að hafði geysimikil áhrif til lausnar þess, var einmitt sá, er alls stað ar sveif yfir vötnum í sporum Framhald á bls. 15. v.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.