Tíminn - 22.11.1966, Blaðsíða 16
MIKIÐ UM ÞJÓFNAÐI UM HELGINA
STÁLU ÚRUM OG SKARTGRIPUM FYRIR EINA MILLJON
aiiaaBBi im himmh——
KJ-Reykjavík, mánudag.
Einn stærsti þjófnaður, sem
framinn hefur verið í Reykja-
vík var framinn í nótt í Úra-
og skartgripaverzlun Helga Sig
urðssonar Skólavörðustíg 3. Var
stolið þaðan úrum og skartgrip
itm fyrir um eina milljón
króna. Tveir menn sitja nú í
Hegningarhúsinu, og liafa ját
að á sig þjófnaðinn og jafn-
framt var rannsóknarlögreglan
búin að finna þýfið í dag. Þá
var stórþjófnaður í Hveragerði
og fleiri þjófnaðir í Reykjavík.
Kona, sem kom til vinnu í
húsinu, þar sem verzlunin er,
skömimu eftir kl. átta, varð
þess vör, að brotizt hafði verið
inn, og gerði lögreglunni að-
vart. Kom u þrír rannsóknar
lögreglumenn fljótlega á stað
inn, og eftir að hafa framkvæmt
vettvangsrannsókn, komust þeir
brátt á spor þjófanna, sem
voru teknir til yfirheyrslu, og
játuðu þeir fljótlega að hafa
verið þarna að verki. Hér er
um að ræða tvo unga menn,
sem voru á skrá hjá rannsóknar
lögreglunni vegna afbrota.
Iíöfðu þeir falið þýfið í her-
bergi annars þeirra.
Þjófarnir hreinsuðu bók-
staflega allt sem var í af-
greiðsluborðinu og eins það,
sem var í sýningarglugganum.
Tóku þeir heilu skartgripa
bakkana með sér, en hafa vöðl
Pramhald á bls. 11.
mmm
267. tbl. — Þriðjudagur 22. nóvember 1966 — 50. árg.
FISKSÖLUMÁLIN í
VAXANDIÖNGÞVEITI
hvað uppi muni verða á teningn-
um.
Borgaryfirvöldin hafia sýnt
vítavert tómlæti í þessum rnálum,
bæði nú og fyrr, eða síðan fór að
bera á fiskþurrðinni í borginni.
Framhald á 2. síðu.
AK-Reykjavík, mánudag.
— Vísir skýrði frá því fyrir helg
ina, að fisksalar hefðu í hyggju
að loka búðum sínum j því
skyni, að reyna að knýjia fram ein
hverjar úrbætur í fisköflunarmál-
um. Sannleikurinn mun vera sá,
að útlitið og ástandið í þessum
málum er nú ískyggilegra en
riokkru sinni fyrr. Mjög lítill fisk
ur berst á land á neyzlumarkað-
inn í Reykjavík og nágr. og fisk-
salar eru aðsækja fisk með vand
kvæðum langar leiðir í fjarlægar
verstöðvar með margföldum!
kostnaði en fá þó hvergi nærri |
nóg. Munu fisksalar hafa snúið ;
sér til verðlagsyfirlvalda og leit
að eftir hækkun fiskverðs vegna ; .
þessa kostnaðar, en þau ekki tal-1 KJ-Reykjavik, manudag.
ið sér fært að verða við þeirri í hinu mikla votviðri, sem var
kröfu, og vísað málinu beint til i hér sunnan og vestaniands í dag
ríkisstjórnarinnar. Vita nú fáir,1 kom 7 metra stórt skarð i þjóð
J
Rannsóknarlögreglumennirnir Leifur Jónsson (t.v.) og Ragnar Vignir a'ð-
greina þýfið í húsakynnum rannsóknarlögreglunnar. (Tímamynd Kári).
Fjölmenni hlustaði
á Kínafrásögn
FB-Reykjavik, mánudag.
Málfundafélag Stúdentafélags
Háskólans efndi til fundar í Tjarn
arbúð á laugardaginn, þar sem
Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi
Ríkisútvarpsins kom og flutti er-
indi um Kína, en hann er nýkom-
inn heim úr ferð þangað. Talaði
Stefán í tvo tíma, en síðan svaraði
hann fyrirspurnum fundarmanna,
sem voru mjög margir, og munu
færri hafa komizt á fundinn en
vildu.
Stefán ræddi m.a. um rfauðu
varðliðana, sem hann kvað vera
unga hreyfingu, en meðlimirn
ir eru á aldrinum 14 — 25 ára.
Kynntist hann nokkrum leiðtog-
um þeirfa, og ræddi við þá. Töl-
uðu þeir illa um Rússa, höfðu lítið
álit á Krustjeff, en fannst Stalin
afa verið merkur maður, enda þótt
þeir gætu talið upp marga galla,
sem hann hafði haft til að bera.
Framhald á bls. 11.
Stórt skarð í þjóðveginn við Félagsgarð í Kjós vegna vatna vaxta
ÖLL UMFERÐ NORÐUR 0G VESTUR
UM LAND FRÁ RFYKJA VÍK TEPPIST
NÁTTÚRUNAFNAKENNING
ÞORHALLS VEKUR MIKLA
OG RÉTTMÆTA ATHYGLI
IGÞ-Reykjavík, mánudag.
Síðastliðinn sunnudag flutti Þór
hallur Vilmundarson, prófessor
annað erindi sitt um náttúrunafna
kenninguna, er hann kallar svo.
Erindið flutti hann í hátíðasal Há
skólans, en teikningar og ljós-
myndir voru sýndar jafnframt til
skýringar.
Fyrirlestrar Þórhalls hafa vak-
. ið mikla athygli og var húsfyllir
á þeim báðum. Er það nýlunda á
síðari árum, að slíkur almennur
áhugi upptendrist á efni fræðilegs
eðliis. /
í fyrirlestrum Þórhalls kemur
fram ný leiðsögn til skýringar á
Framihald á bls. 15.
veginn við Skorá i Kjós, skaimnt.
vestan við Félagsgarð cða I.axá.
Stöðvaöist öll umferð um veginn
af þessum sökum, og því engar
samgöngur frá Reykjavik á landi,
vestur og norður um iánd, frá því
um miðjan dag í dag og þar ti! í
fyrramálið. en þá er búizt við, að
viðgerð ljúki.
Þegar og fréttist uim ag skarð
hefði komið í veginn gerði Vega
gerðin rástafanir til að koma hon
um í lag, en vatnsflaumurinn var
mikill og ekki gott að athafna sig.
Engin leið var fyrir stóra bíla
að fara út fyrir veginn og yfir
Skorá, vegna þess hvernig háttar
til þarna.
Norðurlandskjör-
dærai vestra
Framhaldsfundi kjördæmisþings
Framsóknarmanna í Norðurlands
kjördæmi vestra verður frestað
um óákveðinn tíma.
Um kiukkan hálf níu var brúar
vinnuflokkur kominn upp að Skor
á, og var fyrst byrjað á því að
korna fólki úr áætlunarbíluin yfir
ána. Var stálbiti lagður flatur yfir
hafið, kaðall stremgdur á milli
bakkanna, og síðan var auðvelt fyr
ir farþega og bíistjóra að ganga
yfir. Áætlunarbíll hafði farið úr
Reykjavík á móti Norðurleiðarbíln
um frá Akureyri, og bíll hafði kom
Framsóknarféiögin
í Reykjavík
Aðalfundur fulltrúaráðs Fram-;
sóknarfélaganna í Reykjavík verði
ur haldinn mánudaginn 28. nóveml
her að Tjarnargötu 26 og hefstj
kl. 20.30.
Dagskrá; Venjuleg aðalfundar-j
störf.
Fulltrúar eru beðnir að mæta
vel og stundvísjega.
ið frá Akranesi til að taka far
þega þangað.
Er Tíminn hafði samiband við
viðgerðarflokkinn í kvöld, bjugg-
ust menn við að umferð gæti haf
izt um klukkan níu í fyrramálið.
Vatnið var tekið að sjatna mjö'g í
Framhald á 2. síðu.
Skrifstofur Fram-
sóknarflokksins
í Reykjavík verða lokaðar fyrir há
degi í dag vegna jarðarfarar Stein
gríms Stejnþórssonar, fyrrv. for-
sætisráðherra.
Suðurl.kjördæmi
Sjöunda kjördæmisþing Fram
sóknarmanna í Suðurlandskjör-
dæmi verður haldið á Selfossi 26.
til 27. þ.m. og hefst það kl. 14 á
laugardag.
Beztiárangur íslendinga á Ólympíuskákmóti
URÐU í 11. SÆTI AF 52 ÞJÓÐUM. DANIR URÐU í TÍUNDA SÆTI.
Hsím—Reýkjavík. mánudag.
Þótt íslenzka skáksveitin á
Ólympíumótinu hafnaði í 11.
sæti í úrslitariðli Olympíu-
skákmótsins í Havana — og
yrði þar með nr. 11 af 52 þjóð-
um á mótinu — er það betri
árangur en ísland hefur
nokkru sinni fyrr náð á siíku
móti. Eftir harða keppm við
Dani um tíunda sætið varð
íslenzka sveitin að sætta sig
við að verða einum vinnins á
eftir Dönum — þrátt fyrir góð
an sigur gegn þeim fyrr í mót-
inu — en Dönum tókst að ná
tveimur vinningum gegn Tékk
um í síðustu umferðinni, gegr-
einum vinningi íslands á móti
Júgóslavíu.
Sovézka skáksveitin sigraði
með miklum yfirburðum á
mótinu, tapaði engum leik, en
gerði jafntefli við Ungveria
og hlaut 391/2 vinning. Þetta
er í áttunda skipti í röð, sem
Sovétrikin sigra á Ólympíu-
mótinu. Bandarikin urðu í öðru
sæti með 34V2 vinning. 3—4
urðu Ungverjaland og Júgó-
slavía með 33/2 v. 5. Argen-
tína 30'v. 6. Tékkóslóvakía 29%
v. 7. Búlgaría 28x/2 v. 8. Rúm-
enía 26i/2 v. 9. Austur-Þýzka-
land með 25% v. 10 Danmörk
20 v. 11. ísland 19 v. 12.
Spánn 18 v. 13. v. Noregur 14
v. og 14. Kúba 12 v-
f síðustu umferðinni tefldi
Framhald á 2. síðu.