Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Blaðsíða 4
UM MIÐJAN ágúst sigldu Þingeyingarnir frá Hamborg og eftir tveggja mánaða siglingu sáu þeir strönd Brasilíu. Þeim þótti merkilegt að fjöllin voru skógi vaxin uppá tinda. Myndlýsing: Freydis Kristjánsdóttir. BRASILÍUFARARNIR GÍSLI SIGURÐSSON TÓK SAMAN Á árunum 1863-1873 fluttust 35 Þingeyingar til Brasi líu en ferðin þangað tók marga mánuði og uppí hálft ár. Þeir settust að á fallegum og frjósömum stað sunnarlega í landinu, en þrátt fyrir mikið basl beið (; >eirra ekkert svipað harðræði og hins mikla fjölda sem kaus að flytja til Kanada nokkru síðar. ✓ ILESBÓK 22. nóvember sl. birtist grein eftir Björgvin Sigurðsson um hreyíingu Þingeyinga á síðustu öld í þá veru að flytja úr landi vegna þrengsla og harð- inda. Menn höfðu haft augastað á Græn- landi vegna þess að þangað var ekki löng sjóferð og hægt að búa þar með sauðfé, en Einar Ásmundsson í Nesi, sjálf- menntaður gáfumaður, hafði lesið um Brasilíu og taldi vitlegra að flytja þangað en í annað ennþá kaldara land en ísland. Um þetta undir- búningsskeið þegar Þingeyingar fóru að hyggja á Brasilíuferð var grein Björgvins, en hvernig fór þetta ævintýri? Á árunum 1937-38 setti Þorsteinn Þ. Þor- steinsson saman bók sem heitir einmitt Ævin- týrið, og fjallar um Brasilíufarana, ferðimar á áfangastað, landnám þeirra og afdrif. Bókin er að verulegu leyti byggð á bréfum frá þessu fólki til ættingja á Islandi. Hún er mikill doðr- ant, 400 bls. og er þessi grein byggð á frásögn- um úr bókinni. Hér er að sjálfsögðu sleppt því sem fram var komið um undirbúninginn og bréfaskriftir þeirra Einars í Nesi og Jakobs Hálfdanarsonar á Grímsstöðum, en eftir „skurðarveturinn og fellisvorið 1859 fór að bera á mikilli burtþrá“ manna í Þingeyjar- sýslu, segir í bókinni. Gífurleg flæmi í Brasilíu voru á þessum tíma ónumið land og stjómvöld unnu að því að fá innflytjendur frá Evrópu og gripu Þjóðverjar það tækifæri öðmm fremur. Búið var að þýða á þýzku og sænsku lýsingu á Brasilíu handa til- vonandi Brasilíufömm. Þar stóð að Brasilía væri eitt bezta og frjósamasta land í heiminum og náttúrugæðin framúrskarandi; óþrjótandi skógar, mikill fjöldi verðmikilla trjátegunda og ekki þurfti annað en að seilast upp í trén eftir ávöxtunum. Þessi auglýsingarit bámst Þingeyingum og hefur án efa hreyft við mörgum í harðindunum að lesa um jarðargróðurinn: Kaffitré, sykur- reyr, olíuvið, pálmavið, brauðvið, hör, tóbaks- jurt, hrísgrjón, hveiti, mais, fíkjur og fjölda korntegunda og ávaxta að ógleymdum rúsín- unum og kaffibaununum, sem íslendingum þótti mest tii koma. Gengu sögur um að menn áttu að geta slegið, líklega með orfi og Ijá, marga hestburði af rúsínum á dag. Þetta var eins og lýsing á Himnaríki. í ríki náttúrunnar var þó sumt að varast; grimm dýr til dæmis. Þar vora jagúar og kúgú- ar talin verst, en af öðram dýram mátti nefna apaketti, höggorma, letidýr, tapíra, og villi- hjarðir nauta og hesta. í fljótum skyldu menn varast krókódíla, en gnægð var þar af fiski, svo og í sjó, einnig hvalir. Margskonar málmar voru í jörð, en ljóst var þó að Þingeyingar mátu meira beitilönd og skilyrði til kvikfjárræktar en námur og ávaxtatré. Hér var sannarlega land sem sjá mátti í hill- ingum. En þrátt fyrir langan undirbúnings- tíma, svo sem rakið var í fyrrnefndri Lesbók- argrein, fór svo að margir guggnuðu á að taka þetta skref út í óvissuna. í bók sinni segir Þor- steinn Þ. Þorsteinsson svo: „Hinn mikli sannleikur þessa máls er sá að íslendingar voru hræddir við Brasilíu sökum ókunnugleikans, þótt þá langaði þangað. Og af sömu ástæðum þekkingarleysis, sýnir ríkis- stjórn Brasilíu tómlæti sitt til að veita þeim ókeypis far þangað." Kjarkmikill frumherji Fyrstur Islendinga til að stíga þetta afdrifa- ríka skref varð Kristján Guðmundsson frá Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit, f. 1840. Að vísu lögðu þeir þrír af stað 1863, allt ungir menn úr Þingeyjarsýslu, og var ferðinni heitið til Brasilíu. Fyrst varð að sigla til Kaupmanna- hafnar, en þar guggnuðu félagar Kristjáns og sneru heim aftur. Kristján fór sér að engu óðs- lega; dvaldi í Kaupmannahöfn í tvö ár og nam þar smíðar og sjómannafræði, en réðst síðan á skip sem var í Brasilíuferðum. Fékk það ótrú- lega góðan byr og var ekki nema 44 daga á leiðinni yfir hafið, en Kristján steig af skipsfjöl í Ríó de Janeiro, „á stað sem hann hafði lengi langað til að líta meðan hann var heima á ætt- jörðinni og varð hann glaður í hjarta sínu.“ í stórborginni Ríó tók Kristján upp ættar- nafnið Isfeld og svo gerðu faðir hans og systk- ini einnig þegar þau komu, en að því verður vikið síðar. Kristján fékk fljótlega vinnu við gerð gufuvélar sem átti að hreinsa vatn borg- arbúa og lærði brátt ensku, enda unnu Eng- lendingar við þetta verk. Það varð Kristjáni til happs að hann kynnt- ist auðugum Þjóðverja sem tók hann uppá sína arma og varð Kristján þar eins og einn af fjöl- skyldunni. Það var alltaf ætlunin, að foreldrar og systkini Kristjáns kæmu á eftir honum og í bréfi til þeirra dáist hann að ævintýraborginni Ríó og lofar yndisleik landsins. Segir Kristján að það sé sama hvert farið sé, allsstaðar sjái maður „hinn sanna guðdómlega ríkdóm af alls- konar plöntum og ávaxtatrjám og yndisleg blómsturtré." Ennfremur segir hann í bréfi: „Sá sem einu sinni hefur verið þarna, staðið úti í morgunkyrrðinni, andað að sér ilmandi loftinu og séð allt hið mikla skraut og fegurð náttúrunnar, getur borið um það vitni, en varla er hægt fyrir hina sem aldrei hafa komið þar að gera sér í hugarlund hversu unaðsfullt það er.“ Eftir þessa lýsingu barf engan að undra að Kristján settist að í Ríó fyrir fullt og fast. Hann kom sér vel áfram, lærði portúgölsku og keypti síðan veitingahús af hinum þýzka vel- gjörðamanni sínum og rak það í 6 ár. Smíða- verkstæði rak hann samhliða og græddist fé. Hugur hans beindist þó í í þá átt að afla sér menntunar, enda las hann márgar vísinda- greinar, segir í bókinni. Skjótur frami hans var lyginni líkastur og eftir aðeins áratug var þessi innflytjandi orðinn yfirbyggingarmeistari Ríó- borgar. 4 LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.