Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 2
Dansinn í
Toronto
KVIKMYNDIN Dansinn eftir Ágúst
Guðmundsson hefur verið valin til sýn-
ingar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Toronto í Kanada nú í september.
Kvikmyndahátíðin í Toronto er í hópi
svokallaðra A hátíða, þeirra stærstu og
mikilvægustu í kvikmyndaiðnaðinum
og hefur mikilvægi hennar aukist mjög
á undanfömum árum vegna þess að
hún þykir auðvelda aðgang að Banda-
ríkjamarkaði.
Dansinn sem gerð er í samvinnu við
Breta, Dani og Þjóðverja með stuðningi
frá Kvikmyndasjóði Islands, Norræna
kvikmyndasjóðnum og Evrópska kvik-
myndasjóðnum var tekin hér á landi og
í Færeyjum síðastliðið haust. Sagan,
sem byggist á smásögu eftir William
Heinesen, segir frá brúðkaupi fyrr á
öldinni þar sem óvæntir atburðir verða
til þess að þriggja daga brúðkaupsveisl-
an fer á annan endann líkt og flestir
sem til hennar er boðið.
Með helstu hlutverk í Dansinsum
fara Gunnar Helgason, Pálína Jóns-
dóttir, Dofri Hermannsson, Baldur
Trausti Hreinsson, Gísli Halldórsson,
Amar Jónsson og fleiri, en leikstjóri er
Ágúst Guðmundsson.
Sýningin á Dansinum í Toronto verð-
ur heimsfrumsýning en hérlendis munu
sýningar hefjast 23. september í Há-
skólabíói.
Z tilnefnd til
IMPAC-verð-
launanna
SKÁLDSAGAN Z - Ástarsaga eftir Vigdísi
Grímsdóttur hefur verið tilnefnd til IMPAC-
bókmenntaverðlauna Dyflinnarborgar 1999.
Þetta er í fjórða skipti sem tilnefnt er til
verðlaunanna en öll borgarbókasöfn höfuð-
borga í heiminum hafa tilnefningarrétt.
Skáldsögur sem tilnefdar eru verða annað-
hvort að vera frumsamdar á ensku eða
þýddar á ensku og segir Anna Torfadóttir,
borgarbókavörður, að það setji þeim sem til-
nefna bækur hér á landi ansi þröngar skorð-
ur. „Það eru jú ekki svo margar íslenskar
skáldsögur til í enskri þýðingu."
Skáldsagan Tröllakirkja eftir Olaf Gunn-
arsson var tilnefnd á þessu ári en það var
þýsk-búlgarska skáldkonan Hertha Muller
sem hlaut verðlaunin. Englar alheimsins eft-
ir Einar Má Guðmundsson var tilnefnd árið
1997 og Fyrirgefning syndanna árið 1996.
Verðlaunaféð er eitt það hæsta sem um get-
ur eða 100.000 írsk pund sem eru rúmar tíu
milljónir íslenskar krónur.
Heimir velur
hundrað bestu
HEIMIR PÁLSSON íslenskufræðingur hef-
ur skrifað bók um íslenska bókmenntasögu á
20. öld þar sem hann tekur meðal annars sam-
an tal yfir hundrað íslenska höfunda á öldinni.
Pétur Már Ólafsson útgáfustjóri Vöku-Helga-
fells sem gefur bókina út segir hana ætlaða
framhaldsskólanemendum og almenningi.
„Hér fer Heimir nánar í bókmenntasögu 20.
aldarinnar en hann gat gert í bók sinni
Straumum ogstefnum ííslenskum bókmennt-
um sem notuð hefur verið við kennslu í fram-
haldsskóium."
I bókinni sem nefnist Sögur, Ijóð og líf - Is-
lenskar bókmenntir á 20. öld er í bókinni að
fínna yfirlit yfír bókmenntasögu þessarar ald-
ar frá nýrómantík til póstmódernisma. Helstu
bókmenntastefnur eru settar í alþjóðlegt
samhengi í stuttu máli í sjálfstæðum köflum.
Bókin er skreytt myndum af höfundum, lista-
verkum, sögulegum atburðum og bókakápum.
Þá eru í bókinni ýtarlegar nafna- og atriðs-
orðaskrár.
Hanna Dóra fast-
róðin í Neustrelitz
HANNA Dóra Sturludóttir
sópransöngkona hefur gert
tveggja ára samning við Óperu-
húsið í Neustrelitz í Þýskalandi.
Hanna Dóra stundaði nám við
Listaháskólann í Berlín og lauk
því með hæstu einkunn í nóvem-
ber í fyrra. Jafnframt náminu
hefur Hanna Dóra verið gesta-
söngvari við óperuna í Bonn,
Rostock og nú síðast í Komische
Oper í Berlín og einnig sungið á
fjölda tónleikum.
Hún hefur sungið á ljóðatón-
leikum og óperutónleikum hér
heima og síðast liðið haust söng
hún á þrennum tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit Islands.
I Neusterlitz mun Hanna
Dóra syngja aðalhlutverk í mörgum þekktum
óperum og óperettum. Hún sagði aðspurð um
þessi tímamót að þau hefðu mikið gildi fyrir
sig, einkum söngur aðalhlutverkanna.
Hanna Dóra sagði að Óperuhúsið í
Neustrelitz væri af hæfilegri stærð, gæfi
henni tækifæri til að byggja upp hlutverk sem
hún gæti einnig flutt annars staðar síðar
meir. Starfið hefst að fullu í haust og meðal
hlutverka eru aðalhlutverk í Vínarblóði og
hlutverk Margrétar í Fást eftir Gounod.
Sem aðalsópran verður Hanna
Dóra að syngja í tveimur til
þremur sýningum í viku. Eitt
kvöldið getur það verið í Mozart-
sýningu, annað í verki eftir Verdi
og þriðja í Straussóperu, svo að
dæmi sé tekið. í húsinu fara líka
fram leiksýningar. Hún taldi
þetta ákveðna reynslu fyrir sig
sem koma myndi að gagni.
Spurð um hverju hún ætti eink-
um að þakka þennan góða árang-
ur sagði hún að allt hefði hjálpast
að, en ekki væri verra að söngvari
væri „öruggur og með tæknina á
hreinu".
Hún sagði að sjálfsöryggið
skipti miklu. Það væri gaman að
fá tækifæri og fasta stöðu, hún
kynni þeirri tilhögun betur en hinum frjálsa
markaði þar sem fólk þyrfti alltaf að vera að
leita fyrir sér.
Hún hefði verið lausráðin í tvö ár með
skólanámi. I sér væri eftirvænting að syngja
sem fastráðinn söngvari þótt það þýddi að
stundum þyrfti að gera fleira en maður kysi.
Neustrelitz er 200 km norður af Berlín þar
sem Hanna Dóra hefur búið og mun hún
halda íbúð sinni þar en jafnframt búa í
Neustrelitz.
EITT af verkum Höllu sem hún sýnir í Edinborg.
Sýnir á listahátíð í Edinborg
NÚ stendur yfir listahátíð í Edinborg í
Skotlandi, þar sem íslensk listakona, Halla
Haraldsdóttir, er þátttakandi og er sýning
hennar í Gallerí Kunst, Stocbridge, dag-
ana 7.-29. ágúst.
Á sýningunni verða olíumálverk, öll
unnin á þessu ári. Verkin eru bæði
fígurativ og abstrakt. Halla hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt
í samsýningum bæði hér heima og er-
lendis.
I ágúst stendur einnig yfír sýning á
mynd- og glerverkum eftir Höllu í Eld-
borg, húsi Hitaveitu Suðurnesja í Svarts-
engi. Sýningin er opin laugardaga og
sunnudaga frá kl. 10-16.
Nýstárleg sýning
í Japan
í ALÞJÓÐLEGU samstóptamiðstöðinni í
Tókýó í Japan stendur nú yfir sýning mynd-
bandalistamannsins Woodys Wasulka á verk-
um sem samanstanda af vélum, tölvum, borð-
um, hvers kyns strengjum, kúlum o.fl. Wa-
sulka hefur m.a. nýtt sér hemaðarlegan
tækjabúnað sem hann fann í nágrenni Los
Alamos þar sem kjarnorkusprengjumar sem
varpað var á Japan vom smíðaðar. Verkið
Bræðralag er gert úr ýmsum stríðsleifum úr
seinni heimsstyrjöld. Hljóð og myndir era
veigamikill þáttur sýningarinnar.
Þetta er fyrsta stóra sýningin í samskipta-
miðstöðinni sem stofnsett var 1997. Sýningar-
stjórinn, Gogota Hisanori, var frá upphafi
ákveðinn í að bjóða Woody Vasulka og konu
hans, Steinu Vasulka, að sýna, en list þeirra
kynntist hann á Whitney-tvíæringnum 1989.
Þau hjón hafa áður unnið myndbandaverk í
Japan.
Um verk sín á sýningunni segir Vasulka:
„Vélamar era reiðubúnar. Þær þurfa aðeins
að komast yfir mannlega veikleika."
Listamaðurinn bendir á að listin keppi ekki
að því að vera til þæginda heldur sé það ekki
síður tilgangur hennar að ganga nærri áhorf-
endum. Sýningin í heild á að renna saman við
áhorfandann/áheyrandann, vera hluti af
taugakerfí hans.
Sýningin stendur út ágúst.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti
Manuel Moreno sýnir til 12. ágúst.
Kjarvalsstaðir
Stiklað í straumnum. Úrval verka úr eigu Listasafns
Reykjavíkur. Til 30. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-16.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Þriðja gestasýning sumarsins: Vinafundur, verk eft-
ir Guðmundu Andrésdóttur, Jóhannes Jóhannesson,
Kristján Davíðsson og Þorvald Skúlason. Safnið op-
ið alla daga nema mánudaga milli kl. 14 og 17 til 1.
sept.
Gallerí Fold, Kringlunni
Hadda Fjóla Reykdal og Helga Fanney Jóhanneá-
dóttir sýna til 12. ágúst.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b
Samsýning 13 þýskra og íslenskra myndlistar-
manna.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson sýnir.
Perlan
Ríkey Ingimundardóttir sýnir.
Gallerí Fiskur, Skólavörðustíg 22c
Franz Graf og Eva Wohlgemuth sýna ásamt tónlist-
armönnunum Jóhanni Eiríkssyni og Guðmundi
Markússyni.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu
Konur, úrval úr Errósafni Reykjavíkurborgar. Til
23. ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Kristín Guðjónsdóttir sýnir til 30. ágúst.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70
Elanor Symms sýnir til 22. ágúst.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Jón Gunnar Árnason. Sumarsýning.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn íslands, Hafnarflrði
Sumarsýning á ljósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suður-
götu
Handritasýningin Þorlákstíðir og önnur Skálholts-
handrit. Til 31. ágúst.
Gallerí Stöðlakot, Bókhlöðustíg
Sonja Elídóttir sýnir til 9. ágúst.
Listagallerí, Engjateig 17
Helgi Björgvinsson sýnir til 22. ágúst.
Gallerí Sævars Karls við Bankastræti
Kristján Steingrímur sýnir til 2. sept.
Gallery Ófeigs, Skólavörðustíg 5
Isa Ohman sýnir til 22. ágúst.
Listasafn ASÍ
Guðmundur Ingólfsson og Wayne Guðmundsson
sýna til 23. ágúst.
Gallerí Handverks & hönnunar
Anita Hedin textfllistamaður frá Svíþjóð sýnir til 22.
ágúst.
Gallerí Geysir, Aðalstræti 2
Jónas Hallgrímsson til 23. ágúst.
SPRON Mjódd
Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt.
Hótel Edda, Laugarvatni
Elín Rebekka sýnir til 20. ágúst.
Listasafn Árnesinga, Selfossi
Yfirlitssýning á verkum Magnúsar Tómassonar.
Ketilhús, Akureyri
Samsýn: Sólveigar Baldursdóttur, Guðrúnar Pálínu
og Hrefnu Harðardóttur.
Hafnarborg, Hafnarfírði
Fimm listamenn frá Slésvík-Holtsetlandi. Ásta
Árnadóttir í Sverrissal. Til 24. ágúst.
Gallerí Svartfugl, Akureyri
Jónas Viðar Sveinsson sýnir.
Ljósmyndakompan, Akureyri
Guðbrandur Sigurlaugsson sýnir.
Slunkaríki, ísafirði
Guðbjörg Kr. Ingvarsd., Guðrún Halldórsd. og
Katrín Elvarsd. til 12. ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Anna Líndal sýnir til 28. ágúst.
Laugardagur
Sumartónleikar Skálholtskirkju; Bach-sveitin kl. 15
og 17. Djass á Jómfrúnni kl. 16-18; Sigurður Flosa-
son, Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson.
Sunnudagur
Sumartónleikar Skálholtskirkju; Bach-sveitin kl. 15.
Kl. 17. messa í Skálholtskirkju með þátttöku tónlist-
armannanna og hefst þá tónlistarflutningur í kirkj-
unni kl. 16.40. Tónleikar í Húsinu á Eyrarbakka kl.
14 og 16, Ingi Heiðmar Jónssonar spilar á hið forna
taffel píanó Hússins. Sumartónleikar í Isafjarðar-
kirkju; Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Hörð-
ur Áskelsson orgelleikari kl. 20.30. Fyrstu tónleikar
Berglindar Björgúlfsdóttur ásamt Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur píanóleikara í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar kl. 17. Sönglög eftir íslenskar konur í
Norræna húsinu kl. 16, flytjendur; Marta Guðrún
Halldórsdóttir, Unnur Vilhelmsdóttir, Lovísa Fjeld-
sted og Hallfríður Ólafsdóttir. Sumarkvöld við org-
elið í Hallgrímskirkju; David M. Patrick kl. 20.30.
Mánudagur
Tónleikaröð Stykkishólmskirkju; Ashildur Haralds-
dóttir og Pierre Morabia kl. 21.
Þriðjudagur
Tónleikaröð Iðnó; Söngdansar Jóns Múla. kl. 20.30.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Grease, lau. 8. ágúst, sun., fím., fös.
íslenska óperan
Carmen negra. Rokk-, salza-, poppsöngleikur, lau.
8. ágúst.
Iðnó
Þjónn í súpunni sun. 9. ágúst, fim., fós., lau.
íslenska óperan
Hellisbúinn lau. 8. ágúst, fós.
Tjarnarbíó, leikhúsið
Light Nights, leiknir þættir úr íslendinga sögum
og þjóðsögum á ensku lau. 8. ágúst., fím., fös., lau.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtai-
verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða á
netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, Menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir:
669 1222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8.ÁGÚSTI998