Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 12
KRISTINN REYR RISPUR i. Kristur hengur en kvar er Guð spurði hún telpan inn allt kirkjugólfíð. II. Góðærið strunsar fram til að gefa oss sjúkum gömlum. oghrumum langt nef. III. Morgun og kvöld ogmiðjan dag hvolfíst svo enn hávaðamengun æfíngaflugsins yfír oss horgarbúa. IV. Fátækust þjóða er sú sem drekkir hálendisperlum sínum. Höfundurinn er skóld i Reykjavík. JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR KONA A KAFFIHÚSI Sama kaffihús, daginn eftir. Sama borð, sami þjónn, sama fólk, skuggi gærdagsins leiftur úr mynd. I gær þekkti hún þetta allt tengdist því öllu var hluti af öllu var hluti af mynd var hluti af heildinni hans var hluti af skarkala kaffihússins talaði, hló, hrukkaði ennið og benti skildi eftir rauðan varalit á barmi öll hljóðin glamrandi bollapör kliður raddanna, hláturinn skarkali kaffíhússins raunveruleiki gestsins ilmurinn vindlalyktin ilmvötnin, bókalyktin kaffí og brauðilmurinn ilmur kaffíhússins raunveruleiki gestsins hún tengdist því öllu í gær í dag er hún eitt spor til hliðar til hliðar við heildina hans þekkir ekki raunveruleikann, hljóðin, ilminn myndin er ekki ífókus, þótt hún horfi á hún talar ekki, hlær ekki né bendir hún hrukkar aðeins ennið skilur eftir rauðan varalit á barmi skugga gærdagsins á sama kaffíhúsi, daginn eftir. Morgunblaöið/Árni Sæberg HLIF Sigurjónsdóttir: „Sinfóníuhljómsveit íslands er homsteinn íslensks tónlistarlífs. Hún á að vera stofnun sem gerir fremstu hljóðfæraleikurum landsins kleift að lifa af iðju sinni - lifa af því að spiia tónlist og halda sér ( æfingu." Sinfóníuhljómsveit Islands stendur á tímamótum. Menn verða að gera upp við sig hvaða starfsumhverfi [ >eir vilja búa hljómsveitinni í framtíðinni. Hvort þeir v ilja halda í horfinu, sem myndi leiða til stöðnunar og jafn- vel hnignunar, eða stíga skrefið til fulls - auka fj< yr- streymi til hllómsveitarinnar, markaðssetja hana af full- um þunga, fullmanna hana og síðast en ekki síst byggja tónlistarhús. Þetta er álit Hlífar Sigurjónsdóttur, formanns starfsmannafélags Sl, sem í samtali við ORRA PAL ORMARSSON fjallar um hljómsveitina í fortíð og nútíð, auk þ ess að horfa til framtíðar. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís- lands var sett á laggimar árið 1950 með hugsjónina eina að vopni - eða því sem næst. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjáv- ar. Fimmtíu ár eru að vísu ekki langur tími þegar byrjað er frá grunni en hljómsveitin hefur vaxið og dafnað og nú er svo komið að hún er orðin fær í flestan sjó - stendur fremstu hljómsveitum erlendis fyllilega á sporði. „Pað er af sem áður var,“ segir Hlíf Sigur- jónsdóttir fiðluleikari og formaður starfs- mannafélags SÍ. „Á fyrstu árum hljómsveitar- innar voru kraftar allra sem eitthvað kunnu að spila á hljóðfæri virkjaðir. Nú þurfa allir að gangast undir mjög strangt hæfnispróf, meðal annars spila einleikskonserta. Við erum orðin góðu vön en megum hins vegar ekki gleyma því að þessar breytingar hafa átt sér stað á ótrúlega skömmum tíma. Nokkuð sem er alls ekki sjálfsagt mál, ekki frekar en tilvist Sin- fóníuhljómsveitar íslands. Það er alls ekki sjálfsagt mál að starfrækt sé sinfóníuhljóm- sveit á Islandi.“ Mikið rétt. Auðvitað er það ekki sjálfsagður hlutur að samfélag með 270 þúsund hræðum, og skamma listasögu á öðrum sviðum en bók- menntum, eigi sinfóníuhljómsveit - hvað þá sinfóníuhljómsveit á alþjóðlegan mælikvarða. Um gæði Sinfóníuhljómsveitar íslands verður nefnilega ekki deilt. Þeim til staðfestingar höf- um við orð ótal hljómsveitarstjóra og einleik- ara sem hingað hafa komið, að ekki sé talað um lofsamlega dóma í erlendum blöðum og tímaritum um tónleika og geislaplötur. Há- punkturinn var vitaskuld dómur Alex Ross, tónlistargagnrýnanda The New York Times, eftir tónleikana í Carnegie Hall í febrúar 1996. Blað af því tagi eyðir ekki dálksentimetrum á hvaða hljómsveit sem er, hvað þá að hefja hana upp til skýja. Skyldi þjóðin almennt gera sér grein fyrir því hvaða þýðingu þessi dómur hafði fyrir hljómsveitina - fyrir tónlistarlífið í landinu? „Við megum ekki vanmeta mátt menningar- innar,“ segir Hlíf. „Þegar útlendingar horfa til okkar spyrja þeir ekki hve mörg tonn af fiski við drögum úr sjó á ári hverju, heldur hvort menningarlífið standi í blóma. Þótt fiskurinn sé mikilvægur er það ekki hann sem gerir okkur að þjóð - heldur menningin!" Frumherjarnir hinar raunverulegu hetjur Hlíf veit sem er að uppgangur SÍ hefur ver- ið mikill á þessum áratug. Hún veit líka að hljómsveitin væri ekki þar sem hún er í dag hefðu brautryðjendurnir ekki verið þrautseig- ir hugsjónamenn. Um þá menn talar hún af lotningu. „Það er oft talað um sigra Sinfóní- unnar á undanförnum árum. Réttilega! Á hitt 1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. ÁGÚST 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.