Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 8
ÓGNIN á Atlantshafinu: „Eftir tveggja til þriggja daga sigiingu var byrjað að varpa djúpsprengjum vegna hugsanlegra árása þýskra kafbáta, þessi ófögnuður fylgdi okkur nótt sem nýtan dag“ segir i ben James, sem átti að gæta skipanna, var sökkt. Málverkið er eftir Adolf Boch og sýnir þýzkan kafbát skjóta i UT I HINN STORA FYRIR 56 ARUi FOR ÞRIGGJA NORÐANSTUDENTA FRA AKUREYI EFTIR HALLDÓR ÞORSTEINSSON Með síðari heimsstyrjöldinni lokuðust allar leiðir til Evrópu fyrir unga Islendingg sem vildu komast í nóm við erlenda háskóla. Þá urðu Bandaríkin sá kostur sem horft var til, en Dað var engum smáannmörkum háð að komast þangað sjóleiðina. Hér segir frá Dessu ævintýri, en fyrir utan greinarhöfundinn voru með í förinni Aðalsteinn Sigurðsson, síðar sagnfræðingur, og Jónas Jakobsson, sem laqði stund á veðurfræði. AÐ hefur talast svo til að ég skrifi nokkrar greinar um ferðir mínar til Vesturheims fyrr og síðar, náms- dvöl mína í Kaliforníu svo og kynni mín af landi og þjóð. Vonandi skilur enginn orð mín svo að það sé ætlun mín að skrifa hér ævisögu mína, öðru nær. Hins vegar verður ekki hjá því komist að bera saman liðnar og líðandi stundir, greina frá gömlum tíðindum og nýjum, þar sem fortíð og nútíð eru tvinnaðar saman og loks að minnast á sitthvað, sem á daga mína hef- ur drifíð á vegferð minni í okkar viðsjárverðu veröld. Ég hafði aðeins komið til Reykjavíkur tvisvar sinnum áður en ég fór utan 1941. I fyrra skiptið 1928. Ég var, sjö ára gamall snáðinn, fluttur með varðskipi frá Akureyri til höfuðborgarinnar til að láta taka úr mér heldur illa artaða hálskirtla og framkvæmdi Matthías Einarsson, sá þjóðkunni læknir, aðgerðina. Þannig var nú heilbrigðisþjón- ustan í þá daga! En svo að öllu gamni sé sleppt, þá hygg ég að faðir minn, Þorsteinn M. Jónsson, hafí notið aðstoðar samherja síns og skólabróður, Jónasar Jónssonar frá Hriflu, til að fá far suður fyrir mig og reyndar líka fyrir fylgdarkonu mína, elstu systur mína, Jónborgu. Þegar þangað var komið dvöldumst við í Laufási hjá Asgeiri As- geirssyni og Dóru Þórhallsdóttur í góðu yfirlæti í meira en eina viku. Það má ótrúlegt heita hversu mikið byggðin hefur þanist út á síðustu sjötíu ár- um í höfuðborg Islands, enda er ekki ofmælt að Laufás hafi nánast verið uppi í sveit, þegar ég gisti þar í gamla daga. Þar var t.d. rekið kúabú um tíma. Það vildi mér sannarlega til láns hversu flokksbræðurnir þrír, þ.e. faðir minn, Þorsteinn M. Jónsson, Jónas Jónsson frá Hriflu, og Ásgeir Asgeirsson, voru samtaka og sameinuðu krafta sína ýmist til að koma mér til læknis eða veita mér húsaskjól og aðhlynningu að aðgerð lokinni. Ég er því ekki frá því að Ingibjörg Pálmadóttir, núverandi heilbrigðisráðherra, gæti sitthvað lært af vinnubrögðum þessara gömlu og gengnu flokksfélaga sinna. Hér var ekkert hálfkák né hálfvelgja, engar tafir né biðlistar. Allt gekk eins og í sögu. Fjórum árum síðar, árið 1932, þótti það nokkr- um tíðindum sæta þegar fimleikaflokkur skipað- ur ungum drengjum frá Akureyri lagði upp í ferð um iandið undir stjórn Hermanns Stefánssonar, íþróttakennara og síðar mikils skíðaíþróttafröm- uðar. Við sýndum á þremur stöðum, Siglufirði, ísafirði, en lokasýning flokksins fór fram á Mela- vellinum í Reykjavík. Fjöimenni var, það man ég glöggt, en hins vegar er þegar farið að fyrnast yfir nöfn félaga minna, þó minnist ég enn nokk- urra, eins og t.d. Lýðs Sigtryggssonar, þess írá- bæra fimleikamanns, sem síðar öðlaðist mikla frægð fyrir harmónikuleik í Noregi, Braga Frey- móðssonar, rafmagnsverkfræðings, að ógleymd- um Örlygi Sigurðssyni, listmálara. í stuttu máli sagt var þetta býsna vel heppnuð ferð, allt nema aksturinn norður í gömlum blæjubíl af Buickgerð, en við vorum 18-20 tíma á leiðinni heim, lengstum örþreyttir og sársvangir. Eftir á að hyggja þá var þetta í rauninni alltof mikið álag á unga og óharðnaða pilta á aldrinum 10-12 ára. Ég veit satt að segja ekki hvernig heimferð okkar hefði endað, ef Örlygur hefði ekki verið svo vænn og örlátur að deila út nestinu sínu tii okkar, en hann var sem betur fer með 2-3 skókassa fulla af smurðu brauði frá Stefáni, móðurbróður sínum, í Fram- tíðinni. Þeim frændum verður seint fullþakkað fyrir þetta ákaflega vel þegna nesti. Nú væri ef til vill ekki úr vegi að gera hér smá- grein fyrir svokölluðum Menntamálaráðsstyrkj- um, sem úthlutað var aðeins til átta stúdenta ár hvert. Við Aðalsteinn Sigurðsson, síðar sagnfræð- ingur og kennari við MA og Jónas Jakobsson, sál- ugi, veðurfræðingur áttum því iáni að fagna árið 1941 að vera meðal þeirra útvöldu. Námslán voru þá alveg óþekkt fyrirbæri. Styrkurinn var veittur til fjögurra ára og nam hann 45 dölum á mánuði, en sú kvöð fylgdi honum að styrkþegi ynni í heimalandi sínu jafnlangan tíma, þ.e. fjögur ár, en eftir það var hann laus allra mála, frjáls ferða sinna og heimilt að yfirgefa ættjörðina og ílendast erlendis, ef honum bauð svo við að horfa. Hér að framan hef ég m.a. sagt frá ferðum mín- um til Reykjavíkur, einkum til þess að undirstrika takmarkaða reynslu mína af lífinu og fátækleg kynni mín af umheiminum jafnt af töfrum hans sem ógnum. Ekki svo að skilja að ég væri algjör grænjaxl, enda hafði ég verið í Bretavinnu, fyrst sem venjulegur verkamaður, síðar sem verkstjóri og loks sem túlkur, auk þess hafði ég unnið í einni af síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði. Ég get þó engan veginn leyft mér að tala jafndigurbarka- lega um lífsreynslu mína og stúlkan, sem vænd hafði verið um að vera óspjölluð mey, en hún brást hin versta við slíkum aðdróttunum og sagði: „Eg, hrein mey, af og frá, ég sem var í síld úti í Hrfsey í sumar.“ Um lífsreynslu samstúdenta minna, Aðalsteins og Jónasar, veit ég harla lítið, en ég hef það ein- hvern veginn á tilfinningunni að hún hafi ekki tekið minni ýkjamikið fram. Við komu okkar til Reykjavíkur í október 1941 blasti við okkur svo ófögur sjón, að við héldum fyrst í stað að við hefðum farið borgarvillt, en sú var þó ekki raunin. Borgin var meira og minna sundurgrafín eða öllu heldur götur hennar. Sk- urðirnir minntu okkur fyrst í stað einna helst á skotgrafir, en þetta reyndist mesta missýn því að brátt kom í ljós að hér voru ekki neinar hernaðar- framkvæmdir á ferðinni, heldur friðsamlegar og framsýnar framkvæmdir vegna nýtingar hvera- vatns til húsahitunar í höfuðborg Islands, auk þess var heitu hveravatni líka veitt í sundlaugar eins og reyndar lengi hafði tíðkast. Lagning hita- veitu var bæði mikið verk og tímafrekt. Hér væri ef til vill smáinnskot sagnfræðilegs eðlis ekki alls kostar óviðeigandi. í yfirgripsmiklu riti um seinni heimsstyrjöldina er á einum stað sagt frá heimsókn forsætisráðherra Bretlands, Winstons Churchills, til Reykjavíkur í ágúst 1941 og þar er m.a. þess getið að hann hafi verið svo vænn og vitur að benda íslendingum á hvemig þeir gætu sem best nýtt þessa dásamlegu auðlind, sem heita hveravatnið er. Afrekaskrá þessa merka stjórnmálamanns var þegar með svo mikl- um glæsibrag, að það virðist hafa verið hreinasta 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. ÁGÚST 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.