Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Blaðsíða 7
erfðavenju úr heiðnum sið, en þar var eitt grundvallaratriðið hefndarskyldan til tiygging- ar viðgengis ættarsamfélagsins. Þriðji kafli: Skyggnir spekingar hefst á upp- hafi bókar Einars Olafs Sveinssonar „Á Njáls- búð“ sem án efa er listrænt snilldarverk. Þar telur J.K.H. höfundinn gæddan skyggnigáfu og hugarsýn hans af dulrænum toga. Síðar kemur hann að því að ýmsir hafi reynt að þreyta þá glímu að finna höfund Njálu. Og þar með vísar hann á bók undirritaðs „Sköpun Njálssögu“. Eg ann honum þökk fyrir að virða svo verk mitt. En úr því að svo fór gat hann ekki hjá því komist að geta þess manns sem öll hugmynda- fræði þeirrar bókar byggist á, sagnfræðingsins og Njálufræðingsins Barða Guðmundssonar, en hann forðast að ræða meira þar um. En hafi einhver rök fram að færa sem ekki verða hrak- in er þögnin sterkasta vopnið. En ennþá lengra gengur höf. að nefna ekki á nafn goðsögulega rannsókn fræðimannsins Einars Pálssonar á Njálu og fleiri Islendingasögum, sem hann lét eftir sig. Á fjórða áratug aldarinnar birti Barði Guðmundsson hinar frægu ritgerðir sínar sem eftir hans dag komu út í bókinni „Höfundur Njálu“. Á þeim tíma settu þær svip sinn á allar Njálu-umræður svo að úr urðu deilur. - En þá sat Einar Ólafur 1 hásæti á friðarstóli eftir að doktorsrit hans „Um Njálu“ hafði komið út. Báðir þessir menn voru snillingar í Njálufræð- um, að vissu leyti samherjar og virtu hvor ann- an. Einar Ólafur lýsir fagurlega í bókinni ,Á Njálsbúð", þegar mynd höfundarsögunnar rís fyrir hugarsjónum hans á Lögbergi: „Það var sama sól og nú. Hugur hans reikaði aftur og tím- inn var villtur í sólskininu. Þriggja alda gamlir atburðir risu upp fyrir hugarsjónum hans.“ Barði Guðmundsson var ekki síður skyggn ef svo mætti kalla og sýn hans aftur í aldir bæði djúp og víðfeðm. I formála „Höfundar Njálu“ segir hann: „Þegar ég tók að sökkva mér niður í rannsóknir á Njálssögu, varð mér Ijóst, að mannlýsingar sögunnar hlutu að styðjast við fyrirmyndir frá samtíð höfundar. Sama er að segja um ýms orsakasambönd, viðburði og ein- stök atvik, sem Njáluhöfundur greinir frá. Uppistaða sögunnar er vissulega gamlar arfsagnir. En úr þeim verður ekki sköpuð list- ræn saga nema að skáldlegt hugarflug komi til.“ Síðan telur hann upp fjölda persóna úr sög- unni og bendir á lifandi fyrirmyndir þeirra en lýkur svo með þessum orðum: „Og í sporum Hildigunnar Starkaðardóttur, sé ég loks standa á leiksviðinu hina ríklunduðu Oddaverjamey Randalín Filipusdóttur." Báðir voru þeir Einar Ólafur og Barði Guð- mundsson grandvarir fræðimenn og beittu rannsóknum sínum á vísindalegan hátt í hví- vetna. Einar Ólafur sýnir í hugsýn mynd ónefnds höfundar áður en sagan verður til. En Barði Guðmundsson sýnir mynd hans í fullu dagsljósi 13. aldar og er þar kominn Svínfell- ingurinn og höfðinginn Þorvarður Þórarinsson frá Valþjófsstað. - Engin von var til þess að Einar ðlafur féllist á þá kenningu, hvað svo hún hafði sér til ágætis og yrði ekki hrakin. En hann var aftur á móti þess fullviss að Njáluhöf- undur sækti persónu- og atburðalýsingar til samtímans. í bók sinni ,Á Njálsbúð" gerir hann þá nýstárlegu uppgötvun að stýrimannanöfn í Njálu væru tekin eftir nöfnum norrænna far- manna, sem til íslands komu um miðja 13. öld. Þessi uppgötvun hins merka fræðimanns varð svo kveikjan að ritgerð Barða - „Stýrimanna- nöfn í Njálu“, þar sem hann sýnir með sterkum rökum að nafngiftir þessar séu hafnar yfir allan efa og hvetji til nýrra rannsókna á Njálu og að allar varði þær Þorvarð Þórarinsson og vísi til ferils hans og athafna á fyrrnefndum tíma. En þegar fyrir liggur spurningin hver til- gangurinn með ritun sögunnar hafi verið, verða skoðanir skiptar. - Einar Ólafur svarar: „Hann langar til að segja sögu“ - En þó er punktur settur aftan við og engar vangaveltur meiri um það. En Barði aftur á móti telur hana stjóm- málalegs eðlis og pólitískt innlegg í deilur sam- tímans. Þar er umræðan opin og veitir sýn til allra átta. Enn er eitt ótalið varðandi samskipti þessara Njálusnillinga sem er grein eftir sr. Gunnar Benediktsson í Tímariti Máls og Menn- ingar - (26. árg. 1965. bls. 186-200). „Staðhæf- ing gegn staðhæfingu." Þar rekur hann við- brögð Einars Ólafs við kenningu Barða um Þorvarð Þórarinsson sem Njáluhöfund. Gunnar fylgir skoðun Barða, en gætir vel hófs í skrifúm sínum. Ritsmíðin vakti mikið umtal og athygli. Það svo að bók Barða „Höfundur Njálu“ nær seldist upp hjá forlaginu Menningarsjóði. Árið 1976 kom út í Los Angeles bókin „Njáls- saga“ á ensku eftir sænska prófessorinn Lars Lömmroth. Hún hefur ekki verið þýdd á ís- lensku. Þar setur hann fram þá skoðun að Svín- fellingar hafi staðið fyrir ritun sögunnar. En eftir lát Brands biskups Jónssonar varð aðal- foringi Svínfellinga bróðursonur hans Þorvarð- ur Þórarinsson. Hann lítur raunsæjum augum á aðstæður sem þarna voru til ritunar Njálu, og rennir styrkum stoðum undir höfundarverk Þorvarðs. En hann segir: „Augljóst er þvi eftir framansögðu, að ástæða er til að ætla að sam- kvæmt lífi og æviferli Þorvarðs Þórarinssonar, höfði hann fremur til anda og lífsstíls Njálu en aðrir samtímamenn hans.“ En Barði Guðmundsson var raunar ekki sá fyrsti sem hugði Þorvarð Þórarinsson höfund Njálssögu. Sá hét Skúli Guðmundsson bóndi á Keldum á Rangárvöllum. Hann var fæddur á Keldum og ól þar allan sinn aldur. Þar hefur andblær liðinna alda leikið um hann, enda skál- inn á Keldum elsta hús á Islandi. Áhrif sögunn- ar hafa verið þar sterk og hugarsýn hans mátt teljast til skyggnigáfu. Hann taldi að Þorvarður Þórarinsson sem átti Sólveigu dóttur Hálfdáns og Steinvarar á Keldum væri mjög líklegur höf- undur Njálssögu. Grein sína endar hann svo: „Hér hafa verið góðir kraftar saman komnir ásamt hinum fyrri Oddaverjum til mótunar Njálu allt að endalokum hennar.“ En þrátt fyrir ágæti fyrmefndra fræðimanna var þó sýn þeirra takmörkum háð. Barði benti fyrstur á að sagán væri pólitískt innlegg í valda- baráttu samtímans. En síðar kom fram nýstár- legt innlegg til þessara mála í fyrirlestri sem Sigurður Nordal flutti og síðar birt í Skími 1946, - Auður og elda, - þar segir hann: „Sannleikur- inn er sá, að Islendingar fengu snemma ríkuleg- an arf af erlendri menntun og hún var beinlínis og óbeinlínis nauðsynlegt skilyrði íslenskra fom- bókmennta samhliða þjóðlega arfinum. - En þjóðlegar bókmenntir ná ekki fullum þroska á Islandi fyrr en þær era í hættu staddar. Sagna- ritun Islendinga rís alveg greinilega hæst í ritum Snorra í öndverðu viðnámi og í Njálu í lok þess. Höfundur Njálu er hámenntuð ótenya, eitt af mestu og andiíkustu skáldum sem uppi hafa verið." Hér er, að áliti S.N. sagnaritunin viðnám gegn erlendu valdi bæði á veraldlegum og and- legum vettvangi. Bókarhöfundur ver löngu máli í vangaveltur um drauma og dulskynjanir varð- andi Njálssögu. Það hafði undirritaður einnig gert að nokkm í bók sinni „Sköpun Njálssögu". Er þar fyrst að nefna Njáludraum Hermanns Jónassonar á Þingeyrum. Enda þótt draumurinn beri með sér mark sagnfestunnar, er hann þó stórmerkilegur, með sterkum raunveruleikablæ, málið kjamyrt, og stíllinn alveg að hætti fom- sagna. Nú em engar skýringar tiltækar á hvem- ig slíkt mátti verða. Vísindin em enn óralangt frá því að skilgreina eðli draumlífs og drauma. Einn er þar þó íslenskur vísindamaður undan- skilinn, dr. Helgi Pjeturss. Æskilegt væri og verðugt verkefni fyrir fylgjendur stefnu hans, að glíma við útlistun og merkingu Njáludraumsins sem er einstakur og stórbrotinn eins og Njálu hæfir. Umfjöllun í bókinni um drauminn eykur gildi hennar að miklum mun. En þegar höfundur eyðir um 20 blaðsíðum í útlistun á spíritisma sem ekki verð- ur séð að neitt erindi ætti þar inn, horfir málið öðmvísi við. Saga spíritismans hefði átt að rekj- ast á öðmm vettvangi. Kaflinn um Bergþórs- sögu beinlínis blettur á bókinni. Það er óvirðing við lesendur að bera það á borð að slíkur spírit- ismi, sem þarna kemur fram sé af sömu rót og draumur Hermanns Jónassonar. Þetta bókar- skrípi vakti hneykslun þegar út kom, þótti lítils- virðing við Njálu og verðskulda ekkert nema þögnina. Höfundur tekur með í bók sína annan draum um Njálu sem alþýðumann einn Sigurð J. Árness dreymdi. Hans er einnig getið í bók minni „Sköpun Njálssögu". Hann dreymdi að hann var svífandi í lofti yfir staðnum í Skálholti. Þá sér hann rétta fram karlmannshönd og á lófann er letrað skýrum stöfum Séra-Leggur og ártalið 1196. Frá nafninu og upp til handleggs- ins lá strik og þar sá hann nafnið Rita-Bjöm og ártalið 1206. Þessa sýn skildi Sigurður eins og verið væri að birta sér hverjir hefðu ritað Njálu. En báðir vom þessir menn kirkjuprestar á dögum Páls biskups Jónssonar í Skáíholti. J.K.H. getur þess ekki þótt hann muni hafa vitað að Sigurður J. Árness hinn draumspaki sagði mér undirrituðum í einkaviðtali - að hann hefði séð Njálssyni í draumi en drauminn réð hann svo, að Páll biskup hefði fengið þá til þess að skrifa niður þau drög að sögunni sem hann hefði komið með frá Odda, munnmæli sem gengið hefðu um persónur og atburði Njáls- sögu. En þetta voru, að hans dómi aðeins fmm- drög án samhengis. Álit hans var, að Barði Guðmundsson hefði haft rétt fyrir sér, verið á réttri leið í höfundarleit sinni, þar sem Rita- Björn hefði verið fóstri Brands ábóta Jónsson- ar, síðar biskups, fóðurbróður Þorvarðs Þórar- inssonar. Og þessi frumdrög mundu hafa geng- ið frá Rita-Bimi til Brands Jónssonar og frá honum aftur til Þorvarðs Þórarinssonar, til rit- unar Njálu. Síðari hluti bókar er fyrir utan það svið sem umfang þessarar greinar nær til. Bókaútgáfa Halldórs Laxness og styrjöld hans við valdhafa og annan ritfærasta mann þjóðarinn, Jónas Jónsson frá Hriflu, varðar ekki Njálu framar öðmm fornritum. En framtíðarsýn höfundar er að reisa Njálu minnisvarða, hún muni öðlast nýtt líf með því að verða greypt í stein í vitund komandi kynslóða. En þrátt fyrir allt stendur hún óhögguð, öðlast eilíft líf e.t.v. í augum fárra fræðimanna. Einar Ól. Sveinsson sagði: „Þótt heimsveldi hrynji í rústir stendur Don Kíkóti.“ Sigurður Nordal sagði: „Fornri germanskri menningu er lokið með Njálu.“ Höfundur er fræðimaður, höfundur spænsk-fslenskrar orðabókar og fyrrverandi bóndi í Hvítórholti i Hruna- mannohreppi. LJÓDRÝNI „HVORKI MÉR TIL LOFS NÉ FRÆGÐAR" Um vísur og kvæði Páls Olafssonar Eg vildi’ eg fengi’ að vera strá og visna’ í skónum þínum, þvíléttast gengirðu’ eflaust á yfirsjónum mínum. Það er meistari ferskeytlunnar, Páll Ólafsson, sem hér fyllist innblæstri þegar hann sér hey í skóm konu sinnar. Páll Ólafsson fæddist árið 1927 á Dvergasteini við Seyðisfjörð þar sem faðir hans var fyrst prestur, en ólst upp á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði. Sjálfur var Páll ekki skólageng- inn en fékkst mest við búskap á ýmsum bæjum á Héraði, lengst á Hallfreðarstöðum í Hró- arstungu. Páll var tvíkvæntur en af Ijóðum hans er ljóst að seinni kona hans, Ragnhildur Bjöms- dóttir, var konan sem hann unni. Hún var nokkuð mikið yngi-i en Páll og til hennar orti hann ógrynni Ijóða. Páll var rómantískt skáld sem dáði Jónas Hallgrímsson, um leið og hann hélt uppi skálderfðum Bólu-Hjálmars og Sigurðar Breiðfjörð. Eins og önnur alþýðuskáld orti hann um konu sína og böm, veðrið, hesta sína, hunda og brennivín, hamingjuóskir til brúð- hjóna, samúðarkvæði til syrgjenda og ferskeytlur sem gátu orðið hvassar sem byssu- stingur. Páll hefur verið kallaður hinn óviðjafnanlegi meistari ferskeytlunnar, en eins og alþýðuskálda var aðalsmerki, voru aðrir hættir honum barnaleikur. Skáldið og blaðamaðurinn Jón Ólafsson gaf ljóðmæli Páls út í tveimur bindum árin 1899- 1900. Ljóðmælin era eins konar ævisaga Páls, því í gegnum þau má lesa hvað honum fannst um allt og alla, baráttu hans við brennivínið, sem hann lofar oftast óspart, nema í stöku kvæði eins og „Timburmönnum," þar sem hann lofar sínu eigin viti bót og betran. Heim er ég kominn og halla’ undir flatt, því hausinn er veikur og maginn; ég drakk mig svo fullan - ég segi það satt - ég sá hvorki veginn né daginn. En vitið kom aftur að morgni til mín og mælti, og stundi við þungan: „Bölvaður dóni’ ertu’ að drekka’ eins og svín! „Það drafaði’ í gær íþér tungan. „Og gerirðu þetta, þá getur þú séð „égget ekkert átt við þiglengur, „því sjónin og heymin og málið fer með „ogminnið úr vistinni gengur." Ég lofaði vitinu betrun og bót að bragða’ ekki vín þetta árið; en svo er ég hræddur, ef mai-gt gengur mót, að mig fari’ að langa í tárið. Þótt Páll hafi ort ógrynni Ijóða, var það ekki fyrr en á efri áram að honum datt í hug að kannski væri hægt að gefa verk hans út. Hann hafði ekki haldið ljóðum sínum til haga og þegar hann loks fór að rita upp og láta rita upp það sem hann hafði þá ort, var margt glat- að. Ekki varð Páll auðugur á kveðskap sínum, enda tilgangurinn allt annar, eins og hann segir sjálfur frá í kvæði sem hann nefnir „Kvæða-launin:“ Hvort égkveð um fannhvít fjöU, fögnuð minn eða’ harminn sára eða blómstrum búinn völl, bruna’ eða unun minna tára, kveð ég mér til hugar-hægðar en hvorki mér til lofs né frægðar. Og þegar Páll yrkir sér til hugarhægðar, lýsir hann fegurstu hughrifum; yrkir til konu sinnar og barna, og skrifar ódauðleg ljóð eins og „Sumarkveðju", þar sem hann syngur sól- inni lof: Ó blessuð vertu, sumarsól er sveipar gulli dag og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár; nú fellur heitur haddur þinn um hvíta jökulkinn. En svo koma dagar þar sem skáldið er ekki eins hrifið og þá heggur hann, svo undan svíður, eins og í ljóðinu „Kvenlýsing:" Hér er enginn eins og þú ógeðfelldur svanni; eg held þú sért undan kú og undur-heimskum manni. Og þegar prestssonurinn frétti af Darvinismanum, flögraði frá honum ferskeytla: Nú er ekki’ á verra von, villan um siggrefur; Kristur apa-kattar son kannski verið hefur. Þetta einkar skemmtilega skáld, sem er bæði rómantískt skáld og skopskáld og allt þar á milli, lést árið 1905. Ljóðmæli hans voru prentuð öðra sinni 1944, með inngangi eftir Gunn- ar Gunnarsson, frænda skáldsins og árið 1955 kom út bókin Ljóð, sem gefin var út af Páli Hermannssyni fyrrum þingmanni Austfirðinga. í þeirri bók getur Páll þess að enn sé til ógrynni af skammavísum og kvæðum sem sé „óprenthæft“ fyrst um sinn. Verður fróðlegt að berja það safn augum ef einhvern tímann þykir hæfa að gefa það út. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. ÁGÚST 1998 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.