Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 2
TÓNLIST JÓNS ÞÓRARINS- SONAR Á GEISLAPLÖTUM MENNINGARFELAGIÐ Is- landsson mun á næstunni senda frá sér safn frumsaminnar tón- listar Jóns Þórarinssonar á þremur geislaplötum. Safnið mun bera heitið Fuglinn í fjör- unni. Til útgáfunnar var stofnað vegna áttræðisafmælis Jóns í fyrrahaust. Síðan hefur verið unnið að upptökum og úrvinnslu efnisins. Þetta eru allt nýjar upp- tökur. Meðal söngvara er Auður Gunnarsdóttir, sópransöngkona, en þetta er í íyrsta skipti sem hún syngur inn á plötu. Hún syngur m.a. nokkur af sönglögum Jóns frá æskudögum, lög sem löngu er orðin eign alþjóðar, eins fjörunni og íslenskt vögguljóð á Jón Þórarinsson og Fuglinn í hörpu. Aðrir einsöngvarar eru Gunnar Guð- bjömsson, Bergþór Pálsson, Loftur Erlingsson og Kristinn Sigmundsson. Jónas Ingimund- arson píanóleikari leikur með þeim Auði, Gunnari og Lofti, en Bergþór syngur með Sinfóníu- hijómsveit fslands í lagaflokkn- um „Of love and death“, og Krist- inn syngur einsöng í Völuspá, sem _ hljómsveitin flytur ásamt Kór íslensku óperunnar. Meðal einleikara em Gísli Magnússon, píanó, Einar Jó- hannesson, klarínettu og Öm Magnússon, píanó, Kolbeinn Bjarnason, flautu, Guðrún Óskarsdóttir á sembal og Mar- teinn H. Friðriksson á orgel. Þá syngja fímm kórar: Hamrahlíðarkórinn, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, Kór ís- lensku óperunnar, kórstjóri Garðar Cortes, Dómkirkjukórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, Hljómeyki, sem Bernharður Wilkinsson stjórnar og Karlakórinn Fóst- bræður, stjórnandi Árni Harðarson. Sinfóníuhljómsveit íslands kemur fram í þremur verkum og stjórnar Petri Sakari tveimur þeirra en Bernharður Wilkinsson einu. Bæklingur fylgir plötunni og skrifar Jón Asgeirsson um Jón Þórarinsson og störf hans, auk söngtexta. Halldór Víkingsson stjórnar upptöku flestra verkanna og annaðist hljóðvinnslu og samsetningu. Bjarni Rúnar Bjamason, tón- meistari, stjórnaði upptökum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, og Sigurður Rúnar Jónsson, Stúdíó Stemmu, kom einnig við sögu. Skífan sér um dreifíngu. Búasaga æfð hjá Leikfélagi Reykjavíkur ÆFINGAR eru hafnar á Búa- sögn eftir Þór Rögnvaldsson, hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en leikritið hlaut fyrstu verðlaun í Ieikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur sem efnt var til í tilefni af hundrað ára afmæli félagsins. Verkið er byggt á grunni Kjalnesingasögu og 1 eikendur eru Þorsteinn Bachmann, Árni Pétur Guðjónsson, Bjöm Ingi Hilmarsson; Guðlaug E. Ólafs- dóttir, Halldór Gylfason, Pét- ur Einarsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Theodór Júlíusson, Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjóri og leikmyndahönn- uður er Eyvindur Erlendsson, Baldur Már Arngrímsson sér um hljóðsetningu, lýsingu ann- ast Kári Gíslason, búninga Una Collins og tónlistin er eft- ir Pétur Grétarsson. Búasaga verður framsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins milli jóla og nýárs. • NÝSJÁLENSKA óperusöngkonan Kiri Te Kanawa fær hörmulega útreið í nýrri ævisögu, sem Stephen D’Antal og Gary Jenkins hafa skrifað. „Eg ætla rétt að vona að þessi dapurlegi, sjálfsupptekni, gráðugi og heimski einstaklingur sem hér er lýst, sé ónákvæm lýsing á Kiri Te Kanawa," sagði Hugh Canning, aðalgagnrýnandi The Times um bókina og segir það líklega meira en mörg orð um hana. Ævisagan, sem ekki er skrifuð með samþykki söng- konunnar, kallast „Kiri: Her ungsung Melody“ (Kiri: Lagið sem aldrei var sung- ið) og kemur út hjá HarperCollins-útgáf- unni. Þar er dregin upp afar neikvæð mynd af söngkonunni sem hefur heillað svo marga með rödd sinni. Samkvæmt lýsingu höfundanna er Te Kanawa gersamlega sneydd persónutöfrum. Segja þeir hana m.a. hafa komið því til leiðar að ung sópransöngkona var rekin frá Metropolit- an-óperunni, hún sé snobbuð og full hefnd- arhugs. • AFAR fágætri bók eftir stjörnufræðing- inn Kópemíkus, sem uppi var á 16. öld, var fyrir skemmstu stolið af bókasafni í Kraká í Póllandi. Gekk maður, sem kvaðst vera prófessor, inn á lestrarsal pólsku vísinda- akademíunnar og tók bókina. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem stolið er eintaki af „De Revolutionibus“, sem Kóperníkus skrifaði árið 1543 en í henni setti hann fram þá kenningu sína að jörðin færi umhverfis sólu. Aðeins tólf eintök eru til af bókinni. • STJÓRNANDI óperunnar í Vancouver í Kanada, Robert Hallam, var rekinn fyrir skemmstu en mikill fjárhagsvandi steðjar nú að óperuhúsinu. Talsverð óánægja hefur verið með störf Hallams en hann var látinn taka pokann sinn er einn helsti velunnari óperunnar, milljónamæringurinn Martha Lou Henley, afturkallaði fjárstuðning sinn vegna óánægju með Hallam, sem hún sak- aði um að vinna ekki að heill og framtíð óp- erunnar. í stjórnartíð hans hefur fjöldi undirmanna sagt upp vegna óánægju með starfsaðferðir hans. Við starfi Hallams tek- ur David Agler. • NEW York ballettinn hélt fyrir skemmstu upp á hálfrar aldar afmæli sitt með stórsýningu í Lincoln Center. Á dag- skránni voru sömu verk og fyrir fimmtíu árum, „Concerto Barocco", „Orfeus“ og „Sinfónía í C“, öll eftir stofnanda balletts- ins, George Balanchine. Hann stjórnaði ballettinum allt þar til hann lést árið 1983 og tókst á undraskjótum tíma að skapa einn virtasta dansflokk heims. Núverandi stjórnandi ballettsins er Daninn Peter Martins. • EKKI fengust nema 529.500 sterl- ingspund, um 62 milljónir ísl. kr., fyrir Stradivarius-fiðlu á uppboði nýlega hjá Christie’s í London. Þykir þetta ekki hátt verð fyrir fiðlu eftir fiðlusmiðinn Antonio Stradivari (1670-1730) en hann gerði um 1.000 hljóðfæri. Þar af eru um 450-500 enn til og fyrir hálfu ári seldist Stradivarius- fiðla á 947.600 pund, um 110 milljónir ísl. • BRESKUR dómstóll hefur úrskurðað að ekki sé nægt tilefni fyrir 'bandarísku óperu- söngkonuna Jessye Norman að höfða mál á hendur breska tónlistartímaritinu Classic CD. í annars afar jákvæðri grein um söng- konuna, sem birtist árið 1994, er sögð sú saga af Norman að hún hafi setið föst í snúningsdyrum í tónleikahöll nokkurri en söngkonan er vel í holdum. Er starfsmaður hússins lagði til að hún sneri sér á hlið svo hægt væri að losa hana, á Nonnan að hafa svarað: „Hunang, ég hef ekki engar hliðar" (Honey, I ain’t got no sideways). Þessum skrifum reiddist söngkonan mjög. Kvaðst hún aldrei hafa látið þessi orð falla og sagði söguna til þess eins að draga dár að litar- hætti sínum. Það féllst breski dómstóllinn ekki á. •FRANSKI listamaðurinn Pierre Pin- ocelli hefur verið sektaður um 300.000 franka, 3,6 milljónir ísl. kr., fyrir að hafa skemmt þvagskál úr postulíni eftir landa sinn Marcel Duschamp, sem var áberandi í listalífinu í upphafi aldarinnar. Pinocelli var handtekinn er hann tók upp á því á listsýn- ingu í Nimes að kasta þvagi í skálina og slá hana með hamri. Pinocelli, sem er 69 ára, sagði að hann hefði með þessu viljað „færa skálina aftur að upprunalegu gildi sínu og koma í veg fyrir að listin færi í hundana". • ÆSKUHEIMILI írska rithöfundarins James Joyce hefur verið rifið, ættingjum hans og fjölmörgum aðdáendum til sárrar raunar, en þeir höfðu barist árum saman fyrir því að húsið fengi að standa. Fram kemur í The Irish Times að þrátt fyrir að fjölskylda Joyce hafi staðið í sí- felldum flutningum og búið á sautján stöð- um í Dyflinni hafi skáldið talið húsið við Millbourne-stræti afar mikilvægt. Kemur það fyrir í nokkrum verka Joyce, t.d. „Mynd af listamanninum á unga aldri“. Eigandi lóðarinnar sem húsið stóð á hef- ur borið því við að það hafi verið í svo mik- illi niðurníðslu að til einhverra ráða hafi orðið að grípa. Kvaðst hann ekki hafa vitað að það hefði verið æskuheimili Joyce. Tals- menn borgarskipulags þvertaka hins vegar fyrir að leyfi hafi verið gefið til að rífa hús- ið, heldur einungis til að breyta því.kr. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfírlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar. Fáikahúsið, Hafnarstræti 1 Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta. Gallerí Bflar & list Hildur Waltersdóttir. Til 10. des. Gallerí Borg Pétur Gautur. Til 6. des. Gallerí Horn Lára Halldórsdóttir. Til 2. des. Gallerí Stöðlakot Magnús Þorgrímsson, leirker. Til 13. des. Hafnarborg Urval verka Sigurjóns Ólafssonar. Til 23. des. Hallgrímskirkja Benedikt Gunnarsson. Til 1. des. Myndir af Þorláki helga eftir Kristján Davíðs- son, Helga Þorgils Friðjónsson, Kristínu Gunn- laugsdóttur, Jón Axel Björnsson, Pál Guðmunds- son og Gunnar Örn Gunnarsson. Ingólfsstræti 8 Guðmunda Andrésdóttir. Til 29. nóv. Kjarvalsstaðir Austursalur: „Framsýning: Foroysk nútíðarlist“. Vestursalur: Nýjar kynslóðir í noiTænum arki- tektúr. Miðsalur: Myndlist og tónlist: Halldór Ás- geirsson og Snorri Sigfús Birgisson. Til 20. des. Listasafn ASÍ Ásmundarsalur: Anna Þóra Karlsdóttir. Gryfjan: Sigríður Ágústsdóttir. Arinstofa: Krístinn Pét- ursson. Til 6. des. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn Sæmundur Valdimarsson. Til 13. des. Listasafn íslands 80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan. Listasafn Siguijóns Ólafssonar Sigurjón Ólafsson _ Ævi og list. Til 1. des. Listaskálinn í Hveragerði Haustsýning. Til 13. des. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Sigrún Jónsdóttir. Þjóðbúningar. Til 9. des. Menningarmiðstöðin Gerðubergi Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 31. des. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Þóroddur Bjarnason. Til 20. des. Norræna húsið, Hringbraut Herdís Tómasdóttir. Til 29. nóv. Anddyri: Ljósmyndir Ujuukulooqs. Til 1. des. Nýlistasafnið Þóroddur Bjarnson, Lilja Björk Egilsdóttir, Að- alsteinn Stefánsdóttir, Hjörtur Hjartarson og Pétur Guðmundsson. Til 29. nóvember. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suð- urgötu Handritasýning. Þriðj., mið., fím. 14-16. Til 14. maí. SPRON, Mjódd Jón Axel. Til 19. feb. TONLIST Laugardagur Hallgrímskirkja: Voces Thules, þættir úr Þor- lákstíðum. Kl. 18. Bústaðakirkja: Gospelsöngkonan Etta Cameron. Kl. 20.30. Sunnudagur Hafnaríj'arðarkirkja: Kór Hafnarfjarðarkirkju ásamt Signýju Sæmundsdóttur, Alina Dubik, Garðari Cortes og Lofti Erlingssyni. Kl. 16. Langholtskirkja: Norðurljós. William Dongois, cornetto og Carsten Lohff, sembal. Kl. 17. Hallgrímskirkja: Kvennakór Reykjavíkur. Kl. 17. Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur, Ragnhildur Pét- ursdóttir og Junah Chung. Kl. 20. Mánudagur Digraneskirkja: Lög eftir I’orkci Sigurbjöms- son. Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurbjörn Bernharðsson. Kl. 20.30. Þriðjudagur Hallgrímskirkja: Kvennakór Reykjavíkur. Kl. 20. Miðvikudagur Norræna húsið: Háskólatónleikar. Ashildur Haraldsdóttir, flauta, og Iwona Jagla, pfanó. Kl. 12.30. Fimml udagur Háskðlabíó: SÍ. Einleikarar: Unnur Sveinbjarn- ardóttir og Einar Jóhannesson. Stjórnandi: Stephen Mosko. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Abel Snork býr einn, sun. 29. nóv. Fös. 4. des. Maður í mislitum sokkum, lau. 28., sun. 29. nóv. Fim. 3., fös. 4. des. Solveig, lau. 28. nóv. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 29. nóv. Tveir tvöfaldir, fím. 3., fös. 4. des. Gamansami harmleikurinn, lau. 28. nóv. Borgarleikhúsið Grease, lau. 28. nóv. Mávahlátur, sun. 29. nóv. Ofanljós, sun. 29. nóv. Leiklestur sígildra ljóð- leika: Ofjarlinn, mið. kl. 20. Iðnó Rommí, fös. 4. des. Þjónn í súpunni, lau. 28. nóv. Islenska óperan Ávaxtakarfan, lau. 28., sun. 29. nóv. Hellisbúinn lau. 28., sun. 29. nóv. Fim. 3. des. Loftkastalinn Listaverkið, lau. 28. nóv. Ilafnarfjarðarleikhúsið Við feðgarnir, lau. 28. nóv. Fös. 4. des. Kaffileikhúsið Svikamylla, lau. 28. nóv. Skemmtihúsið, Laufásvegi 22 Ferðir Guðríðar, sun. 29. nóv. Nemendaleikhúsið, Lindarbæ Anton Tsjekhov, sun. 29. nóv. Mið. 2. des. Leikfélag Kópavogs Betri er snurða í þræði en þjófur í húsi, lau. 28. nóv. Leikbrúðuland Fríkirkjuvegi 11 Jólasveinar einn og átta, sun. 28. nóv. Mögulcikhúsið við Illcnim Snuðra og tuðra, lau. 28. nóv. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.