Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 5
HVITÁRVELLIR í Borgarfirði. Steinhúsið var íbúðarhús barónsins.
BARÓNSFJÓSIÐ í Reykjavík, fyrsta steinsteypta húsið sem byggt var í Reykjavík.
BÖÐVARSHÚS á Akranesi. Baróninn vildi fá Böðvar Þorvaldsson kaupmann með sér í stórút-
gerð, en svo fór að Böðvar hafnaði því.
Englandi hitti hann mann sem kveikti í hon-
um kjarkinn á ný. Maðurinn, sem reyndar
mun hafa verið Einar Benediktsson skáld,
sagði honum frá eyju norður í höfum þar sem
ónotuð væru gjörsamlega auðæfi lands og
sjávar. Þá rifjaðist upp íyrir baróninum mynd
af þessu landi, sem hann hafði augum litið
mörgum árum fyrr, er hann sigldi norður í
höf að sumarlagi á skemmtiferðaskipi. Þarna
var ónotað tækifæri til að endurheimta glat-
aða fjármuni.
Er ekki að orðlengja það frekar að ný
áform vöknuðu. Fjölskylda hans kom til
hjálpar og sendi honum mikla peninga. Hélt
hann síðan til íslands og vakti strax athygli
fyrir glæsimennsku og höfðinglegt yfir-
bragð.
Leið okkar liggur aftur að Hvítárvöllum og
málum barónsins þar. Þrátt fyrir góðan að-
búnað á staðnum kom gamla þunglyndið og
eirðarleysið yfir hann þegar haustið gekk í
garð. Hann dvaldi langtímum einn í stofu
sinni, en þess á milli ræddi hann helst við Ric-
hard Lechner frænda sinn. Það var helst að
Richard gæti eitthvað létt honum í skapi og
virtist hann alltaf hressari eftir samræður við
hann.
Þegar skammt var liðið á haustið ákvað
hann að fara til Reykjavíkur. Voru hestar
sóttir og búnir til ferðar. Haldið var sem leið
lá út með Hafnarfjalli yfir ósana milli Lækjar-
ness og Arkarlækjarness, síðan fjörurnar til
Akraness. Þaðan var leigður bátur til Reykja-
víkur. Á þennan hátt ferðaðist baróninn
fyrsta árið alloft til Reykjavíkur og lét þá
senda sér hesta á Akranes, þegar heim var
haldið.
Þótt undarlegt kunni að virðast með mann
sem kominn var úr svo gjörólíku umhverfi
virtist baróninn vel að sér í málefnum land-
búnaðarins. Kom þar til fjölþætt menntun
hans og eðlisgreind. Hann hafði kynnt sér
vandlega það helsta sem varðaði íslenskan
landbúnað og sett sig allvel inn í aðstæður.
Hins vegar voru hugmyndir hans sjálfs tölu-
vert langt frá raunveruleikanum.
Ein þeirra var stofnun mjólkurbús í
Reykjavík sem fyrr var nefnt. Hann lét ekki
sitja við orðin ein og hófst handa um bygg-
ingu á 40 kúa fjósi. Fékk það nafn af honum
og var í daglegu tali nefnt Barónsfjósið og
stígurinn meðfram því Barónsstígur.
Þegar fjósið var fullbyggt mun hafa verið
komið tómahljóð í budduna og engir peningar
til að kaupa kýrnar. Seldi hann þá allt sauðféð
á Hvítárvöllum og gerði út menn til þess að
kaupa kýr fyrir andvirðið. Var sá leiðangur
gerður upp í Mosfellssveit og austur í Árnes-
sýslu. Gekk á ýmsu, því að kýr voru ekki á
lausu. Loks tókst þó að skrapa saman 20 kýr.
Reyndust þær illa og voru margar hálfgerðar
„stritlur".
Hugmynd barónsins var að selja mjólkina í
Reykjavík á veturna og hafa kýrnar þar, en á
sumrin ætlaði hann að hafa kýrnar á Hvítár-
völlum og vinna smjör, skyr og osta úr mjólk-
inni. Heyið ætlaði hann að flytja sjóleiðis frá
Hvítár'völlum til Reykjavíkur. Til þeirra flutn-
inga keypti hann lítinn gufubát sem hann
nefndi „Hvítá“, einnig flutningapramma sem
Hvítáin átti að draga til Reykjavíkur og flytja
heyið í barónsfjósið í Reykjavík.
En þessar framkvæmdir komu við pyngj-
una. Fjósið kostaði fullbúið 16-20 þúsund
krónur. Gufubáturinn og pramminn 15 þús-
und krónur. Það er því augljóst að stofnkostn-
aður var gífurlegur. En annað verra var í að-
sigi. Dæmið gekk ekki upp. Mjólkurverð í
Reykjavík var þá 15 aurar á lítra. Kýrnar
mjólkuðu lítið og heyöflunin og flutningarnir
frá Hvítárvöllum nægðu engan veginn fyrir
kúabúið. Þess vegna þurfti að kaupa hey í ná-
grenni Reykjavíkur.
Eins og sést af framansögðu gekk á ýmsu
með kúabúskapinn og mjólkursöluna í
Reykjavík. Flutti hann því kýrnar að Hvítár-
völlum. Nú ætlaði baróninn að setja upp
rjómabú þar. Um þessar mundir var mikil
umræða um nauðsyn þess að taka upp vöru-
vöndun á mjólkurafurðum. Smjör hafði lengi
verið útflutningsvara, en mikið skorti á um
gæðin. Danskur mjólkurfræðingur, Hans
Grönfeldt, var þá nýkominn til landsins, og
hafði verið fenginn til þess að koma á fót
mjólkurskóla á Hvanneyri.
Baróninn hafði engan kotbúskap í huga á
þessu sviði fremur en öðrum. Hann keypti
bestu fáanlegar vélar og fór síðan að svipast
um eftir stúlku, sem gæti rekið rjómabú á
he'msmælikvarða, minna mátti það ekki vera
á þeim bænum.
Þegar hér var komið sögu hafði Helga
Björnsdóttir frá Svarfhóli í Stafholtstungum
nýlokið námi frá Hússtjórnarskólanum í
Reykjavík, sem Elín Briem starfrækti af
miklum myndarskap. Hún hafði séð baróninn
á fínu balli í Reykjavík. í viðtali við kvenna-
blaðið 19. júní segir hún um það:
„Ég komst á eitt geysifínt embættismanna-
ball á Hótei ísland, af því að ég bjó í svona
fínu húsi. Þar komu Hannes Hafstein og frú
Ragnheiður. Hún var í gulum silkikjól skósíð-
um, og aldrei í þau sjötíu ár sem síðan eru lið-
in hef ég séð eins glæsileg hjón. Töfrandi fal-
legur franskur barón lék á celló fyrir dansi.
Það hljóðfæri hafði ekki þekkst hér fyrr.“
(Tilvitnun lýkur)
Helga Björnsdóttir átti eftir að kynnast
betur þessum „töfrandi fallega barón“ . Hún
var þá orðin bústýra hjá Jóhanni bróður sín-
um í Bakkakoti (sem síðar varð Hvítárbakki
og er næstnæsti bær við Hvítárvelli). Hún
varð undrandi einn dag í janúar 1901, þegar
Jóhann bróðir hennar kom heim og sagði:
„Heldurðu að þú viljir verða rjómabústýra?
Baróninn vill kosta þig á mjólkurskólann á
Hvanneyri, ef þú vilt síðan taka að þér mjólk-
urvinnslu hjá honum." - Og það varð að ráði.
Helga segir síðan frá því að hún hafi fengið
inni á heimavistinni hjá Hirti Snorrasyni
skólastjóra og konu hans Ragnheiði Torfa-
dóttur. Kennari var Hans Grönfeldt eins og
áður er getið. Helga heldur áfram:
„Hann var mikill sómamaður og ferðaoist
um til að leiðbeina bændum. Við lærðum að
mæla hitastig og fitumagn og allt mögulegt
nema skyrgerð, hana kunni ég heiman frá
Svarfhóli.
Enda þótt tónlistin skipaði svo verðugan
sess í lífi barónsins gegndi öðru máli um hið
veraldlega gengi. Öll önnur störf hans virtust
dæmd til að mistakast. Hann var því oft dap-
ur og niðurdreginn og leitaði til vina sinna um
stuðning. Var þá gott að ræða við frú Valgerði
og Einar Benediktsson, sem aldrei missti
kjarkinn þótt á móti blési um sinn og sá alltaf
ný tækifæri ef eitthvað mistókst.
Vinátta þeirra og samskipti voru mikil.
Dvaldi baróninn oft hjá þeim hjónum þegar
hann var í Reykjavík, enda þótt hann ætti
sjálfur ágætt hús að Laugavegi 90. Hann
bauð þeim að koma með Hvítánni heim að
Hvítárvöllum um sumarið.
Um þessa ferð má lesa í endurminningum
frú Valgerðar:
„Á fyrsta hjúskaparári okkar var okkur
boðið í heimsókn til barónsins á Hvítárvöllum,
og get ég þess hér vegna þess að upp úr þeirri
för varð til kvæðabálkur Einars Hauga-
eldur ... Baróninn sendi Hvítána eftir okkur
og sigldum við alla leið frá Reykjavík og heim
að túni hjá honum. Komum við upp í Borgar-
fjörð fyrir fótaferðatíma, sigldum inn fjörðinn
og upp eftir ánni í morgundýrð sumarsólar-
innar í kyrru og lognblíðu veðri.
Landbúnaðarhugmyndirnar höfðu allai-
mistekist. Nú skyldi reynt við útgerðina. Það
var vor í lofti árið 1901. Á Lambhúsasundi við
Akranes vaggaði forvitnilegt fley og speglað-
ist í lognkyrrum sjónum. Framan við verslun
Böðvars Þorvaldssonar stóð fólk og virti fyrir
sér farkostinn. Aðkomumaður spurði við-
stadda hvaða skip væri þar við festar. Heima-
menn upplýstu þann aðkomna og tjáðu hon-
um að það væri Hvítáin, sem hefði komið
nokkrum sinnum áður á Lambhúsasund. Bar-
óninn ætti erindi við Böðvar kaupmann. Eng-
inn vissi um erindi hans, en sumir töldu að
rætt væri um stórútgerð. Slíkt var ekki
óþekkt á Akranesi. Skömmu áður hafði Thor
Jensen tekið þátt í Vídalínsútgerðinni sem fór
á hausinn.
Menn skiptust á skoðunum og sýndist sitt
hverjum. Sumir töldu að baróninn myndi gera
stóra hluti ef hann fengi leyfi yfirvalda til þess
að veiða í landhelginni, öðrum þótti lítil von til
þess. Fram til þessa hefði allt misheppnast
sem baróninn hefði komið nálægt.
Inni í stofu kaupmannsins sátu þeir á tali
Böðvar og baróninn. Hann lagði fast að
Böðvari að leggja fé í fyrirhugaða stórútgerð
sem hann hafði á prjónunum. Togararnir áttu
að vera 16-20 talsins. Gróðinn var borðleggj-
andi. Þótti honum undarlegt hve Böðvar var
fastheldinn á fjáiTnuni sína og ófús að leggja
peninga í þetta glæsilega fyrirtæki. Tjáði
hann Böðvari að þetta yrði í síðasta sinn sem
hann heimsækti hann þessara erinda. Útgerð-
in yrði þá rekin án hans og þyrfti hann ekki
að vænta viðskipta við hana.
Lauk þannig fundi þeirra að baróninn
kvaddi, án þess að fá svar frá Böðvari. Var
hann fluttur um borð í „Hvítána“, sem hélt
rakleiðis til Reykjavíkur.
Skömmu síðar birti baróninn langa grein í
ísafold um togaraútgerðina.
Guðlaugur Guðmundsson alþingismaður
bar fram frumvarp á alþingi um þessar veiðar
hinnar nýju útgerðar í landhelgi. Eftir langar
umræður í þinginu var frumvarpið fellt með
jöfnum atkvæðum 10:10. Það bendir til þess
að þrátt fyrir allt hafi margir trúað á barón-
inn og fífldjarfar hugmyndir hans.
Um þessar mundir dvaldi baróninn í
London. Þegar hann fór utan taldi hann ör-
uggt að frumvarp Guðlaugs Guðmundssonar
yrði samþykkt. Var hann önnum kafinn að
reyna að sannfæra þarlenda fjármálamenn um
hinn auðfengna gróða af togaraútgerð við Is-
landsstrendur. Þrátt fyrir mikinn sannfæring-
arkraft virðist honum hafa orðið lítið ágengt.
Hann var staddur á hótelinu í London að
kvöldi dags þegar hann fékk fréttimar frá ís-
landi um afgreiðslu frumvarpsins. Honum var
mjög brugðið, en reyndi að halda ró sinni í
annarra augsýn. Dvaldi hann enn um skeið í
hótelinu og hugsaði sitt ráð. Virtist honum
fokið í flest skjól. Hann var peningalaus og
ekkert virtist framundan annað en skulda-
fangelsi.
Loks var svo komið að morgun einn pantaði
hann vagn að hótelinu. Kvaðst hann ætla í
stutta ferð til Parísar og Vínarborgar. Lét
hann aka sér á járnbrautarstöðina og kom sér
fyrir í einkaklefa í fyrsta farrýmisvagni.
Lestin hélt af stað frá brautarstöðinni sam-
kvæmt áætlun. Um miðjan dag töldu hjón í
næsta klefa sig hafa heyrt skothvell. Hringdu
þau á lestarþjón og sögðu frá því sem þau
höfðu heyrt.
Strax var reynt að opna klefann, en hurðin
var læst. Var þá brugðið á það ráð að
sprengja upp hurðina. Blasti við hroðaleg
sjón. Baróninn var einn í klefanum, látinn.
Hann hafði skotið sig með skammbyssu og
látist samstundis.
Enda þótt örlög hins franska gests hafi orð-
ið svo hörmuleg sem raun varð á, þá varð
koma hans hingað til lands mikil hvatning til
dáða fyrir þá sem honum kynntust. Það var
ekki aðeins að stórhugur hans í íslenskum at-
vinnuvegum hvetti fleiri til dáða, heldur jók
hann einnig áhuga fólks á tónlist, sem hann
unni sjálfur svo mjög. Þá má einnig nefna
blóma- og trjárækt hans sem varð öðrum
hvatning til að fegra garða sína og umhverfi
húsa.
Þessi stórhuga listamaður og brautryðjandi
bar ekki gæfu til að njóta sjálfur uppskeru af
hugmyndum sínum, en fullvíst má telja að
koma hans hingað hafi orðið öðrum hvatning
og rutt brautina til framfara.
Heimildir:
Árni Óla, Lesbók Morgunblaðsins 5. janúar 1936.
Tómas Guðmundsson: Undir hauststjörnum.
Sigurður Þórólfsson: Gamlar minningar 1925.
Ólafur B. Björnsson: Saga Akraness 11957.
Helga Bjömsdóttir: Kvennablaðið 19. júní.
Sagnir og munnmæU í Borgarfirði.
Höfundurinn er bókaútgefandi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998 5