Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Side 10
+ ÁRATUGURINN 1901-1910 - SÍPARI HtUTI EFTIR ÁRNA ARNARSON Heimastjórn og íslenskur ráðherra 1904 markaði stærstu tímamót áratugarins, en harkan í stjórnmálun- um var vægÓarlaus, ekki síst eftir að Björn Jónsson tók við ráðherradómi. Gífuryrði voru ekki spöruð og í íyrirsögn í Reykjavíkinni var hann kallaður „vitfirringur á ráðherrastóli". IUPPHAFI aldarinnar tíðkaðist það enn að kjósa til þings á almennum fundi og urðu menn þannig að opinbera fyrir öll- um viðstöddum stjórnmálaskoðanir sín- ar. Þórbergur Þórðarson segir á einum stað í ritum sínum frá kosningum í Austur-Skaftafellssýslu árið 1902, sem fóru fram á Flatey á Mýrum. Fyrir- komulagið var þannig að rúða var tekin úr stofuglugga og sat kjörstjómin inni en kjós- endur stóðu fyrir utan gluggann. Kjörstjóri kallaði út um gluggann nöfn kjósenda og spurði hvern þeir vildu kjósa. „Gilda stöðulögin fyrir ísland? Á íslands- ráðherra að bera upp frumvörpin í ríkisráði Dana? Hvað segja menn þá um kónginn? Þetta voru hinar pólitísku spurningar sem brunnu á þjóðinni og út af þessum málum var íslenska þjóðin í hemaðarástandi segir Þór- bergur Þórðarson í íslenskum aðli. Árið 1901 benti allt til þess að hin svonefnda Valtýska næði fram að ganga en þar var gert ráð fyrir að ísland fengi sérstakan ráðherra, búsettan í Kaupmannahöfn, sem bæri ábyrgð gagnvart Alþingi. Óleysanleg deilumál líkt og ríkisráðs- fleygurinn svonefndi yrðu lögð til hliðar svo menn gætu einbeitt sér að praktískum fram- faramálum í landinu. Harðskeyttustu þjóð- emissinnamir höfðu litið á það sem principat- riði að íslensk mál yrðu ekki borin upp í ríkis- ráði Dana því slíkt væri bein viðurkenning á því að ísland væri hluti Danmerkur. Hófsam- ir stjórnmálamenn vom almennt sammála um að leggja þetta deilumál til hliðar enda væri ríkisráðið aðeins vettvangur þar sem konung- ur staðfesti formlega lög og þar færi engin pólitísk umræða fram. Andstæðingar Valtýsk- unnar, hinir svonefndu Heimastjómarmenn, vildu að ráðherrann sæti í Reykjavík þar sem hann væri nær vettvangi atburðanna og í betra sambandi við menn og málefni. Valtýsk- an sigraði á þinginu 1901 en um sama leyti urðu þau tíðindi í Danmörku að vinstri stjóm tók við völdum af hægri mönnum sem höfðu árum saman haldið völdum þrátt fyrir að vera í minnihluta á þjóðþinginu í skjóli ákvæða í dönsku stjórnarskránni sem gáfu stjórninni YFIRSTÉTTARKONUR um aldamótin. Fremst er Valgerður Zcéga, kona Einars skálds Benediktssonar, Hendrikka Ziemsen t.v. og Kristín Bernhöft. Munurinn á klæðnaði yfir- stéttarfólks og alþýðu var svo mikill á þess- um tíma að það sást jafnvef á löngu færi. rúma heimild til þess að gefa út bráðabirgða- lög. íslendingar fögnuðu þessum breytingum enda vitað að vinstrimenn væru hlynntari heimastjórn íslendinga en fyrri leiðtogar. Hannes Hafstein ráðherra Nú þóttust andstæðingar Valtýskunnar vita að meiri tilslakanna væri von í Dan- mörku. Gerðu nú báðir aðilar út menn til Hafnar til þess að tala máli sínu og fór Hann- es Hafstein af hálfu Heimastjórnarmanna. Niðurstaðan vai'ð sú að stjórnin féllst á að leggja fram nýtt frumvarp þar sem gert var ráð fyrir ráðherra í Reykjavík. Danska stjórnin taldi að enginn varanlegur friður yrði um að ráðherrann sæti í Höfn. Stjómin lagði því fyrir þingið 1902 frumvarp um sérstakan ráðherra sem sæti í Reykjavík. Heimastjórn- armenn unnu stórsigur í kosningunum til þingsins, fengu 17 menn en Valtýingar 10. Valtýingar ákváðu nú að styðja frumvarpið og var það samþykkt. Þar sem hér var um stjórnarskrárbreytingum að ræða varð að kjósa aftur og leggja frumvarpið á ný fyrir þingið. Á þinginu 1903 var frumvarpið sam- þykkt með einu mótatkvæði. Ekki voru þó all- ir ánægðir með frumvarpið og stofnuðu rót- tækustu þjóðernissinnamir flokk sem þeir nefndu Landvamarflokkinn. Þeir voru fyrst og fremst andvígir því að ráðherra Islands sæti í ríkisráði Dana. Hannes Hafstein tók við ráðherradómi 1. febrúar 1904 og um leið var landshöfðingja- embættið lagt niður. Hið nýja stjórnarráð Is- lands starfaði í þremur deildum og var sér- stakur skrifstofustjóri yfir hverri: Kennslu- mála- og dómsmáladeild, Atvinnu- og sam- göngudeild, Fjármála- og endurskoðunar- deild. Hálft þrlðja hundrað bsenda í hópreið til Reykjavíkur Sumarið 1905 varð sá sérkennilegi atburð- ur að hundrað sunnlenskra bænda efndi til hópreiðar til Reykjavíkur. Fyrir nútíma- manninn er erfitt að átta sig á þvi hvers vegna menn tóku sig upp og gengu frá túnum í miðj- um slætti til þess eins að mótmæla sæsíma- lagningu til landsins. Það er erfitt að skýra þessa uppákomu öðru vísi en sem afleiðingu af einhvers konar uppsafnaðri pólitískri gremju, þar sem eitthvert tilefni er gripið til þess að fá gremjunni útrás. Nú var stjórnsýsl- an komin heim til íslands og íslendingar sjálfir ábyrgir í sínum málum. Þessi stað- reynd virðist hafa skerpt andstæður í íslensk- um stjómmálum sem urðu persónulegri og ill- skeyttari fyrir vikið. Sunnudaginn 1. ágúst komu hinir fyrstu bændur til Reykjavíkur og síðan bættust smám saman fleíri í hópinn allt fram á þriðju- dagsnóttina. Var þá talið að hálft þriðja hund- rað bænda væri komið til bæjarins. Skotið var á fundi og samþykkt ályktun í tveimur liðum. Sú fyrri, sem hlýtur að teljast aðaltilefni þess- arar einkennilegu uppákomu eru mótmæli gegn „þeim stjóraarfarslega voða, sem sjálfs- stjórn hinnar íslenzku þjóðar stendur af því, að forsætisráðherra Dana undirskrifi skipun- arbréf Islandsráðherrans." Menn virðast hafa staðið í þeirri meiningu að þetta þýddi að ráð- herra íslands yrði að segja af sér ef danska ráðuneytið færi frá. Eins og síðar kom í ljós var þetta fráleit ályktun enda íslenski ráð- herrann aðeins ábyrgur fyrir Alþingi en ekki ríkisþinginu danska. Það sýndi sig líka þegar VAKNING í listalífi: Leikfélag Reykjavíkur sýnir nýtt íslenzkt leikrit: Nýársnóttina KONUNGSKOMAN 1907 var stórviðburður. Hér sjást Friðrik VIII Danakonungur og Hannes Hafstein r efni hefur grjótið úr götunni verið tínt upp og lagt til h IO LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 28. NÓVEMBER 1998 H

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.