Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 20

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 20
SIGLT Á ÖLDUTOPPI Myndlistarsýning sem hverfist um Þorlák biskup helga, verndardýrling íslen< dinga, verður c )pnuð í Hallgrímskirkju í d lag kl. 18. Af l )ví tilefni mun Kanúkahópurinn Voces Th ules flytja (: >ætti úr Þorlákstíðum í kirk junni en forsprakki hans, Sverr- ir Guðjónsson, ótti einmitt hugmyndina að sýning- unni. ORRI PÁLL ORMARSSON kom að máli við Sverri en það er Listvinafélag Hallgríms- kir kju sem stendur að dagskránni. „Ó, PTJ hirðir íslands. Þú sem ert kennifaðir sannleikans, máttarstólpi stöðugleikans, ljómi hreinleikans, þú sem svalar sorgum og ert von þeirra sem öivænta, gættu vor í högum hins himneska föðurlands." Svo segir í Þorlákstíðum, latneskum tíða- söng með nótum, sem helgaður er Þorláki biskupi Þórhallssyni í Skálholti. Eru tíðir *■ þessar varðveittar á íslenskri skinnbók frá því um 1400. Og enn tileinka listamenn þjóðarinn- ar Þorláki verk sín, því í dag verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju sýning á verkum sex myndlistarmanna sem unnin eru út frá dýrlingnum. Þeir eru Kristján Davíðsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristín G. Gunn- laugsdóttir, Jón Axel Björnsson, Páll Guð- mundsson frá Húsafelli og Gunnar Öm Gunn- arsson. Hátíð hirðisins er gengin í garð. Hugmyndin að sýningunni er runnin undan rifjum Sverris Guðjónssonar söngvara sem flutti Þorlákstíðir í heild sinni, ásamt félögum sínum í Kanúkahópnum Voces Thules, á tón- leikum í Kristskirkju á Listahátíð í Reykjavík síðastliðið sumar. Var sá flutningur afrakstur fimm ára undirbúnings. „Það var fyrir um ári, þegar undirbúningur að flutningi Þorlákstíða í heild sinni stóð sem hæst, að ég fékk þá hugmynd að gaman gæti verið að koma að verkefninu frá fleiri sjónar- hornum," segir Sverrir. „Fannst mér strax heillandi að virkja krafta myndlistarmanna og sjá hvaða „söngur“ kæmi út úr því. Þegar hugmyndin var orðin skýrari í kollinum á mér kom ég svo að máli við nokkra af fremstu myndlistarmönnum þjóðarinnar og tóku þeir mér allir ákaflega vel. Eins viðraði ég hug- myndina við Listvinafélag Hallgrímskirkju sem sýndi þegar áhuga á að hýsa sýninguna." Myndlist og meðganga Tilefni sýningarinnar, eins og flutnings Þorlákstíða á Listahátíð, er að á þessu ári er þess minnst að 800 ár eru liðin frá því bein Þorláks voru tekin úr jörðu og sett í ^ helgiskrín í Skálholti. Sverrir lagði áherslu á að gefa myndlistarmönnunum góðan tíma enda líkir hann hugmyndavinnu þeirra við meðgöngu, hún taki níu mánuði - og stundum vel það. Myndlistarmennirnir sóttu allir tónleikana á Listahátíð. „Það var von okkar að tónleik- arnir myndu kveikja stemmningu og gefa myndlistarmönnunum staksteina til að feta sig eftir,“ segir Sverrir. Síðan fóru sexmenningamir „á flug“, eins og Sverrir kemst að orði, og verkin hafa verið að skila sér á síðustu dögum. Segir hann þau jafn ólík og þau eru mörg - og þó? „Það er einhver þráður sem tengir verkin. Trúlega yf- sér Þorlákur helgi fyrir því!“ Eina verkið sem ekki er unnið sérstaklega fyrir sýninguna er verk Kristjáns Davíðsson- ar. Það er frá „hausatímabili" listamannsins, eins og Sverrir tekur til orða. Morgunblaðið/Kristinn MYNDLISTARMENNIRNIR Páll Guðmundsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristín G. Gunn- laugsdóttir og Jón Axel Björnsson ásamt Sverri Guðjónssyni við Ijósprentun af fornu altaris- klæði sem getur að líta á sýningunni. BIRTINGIN eftir Helga Þorgils Friðjónsson (hluti verksins). — DÝRLINGURINN eftir Kristínu G. Gunnlaugsdóttur. Eins og við var að búast vinna listamenn- imir í margvíslega miðla. Kristján og Helgi Þorgils sýna olíumálverk, Gunnar Örn akrýlverk, Kristín sýnir verk unnið með egg- temperu á tré, sem er aðferð frá miðöldum, verk Jóns Axels er unnið með kolum og lakki á striga og Páll leggur höggmynd til sýning- arinnar. Þá verður á sýningunni ljósprentun af alt- arisklæði frá Hólum, saumað forn- íslenskum saumi, með myndum helgra íslenskra biskupa, þ.á m. Þorláks Þórhallssonar. Klæðið er eign Þjóðminjasafnsins. I tilefni sýningarinnar ákváðu Voces Thules að bjóða fólki að hlýða á kvöldtíðasönginn Vesper úr Þorlákstíðum í Hallgrímskirkju. Hefst söngurinn kl. 18 og varir í rúmar 30 mínútur. Verður sýning- in formlega opnuð í kjölfarið. Að- gangur er ókeypis. Auk Sverris eru í Voees Thules Eggert Pálsson, Guðlaugur Viktorsson, Sigurður Halldórsson, Einar Jóhannesson og Eiríkur Hreinn Halldórsson. Markmiðið með Þorlákstíða- verkefninu í heild sinni er, að sögn Sverris, öðrum þræði að vekja ís- lensku þjóðina til umhugsunar um hina trúar- og tónlistarlegu arfleifð sína sem honum þykir hún svolítið hafa vanrækt í seinni tíð. Hann er þó ekki frá því að einhver áhugi sé að vakna á ný, ef til vill þar sem kristnitökuafmælið sé í nánd. „Við slík tímamót fer fólk oftar en ekki að huga að rótum sínum - velta fyrir sér hvaðan það kemur. Von- andi á þetta eftir að skila okkur fram veginn!" Áhugi að aukast Sverrir segir áhuga almennings íyrir tónlist miðalda jafnframt hafa verið af skornum skammti þegar Voces Thules hellti sér út í Þor- lákstíðimar fyrir fimm árum. „Til að byrja með fannst okkur fólk hvorki þekkja haus né sporð á Þor- lákstíðum. Þetta hefur breyst. Nú finnum við bæði fyrir meiri áhuga á tíðunum og miðaldatónlist yfir- leitt.“ Og Sverrir sér svo sannarlega ekki eftir öllum tímanum sem hann hefur varið í Þorlákstíðir á liðnum árum. „Það er svo merkilegt að þegar farið er út í svona stórt verk- efni er eins og tíminn hætti að skipta máli. Það er virkilega góð til- finning í þjóðfélagi, þar sem fólk er undir stöðugri pressu - allt á að gerast í gær - og tíðindi dagsins í dag em úrelt á morgun. Ekki spillir það fyrir að þegar maður nær flæði í svona gregórískum söngvum er það eins og að sigla á öldutoppi!" Þótt stóram áfanga hafí verið náð með tónleikunum á Listahátíð og sýningunni nú er Þorlákstíða- verkefninu hvergi nærri lokið af hálfu Voces Thules. „Framundan er stór biti í vetur,“ segir Svemr, „hljóðritun Þorlákstíða í heild sinni í samvinnu við Ríkis- útvarpið." Ráðgert er að gefa verkið út á fjór- um geislaplötum. Og Voces Thules mun fara sér rólega við upptökurnar. „Okkur liggur ekkert á. Það hefur farið svo mikill tími í þetta nú þegar að það munar ekki um að bæta fáeinum mánuð- um við!“ 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998 Þorlákur helgi ÞORLÁKUR HELGI ÞORLÁKUR Þórhallsson helgi fæddist árið 1133. Hann nam þjá Eyjólfi Sæmundssyni í Odda og tók prestvígslu. Hann var við nám í Frakklandi og Englandi á árunum 1153-59, varð þá príor og síðan ábóti í Þykkvabæ frá 1168-75. Klængur biskup Þorsteinsson valdi Þorlák sem eftirmann sinn 1174 og varð hann Skálholtsbiskup árið 1178. Þorlákur átti í staðamálum gegn Jóni Loftssyni og öðrum höfðingjum 1178-79 en laut í lægra haldi. Hann var vinsæll með alþýðu og fór orð af flekklausu líferni hans. Helgi Þorláks var lögtekin á Alþingi 1198, fimm árum eftir andlát hans, og messudagar ákveðnir tveir á ári, 20. júlí og 23. desember, sem er dánardagur Þorláks. Kirkjur helgaðar honum voru reistar á Islandi, í Færeyjum og Þýskalandi og áheitafé streymdi að Skálholti frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Englandi og víðar að. Árið 1984 staðfesti páfi helgi Þorláks og viðurkenndi hann sem verndardýrling Islendinga. DAGSKRÁ LISTVINA- FÉLAGSINS SÝNINGIN og söngurinn í dag eru fyrsti liður- inn í vetrardagskrá Listvinafélags Hallgríms- kirkju. 11. desember næstkomandi verða Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju en gestur kórsins að þessu sinni verður Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari. Fluttar verða kirkjuaríur og rómantísk jólatónlist. Stjórnandi verður Hörður Áskelsson. Hinn 20. desember mun Arnar Jónsson leik- ari lesa Markúsarguðspjall í kirkjunni. Dag- skráin er í samvinnu við Hið íslenska biblíufé- lag. Miðnæturtónleikar Voces Thules fara fram 30. desember. Flutt verður fjölbreytt kórtónlist og gregorískir söngvar. A gamlársdag kl. 17. verður efnt til tónleika undir yfirskriftinni Hátíðarhljómar við áramót. Fram koma Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, sópransöngkona, Douglas A. Brotchie orgel- leikari og trompetleikararnir Ásgeir Stein- grímsson og Eiríkur Örn Pálsson. Flutt verða verk eftir Bach, Hándel og fleiri. Eftir áramót verða meðal annars á dagskrá Listvinafélagsins tónleikar Schola cantorum, tónleikar Mótettukórsins, tónleikar Margrétar Bóasdóttur söngkonu og Blásarakvintetts Reykjavíkur, orgel- og slagverkstónleikar Dou- glas Á. Brotchies og Steef van Oosterhouts og myndlistarsýningar Þorbjargar Höskuldsdótt- ur, Kristjáns Davíðssonar og Bjargar Þor- steinsdóttur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.