Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1999, Qupperneq 20
ARKITE KTÚ R
Sln TIL
FYRIR-
MYNDAR
Tímaritið THE ARCHITECTURAL REVIEW kynnir nýjg
og athyglisverða byggingarlist um víða veröld, en í
hverju blaði er tekið fyrir eitt hús, langoftast nýtt,
undir fyrirsögninni „SKELFILEGT". Þar er sitthvað
sem tímaritinu er ekki að skapi, til dæmis þegar stíl-
tegundum er ótæpilega blandað saman, eða þó að
smekkleysið þykir keyra úr hófi af einhverjum öðrum
óstæðum. Hér eru nokkur dæmi.
ÍBÚÐABLOKK í úthverfi Helsinki. Arkitekt: Reijo Jallinoja. Frá Norðurlöndum, segir tímaritið, vænt-
um við þess að komi eitthvað skynsamlegt og ekki hafa Finnar sízt verið þekktir fyrir afar hreinleg-
an arkitektúr, stundum svo nálgast meinlæti. Hér hafa menn aftur á móti sleppt fram af sér beizl-
inu og farið offari með tízkubólurnar. Ef til vill eru það viðbrögð gegn þeim stíl sem hef-
ur verið ríkjandi, en allt fer það úr böndunum.
ADLON HÓTEL, Berlín. Nú er verið að byggja
upp frá grunni nýja miðborg Berlínar og hafa
margar stórstjörnur meðal arkitekta verið til
kallaðar. Meðal þess sem þar hefur risið er
Adlon Hótel, nefnt eftir öðru sem þar var
fyrrum á sama stað, byggt 1907. í stað þess
^að teikna eitthvað í takt við tímann hafa arki-
tektar þessa nýja hótels, Patzschke, Klots
og félagar, farið í fótspor þeirra sem teikn-
uðu og byggðu hús fyrir síðustu aldamót.
Þetta er dýrt lúxushótel en í raun og veru
skyldara Hótel Borg í útliti en ýmsum nýjum
hótelbyggingum. Þannig byggja menn ekki í
nútímanum, segir blaðið og jafnframt: „Það
er spurning hversvegna þetta þarf að vera
svona til þess að höfða til hinna ríku?“
HIN FRÆGA „Rjómaterta" sem Mussolini lét byggja við Piazza di Venezia í Róm er eiginlega ekki hugsuð sem hús, heldur sem minnismerki
um Vittorio Emanuele II. Það er gamalkunnugt að einræðisherrar hafa íhaldssaman smekk og að þeir horfa meira til fortíðar en framtíðar þeg-
ar þeir láta byggja eitthvað stórfenglegt. Hitler hafði í huga slíkar byggingar í hinni nýju höfuðborg þúsundáraríkisins og Albert Speer hafði
teiknað eitthvað af þeim, en þær komust ekki lengra en á pappírinn. Mussolini lét hinsvegar byggja sína rjómatertu, sem alla tíð síðan hefur
verið talin sem illa gerður hlutur á þessum stað og engin undur að Arcitectural Review telji hana ekki til fyrirmyndar.
HÆSTIRÉTTUR Namibíu. í höfuðborginni Windhoek var nýlega lokið við nýtt hús yfir Hæstarétt landsins, en hvort húsið er
eftir innlenda arkitekta eða erlenda er ekki getið. Tímaritið, sem áður fór lofsamlegum orðum um Hæstaréttarhúsið við Arn-
arhól, taldi aftur á móti að Hæstaréttarhúsið í Namibíu hefði fátt til síns ágætis. Húsið væri klumpur sem helst minnti á það
sem Albert Speer teiknaði fyrir Hitler, og ekkert væri þar að finna sem tengdi húsið við hefðir menningu Namibíu.
„SJÓNRÆNT SLYS“ nefndi tímaritið þetta hús í bænum Aalen,
nærri Stuttgart í Þýzkalandi. Hér er tekið til viðmiðunar það sem
einkennir marga þýzka smábæi sem sprengjuregn síðari heims-
styrjaldarinnar jafnaði ekki út. Það eru hús úr bindingsverki og
múrsteini, sum nokkurra alda gömul og mynda oft hrtfandi og
sérstætt umhverfi. Hér er aftur á móti reynt að búa þennan stíl
til með nýjum byggingarefnum og aðferðum og útkoman verður
blanda af átthagastíl og „high Tech“, eða hátæknistíl.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 13. FEBRÚAR 1999