Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Qupperneq 6
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI
UÓÐ UM ÞIG
Þú ert tíminn
og skáldskapur skáldskaparins
flytur þér óviss tíðindi.
Tíminn er aðeins til í þér
og þú ert bergmál hans.
Þú endurvarpar tíma þínum
hvar sem þú ferð eða ferð ekki.
Skýin flytja boð þín
og hafíð speglar þau.
Jörðin og hafíð geyma þig
í draumum sínum
því ekkert hefur aldrei verið til.
Þú ert næmleiki hins sanna
og hins raunverulega
og sigrar þá blekkingu að þú sért ekkert
í heimi hnattrænna viðskipta
sem skipta þig engu máli.
Þú ert menningin draumarnir og vonirnar.
Allt er í þér og þú ert allt.
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
AÐ BERA ALDURINN
Ég átt hefði að geta þinn afmælisdag munað
Því ýmiskonar forsendur styðja það í senn,
en þetta er því líkast sem miggæti ekki grunað
að gömul yrðir þú eins og veiyulegir menn.
En um þá fornu staðreynd er engin þörf að skrifa,
þau öriögráða lífínu meðan jörðin snýst,
þeir hljóta að verða gamlir sem lofað er að lifa
svo ljóst og einfalt er það og hrakið verður síst.
Og lítt er þörf að kvarta þó árin færist yfír,
og ellimörkin verði þá fleiri í dag en gær
á meðan brjóstið hrærist ogígömlum glæðum lifír
og gaman þykir að því sem nýrra vex og grær.
Og margt er hægt að þola þó a ndstætt gangi yfír
og illt að verða samstíga fjöldanum í dag
á meðan glóðin forna frá æskuárum lifír
ogylur þeirra kennda sem þá glæddu bræðralag.
Og hér er eJdtí nauðsyn að rekja eða ræða
og rifja upp gamlar sögur um fyrri daga hátt
en enn við skulum njóta þess sem ísinn kann að bræða
og okkur hjálpar til þess að ná vid lífíð sátt.
En mælgin verður óþörf þegar mestu er frá að segja
þó margt sé gott að vita um fyrri spor og stig
og samkvæmt því er heilræði að hætta nú og þegja
með heillaósk vegna afmælis og þakkir fyrir mig.
Höfundurinn er fró Kirkjubóli í Önundarfirði. Hann segir að sér hafi láSst aS senda gamalli
vinkonu kveSju á stórafmæli, en sendi henni þessar hugleiSingar og þá í trausti þess aS þær hafi
eitthvert almennt gildi.
ERLENDAR BÆKUR
UPPLÝSINGIN
HUBERT DEBRZANIECKI
VANDAMÁL
Ulrich Im Hof: The Enlightenment. A Hi-
storical Introduction. Translated by Willi-
am E. Yuill. - The Making of Europe. Ed.
Jacques Le Goff. Blackwell 1997.
Oft er og var talað um að Ijósið kæmi
úr austri - „Ex oriente lux“ - en með
upphafi breytinganna á heimsmynd Evr-
ópubúa á síðari hluta 18. aldar og sem
rekja má til skynsemisstefnunnar hund-
rað árum áður, má vissulega segja „Ex
occidente lux“ - ljósið úr vestri. Newton,
Pope og síðan frönsku heimspekingarn-
ir hófu þau ljósfræði sem nefnast
„Lumiére - Aufklárung - Illuminismo -
Hluminisma...“ á frönsku, þýsku, ítölsku
og spænsku og svo enska hugtakið sem
er titill þessarar bókar.
Upphafíð að nánari útlistun inntaks
„upplýsingarinnar" eru skrif Voltaires,
Pergusons o.fl. um miðja 18. öld, um
sögu mannkynsins sem sögu framsóknar
og framvindu til meiri þekkingar og
betra mannlífs. Þetta var byrjun á sögu-
stefnu sem og sögulegum skilningi sem
var framhaldið af Wieland, Hume,
Herder, Lessing, Malby og Kant til
Condorcet, en sá síðast nefndi varð boð-
beri stefnu hinnar stöðugu framvindu og
framfara, sem markaði 19. öldina í
stjórnmálum og vísindahyggju.
Upplýsingin, skynsemisstefnan, var
ekki aðeins bundin beitingu „heilbrigðr-
ar skynsemi" í rannsóknum og viðhorf-
um heldur einnig skyldu ný og skyn-
vædd viðhorf marka löggjöfína, atvinnu-
rekstur og velferðarmál og forsenda
framkvæmdanna var upplýsing þjóð-
anna, uppfræðsla og skólar sem mörk-
uðust af skynsemishyggju og trú á getu
mannsins til að skapa sín eigin örlög.
Framfarir voru lykilorð upplýsingar-
innar, allt skyldi opið fyrir birtu nýrrar
heimsmyndar, höft og bönn kirkjunnar
skyldu afnumin, hin gamla heimsmynd
um fyrirfram ákveðna leið mannanna,
samkvæmt vilja Guðs almáttugs, til
lokanna, heimsendis og dómsins og allar
þær reglur sem syndugt mannkyn bar
að hlýða, „hlekkir trúarbragðanna", bar
að bijóta.
Ulrich Im Hof rekur upphaf upplýs-
ingarinnar og framkvæmd í byltingu
Amerikumanna gegn breska konung-
dæminu og frönsku stjórnarbyltingunni.
Undanfarinn voru kenningar frönsku
heimspekinganna. Hann rekur síðan
hvemig stefnan mótaðist og mótaði við-
horf hluta yfirstéttanna og þjóðhöfð-
ingja vítt um Evrópu, Friðriks mikla,
Jóseps II, Katrínar Rússadrottningar og
þjóðhöfðingja í Danmörku og Svíþjóð.
Með beitingu skynseminnar varð heim-
urinn baðaður Ijósi upplýsingarinnar,
sem varð öllum fær til stöðugra fram-
fara og bræðralags allra manna. Þessi
andi birtist skýrast á franska Stétta-
þinginu í samþykktum um afnám sér-
réttinda og yfirlýsingu um frelsi og
bræðralag allra manna, nóttina 4. ágúst
1789.
Hugmyndir upplýsingarinnar urðu
grundvöllur lýðræðis, upplýsts einveldis
og stjórnleysis og atburðarásin siðasta
áratug 18. aldar varð kveikjan að nýrri
atburðarás í Evrópu undir merkjum
skynsemi og framfara.
En „það er fleira til i heiminum en
heimspekingana dreymir um“ (Shake-
speare). Skynsemin Dægði ekki til þess
að skapa hinn fullkomna heim. Andsvar-
ið var rómantikin, sem bar í sér meðal
annars fræ alræðishyggjunnar undir
merkjum þjóðernishyggjunnar.
SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON
Pavel Bartoszek þýddi.
Ég fæddist sem vandamál
Mér fannst spínat vont
Mér fannst leiðinlegt í fótbolta
og að læra málfræði.
Eg fæddist sem vandamál
Mér fannst vont að drekka vodka
Ég elskaði hvorki land mitt
né það að tala um pólitík.
Erfilt
Erfitt er að skreyta með gulgrænu laufi,
hjarta numið úr eikarlíkkistu.
Ég var ferskvatnsþörungur og ilmandi burkni
Nú er ég þreyttur
og yfirbugaður af ástleysi
og því sem við létum steypa okkur í.
Ég er ekki hér, þótt ég héldi að ég hér vildi vera
Gleymdu ekki að himnaríki hefst ekki og endar
á fjórðu hæð í íbúð
með útsýni á almenningsgarð.
Ó, ef ég gæti aftur ilmað af trjákvoðu
og verið grænn sem burknar að sumri tíl.
Höfundurinn er pólskur heimspekingur sem búiS hefur á íslandi í hálft annaS ár. LjóSiS er úr nýrri
IjóSabók hans, Ljóð úl úr skápnum, en þau yrkir hann undir dulnefninu Hugo de Hugo. Afrakstur
bókarinnar rennur til Þríburafélagsins. ÞýSandinn, nemi í MR, er íslenskur þótt nafn hans bendi til
annars.
Ég fæddist sem vandamál
Mér fannst leiðinlegt í kirkju
Mér líkaði illa við presta
Og ég hataði að leggja fé á
söfnunarbakkann.
Eg fæddist sem vandamál
Svo ég varð að flýja...
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JÚLÍ 1999