Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1999, Page 2
ÍSLENSKUR KABARETT í LOFTKASTALANUM
SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
í KVÖLD verður frumsýnd í Loftkastalanum
sýningin S.O.S. Kabarett eftir þau Karl Agúst
Ulfsson, Sigurð Sigurjónsson og Astrósu
Gunnarsdóttur. Sigurður er jafnframt leik-
stjóri og Astrós danshöfundur, þó „...í svona
sýningu séu nú mörkin á milli leikstjórans og
danshöfundarins býsna óljós,“ segir Sigurður.
„Við Astrós höfum kokkað þessa köku í sam-
einingu og Karl Agúst var eins konar ritstjóri
handritsins ásamt því að semja allflesta söng-
textana.“ Sigurður bætir því við að allur hóp-
urinn sem að sýningunni standi eigi sinn þátt í
verkinu. „Þetta er samstarfsverkefni okkar
allra þrátt fyrir að verkaskiptingin sé sett nið-
ur á blað í upphafí. Upphaflegu hugmyndina
átti Jóhann Sigurðarson leikari og hún hefur
síðan þróast og mótast á marga vegu þar til
nú er komið að frumsýningu."
Listamennimir sem taka þátt í sýningunni
eru leikaramir, söngvaramir og dansaramir
Jóhann Sigurðarson, Pálmi Gestsson, Berg-
þór Pálsson, Kristjana Stefánsdóttir, Elín
Helga Sveinbjömsdóttir og Hrefna Hall-
grímsdóttir. „Sýningin er í bíómyndarlengd,
samsett úr einum -20 söng- og dansatriðum
með leiknu ívafi, tónlistin er úr ýmsum áttum,
léttklassík og dægurlög í anda Sinatra, rokk
og popp, allt eftir því hvað hentar stemming-
unni hverju sinni,“ segir Sigurður. ,Áhorfend-
ur mega gjaman taka undir og jafnvel dansa
ef löngunin grípur þá en enginn þarf samt að
óttast að vera dreginn óvænt upp á svið,“ seg-
ir Sigurður og bætir því við að þetta eigi fyrst
og fremst að vera létt og skemmtileg sumar-
sýning fyrir alla fjölskylduna.
S.O.S. Kabarett gerist um borð í skemmti-
ferðaskipi sem ferðast um öll heimsins höf og
kemur víða við. „Ýmislegt úr þjóðlífinu verður
okkur samt að yrkisefni og við munum fylgj-
ast vel með og jafnvel taka inn í sýninguna
það sem efst er á baugi hverju sinni. Hún get-
ur semsagt tekið nokkrum breytingum frá
einu kvöldi til annars. Þetta er samt ekki
revía þó mörkin á milli kabaretts og revíu séu
kannski ekki alveg ljós alltaf og við höfum
velt því talsvert fyrir okkur hvort þetta sé.
Niðurstaðan er S.O.S. Kabarett," segir Sig-
urður.
I hljómsveitinni eru engir aukvisar, þeir
Þorsteinn Gauti Sigurðsson á hljómborð, Kri-
stján Eldjám á gítar, Sigurður Flosason á
saxófón, Hávarður Tryggvason á bassa og
Ingólfur Sigurðsson á trommur. Leikmynd og
búninga gerir Sonný Þorbjömsdóttir og lýs-
ingu hannar Bjöm Helgason. Fmmsýningin
er í kvöld í Loftkastalanum og önnur sýning
verður föstudaginn 13. ágúst.
Morgunblaðið/Jim Smart
KAMMERTÓNLIST MILLI
HRAUNS OG JÖKLA
ÁRLEGIR kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri verða
haldnir um næstu helgi, 13.-15. ágúst. Listrænn stjómandi er
að vanda Edda Erlendsdóttir píanóleikari sem er prófessor við
Tónlistarskólann í Versölum. Hún hefur haldið einleikstónleika
um viða veröld en einnig leikið með öðmm, bæði Sinfóníuhljóm-
sveitum og kammersveitum.
Til liðs við sig hefur hún nú fengið sjö listamenn. Það eru Sól-
rún Bragadóttir sópran, Gerrit Schuil píanóleikari, Guðni
Franzson klarínettuleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Helga Þórarinsdóttir
víóluleikari og Luc Tooten sellóleikari sem kemur sérstaklega
frá Belgíu af þessu tilefni.
Efnisskráin verður fjölbreytt alla dagana og verður frönsk
tónlist áberandi. Fyrstu tónleikarair verða kl. 21 fóstudaginn
13. ágúst, þá verður fluttur Kvartett í Es dúr op 79 (k.380) fyrir
klarínett og strengi eftir W.A. Mozart, 5 Jónasarlög fyrir sópr-
an, píanó, fiðlu, klarinett og selló eftir Atla Heimi Sveinsson,
Elegie fyrir selló og píanó eftir G. Fauré, Fiancailles pour rire,
sex Ijóð fyrir sópran og píanó eftir F. Poulenc og loks ítalska
svítan iyrir fiðlu og píanó eftir I. Stravinski.
A laugardegi verða tónleikamir kl. 17 og þá verða flutt fimm
ljóð úr ljóðaflokknum Svartálfadansi fyrir sópran og píanó eftir
Jón Ásgeirsson, þrjú ljóð íyrir sópran og píanó eftir H. Duparc,
Sónata op. 167 fyrir klarínett og píanó eftir Saint Saens, Chan-
son perpétuelle op posth. 37 fyrir sópran, píanó og strengja-
kvartett eftir E. Chausson og svo Kvartett fyrir píanó og
strengi í c moll op. 15 eftir G. Fauré. Á lokatónleikunum á
sunnudeginum sem hefjast kl. 15 verða sex þýsk ljóð op. 103
fyrir sópran,klarínett og píanó eftir L. Spohr, Islensk sönglög í
útsetningu Atla Heimis Sveinssonar fyrir fiðlu og píanó og loks
Kvintett fyrir klarinett og strengi op. 115 eftir J. Brahms.
H-MOLL MESSA
BACHS Á TVENNUM
TÓNLEIKUM
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju,
einsöngvaramir Þóra Einarsdóttir,
sópran, Monica Groop, alt, Gunnar
Guðbjörnsson, tenór og Kristinn
Sigmundsson, bassi og Kammer-
sveit Hallgrímskirkju flytja Messu
í h-moll eftir Johann Sebastian
Bach á tvennum tónleikum í næstu
viku. Stjórnandi er Hörður Áskels-
son. Föstudaginn 13. ágúst hljómar
hún í Skálholtsdómkirkju kl. 20 og
sunnudaginn 15. ágúst í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík kl. 20.30.
í messunni túlkar Bach texta lat-
neskrar messu í margbrotnum stíl
og notar til þess margradda kór,
fjóra einsöngvara og stóra hljóm-
sveit. í þessum flutningi koma um
90 manns við sögu.
Kristinn Sigmundsson er einn af
kunnustu einsöngvurum íslend-
inga í dag og Þóra og Gunnar eru
framarlega í hópi ungra íslenskra
einsöngvara. Þau hafa bæði sungið
áður með Mótettukórnum. Monica
Groop er ein af þekktustu ein-
söngvuram Finnlands. Hún er talin
í hópi bestu mezzósópransöng-
kvenna heimsins í dag og er eftir-
sótt bæði sem ópera-, óratóríu-, og
ljóðasöngvari.
Groop hefur fengið mikið lof
gagnrýnenda fyrir túlkun sína á
barokktónlist en hún hefur þar
komið fram með mörgum af þekkt-
ustu stjórnendum barokktónlistar
s.s. Helmuth Rilling, Philippe Her-
reweghe og Christopher Hogwood.
Groop hefur einu sinni áður sungið
á íslandi, þegar hún flutti Jóla-
óratóríu Bachs með Mótettukórn-
um árið 1995.
Flutningurinn í Hallgrímskirkju
er liður í dagskrá Kirkjulistahátíð-
ar 1999 og markar jafnframt upp-
haf hátíðahalda Reykjavíkurpró-
fastsdæma í tilefni af 1000 ára
kristni á íslandi.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Yfirlitssýning á verkum Asmundar Sveinssonar.
Gallerf Stöðlakot
Guðný Svava Strandberg. Til 22. ágúst.
Gallerí Sævars Karls
Pétur Magnússon.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Ut úr kortinu: íslensk/frönsk sýning. Til 8. ágúst.
Hallgrímskirkja
Georg Guðni Hauksson. Til 1. sept.
Á Seyði, listahátíð Scyðisfirði
Guðrún Sjöfn, Stefán frá Möðrudal, Bemd
Koperling, Bjöm Roth, Daði Guðbjömsson, Tolli,
Eggert Einarsson, Ómar Stefánsson, María Ga-
skell, Þorkell Helgason, Rut Finnsdóttir, Vil-
mundur Þorgrímsson og Olga Kolbrún Vilmund-
ardóttir og finnskur arkitektúr. Til 8. ágúst.
Hafnarborg
Sumarsýning á landslagsmálverkum í eigu safns-
ins. Sverrissalur: Verk úr listaverkagjöf hjónanna
Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigurjóns-
dóttur. Apótekið: Tré- og dúkristur eftir Gunnar
Ásgeir Hjaltason. Til 23. ágúst.
Ingólfsstræti 8
Svava Bjömsdóttir, Svava Þórhallsdóttir og
Rúna Þorkelsdóttir. Til 8. ágúst.
Kramhúsið v. Bergstaðastræti
Iðnhönnunarsýning. Hollenskir hönnuðir. Til 15.
ágúst.
Kjarvalsstaðir
Vestursalur: Karel Appel. Austursalur: Verk úr
eigu safnsins. Til 29. ágúst.
Listakot
Aine Scanneil og Jóhanna Sveinsdóttir. Til 14.
ágúst.
Listasafn ASÍ
Ásmundarsalur: Stefán Jónsson. Gryfia: Bryn-
hildur Guðmundsdóttir. Arinstofa: Sýnishorn
verka úr eigu safnsins. Til. 22. ágúst.
Listasafn Amesinga, Selfossi
Eduardo Santiere, Faith Copeland og Elisabet
Jarstp. Til 22. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands
Yfirlitssýning á völdum sýnishomum af íslenskri
myndlist. Sumarsýning.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sumarsýningin Spor í sandinn.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi
Baski (Bjami Ketilsson). Til 8. ágúst.
Listhús Öfeigs
Sex eistneskir gullsmiðir og myndhöggvarar. Til
18. ágúst.
Nýlistasafnið
Gryfja og Forsaiur: Oliver Comerford. Bjarti- og
Svartisalur: Kristveig Halldórsdóttir. Súmsalur:
Áslaug Thorlacius. Tii 22. ágúst.
Mokka
Sara Bjömsdóttir. Til 5. sept.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á verkum listamannsins. Til 29. ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Ragnar Bjamason, Hálfdán Bjömsson, Gunnar
Ámason, Svava Skúladóttir, Þór Vigfússon, Ósk-
ar Beck. Handverk í Húnaþingi, 8 sýnendur. Til
29. ágúst.
Sjóminjasnfn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.
Sýning á hafrænum málvekrum.
Stofnun Áraa Magnússonar, Ámagarði v. Suð-
urgötu
Handritasýning opin kl. 13-17 daglega til 31.
ágúst.
Þjóðarbókhlaðan
Undir bláum sólarsali - Eggert Ólafsson. Til 31.
ágúst.
TONLIST
Laugardagur
Hallgrímskirkja: Szabolcs Szamosi organisti frá
Pécs í Ungverjaiandi. Kl. 12.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Szabolcs Szamosi organisti. Kl.
20.30.
Hásalir, Tónlistarskólinn I Hafnarfirði:
Kammerchor der Universitat Karlsrahe. Kl. 17.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Gerður Bolla-
dóttir sópran og Júlíana Rún Indriðadóttir píanó.
Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja: Katalin Lörincz organisti. Kl.
12.
Föstudagur
Skálholtskirkja: Messa í h-moll e. J.S. Bach.
Mótettukór Hallgrímskirkju, Kammersveit Hall-
grímskirkju. Gunnar Guðbjömsson, Þóra Einars-
dóttir, Kristinn Sigmundsson og Monica Groop.
Kl. 20.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Litla hryllingsbúðin, lau. 7., fös. 13. ágúst.
Iðnó
Hádegisleikhúsið: 100-eyja sósan, mið. 11., fim.
12., fós. 13. ágúst.
Loftkastalinn
S.O.S. Kabarett: frums. lau. 7. Fös. 13. ág.
Þjónn í súpunni, fös. 13. ágúst.
Ferðalcikhúsið, Tjarnarbíó
Light Nights: iau. 7., fim. 12., föst. 13. ágúst.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bróflcga eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222.
Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. ÁGÚST 1999