Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1999, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1999, Side 9
þrykktir munir úr Listvinahúsinu (upprunalega hannaðir 1938-1945). VASI með þremur hönkum og krús með loki. Klassísk hönnun, kraftmiklir litir. ðir árin 1936 og 1938. Form og skreytingar teljast fremur óvenjulegar á þeim tíma. STÚLKA með lokuð augu. Módelgripur sem ekki var hafður til fjöldaframleiðslu. og menn, með eða án afskipta Guðmundar sem ta- þó teiknaði oft fyrirmyndir eða kom að gerð ött gripanna, t.d. litun eða útskurði. Renndu :ða gripimir voru vasar, skálar, ker og krukkur 51d (sumar með skreyttu loki), lampafætur, vegg- na diskar, kertastjakar og könnur, jafnvel heU jó- te- og kaffisett. Eðli máls samkvæmt er hver ar. gripur sérstakur; módelgripur. Þó var stund- in- um vikið frá því ef fjöldaframleiða þurfti im rennda muni skv. pöntunum, t.d. drykkjar- ali mál. IJá var notað lagmót, „skapalón“ við ni. vinnslu hvers munar. Lagið á módelgripum nir Listvinahússins er gjarnan klassískt en einnig og er oft um óvenjulega eða frumlega hönnun að jð- ræða. Töluvert er um útskurð; ýmist mynstur og t.d. myndir af laufum eða blómum og svo lur drekamynstur. Sumir þessara muna eru tvö- 3(j. faldir (innri hluti heill, ytri hluti útskorinn). f Vasar og könnur eru afar ólíkar innbyrðis að na stærð og útliti; allt frá 10-20 cm háum gripum iey upp í 50-120 cm gólfvasa og stórar könnur. .ga Skreytingar eru fjölbreyttar, útskurður, utan- itu áliggjandi blóm, hringform eða ávextir, rend- íki ur og bárur. Litavalið er margvíslegt, allt frá jð- svörtum, steingráum og fjólubláum litum yfir !ra í tómatrautt, gult, grænt og hvítt. Glerungur- rir inn er iðulega látinn renna þannig að einn lit- [ítt ur myndar tauma eða hálfþekju ofan á öðrum m- lit. Stundum eru vasar eða krukkur ekki hring- eða sporöskjulaga í þverskurði, heldur ferkantaðar; þá saman settar úr plötum. Fyr- ir bregður fremur framúrstefnulegri hönnun m- miðað við það árabil sem módelgripirnir voru fs- unnir á. Þessi bálkur framleiðslunnar var síst minni en hinn og mun fjölbreyttari þar eð hinir vönu rennslumenn létu oft gamminn geysa. Svo virðist sem margir muni síður eftir hinum renndu gripum, og ósjaldan verður fólk undr- andi við að heyra á þá minnst eða við að sjá falleg listaverk þeirra á meðal. Einnig þessi þáttur í starfi gamla Listvinahússjns hefur ekki verið metinn að verðleikum. í fáeinum listfræðilegum úttektum hefur ennfremur verið einblínt á svokallaðan náttúru- og heimahagaþátt í leirlist Guðmundar og þeirra allra hinna í Listvinahúsinu. Heildin er mun flóknari og forvitnilegri; stílar og skírskotanir mun fleiri. Vaxandi áhugi Undanfarin 10-15 ár hefur nær ekkert ver- ið framleitt af þrykktum gripum Listvina- hússins. Mótin eru flest slitin og ónothæf. Mó- delframleiðslan er alls ráðandi og hún hefur eðlilega breyst. Munir fyrirtækisins eru ekki lengur með helstu höfundareinkennum Guð- mundar eða samstarfsfólks hans (reyndar var Einar Guðmundsson kominn til starfa í fyrir- tækinu fyrii' 1960). Þvi má segja að fram- leiðsla Listvinahússins frá 1927 til ca. 1960 sé orðin sérstæð antíklistvara; listmunir sem eru merki liðins tíma og geta skoðast sem slíkir. Hvort sem menn horfa til framleiðslutímans eða ekki, þá er form hvers leirmunar, litur, hönnun, myndmál og áhrif hans á skoðandann lögð til grundvallar mati hvers og eins á feg- urðar-, menningar- og verðgildi gripanna. Undanfaiún ár hefur áhugi fólks á leirlist Listvinahússins aukist, m.a. eftir sýningar á verkum Guðmundar að honum látnum og ágæta leirlistarsýningu Listasafns Reykjavík- ur á Kjarvalsstöðum 1995, með tilheyrandi út- gáfu bókarinnar „LeMist á íslandi" en þar er prýðileg ritgerð Eiríks Þorlákssonai- listfræð- ings höfð sem kynning. Æ fleiri uppgötva listræna og fjölbreytta framleiðslu Listvinahússins á umræddum ár- um. Leirmunir frá fyrirtækinu á þessum tíma sjást í fornverslunum, hjá listaverkasölum og stundum í Kolaportinu. Verð hefur hækkað jafnt og þétt, þó án innra samræmis. Enn vantar miklu meiri kynningu á listiðn og leir- list áranna 1927-1970 eða svo og fleiri vand- aðar úttektir á verkunum væru mörgum áhugaverðar. Illa gerðar falsanir Sést hefur nokkuð til viðgerðra leirmuna úr Listvinahúsi á markaði. Mjög mikill vandi er að gera við brotna leirmuni og alla jafna er ekki unnt að lita viðgerðir með brenndum glerungi, heldur einvörðungu með þornandi litum. Nota þarf sérstakt lím og kítti. Mest af viðgerðunum stenst ekki mál og verð við- gerðra muna er jafnan allt of hátt. Þá hefur einnig borið á að einhver setji falskan gifs- botn á muni frá t.d. Funa og Roða eða jafnvel á erlenda gripi og merki með burstinni, vörumerki Listvinahússins, ár- tali og jafnvel upphafsstöfum Guðmundar: G.E. Þá fæst hærra verð en ella fyi'ir grip- inn, glepjist einhver til kaupa. Eigendur eða kaupendur leirmuna frá Listvinahús- inu geta þekkt slíkar falsanir á yfirmálun með lakklitum og/eða auðrispanlegum gifsbotni. Þessar falsanir eru heldur saklausari en þær tilraunir sem gerðar voru nú 1999 til þess að falsa styttur úr Listvinahúsinu. Sem betur fer komst fljótlega upp unf verknaðinn þegar tvær ólíkar gerðir leir- muna voru seldar af einum og sama aðila sem stundað hefur ýmiss konar munasölu í Kolaportinu og í Mjódd. Á hans vegum voru uppi a.m.k. ein fölsuð stytta af nak- inni konu með könnu (oft nefnd vatnsber- inn) og tvær falsaðar styttur af hafmey með bam (oft kölluð móðir hafsins). Tvær þeirra a.m.k. voru seldar kaupendum fyrir hæsta verð. Brátt kom í Ijós að stytturnar voru unnar úr gifsi í mót sem tekin höfðu verið af ófólsuðum leirstyttum. Gripimir vora handmálaðir með fljótþornandi, lit- uðu lakki en vöramerki og upphafsstafir Guðmundar látnir halda sér. Styttumar eru of þungar, fremur valtar, auðrispan- legar; yfirborðið stamt og það lyktaði af málningu. Framleiðandinn er einn en þó ekki sami aðili og sá sem seldi hin aug- ljósu falsverk. Tveir kaupendur kærðu bæði sölu og framleiðslu og telst málið upplýst en dómsmeðferð er væntanlega eftir. Svona fals- anir er auðvelt að þekkja; nóg er að ýta þétt á yfirborðið með tannstöngli, borðhníf eða áþekkum hlutum. Yfírborðið lætur þá undan og það skín í hvítt. Engar styttur eða aðrir munir úr Listvinahúsinu era unnir í gifs. Ver- ið getur að málað gifs hafi stundum verið not- að til minni háttar viðgerða (ekki af fagmönn- um) en þannig gripir þekkjast frá fölsunum á því að mestur hluti hvers grips er úr brennd- um, glerhörðum leir. Falsanimar hafa eflaust einhver neikvæð áhrif á sölu og eftirspum leirmuna úr Listvina- húsinu. Um leið má vera að árvekni fólks aukist og að markaður þessara leirmuna jafni sig fyrr en síðar. Listaverkafalsanir virðast hafa færst í aukana hér á landi og hafa nú einnig færst yfir í eftirgerð leirmuna. Ofangreindar tilraunir mega ennfremur teljast illa grunduð en vænt- anlega ómeðvituð atlaga að listamannsheiðri Guðmundar og orðstír Listvinahússins. Og eins og allar tilraunir til listaverkafalsana era þær purkunarlaus aðferð til að græða fé á eigin van- hæfni til skapandi starfa. Höfundurinn er jaröeðlisfræáingur. vlUNDAR FRÁ MIÐDAL' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. ÁGÚST 1999 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.