Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1999, Síða 8
HERJUM Normanna og Engilsaxa lýstur saman með dramatískum hætti.
REFILLINN
í BAYEUX
EFTIR INGÓLF MARGEIRSSON
Rúmlega 900 ára gamall útsaumur hefur vakið aðdáun
og eftirtekt manna í meira en níu aldir enda eitt frægasta
og merkasta listaverk sem varðveist hefur frá miðöldum í
V-Evrópu. Vefurinn er 70 metrar að lengd og um hálfur
metri að breidd og segir söguna af Vilhjálmi hertoga af
Normandí sem lagði undir sig England árið 1066 eftir
orrustuna við Hastings. Listaverkið er að finna f bænum
Bayeux í Normandí, Frakklandi, í veglegri byggingu frá
17. öld sem áður hýsti fyrirlestrasali.
;• í »-i *ju*}-**~V •» .I ’ i
M( |/> \ * Í i - -» / fj
/ i % jk ■JsL . Æfwt 4« % í V/ ’
ORRUSTAN við Hastings: Hermenn Normanna voru ríðandi sem r
til að tryggja yfirráð Englands eftir sigu
REFILLINN er til sýnis í dimmum sal með stórbrotnu hvolfþaki úr timbri. Skrautsaumnum er komið fyrir upplýstum, ílöngum glerkassa á vegg og tey
einni hornréttri beygju. Gestum gefst kostur á að leigja heyrnartæki á ýmsum þjóðtungum þar sem innihald refilsins er útskýrt jafnóðum og sýninc
Norrænir menn í Frakklandi
Forsagan að innrás Vilhjálms Norm-
andíhertoga og valdatöku hans í
Englandi hefst með búsetu vfkinga í
Frakklandi sem tók á sig varanlega
mynd á níundu öld þegar þeir undir
forystu Göngu-Hrólfs lögðu undir
sig víðfeðmt hérað á vesturströnd
Frakklands sem kallað var „terra
Normannorum“ - land mannanna frá norðri.
Síðar fékk svæðið heitið Normandí.
Normanar höfðu töluverð samskipti við Eng-
land sem þá var stjómað af Engilsöxum. Einkum
vom tengslin mikilvæg fyrir hertogann og fjöl-
skyldu hans sem sést best á því að Emma, systir
Ríkarðs hertoga, var gift engilsaxneska kóngin-
um Aðalráði 2. ráðlausa. Þegar Danir lögðu undir
sig landið 1013, flúði Aðalráður til Normandí.
Sonur Aðalráðs og Emmu, Játvarður góði, varð
síðar konungur í Englandi eða árið 1042.
Við andlát Ríkarðs 2. 1026 (fyrsti hertoginn
af Normandí) tók sonur hans Ríkarður 3. í
fyrstu við völdum en ári síðar bróðir hans, Ró-
bert. Þetta voru róstusamir tímar og ekki bætti
úr skák þegar Róbert hélt í krossferð til Jer-
úsalem þar sem hann lést 1035, enn ókvæntur.
Hann hafði þó eignast son síðla árs 1027 eða í
ársbyrjun 1028 með alþýðustúlku, Herleifu
(Arlette) að nafni sem var dóttir sútara. Sonur-
inn var skírður Vilhjálmur og fékk fljótlega við-
umefnið bastarður. Andlát Róberts Norm-
andíhertoga olli uppnámi og deilum í Norm-
andí. Líf hins unga Vilhjálms var oft í hættu og
reyndar furða að hann skyldi komast á legg og
verða hertogi af Normandí.
Játvarður góði hafði verið kallaður úr útlegð
sinni í Normandí og gerður að Englandskon-
ungi er valdatíma danskra konunga lauk í
Englandi. Játvarður var bamlaus og eftir
kynni sín af Vilhjálmi í Normandí, gaf Játvarð-
ur Vilhjálmi loforð um að erfa enska ríkið eftir
sinn dag. Á dánarbeðinum skipti hins vegar
Játvarður um skoðun og gerði Harald Guðina-
son (Guðvinsson) að ríkiserfingja Englands.
Þessi umskipti Játvarðar eiga sér skýringu í
langvinnum deilum sem hann átti við Guðin,
föður Haraldar og jarls af Wessex og vaxandi
áhrifum og völdum ættarinnar í Englandi.
Refillinn greinir þó ekki frá sinnaskiptum
Játvarðar heldur áréttar útsaumurinn þvert á
móti loforð kor.ungsins við Vilhjálm. Hins veg-
ar er Haraldur Guðinason gerður að glæpa-
manni sögunnar.
Halastjarna Halleys kemur við sögu
Saga refilsins byrjar þegar Játvarður góði
Englandskonungur kallar mág sinn Harald
Guðinason á sinn fund og sendir hann til Norm-
andí að tilkynna Vilhjálmi hertoga þá ákvörðun
sína að gera hann að ríkiserfingja Englands.
Greint er frá sjóferð Haraldar, ýmsum ævin-
týrum og raunum (þar á meðal skipbroti) sem
hann lendir í uns hann kemst við illan leik á
fund Vilhjálms. Eftir frekari forsögu þar sem
Haraldur aðstoðar Vilhjálm við að reka her-
menn frá Bretagne út úr Normandí, kemur
loks að meginsögunni: Haraldur sver eið að
vera Vilhjálmi trúr og aðstoða hann á allan hátt
að taka við krúnu Englands eftir daga Játvarð-
ar.
Haraldur snýr aftur til Englands, hlaðinn
gjöfum og hraðar sér til Játvarðar sem þegar
liggur á banabeði. Játvarður deyr, (merkileg
heimild um konunglegar útfarir þeirra tíma) en
í stað þess að kalla Vilhjálm til Englands sem
réttmætan konung Englands, setur Haraldur
sjálftu- upp kórónuna. Fyrir utan höllina verða
sex hræddir menn vitni að undarlegri sýn; eld-
kúla með logandi hala flýgur yfir himinhvelf-
inguna. Hér er greinilega dramatísk viðvörun
æðri máttarvalda að verki. Þessi sýn var raun-
veruleg, því halastjarna Halleys sást á himni
yfir Englandi milli 24. apríl og 1. maí 1066 þótt
aldir ættu eftir að líða þangað til fyrirbærið var
skilgreint.
Áfram heldur myndasagan: Vilhjálmur frétt-
ir af svikum Haraldar, ræðir málin við hálf-
bróður sinn, Odo biskup af Conteville. Odo gef-
ur Vilhjálmi hið afdrifaríka ráð: Haraldi skal
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. ÁGÚST 1999
H