Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.2000, Blaðsíða 19
HATIÐIN L2000 A AKUREYRI DAGANA 21. TIL 25. JUNI
LEIKHÚS ÁN TAKMARKANA
Leiksýningar munu teygja
anga sína útyfir hefó-
bundin mörk á leiklistar-
hátíðinni L2000 á Akur-
eyri 21 .-25. júní. Til
dæmis verða sett upp
verk í sundlaug og í
Kjarnaskógi. EYRÚN
BALDURSDQTTIR ræddi
við Lárus Vilhjálmsson,
formann hátíðarnefndar,
og komst að því að þátt-
takendur eru vísir til að
bregða á leik hvar og
hvenær sem er.
LEIKHÚSLÍF mun sannarlega setja
svip sinn á Akureyrarbæ dagana
21.-25. júní, en þá mun Bandalag ís-
lenskra leikfélaga standa fyrir leik-
listarhátíð í bænum í samvinnu við
Reykjavík - menningarborg 2000 og
Akureyrarbæ.
I Hátíðin er haldin í tilefni af því að
50 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins og munu
ellefu áhugaleikhópar taka þátt í henni en þar af
eru þrír þeirra erlendir. Lárus Vilhjálmsson,
fonnaður hátíðarnefndar, segir að þetta sé í
fyrsta sinn sem svo stór alþjóðleg leiklistarhátíð
sé haldin hér á landi. Hann kveður Akureyrar-
bæ henta einkar vel fyrir hátíð af þessu tagi, til
þess sé hann hvorki of stór né of Útill. „Pað vill
einnig svo til að afmælið okkar lendir á árinu
2000 þar sem afskaplega mikið er að gerast í
menningarlífi og þá sérstaklega á suðvestur-
horninu.“
Leiklist hefur alþjóðlegt tungutak
íslensku áhugaleikhóparnh- sem taka munu
þátt í dagskránni koma alls staðar að af landinu.
Leikfélag Húsavíkur, Skagaleikflokkurinn og
Leikfélag Hafnarfjarðar eru ein af þeim rót-
grónu félögum sem leggja munu leið sína til Ak-
ureyrar. en yngri félögin eru Litli leikklúbbur-
inn frá ísafirði, Leikfélagið Baldm- frá Bfldudal
og Hugleikur af höfuðborgai'svæðinu. Leikfé-
lagið Sýnir mun einnig stíga á stokk á hátíðinni
en það samanstendur af leikumm alls staðar að
af landinu.
Auk Keliariteatteri frá Finnlandi og Bond-
eungdomslaget Ervingen frá Noregi kemur
hingað til lands leikhópurinn Auseklis Lhnbazi
Amateur Theatre frá Lettlandi, en hann hlaut á
síðasta ári verðlaun fyrir bestu áhugaleiksýn-
ingu landsins fyrir uppsetningu á Á rúmsjó eftir
Slawomir Mrozek. „Við erum ákaflega ánægð
með að fá þá á hátíðina, en þess má geta að
gæðastaðall er mjög hár hjá áhugaleikhópum í
fyrrum austantjaldslöndum," segir Lárus.
Hóparnir sýna á hátíðinni verk sem þeir hafa
áður æft upp og sýnt á sínum heimaslóðum. Er-
lendu hópamir munu vitaskuld ekki breyta út af
laginu heldur flytja á sinni þjóðtungu. „Leiklist-
in hefur alþjóðlegt tungutak og því skiptir ekki
máli þó að maður skilji ekki hvert orð. Ef verkið
er á annað borð gott þá skilar það sér til áhorf-
enda,“ segir hann og bætir við að sjálfur hafi
hann séð til ýmissa baltneskra leikhópa og þyki
mikið til koma.
Göfuleikhús og ósýnilegt
leikhús meðal efnis
Forseti íslands setur hátíðina þann 21. júní
en hann er jafnframt verndari hennar. A opnun-
ardaginn verður viðamM götuleikhússýning í
miðbænum á Akureyri sem færist frá Listagili
og endar á Ráðhústorginu. „Alllr þátttakendur
munu vera með í götuleikhúsinu. Þama verða
ýmsar uppákomur og gangandi vegfarendur
geta búist við því að verða gerðir að þátttakend-
um,“ segir Lárus kíminn. „Ætlunin er að gefa
inn sýnir Morð í myrkrí eftir Rolf Rolfssen,
Hugleikm- ÉG SÉ EKKI MUNINN, finnski
hópurinn flytur Sérðu regrúð? í leikgerð
Johönnu Freundlichen en þess má geta að allur
texti þess verks er sunginn. Leikfélag Hafnar-
fjarðar sýnir leikrit Mark Medoff, Hvenær
kemur þú aftur, rauðhærði riddari? og síðast en
ekki síst má nefna að Leikfélag Húsvíkinga sýn-
ir á Húsavík Uppspuni frá rótum, efth’ Armann
Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason.
Láius bendh- á að alian tímann meðan hátíðin
stendur yfir verði starfræktur hátíðarklúbbur á
veitingahúsinu við Pollinn og í honum veríji
ýmsar uppákomur, örleikrit verði flutt, einþátt-
ungai’ og annað.
Uppbygging hátíðarinnar mun vera af hefð-
bundnu tagi. „Við höfum formað þessa hátíð
miðað við þær leiklistai’hátíðir sem við þekkjum
og höfum sótt um tíðina. Það eru til dæmis ýms-
ar norrænar leiklistarhátíðir og alþjóðlegu leik-
listarhátíðimar sem haldnar hafa verið í Món-
akó og víðai’."
Gagnrýnisfundir og verðlaun
Á hátíðinni verða haldnir sérstakir gagnrýn-
Á rúmsjó kallast leikrit Slawomir Mrozek sem Lettar sýna á hátíðinni. Þeir hlutu verðlaun isfundir í Myndlistai’skólanum þar sem farið
áhugaleikhúsa fyrir uppsetninguna í Lettlandi. verður ofan í kjölinn á leikritunum daginn eftir
sýningu þeirra. Tveir gagnrýnenda em atvinnu-
menn í greininni en þeir era Sigrún Valbjöms-
dóttir leikstjóri og Sigurður Hróarsson leikhús-
stjóri. Á hverjum degi verður valinn ei|p,
gagmýnandi úr hópi áhorfenda og fundargestír
geta einnig.komið með fyrirspurnir úr sal.
Á lokahófi hátíðarinnar fer svo fram verð-
launaafhending þar sem valin verður besta
leiksýning hátíðarinnai’, bestu leikarar, besta
útlit sýningar og margt fleira. Dularfull leynd
ríkh’ yfir því af hvaða tagi verðlaunin eru en
Láras vill aðeins láta uppi að þau munu vera
vegleg.
Leikhúsbakterían skæð
Aðspurður segis Láras telja áhugamanna-
leikhópa á íslandi vera mjög framarlega miðað
við það sem gerist annars staðar. Hann segk?
ótrúlega marga hafa fengið leikhúsbakteríuna
og að hún fari greinilega ekki í manngreinarálit.
„í okkar samtökum er fólk á öllum aldri og af
öllum stéttum samfélagsins," segir hann og
bætir við: „Við erum öll að taka okkur sumarfri,
því við eram auðvitað flest í störfum meðfram
þessu áhugamáli."
Láras kveður áhugaleikhús á íslandi standa á
nokkram tímamótum nú þegar horft er til nýrr-
ar aldar. ,Áhugaleikhúsið er í samkeppni við
alls konar afþreyingu sem er í boði í samfélag-
inu. Við höfum svo sem staðið fyrir því áður og
raddir vora uppi um það á sínum tíma að út-
vaipið og síðar sjónvarpið myndi ganga af okk-
ur dauðum. En við höfum oftast risið á aftur-
lappimar og rifið okkur upp. Líkt og fleiri
stöndum við reyndar dálítið höllum fæti fjár-
hagslega og það hefur minnkað okkar getu til
vera með öfluga starfsemi. Reyndai’ má líka
nefna að mér finnst okkar helsti vaxtarbroddur
vera sá að við eram mótvægi við ýmsa aðra af-
þreyingu. Áhugaleikhúsið er einnig í ýmsum
sveitarfélögum burðarásinn í menningarlífinu
og fyrir þá sem gefa sig í þetta er leikhúslífið
mjög spennandi."
Lái’us nefnir að á íslandi hafi ætíð verið mikill
samgangur milli atvinnu- og áhugaleikhúsa sem
sé ólíkt því sem gerist annars staðai’, og það
skýri á vissan hátt hversu vönduð áhugaleikhús-
in era hér á landi.
Augnablikið fyrir klappið
Lárus kveður hátíðina skipta miklu fyrir
bandalagið og leikhópana sem taka þátt í henni.
Fólk geti fylgst með því sem er að gerast í öðr-
um leikhópum og deilt þessu sameiginlegjcv
áhugamáli. „Hátíðin er einnigmjöggóðkynning-
fyrir bandalagið og það starf sem það innir af
hendi, og svo er aldrei að vita nema einhverjir
leikarar verði uppgötvaðir," segir Lárus hlæj-
andi.
Sjálfur leikur hann með Leikfélagi Hafnar-
fjarðar á hátíðinni og segist hafa tekið þátt í
áhugaleikhúsum í mörg ár. „Ég held að þetta
augnablik, þegar maður er búinn að leika og áð-
ur en áhorfendur byrja að klappa sé ástæðan
fyrir þvi að ég stend í þessu. Það er alveg ólýs-
anleg tilfinning.“
Hvort sem hvatinn að leiklistaráhuga hinna
2-300 leikara sem þátt taka í hátíðinni sé hinn
sami og hjá Lárusi eða ekki, er ljóst að hann^si
ekki af efnislegum toga. Flestir hafa æft launa-
laust vikum saman á kvöldin og um helgar, til að
geta tjaldað því besta. Dagana 21 -25. júní gefst
gestum hátíðarinnar kostur á að berja augum
afrakstur þeirrar vinnu.
Leikfélagið Hugleikur sýnir í Samkomuhúsinu Ég sé ekki muninn. Leikritið mun vera forn speki
færð í nútímabúning á gamansaman hátt.
í Kjarnaskógi mun leikfélagið Sýnir sýna leikritið Nýir tímar.
bænum mikið líf og þannig verður það allan tí-
mann meðan hátíðin stendur yfir.“
Utan hefðbundinna leiksýninga sem fram
fara tvisvar á dag mun ýmislegt annað sem
tengist leikhúslífi vera í brennidepli. „Við verð-
um með leiksmiðju og námskeið alla dagana í
Listagilinu. Til dæmis verða leiksmiðjur í
Theater-sport sem er ákveðin tegund spuna-
leikhúss og líka leiksmiðja í ósýnilegu leikhúsi,“
segir Láras og skýrir ennfremur. „í ósýnilegu
leikhúsi á fólk ekki að vita að það sé leikhús í
gangi þegar það er framið. Það getur átt sér
stað hvai’ sem er og bæjarbúar munu verða þess
varir hvort sem er úti á götu eða í sundi að það
sé eitthvað skrítið að gerast." Bömin munu
heldur ekki fara varhluta af þessu framtaki, en
eitt námskeiðið er einmitt sniðið að þeirra þörf-
um.
Hefðbundnir og óhefðbundnir
sýningarstaðir
Ýmsir hafa haldið uppi þeim hugmyndum að
leiklist sé ekki bundin við leikhús heldur spanni
leiksviðið allt okkar umhverfi. Forsvarsmenn
hátíðarinnar virðast alltént hallir undir þá hug-
mynd að teygja anga leiklistarinnar eins víða
um bæinn og mögulegt er. Það endurspeglast
meðal annars í því að tvær sýningar fara fram á
óvanalegum stöðum, það er í Kjarnaskógi og í
sundlauginni í Glerárhverfi.
Leikfélagið Sýnir flytur leikritið Nýir tímar í
Kjarnaskógi á sjálfa Jónsmessunótt. „Þetta
leikrit er eftir Böðvar Guðmundsson og fjallar
um kristnitökuna. Sýningin er ákaflega fjöl-
menn því í henni taka þátt um þrjátíu manns,“
segir Láras og bætir við að líklega sé ekki hægt
að finna fallegri leiktjöld en umhverfið í Kjama-
skógi.
í miðri sundlaug Glerárhverfis flytur Skaga-
leikhópurinn leikritið Lifðu - Yfír dauðans haf
eftir Kristján Kristjánsson. Áhorfendur munu
fylgjast með verkinu af bakkanum, en það fjall-
ar um þrjá menn sem komast á kjöl þegar bát
þeirra hvolfir í blíðskaparveðri.
Þessar tvær sýningar eru samt sem áður
undantekning því flestir leikhópar flytja leikrit
sín ýmist í Samkomuhúsinu eða Kompaníinu.
Fjölbreytileg verk
Leikritin sem flutt verða á hátíðinni era af
öllu tagi, og ægir saman leikritum eftir innlenda
og erlenda höfunda, nútímaskáld og klassísk og
er boðskapurinn að sama skapi fjölbreyttur.
Litli leikklúbburinn sýnir Fuglinn í fjömnni
eftir David Wood, Leikfélagið Baldur Sviðs-
skrekk eftir Alan Shearman, norski leikhópur-
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 17. JÚNÍ 2000 19