Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.2000, Blaðsíða 6
LISTISAMSPILI
VIÐ NÁTTÚRUNA
Á morgun verður opnuð óvenjuleg og viðamikil
myndlistarsýning við Rauðavatn í útjaðri Reykjavíkur.
Sýningin ber heitið Landlist við Rauðavatn og sýna
þar sautján listamenn sextán verk, sem öll eru unnin
með samspil við náttúruna þar í kring í huga. Auk
þess hafa listamennirnir notið aðstoðar un gs fólks úr
Reyl <javík, sem vinnur hjá Vinnuskóla Rey kjavíkur í
sumar. INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR sá fjölbreytta
myndlist og hitti fyrir samhentan hóp listafólks sem
var að leggja síðustu hönd á verkin þegar hún heim-
sótti svæðið nú í vikunni.
SVÆÐIÐ í kringum Rauðavatn er vinsælt
útivistarsvæði Reykvfldnga. Þar er
ýmislegt hægt að gera; ganga, sigla,
veiða, flatmaga og viilast í skógi. Nú er
þar einnig hægt að skoða margvísleg og for-
vitnileg listaverk unnin af íslenskum listamönn-
um og ungum aðstoðarmönnum þeirra í Vinnu-
skóla Reykjavíkur. Verkin standa á víð og dreif
sunnan og austan við vatnið og eru eins misjöfn
og þau eru mörg.
Samstarfsverkefni
Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnuskóla
Reykjavíkur og Reykjavíkur - menningarborg-
ar Evrópu árið 2000. Hugmyndina að verkefn-
inu átti Guðrún Erla Geirsdóttir, formaður
stjómar Vinnuskóla Reykjavikur. í henni felst
að starfsemi Vinnuskólans breikki og tengist
menningarborgardagskránni. Hugmyndin var
auglýst og kynnt fyrir listamönnum í fyrra og
skiluðu þeir tillögum að verkum, sem svo var
valið úr. Skilyrðin voru þau að nemendur Vinnu-
skólans gætu á einhvem hátt komið að og átt
þátt í gerð og uppsetningu verkanna, sem og að
notast væri við náttúmna og verkin yrðu til upp
úr því sem landið gæíi og félli vel inn í það lands-
lag sem fyrir hendi væri. Nemendur Vinnuskól-
ans áttu svo kost á að velja sér þetta verkefni
sérstaklega og völdu flestir þeir sem taka þátt í
verkefninu þetta starf. Starfið felst annars veg-
ar í aðstoð við listamenn og hins vegar í al-
mennri umhirðu og vinnu á svæðinu kringum
vatnið.
Tuttugu og tvö ungmenni tóku þátt í verkefn-
inu ásamt listamönnunum sautján. Verkin hafa
flest verið í vinnslu síðan í byijun júní, en tvö
þeirra vom unnin síðasta sumar. Listamenn
skiiuðu í upphafi hugmyndum sem þróuðust
áfram við vinnuna á staðnum. Mörg verkin
breyttust eftir að komið var á staðinn og farið að
kanna aðstæður og í sumum tilfellum fengu
krakkamir að taka þátt í sköpun og hugmynda-
vinnu verksins ásamt listamönnunum. I öllum
tilfellum er um að ræða verk sem tengjast á ein-
hvem hátt náttúrunni og umhverfinu í kringum
vatnið, þó að verkin taki á mjög ólíkan hátt á
efninu.
Skáldskapur skógarins
Eina verkið á sýningunni sem unnið er í sam-
starfi tveggja listamanna nefnist Skáldskapur
skógarins. Það er verk þeirra Guðrúnar Veru
Hjartardóttur og Elsu Dórótheu Gísladóttur og
fengu þær til liðs við sig tvö ungmenni úr Vinnu-
skólanum, Helgu Björk Pálsdóttur og Aðalstein
Má Ólafsson. Verkið skiptist í fimm hluta sem
liggja út af þröngum stíg í skóginum austan við
vatnið. Fimmti og síðasti hlutinn er unninn í al-
gjörri samvinnu listamannanna og krakkanna.
„Við Guðrún Vera komum héma í vetur og
gengum um svæðið til að fá hugmyndir. Það var
svo merkilegt að við fengum báðar sömu til-
finninguna á hveijum stáð,“ segir Elsa Dóró-
thea. „Svo fómm við heim og unnum úr hug-
myndunum en skildum eina eftir óunna. Þegar
við hittum krakkana settumst við niður með
þeim og fengum innblástur. Svo byrjuðum við
bara að skapa hlutina."
Anna Þóra, Arndís og Hafsteinn við vinnu í Nordlingabúð.
Lista-
mennirnir
Anna Þóra Karlsdóttir
Asta Ólafsdóttir
Borghildur Óskarsdóttir
Dagmar Rhodius
Elsa Dóróthea Gísladóttir
Erla Þórarinsdóttir
Eygló Harðardóttir
Guðlaugur Valgarðsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún Vera Hjartardóttir
Hekla Björk Guðmundsdóttir
Inga Rósa Loftsdóttir
Kristín Reynisdóttir
Málfríður Aðalsteinsdóttir
Sonja Hákansson
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Vignir Jóhannsson
Erla Þórarinsdóttir dyttar að Norðurljósasætinu.
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. JÚLÍ 2000