Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.2000, Page 16
MALAÐILEIKTJOLD LIFSINS
Gerðarsafn í Kópavogi hefuropnað sýningu ó
mólverkum, teikningum og leikmyndum Sigfúsar
Halldórssonar. INGA AAARÍA LEIFSDÓTTIR kynnti sér
sögu Sigfúsar og ræddi við Guðbjörgu Kristjóns-
dóttur, forstöðumann safnsins, um tónskóldið og
listmólarann sem ó svo sterkar rætur í Islendingum.
SIGFÚS Halldórssson á
sérstakan sess í hugum
okkar íslendinga fyrir að
semja mörg af okkar ást-
sælustu sönglögum. En það var
önnur listgrein sem átti hug Sig-
fúsar, auk tónlistarinnar, og var
það málaralistin. Frá unga aldri
hafði hann brennandi áhuga á
myndlist og hóf hann sitt fyrsta
nám í teikningu aðeins sextán
ára gamall, við málaraskóla
Bjöms Bjömssonar og Marteins
Guðmundssonar. Arið 1944 hélt
Sigfús tO Lundúna að læra leik-
tjaldamálun, en leikhúsið og
störf hans við það sameinuðu
þessi tvö helstu áhugasvið hans.
Hann starfaði við leiktjaldamál-
un samfara ýmsum öðrum störf-
um, og eru enn varðveittar
nokkrar af leikmyndum hans. Af
myndum hans eru þó frægastar
götulífsmyndir hans, svipmyndir
frá Reykjavík og Kópavogi, þar
sem hann bjó síðari hluta ævi
sinnar. Þessar myndir sýna hús,
bíla og götur bæjanna, og hafa
margar hverjar mikið heimOda-
gildi um staðarhætti um miðja
öldina, þar sem mörg húsin sem
eru á myndunum, eru nú horfin.
„Tdefnið að sýningunni er það
að hann hefði orðið áttræður 7.
september, en hann lést árið
1996,“ segir Guðbjörg. „Því var
ákveðið að halda sýningu á verk-
um hans. Auk þess verður tónlist Morgunblaðið/Ásdís
hans flutt í Salnum á tónleikum Templarasund eftir Sigfús Halldórsson, gerð árið 1979.
Austurstræti eftir Sigfús Ilalldórsson, gerð árið 1959.
Morgunblaðið/Ásdís
sem verða fljótlega, lötlega á af-
mælisdaginn hans, þannig að í þess-.
um tveimur menningarhúsum
Kópavogs verður list hans kynnt.
Annars vegar málaralistin hér og
hins vegar tónlist hans í Salnurn."
Sigfús var fyrsti lærði leiktjalda-
jnálarinn á Islandi. „Hann vann
leiktjöld fyrir ýmsa leikhópa og við
höfum nokkur þeirra til sýnis hér á
sýningunni," segir Guðbjörg.
„Meðal þeirra eru leiktjöldin fyrir
Tondeleyo, leikhússtykki sem hann
samdi einnig eitt af sínum frægustu
lögum við. Þau voru gerð árið
1958.“
Sigfús helgaði einungis nokkrum
árum ferlis síns leiktjaldamálun eingöngu, en
fór í æ ríkari mæli að mála myndh- af götum,
húsum, bflum og lífi í Reykjavík. „Þetta varð
hans sérgrein og þar hefur hann ákveðna sér-
stöðu meðal íslenskra málara,“
segir Guðbjörg. „Þar er hann
líklega langvinsælastur og
vatnslitamyndirnar voru hans
jrein af þessum myndum.
hefð, að mála staðarmynd-
ér vel þekkt í evrópskri
dlistarsögu. Eiginlega má
að hann hafi snúið sér frá
leiktjöldum leikhússins og farið
að mála leiktjöld lífsins.“
Að sögn var Sigfús afkasta-
mikfll málari, og vinsæll að sama
skapi. „A sýningunni eru 135
verk eftir hann, sem gefur ágæt-
, , is yfirlit yfir feril hans,“ segir
Sigfús Halldórsson Guðbjörg. „Þau eru flest í eigu
fjölskyldu hans, en líka listasafna og ýmissa
einstaklinga. Hann var vinsæll meðal almenn-
ings meðan hann lifði og er það enn. Hann á að
vissu leyti stað í hjörtum okkar.“
UNDARLEG ANDSTÆÐA LANDS
í þorpinu Worpswede í Þýskalandi var starfandi
listamannanýlenda um síðustu aldamót. Þekktust
þeirra myndlistarmanna sem þar störfuðu er Paula
Modersohn-Becker og er nú opnuð sýning ó
teikningum og grafíkverkum hennar, auk fimm
annarra mólara úr nýlendunni, í Gerðarsafni.
SÝNING á verkum þýskra myndlistar-
manna frá síðustu aldamótum verður
opnuð í Gerðarsafni í dag. Sýningin
ber yfirskriftina „Paula Modersohn-
Becker og málaramir í Worpswede". Verk
sex myndlistarmanna, einnar konu og fimm
karlmanna, eru þar sýnd, en þau voru hluti af
hinni þekktu listamannanýlendu í þorpinu
Worpswede, skammt frá Bremen í Þýskalandi
í kringum aldamótin 1900. Myndlistarmenn-
irnir sem um ræðir eru Paula Modersohn-
Becker, Otto Modersohn, Fritz Mackensen,
Hans am Endem, Fritz Overbeck og Heinrich
Vogeler. A sýningunni eru landslagsverk,
teikningar og grafíkverk.
„Þetta er þýsk aldamótalist sem er mjög
falleg,“ segir Guðbjörg. „Listamennirnir fóru
út í lítið þorp sem heitir Worpswede og stofn-
uðu þar listamannanýlendu. Þar byrjuðu þau
að gera landslagsmyndir, þar sem þau höfn-
uðu þeirri hefðbundnu akademísku sýn á
landslagsmálverk sem þeim hafði verið kennd
í listnámi.“ Sá listamaður hópsins í
Worpswede sem var róttækastur og markaði
dýpst spor í átt að módernisma var Paula
Modersohn-Becker. Hún hafði kynnst verkum
franskra módemista eins og Cézanne, Van
Morgunblaðið/Ásdís
Ein af grafíkmyndum Paulu Modersohn-
Becker á sýningunni í Gerðarsafni.
Morgunblaðið/Ásdís
Dæmigerð landslagsmynd iistmálaranna í Worpswede á sýningunni í Gerðarsafni.
Gough og Gaugain og hreifst af stílnum. „Það
sem gerir hana svo nútímalega, sem raun ber
vitni, er að hún leitar að sem mestri einföldun
formsins,“ útskýrir Guðbjörg. „Þetta kemur
best fram í teikningum hennar. Hún teiknar
af miklu næmi sem tíðkaðist ekki um hennar
daga og það má greina mjög nútímalegan tón í
verkum hennar.“
Paula lést langt um aldur fram, aðeins 31
árs að aldri, en verk hennar eru viðurkennd í
dag sem hluti af sígildum þýskum módern-
isma. „Svo voru aðrir listamenn í kringum
Paulu, maðurinn hennar og fjórir aðrir mynd-
listarmenn í nýlendunni með henni,“ segir
Guðbjörg. „Hið kunna þýska ljóðskáld, Rainer
Maria Rilke, var þar einnig á sama tíma. Á
sýningunni höfum við því ákveðið að gera
texta hans sýnilega, með því að skrifa þá upp á
stóra borða sem hengdir verða í loftið og hafa
púlt með bókum hans til sýnis. Rilke og Paula
voru vinir og höfðu mikil áhrif á list hvors
annars. Umhverfið í Worpswede hafði mikil
áhrif á verk hans, eins og myndlistarmann-
anna, og hann lýsti því sem undarlegri and-
stæðu lands.“
Sýningin er farandsýning sem hefur farið
víða, meðal annars til Frakklands og Skot-
lands. „Hún hefur hlotið mjög mikla aðsókn
þar sem hún hefur komið,“ segir Guðbjörg.
„Stór bók var gefin út á þýsku með sýning-
unni og við höfum þýtt hana á íslensku í heild
sinni. Eflaust er sýningin sett upp núna í til-
efni af aldamótunum. Það er verið að líta til
baka til síðustu aldamóta, frá þeim sem við
stöndum nú á. Svo er áhugi á umhverfi og
náttúru mjög mikill núna og ekki síst á ís-
landi. Ég held að þessi sýning muni höfða
mjög til Islendinga."
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. ÁGÚST 2000