Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2000, Side 5
Samtvinnuð rými (Spatial Alliance). Masters-verkefni t arkitektúr, Architectural Association, London 1998-2000. Freyr Frostason arkitekt, með-
höfundar: Emmanuel Bringer, David J. Gerber („Micro.Soft.Surf"). Leiðbeinendur: Brett Steele, Patrik Schumacher.
Ijósmynd/Arndís S. Árnadóttir
Stóll úr eik og bólstraður með svörtu leðri. Liklega smíðaður 1906- Manfreð Vilhjálmsson (f. 1928) ogDieterRoth (1930-1999) -Kollurfyr-
1909 fyrir Safnahúsið við Hverfisgötu hjá Jóni Halldórssyni & Co. og ir Tónabæ, 1964, járn og plastbauja, eig. Manfreð Vilhjálmsson.
teiknaður af Fr. Kiorboe. Eigandi: Þjóðminjasafn íslands.
stæðið Sigurjón Ólafsson & Co við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík, sem nokkru síðar
(1908) var kennt við einn stofnandann og
nefnt Jón Halldórsson & Co. Innviðir og hús-
gögn fyrir Safnahúsið (1906-1909) voru eitt af
fyrstu verkefnum þessa verkstæðis og er
lestrarsalurinn þeirra þekktastur. „Moblerne
som jeg har tegnet," fullyrti danski bygging-
armeistarinn Frederik Kiorboe í grein í
Architekten árið 1910. Fullvíst er þó að þekk-
ing á að teikna húsgögn var fyrir hendi á verk-
stæðinu, til dæmis telst nám Jóns Halldórs-
sonar (1871-1943), snikkara í
Kaupmannahöfn og Berlín í byrjun aldarinn-
ar, vera fyllilega sambærilegt við hönnunar-
nám á þeim tíma. Hann var jafnframt einn
helsti forgöngumaður iðnsýninga hér á landi
og á iðnsýningum í Reykjavík árin 1911, 1924
og 1932 voru húsgögn sérstaklega kynnt sem
innlend framleiðsla.
Árið 1999 var lögð fyrir húsaverndunar-
nefnd ríkisins álitsgerð um varðveislugildi
innréttinga Reykjavíkur Apóteks. Þar segir
m.a.: „... lyfjabúðarinnréttingin [hefur] sér-
stakt listsögulegt gildi þar sem hún er eina
heilsteypta innréttingin hér á landi með skýr-
um einkennum norrænnar klassíkur. Á það
jafnt við um rýmismynd hennar, húsgögn og
einstök útfærsluatriði. Til er fjöldi vinnuteikn-
inga af hendi Sigurðar er vitna um þann
óvenjulega metnað sem lagður var í úrlausn
verkefnisins."
Tengisf íslenskri myndlistarsögu
„Innréttingin er einstök í íslenskri hönnun-
arsögu og að mínu mati ein af þeim þremur
merkustu frá fyrri hluta þessarar aldar -
ásamt innviðum Safnahússins við Hverfisgötu
og Landsbankans í Austurstræti. Auk hönn-
unarsögulegs gildis tengist innréttingin ís-
lenskri myndlistarsögu vegna útskurðarverka
Ásmundar Sveinssonar og höggmynda Al-
berts Thorvaldsen sem þar var ætlaður stað-
ur, en þær prýddu í upphafi gamla apótekið
við Austurvöll. Þá er innréttingin merkur
vitnisburður um íslenskt handverk síns tíma,
en öll vinna við hana var unnin af íslenskum
iðnaðarmönnum" (úr álitsgerð til húsafriðun-
arnefndar ríkisins um varðveislugildi innrétt-
ingar Reykjavíkur Apóteks, 26. febrúar 1999).
Hönnuður barsins As.tr.o, Miehael Young,
er breskur hönnuður sem býr og starfar í
Reykjavík. Færni og fagmennska íslenskra
iðnaðai-manna, sérstaklega í meðferð steypu
og stáls, hafði áhrif á hugmyndavinnu hönnuð-
arins. Við hugmyndavinnu gætti einnig áhrifa
íslenskrar náttúru og á hönnunin að gefa gest-
um staðarins tilfinningu fyrir nokkurs konar
samblandi af inni- og útiveru, líkt og sund-
laugargestum á íslenskum jarðhitasvæðum.
Samtvinnuð rými (Spatial Alliance) er
masters-verkefni í arkitektúr við Arehitectur-
al Association í London unnið á tímabilinu
1998-2000. Freyr Frostason er arkitekt þess.
Meðhöfundar: Emmanuel Bringer og David J.
Gerber („Micro.Soft.Surf1). Leiðbeinendur:
Brett Steele og Patrik Schumacher.
Þetta lokaverkefni var unnið í hóp ofantal-
inna höfunda fyrir M.Arch.-gráðu við Archi-
tectural Association í Lundúnum 1998-2000.
Höfuðáherslur vinnustofunnar eru að sam-
tvinna rannsóknir og hönnun með því að koma
nýjum hugmyndum um hönnunarferli á fram-
færi. Ástæðan eru þær nýju forsendur sem
myndast hafa vegna nýs umhverfis, hraðra
breytinga og nýrrar tækni.
Vettvangur verkefnisins var óbyggt svæði
milli King’s Cross- og St. Pancras-lestar-
stöðvanna í miðborg Lundúna. Takmarkið var
að skipuleggja viðskiptahverfi nýrra ört vax-
andi tæknifyrirtækja sem vaxa út frá stærri
tölvu- og fjarskiptafyrirtækjum. Áhersla var
lögð á bein tengsl milli höfuðstöðvanna í út-
hverfum og smærri eininga fyrirtækjanna í
miðborginni með góðu aðgengi að lestarkerfi
borgarinnar. Innra skipulag viðskiptakjarn-
ans var sótt í gagnagrunn eftir ýtarlegt rann-
sóknarferli á uppbyggingu Microsoft UK
(Bretland) og samvinnu þess við önnur fyrir-
tæki eins og British Telecom, NTL, World-
com, o.fl. Þessi stóru fyrirtæki á sviðum tölvu-
tækni, hugbúnaðar og fjarskipta mynda
smærri einingar sem vilja vera miðsvæðis í
Lundúnum og vinna saman á mismunandi
hátt. Hönnun rýmis og skipulagi þess var svo
stjórnað af mismiklum og mismunandi tengsl-
um þessara samstarfsfyrirtækja. Allt verk-
efnið var unnið í tölvu þar sem ýmis tölfræði-
forrit voru notuð til að mynda gagnagrunn
sem mótaði svo alla hönnunina.
Höfundur er kennari í grafískri hönnun við
Listahóskóla íslands.
RÚNAR
KRISTJÁNSSON
EINAR
BENEDIKTS-
SON DEYR
Er dagurinn mikli sín dómsorð
kallar
ídísarhöll hljóma bumburallar
oggamalt lag upp við Grettis-
bæli
grípursál sem við Tempsárós!
Þá slær um Asbyrgi og Elivoga
og yfir hnattasund björtum
loga,
því undir stjörnum er eilíft hæli
er eldar kvikna við norðurljós!
En tengdir hafís og Hljóða-
klettum
og haugaeldum og Fróðár-
glettum,
frá Skútahrauni í skýjaferðum
skáldmenn Islands á flugi sjást!
Við drunur þungarfrá Detti-
fossi,
í dánarstefi og móðurkossi,
er frelsið heiðrað með heilum
gerðum
oghelgað brennandi sonarást!
I þokusól gegnum þrúguhöfga
enn þrumar væringinn stefíð
göfga,
í skugga hverfur þá skriflabúðin
er skamman tíma við bjarkir
stóð!
En sálin mikla að lausnarlandi
sitt loftfar tekur á Stórasandi.
I draumi ljóshirðar siglir súðin
til suðurhafs undir röðulglóð!
Höfundurinn býró Skagaströnd.
Undirtitill Ijóðsins er:
Herdísarvík 12. jan. 1940.
STEINUNN
FINNBOGADÓTTIR
LINDIN
BLÁ
Dimmblátt af dropum og
tárum
er djúp hinnai' hljóðu lindar.
Ung - en þó aldin að árum
andlit fegurstu myndar.
Hún brosir um bjartar nætur
við blikandi stjörnu her,
oggefur öllu gætur
sem gott og fagurt er.
Hún hefur svo oft heyrt óminn
og eignast þeirra mynd,
sem unna og elska hljóminn
er aðrir kalla synd.
Hún myndir og minningar
geymir
meitlað í gullinn stein.
í hyldýpi hana dreymir
um harma og gróin mein.
Finni hún tárin falla
í faðm sinn, hin tæra lind.
Örsmáar öldur kalla
upplifðu fagra mynd.
Höfundur er Ijósmóðir og lyrrverandi
borgarfulltrúi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 7. OKTÓBER 2000 5