Tíminn - 25.11.1966, Page 3
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 1966
TÍRfllNN
I SPEGLITIMANS
Reita Faria, sem kjörinn var
Miss World íyrir skemmstu
hefur nú ákvéðið að dveljast
nokkurn tíma áfram í Eng-
landi þar sem hún
að eigin sögn býst ekki
við því að fá aftur tækifæri
til þess að sjá ýmsa merkis-
staði í London.
Fröken Faria, sem er lækna-
stúdent sagðist einnig vona að
hún gæti fengið að fresta loka
prófi sánu.
Flóðunum miklu á Ítalíu er
nú farið að linna og eru íbúar
Flórens farnir að geta lifað
sínu fyrra lí'fi, og hefur nú
verið gefin út tilkynning þess
efnis, að óperuárið hefjist nú
27._ nóvember.
í Feneyjum hafa flóð þess
haft eitt gott í för með sér.
Rottumar þar í borg hafa
drukknað. Margar þeirra voru
svo stórar að kettirnir voiu
hræddir við þær.
Enskir leynilögreglumenn
eru nú að rannsaka mál, sem
risið hefur vegna unglinga
dansleiks, sem haldinn. var ný
lega í ensku borginni Bishop
Stortford. Víðs vegar um borg
ina hafði verið komið fyrir aug
lýsingasjpöldum, þar sem sagt
Þessi hárprúði ungi maður
er bandaríski rocksöngvarinn
Little Richard og er myndin
tekn á blaðamannafundi í
London fyrir skemmstu en þar
var Little Richard að halda
söngskemmtun.
var, að Gerry and the Pace
makers mundu leika á dans
leik í einu samkomuhúsi borg
arinnar. Yfir 400 ungling
ar þyrptust á staðinn og
greiddu hátt verð í aðgangs
eyri, — en komust fljótlega að
raun um, að þeir höfðu verdð
gabbaðir. Dansmúsík var að
eins leikin af plötum á staðnum
og þetta hafði þau áhrif, að
ungúngamir urðu yfir sig reið
ir, mölvuðu allt og brutu inn-
anhúss og síðan komust þeir í
brunahana, og sprautuðu vatni
inn í húsið. Einnig var ráðizt
á heimili borgarstjórans, þar
sem unglingar álitu rang-
lega, að hann hefði staðið fyrir
dansleiknum. Gerry og félagar
hans eru leiðir vegna þessa at-
burðar, en eitthvað hafði ver-
ið rætt við umboðsmann þeirra
um að leika á staðnum, en
samningar aldrei undirritaðir.
: A '
Forstöðumenn rannsóknar-
stofnunar nokkurrar í Buffalo
hafa hvað eftir annað reynt að
fá mýs til þess að anda áð sér
sígarettureyk en án árangurs.
Tilraunina átti að gera til þess
að genga úr skugga um hvaða
áhrif sígarettureykur hefði á
lungnavef og voru nokkrar mýs
settar í glerbúr sem tilrauna-
dýr, en í hvert sinn sem síga-
rettureyknum var blásið inn i
búrið hlupu mýsnar alltaf út
í horn og sneru sér undan
reyknum eða þær lögðust flat
ar til þess að geta andað að
sér fersku lofti. Eftir nokiírar
misheppnaðar tilraunir ákváðu
forráðamenn stofnunarinnar að
gabba mýsnar með því að gefa
þeim deyfilyf og láta þær anda
að sér sígarettureyk sofandi,
en það heppnaðist ekki heldur
því að um leið og reyknum
var blásið inn til þeirra hættu
þær að draga andann.
Tuttugasta og annan nóvem
ber síðastliðin voru liðin þrjú
ár frá því að Kennedy Banda-
ríkjaforseti var myrtur í Dallas
Texas. Þennan dag streymdi
fjöldi fólks ,að gröf forsetans
í Arlingtonkirkjugarðinn til
þess að heiðra minningu for-
setans. Hér á myndinni sjáum
við systur hins látna íorseta
frú Eugene Shriver ásamt eigin
manni sínum og þrem börnum
þar sem þau krjúpa við gröf
forsetans.
Á VÍÐAVANGI
„Stökkbreyting"
Þjóðviljinn vill endilega gera
kosningasigur Sósíalistiska þjóð
flokksins, flokks Axels Larsens,
í Danmörku að sínum sigri og
heitir forystugrein hans í gær
„Stökkbreyting“. Segir Þjóð-
viljinn, að á síðustu árum hafi
orðið athyglisverðar breytingar
í stjórnmálum Evrópu, og kjós
endur og stjórnmálaflokkar hafi
með ýmsum hætti gert upp við
horf sín. Á Norðurlöndum hafi
slíkar breytingar einnig orðið,
og það sé staðreynd, að róttæk
ir, sósíalistiskir flokkar séu I
sókn. Síðan segir Þjóðviljinn;
„Hámarki sínu náði þessi at-
burðarrás með stórsigri Sósxal
istíska alþýðuflokksins í Dan-
mörku í kosningunum í fyrra
dag; var þar um að r«ða stökk
breytingu, flokkurinn meira en
tvöfaldaði atkvæðatölu sínj og
jók þingmannafjölda sinn úr
10 í 20. Þau málalok vori
þeim mun athyglisverðari sein
kosningarnar voru gerðar að
átökuim um það hvort á þingi
Dana ætti að verða meirihluti
verkalýðsflokka eða borgara-
flokka, og sósíaldemókratar
& breyttu fyrri kredduafstöðu
| sinni og lýstu vilja sfnum til
§ samvinnu við Sósíalistíska al-
I þýðuflokkinn. Kjósendur veittu
þessum tveimur flokkum meiri
hluta á þingi, enda þótt þing.
mönnum sósíaldennókrata fækk
aði um sjö.
Einnig hér á íslandi hefur
verið Ijóst um skeið að kjós-
endur' eru að brjóta af sér hin
stöðnuðu viðhorf kalda stríðs
ins, einnig hér eru stjórnmál
in i deiglunni. Kosningasigur
Alþýðubandalagsins í bæjar-
stjórnarkosningunum fyrr á
þessu ári var óræk vísbending
um það að einnig hér má vænta
stökkbreytingar til vinstri í
næstu kosningum.“
Kommúnistar dragbít-
urinn hér
Þannig vill Þjóðviljinn telja
fólki trú um, að svipuð stökk-
breyting sé í vændum hjá ís-
lenzkum kommúnistum og
flokki Axels Larsens í Dan-
mörku. En það er hlægileg ósk
hyggja, eins og allar staðreynú
ir sýna ljóslega. Axel Larsen
sleit alveg böndin, sem tengdu
hann við kommúnista, hafnaði
Moskvu-leiðsögn 0g útskufaði
- Moskvukommúnistum hrein-
lega úr flokki sínum. Hann
í sagði sem sagt skilið við konrni
| únista og stofnaði raunverulegt
ÍAlþýðubandalag án þeirra.
Hér á landi hafa farið fram
ýmsar tilraunir í svipaða átt.
Ýmsir Alþýðubandalagsmetin,
sem ekki eru kommúnistar hata
viljað losa Alþýðubandalagið ur
klóm kommúnista og gera það
að raunverulegum stjórnmála
flokki án húsbóndavalds komm
únista.
Nú er einmitt nýlokið þingi
Alþýðubandalagsmanna scm
beinlínis var haldið til þess að
fá úr þessu skorið, og það fór
á þá lund, að kommúnistar
höfðu þar öll ráð í hendi sér,
komu f veg fyrir raunverulega
flokksstofnun og hafa eftir sem
áður öll völd.
Þarna skildi alveg á milli
hins svokallaða íslenzka Al-
þýðubandalags og flokks Axels
Larsens, og það gerir allan
gæfumuninn. Axel Larsen sagði
skilið við kommúnista og vék
þeim brott. Flokkur hans náði
stökkbreytingunnj vegna þess.
Framhald á bls.'T2.
J