Tíminn - 25.11.1966, Blaðsíða 13
1
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 196S
SÞRÓTTIR
TÍMIWN
js
„Einræöisherrann" veröur
að taka djarfa ákvörðun
- eftir furðulega lélega frammistöðu landsliðsins í gærkv.
Alf—Reykjavík. — f gærkvöldi
fengu íslenzkir handknattleiks-
menn löðrung svo a'ð um munaði.
fslenzka tilraunalahdsliðið tapaði
fyrir þýzka liðinu Oppum Krefeld
með sjö marka mun, 18:25 og
sýndi þann lélegasta handknattleik
sem ísl. úrvalslið hefui sýnt í
langan tíma. Maður er furðu lost
inn yfir þessum úrslitum, einkum,
þegar það er haft í huga, að tvö
beztu félagslið okkar. FH og Fram
rassskelltu Þjóðverj.'^a í tveimur
fyrstu leikjunum Úrvalsliðlð náði
hreinlega ekki saman í gærkvöldi
og ástandið er mjög alvarlegt, þar
sem örstutt er í landsleildna við
Vestur-Þýzkaland. „Einræðisherr
ann” Sigurður Jónsson, er ekki í
öfundsverðri aðstöðu, því að flest
ir okkar beztu handknattleiksmenn
léku með liðinu nema Ingólfur
Óskarsson og Sigurður Einarsson
og því í sjálfu sér litlu hægt að
breyta, ef liðið á að vera skipað
mönnum frá mörgum félögum.
Sigurður Jónsson verður að taka
skjóta og djarfa ákvörðun. Það
hefur sýnt sig, að úrvalslið í hand
knaittleik, skipuð leikmönnum úr
mörgum félögum, ná ekki eins vel
saman og beztu félagalið okkar.
Nú er engu að tapa, því ekki velja
annað hvort FH-Iiðið eða Fram-lið
ið með örlitlum breytingum sem
landslið?
Um leikinn í gærkvöldi vil ég
hafa sem fæst orð hann var háð
ung fyrir ísl. handknattleik. FH
vann þetta þýzka lið með gífurleg
um hraða — Fram vann það með
taktiskum leik — en úrvalsliðið í
gærkvöldi bauð hvorki upp á takt
iskan leik né hraða. Það var þv>
ekki von á góðu ,og ekki bætti úr
skák, að vörnin var mjög léleg,
og sömuleiðis báðir markverðimir
Þorsteinn og Sveinbjörn. í hálf-
leik var staðan 13:6 Þjóðverjum í
vil, en lokatölur urðu 25:18.
Þjóðverjarnir voru mun prúð
ari en í fyrri leikjum og sýndu
sinn langbezta leik.
Magnús Pétursson dæmdi leik-
inn mjög vel.
T rúlof unarhringar
afgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HALLDÓR,
Skólavörðustíg 2.
ALLT Á SAMA STAÐ
ÞVOTTAKÚSTAR
LOFTDÆLUR
FELGULYKLAR
LOFTMÆLAR
STJÖRNULYKLAR
SKIPTILYKLAR
SKRÚFJÁRN
SENDUM GEGN
PÓSTKRÖFU
EGILL VILHJÁLMSSON H.F.,
Lagavegi 118, sími 2-22-40.
OLIUSTOÐIN I
HAFNARFIRÐI H.F.
óskar eftir að ráða bifvélavirkja eða mann vanan
bifreiðaviðgerðum.
Upplýsingar í síma 500-57.
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóSa upp
á annað hundrað tcgundir skápa og iitaúr-
val. Allir skápar með baki. og borðplata scr-
smíðuff. Eldhúsið fæst mcð hljóðeinangruð-
um stálvaski og raftækjum af vönduðustu
gcrð. - Scndið cða komið mcð mál af cldhús-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt vcrð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum frá Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmála og ’ ~
lækkið byggingakostnaðinn.
lliEFF
f RAFTÆ Kl
HÚS & SKIP hf.
LAUGAVEGI II • SIMI 21511
Þýzkar
telpnakápur
ELFUR
Skólavörðustig 13.
Snorrabraut 38.
HÚSBYGGJENDUR
Smfðum svefnherergis-
og eldhúsinnréttingar.
SlMI 32-2-52.
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaSur,
Austurstrœti 6,
simi 18783.
MALNINGAR-
VINNA
Málarar geta bætt við sig
vinnu.
Sími 21024
Nýja Lada saumavélin
132-3 og 132-4
0 Gerir saumaskapinn auðveldan og léttan.
0 Hefur frjálsan arm og nýjan skytfuútbúnaS.
0 Gerir meðal annars þetta:
Munstursaumar
Zig-Zag-saumar
Gerir Hnappagöt
og stoppar í.
0 Ódýrasta vélin á markaðnum, — tvær gerSir.
• Kostar kr. 4.950,00 og 5.650,00
0 Eins árs ábyrgð.
0 Kennsla.
0 Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta*
0 Hyggin kona velúr LADA.
^Sw/r/ur órtsson
HVERFISG.ÖTU 37 . REYKJAVÍK . SÍMI 18994
Framtíðin byrjar í dag
Vér óskum að ráða tvo menu til starfa við við-
gerðaþjónustu IBM-rafritvéla.
Engra sérstaka prófa er krafizt en menn, sem
áður hafa unnið hvers konar viðgerðarstörf og/eða
hafa undirstöðumei^ntun í rafmagnsfræðum, ganga
fyrir öðrum.
Viðkomandi skulu vera á aldrinum 20—27 ára,
hafa lokið skyldunámi og hafa nokkra enskukunn-
áttu. Háttvísi, snyrtimennska og reglusemi eru
einnig skilyrði, þar sem vér leggjum áherzlu á
að gefa viðskiptavinum vorum fyrsta flokks þjón-
I ustu.
Þeir, sem ráðnir verða, munu fá fullkomna þjálf-
un í viðgerðum og viðhaldi IBM rafritvéla, á fullu
kaupi.
Ef þér hafið áhuga á góðri framtíðarvinnu, og telj-
ið yður að fylla ofannefnd skilyrði, þá látið ekki
dragast að leggja inn umsókn.
Upplýsingar verða ekki gefnar í síma, en umsókn-
areyðublöð fást á skrifstofu vorri.
Íjíe;
á Islandi
Ottó A. Michelsen
KLAPPARSTÍG 25—27, PÓSTHÓLF 377.