Tíminn - 25.11.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.11.1966, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 1966 TÍMINN Síldarskýrsla Fiskifélagsins Síldveiðarnar norðanlands og aust an vikuna 13. nóv. til 19- nóv. 1966. í vikubyrjun var gott veður á miðunum og fengn þá mörg skip góða veiði 60—70 sjóm. ÁSA frá Dalatanga. Á þriðjudag var komin NA bræla með snjókomu á mið- unum og engir bátar úti en á mið vikudag lygndi og fóru þá bátarn ir að éíaast út og fengu margir góða veiði 60 sjóm. SA af Dala- tanga. Síðdegis á fimmtudag hvessti af S og flestir bátanna fóru til lands, og til vikuloka var S stormur á miðunum og allur flotinn í höfn. Margir bátar sigldu með afla sinn til Vestmannaeyja og hafna SV-lands í vikunni og nam sá afii 2.755 lestum. Ekki liggja endanlega fyrir töl- ur um nýtingu aflans eftir verk- unaraðferðum, en reiknað er með að 80% aflans hafi farið til verk unar. Af aflanuim var saltað í 5.100 tn. og í frystingu hafa þá væntanlega farið 1.608 lestir og til bræðslu 402 lestir. Heildaraflinn, sem barst á land Siglufjörður 25.268 ÓlafsfjÖrður 6.607 Hjalteyri 10.006 Krossanes 16.240 Húsavík 4.260 Raufarhöfn 53.606 Þórshöfn 2.313 Bakkafjörður 1.359 Vopnafjörður 36.135 Borgarfjörður 7.971 Neskaupstaður 91.448 Eskifjörður 66914 Reyðarfjörður 36.171 Fáskrúðsfjörður 32.928 Stöðvarfjörður 9.258 Breiðdalsvík 8.246 Djúpivogur 11.715 Vestmannaeyjar 4.729 Keflavík 1.001 Seyðisfjörður Síldarskýrsla. 148.699 Síldveiðarnar norðanlands og austan til laugardagskvölds 19. nóv. 1966. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Fiskifélaginu hafa borizt eru 185 skip búin að fá einhvern afla á síldveiðunum norðanlands og Framhaio á bls l/ Ég hygg, að flestir hafi ver- ið mjög ánægðir með sjónvarps dagskrána í gær. Fróðlegt var að sjá, sænska þáttinn um skemmtanalíf á íslandi, enda þótt deila megi um, hvort Sví- ar hafi dregið þarna upp rétta mynd af því. En sagan er ekki úti enn, Svíar gerðu annan þátt um skemmtanir okkar, og að sögn fróðra manna, er sá sýnu verri. Væntanlega fáum við einnig að sjá hann áður en langt um líður. Kvikmyndin Stríð við grjót var atihyglisverð og vel gerð, og gaman væri að fá meira af slíku efni. Og ekki er hægt að rœða um sl. dagskrá án þess að minnast lítils háttar á auglýsingakvikmyndina fyrir Herrahúsið, hún var bráðsnjöll og skemmtileg og eflaust verð ur hún til þess að viðskipli við Herrahúsið stóraukast. Og það mætti gera miklu meira af því að útbúa svona myndir fyrir sjónvarpið. I kvöld fáum við í fyrsta skipti að sjá innlendar frétt- ir í sjónvarpi. Þátturinn sá hefur hlotið nafnið úr borg og byggð, og meiningin er að gera þar dreifbýlinu ekki síð- ur skil en Stór-Reykjavík. Sjón varpið hefur komið sér upp þéttriðnu og eiginlega tvö földu fréttaritarakerfi úti um land þ.e.a.s. í hverju meiri háttar byggðarlagi er einn fréttaritari og einnig kvik- myndatökumaður fyrir sjón- varpið. Voru þessir menn á námskeiði hjá sjónvarpinu, í haust, stóðu sig prýðilega og hafa þegar sent nokkrar frétta kvikmyndir frá sínum byggð arlögum. Sem sagt kl._ 20 í kvöld hefst þátturinn Úr borg og byggð, og þá fáum við að sjá ýmisleg fréttnæm atvik úr borg og byggð. Á eftir þessum þætti kemur 10 mínútna íþróttaþáttur. Kl. 20.30 hefst svo þáttur- í vikunni nam 21.503 lestum, þar af fóru 1-981 lest í frystingu og saltað var í 8.913 tunnur. Heildaraflinn í vikulok var orð- inn 619.210 lestir og skiptist þann ig eftir verkunaraðferðum: í frystingu 10,404 lestir, í h'-æðslu 550.915 lestir, í salt 57. 881 lestir. Auk þess hafa erl. skip land- að 4.829 lestum hérlendis til vinnslu. Á sama tíma í fyrra nam heild- araflinn 495.394 lestum og skipt- ist þannig eftir verkunaraðferð um: í salt 58.647 lestir, í frystingu 3.964 lestir, í bræðslu 432.783 lest ir. Helztu löndunarstaðir eru þess- ir: Reýkjavík 37.337 Bolungarvík 6.850 r Kvöldvaka F.l. Ferðafélag íslands hélt kvöld- vöku í Sigtúni sunnudagskvöldið 20. nóvember síðastliðinn. Húsið var þéttskipað að venju, því að kvöldvökur Ferðafélagsins hafa lengi verið sérlega vinsælar. For- maður félagsins, Sigurður Jo- hannsson vegamálastjóri, setti samkomuna með nokkrum orðum og gaf síðan dr. Sigurði Þórarins- syni jarðfræðingi orðið. Sigurður talað um Surtseyjargosð og ent- ist honum umræðuefnið á annan klukkutíma, og lýsti gosinu frá byrjun og sagði sögu nokkurra smáeyja, sem skutu upp kollinum og hurfu síðan aftur. Hann sýndi einnig myndir af gosinu og jurta- og fuglalífi, sem freistaði land- göngu, þegar færi gafst. Sgurður kom víða við í fyrirlestrinum og benti m.a. á mögulegt samband milli Surtseyjargossins og Heklu gosanna og gat þess til að fjand- inn hafi haldið upp á 2C ára af- mæli síðasta Heklugoss með Surts eyjargosinu. Sigurður blandaði vísum og kveðlingum inn í ræðu sína, en gerði aldrei grein fyrir faðern inu. og féll því nokkur grunur á, að liann hafi eitthvað verið við þær riðinn. Kvöldvökur eins og þessi eru hvort tveggja í senn fræðandi og til -íkemmtunar, svo að flestir foru heim bæði ánægðari og upp- lýstan en áður. Kvæði geta með mörgum hætti verið ágæt. Listin hefur svo rúmt svið. Ekki get ég þó að því gert. að mikilsvert finnst mér, að kvæði séu skilmerkileg, rétt stuðluð og vel rímuð, án þess að þvingað sé tungutakið, svo á beri. Þessa kosti hafa í ríkum mæli kvæðin í hinni nýútkomnu ljóðabók Heiðreks Guð mundssonar frá Sandi. Skáld þetta fer í þessari bók sinni svo léttilega á vegum stuðla og rjms með vandorðaðar hugs- anir og frásagnir atburða, að nautn er á að horfa, eins og ör- uggan mann að fimleikum. Þó er hér ekki um sýndarleik í orðum að ræða, því höfundurinn er til- finningaríkur alvöiumaður, sem að víisu bregður stundum fyrir sig háðiblandinni gamansemi til áherzlu. Eitt kvæðanna í bókinni heitir Lífstrú. Ég bendi á það sem dæmi um vald skáldsins á ljóðbundnu máli og skemmtilega og glögga lýsingu á óvenjulegum lífstrúar- manni, — manni, sem frá al- mennu sjónarmiði, var langt úr hófi fram bjar tsýnn: Hann bar sig vel. en bjó í koti smáh, og brosað var að gorti hans í laumi. En engum léttar hugur bió í brjósti, po hiutur væri smár og tiðin köld. En þangað heim svo greiðar götur lágu, að gæðing mátti ríða lausum taumi. Hann spáði jafnan hláfcu í hríð argjósti, og höpp sin taidi fram, en ekki gjöld. Hann brosti að þeim, er þóttust sannað geta að þarna mundí ‘ann ekki fljóta lengur. í góðri tíð hann græða kvaðst og spara, er gekk á beit um vetur lítil hjörð. Þeir kunnu aldrei eignir hans að meta- Hvert ungabarn var mesti happa fengur. Er fönnin hlóðst á kotið kýmdi ‘ann bara: — Nú kelur ekki mína góðu jörð. Hann sagði, þegar sól skein hátt og lengi, unz sviðnað höfðu í túni þúfna- kollar og sunnanvindar sveigðu guln- uð stráin, er sogið höfðu rakann niðrl grjót: Nú sprettur vel á votu mýrar- engi, og vefjast grasi djúpir lautar- bollar. — Svo hló hann glatt og brýndi betur ijáinn, því bitið fór, ef eggin snerti rót. Er sumarblómin voru að fölna og falla, og flæddi regn, svo draup i hús- um inm. en fúlgur stóðu í vatni út um eng’ og ekki nokkur sál með gleði- b Cxg, ég gekk í hlað og heyrði bónd- ann kalla með hlýjum rómi út úr smiðju sinni, Hve gott er nú að geu næði fengið að gera loks við amboð sín í dag — Og er ég síðast vék á veg með honum skein vestursól í austurhiíðum • miðjum. Á leiðarenda, loks með fáum orðum. hann lýsti því, sem dýpst i huga bjó- Ég lifði bara á lífstrú minni og vonum, unz lét ég allt i hendur mínum niðjum. Þeir eiga það, sem okkur skortí forðum, en ekki hitt, sem mestu skiptir þó. Helðrekur Guðmundsson Gestur heitir myndrænt kvæði. sem segir frá átakanlegri reynslu skáldsins sjálfs, foreldra þess og heimilis: Þann dag var ég hljóður og angist mín innibyrgð. En úti var stormur, sem mokaði fönn á skjáinn. í baðstofukytmmni biðum við frétta af því, hvort bróðit minn syðra lifði, eða væri dáinn. Og aldrei leið nokkur annar dag ur svo hægt í óttablandinni von eftir nýjum frsgnum. Hin einasta trygging að tíminn stæði ekki kvrr, var tifið í gamalli klukku, sem hékk á veggnum. Og mamma lét skýluna slúta og vægðarláust vann, en venjuíremur ókyrr &e lotin í sæti. Og pabbi beit tönnunum saman og gekk um gólf, svo gisnar fjalirnar brökuðu undti fæti. — Svo nálgaðist kvöldið og kvíði minn vaxandi íór og klukkunnar slög urðu þyngri er leið á daginn. 9 Hannibal Valdimarsson inn Blaðamannafundur, og að þessu sinni er það Hannibal Valdimarsson forseti ALþýðu- sambands íslands, sem svarar spurningum blaðamannanna Styrmis Gunnarssonar og Ás Framhald a t>is 1' -- -............- - - B Loks ýlfraði Sámur. Úti marr aði í snjo Svo opnaðist hurðin, — og Dauð inn gekk inn í bæinn. Hverju er það að þakka að ekk- ert vantar í þessa djúptæku sögu, 'þótt hún sé aðeins 16 ljóðlinur? Það er listinni að þakka. Rökkurrima er tíu hringhend- ur kveðnar af íþrótt máls og myndarlegu skapi. Þetta er seinni helmingur rimunnar: Stjórnin rann frá stórum orðum Sterkum granna lúta smár niðjar manna, er flúðu forðuni frelsis bann og kommgsrán Valdsmenn gleyma eðli ofekar. er þá dreymir vopn og her Vestur í heimi vígabokkar vefja þeim um fingur sér Margur flytur fagrar ræður, friðarslitum veldur þó Firrtir viti berjast bræður, blóði lita jörð og sjó- Verðir dotta, dansar trúður, dyggir vottar standa á önd Dúsu totta tæknibrúður. Tekur í spotta fjarlæg hönd. Gullið lokkar, sæmdin siður. Senn er okkar brostin von Geyst í flokki gráu ríðuj gissur nokkur Þorvaldsson. Siðasta kvæði bókarinnax hefur að fyrirsögn: Börn jarðar og er um náttúrlegt líf í skauti byggð- anna, sem mannanna kyn yfirgef ur a-m.k. nú um sinn tii þess að hópast saman. Kvæðið endar á þessum ljóðlínum Ef eldurinn kviknar i óvitans hand og eitrast vor þéttbýlis gróður að lokum snýr fólkið af flótt- anum heim í fang sinnar ástríku móð'ir í bókinni eru 45 kvæði. Hín er snyrtilega útgefin njá Békaút- gáfunni Sindur h.f. á Akureyri. Ég vona að framanskráð kynn- ing nægi til að sýna að Mann Iieimar er bók, sem allir, er kvæða gerð kunna að meta, eiga að lesa. H. Slg. Karl Kristjánsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.