Vísir - 29.05.1975, Qupperneq 2
2
Vísir. Fimmtudagur 29. mai 1975
nsnm
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Hver er vinsælasti is
lenzki leikarinn?
Stefania Þorvaldsdóttir: bókbind-
ari. Bessi Bjarnason. Ég held
langmest upp á hann.
Páll ólafsson, bóndi: Róbert er
vinsælastur. Mér finnst hann lang
skemmtilegastur af þeim.
Astvaldur Guðmundsson, hár-
skeri: Ja, nú veit ég ekki. Og þó.
Bessi Bjamason er vinsælastur.
Björn Björnsson, bifvélavirki:
Róbert Arnfinnsson held ég. Ég
hef reyndar ekki séö mjög mikið
með honum, en þó nokkuð.
Kristinn ólafsson, nemi: Bessi
Bjarnason. Ég hef séð hann leika
I hinum og þessum leikritum.
Gunnar S. Gunnarsson, verka-
maöur: Guð minn almáttugur!
Bessi Bjarnason held ég. Ég hef
séð hann i nokkrum leikritum.
Þess vegna er kirkju-
sókn orðin svona lítil
safnaðanna. Raunar hafa
sprottið upp alls konar gervi-
trúarflokkar, sem hafa aðeins
verið tizkufyrirbrigði og ungt
fólk hefur þvi flykkzt i, likt og
allir fengu sér þröngar galla-
buxur til að tolla i tlzkunni.
Ég sagði, að kirkjusókn væri
litíl, en hún er samt nokkur.
Hvaða fdlk er það þá, er sækir
kirkjurnar? Farir þú i kirkju
munt þú ekki sjá ungt fólk, ung
hjón með barnið sitt, nei, þú
munt sjá hóp gamalmenna, sem
veit að „brottfarardagur” er i
nánd og sér ekkert ráð vænna en
að sækja kirkju á „lokasprettin-
um”, eftir að hafa vanrækt það
nær alla sina ævi. Þegar einn og
einn unglingur sést i kirkju,
horfir þetta fólk á hann undrun-
araugum, sem greinilega
spyrja: — Hvað er svo ungur
maður að gera I kirkju? Svo
sjaldan fer ungt fólk I kirkju.
Hvers vegna er kirkjusókn
orðin jafn litil og raun ber vitni?
Hér hljóta einhverjar ástæður
aö liggja að baki. Það er
staðreynd, að nú á seinni árum
aðallega og raunar alltaf hafa
innritazt I Guðfræðideild menn,
sem þangað hafa ekki átt neitt
erindi. Menn, sem ekki hafa þá
sannfæringu eða hugsun, sem
nauðsynlegt er að prestar hafi
til að bera.Samtná þessirmenn
i prestsembætti og sitja þar svo
lengi sem þeir vilja en það sem
þeir fá áorkað f söfnuðum sinum
vill oft verða anzi litið.
Prestar flytja predikanir
slnar á háfleygu máli, yfir-
borðskenndu og skreyttu máli,
máli sem þeim er alls ekki tamt
að nota i hinu daglega lifi.
Þannig uppbyggðar prédikanir
ná sjaldnast eyrum áheyrenda,
heldur hjálpa til ásamt fleiru
við að svæfa þá. Söngurinn i
kirkjum vorum er þannig, að
ekki er nokkur vegur fyrir
kirkjugesti að taka undir enda
hef ég ekki ennþá komið i þá
kirkju þar sem kirkjugestir
hafa tekið undir i söngnum svo
einhverju nemi. Fari menn I
Filadelfiu heyra þeir söng, sem
er lifandi og skemmtilegur og
hreinlega hrifur fólk með sér,
þannig á söngurinn að vera.
Það er alvarlegt, að kirkju-
sókn fari minnkandi, en það er
þó enn alvarlegra að farið er að
lita á helgustu athafnir
kirkjunnar sem innantóma
skemmtun eða eitthvað ennþá
ómerkilegra. Börn eru skirð.
Hvað skyldu vera margir, sem
ekki láta skira börn sin af
gömlum vana, eða vegna þess
að aðrir gera það og þvi sé sjálf-
sagt að gera slikt hið saman, en
gleymi algjörlega að hugsa um
tilgang skirnarinnar.Fermingin
er raunar orðin hreint hlægileg .
Börnin hugsa aðeins um að fá
sem mestar gjafir, og svo rifast
foreldrarnir um hver hafi átt
barnið, sem mest fékk, en að
hugsað sé um tilgang ferming-
arinnar, það er aukaatriði.
Hverjir bera sökina á þvi
hvernig komið er fyrir kristin-
dómi vorum? Þvi er auðvelt að
svara. Þar koma aðeins
prestarnir og yfirvald
kirkjunnar til greina, ásamt
okkur sjálfum. Sagt er að alls
konar misferli hafi veriö beitt
við prestskosningar, þó sérstak-
lega hér I Reykjavik og það
liggur I augum uppi, að slikt
dregur úr trausti þvi, sem al-
menningur ber til þessara
manna. Þetta sýnir aðeins að
þeir, sem fara með yfirstjóm
kirkjumála, hafa ekki þann
þroska, sem þeim er nauðsyn-
legur til að gegna embættum
sinum með sóma.
Tillaga hefur verið lögð fram
á alþingi þess efnis, að alþingis-
menn skuli ekki gegna fleiri
embættum en þingmanns-
embættinu. Það hefði verið nær
að leggja fram tillögu þess
efnis, að prestar skuli aðeins
gegna sinu prestsembætti en
ekki stunda kennslustörf og
önnur störf samhliða prests-
embættinu. Það er eðlilegt, að
prestamir annist kristnifræði-
kennslu i skólum, en að þeir
gegni fullu kennarastarfi eins
og þeir gera oft, er fyrir neðan
allar hellur. Ef þessir menn
myndu gegna prestsembættinu
eins og þeir eiga að gera, þá
hefðu þeir ekki tima til að vera i
öðrum störfum samhliða. Það
er nefnilega það, að þessir menn
leggja ekki þá rækt við embætti
sin, sem þeim ber skylda til, og
fá laun samkvæmt. Þetta myndi
ekki lfðast hverjum sem væri.
Rétt er að taka það fram, að til
eru prestar, sem gegna sinu
starfi fullkomlega og láta sér
nægja eitt starf.
Það er vonandi, að kirkjunnar
menn og almenningur allur
vakni af þyrnirósarsvefni sin-
um og eitthvað verði gert til að
koma i veg fyrir, að prestar
verði i framtiðinni einu
áheyrendur að ræðum sinum.
Það eru til menn innan presta-
stéttarinnar, sem skilja, að hör
þarf að gera breytingar og við
verðum bara að vona, að þessir
menn finni, að nú er vitjunar-
timi þeirra kominn.”
Lesandi skrifar:
„Hinn lútersk evangeliska
kirkja er þjóðkirkja okkar Is-
lendinga. Innan hennar er yfir
90% þjóðarinnar. Tekjur
kirkjunnar eru aðallega
skattar, sem lagðir eru á al-
menning og er þetta allstór
upphæð, þegar saman er talið.
Betra væri og eðlilegra að
kirkjan fengi rekstrarfé sitt i
gegnum frjáls framlög frá al-
menningi meir en nú er.
Trúaráhuginn hefur verið
mismikill hjá þjóðinni allt frá
þvi árið 1000 er kristin kirkja
var hér lögleidd. Það geta lik-
lega allir verið sammála um, að
allmörg seinustu ár hefur hann
minnkað mjög, sem sést bezt á
þvi, að kirkjusókn er nánast
engin, ef tekið er tillit til stærðar
VINNUMARKAÐI
KLUKKUR SEM
MÁ TREYSTA?!
„Verkakona I vingaröinum”
skrifar:
„Úr þvi þeir voru að koma
upp þessu kirkjubákni á Skóla-
vöröuholtinu, væri þá ekki hægt
að hafa klukkurnar i turninum
réttar?
Hvað eftir annað gerist það að
maður fær sting i hjartastað,
þegar klukkurnar segja
manni ósatt til um raunveruleg-
an tima. Það er ekkert gaman
að mæta of seint i „vingarðinn”.
Klukkurnar virðast ýmist
vera of seinar, of fljótar, — eða
hreinlega stopp. Geta nú ekki
hinir ágætu stjórnendur Hall-
grfmskirkju séð um að klukk-
umar verði svo réttar að þeim
megi treysta?”
Rannveig Axelsdóttir símar:
„Sonur minn og annar strákur
til, báðir skólastrákar, höfðu
góðar vonir um að geta hitt
félaga sinn norður i landi og
unnið saman við Kröfluvirkjun i
sumar. Svo góðar voru vonirn-
ar, að þeir höfnuðu ágætu skips-
plássi.
Núna hringdu þeir norður, og
félagi þeirra hafði slæmar frétt-
ir að færa, — enga Sunnanmenn
takk! Þetta voru fyrirskipanir
þeirra, sem standa fyrir bygg-
ingaframkvæmdum þarna
nyrðra.
Nú vil ég spyrja: Er nokkur
ástæða til að endurvekja svona
hreppapólitik I okkar litla og fá-
menna landi? A kannski að
senda heim þá norðanmenn,
sem starfa i Reykjavik til að
rýma fyrir atvinnulausum
Reykvikingum ?
Mér finnst að svona lands-
hlutarembingur ætti ekki að lið-
ast. Unglingarnir ættu að fá að
fara á milli landshluta óáreittir
og fá að vinna þar og hafa sömu
réttindi og hverjir aðrir.”
LANDSHLUTA-
REMBINGUR Á