Alþýðublaðið - 18.02.1982, Qupperneq 1
Vatn á
kölska
myllu
Sjá leiðara bls. 3
Höfnum kaup-
lækkunarleiðinni
Gunnlaugur Stefánsson skrifar
um efnahagsmál
Verkamanna-
félagið Hlíf 75 ára
6-7 og 12
Deilur um Bæjar-
útgerðina í
Hafnarfirði
£
Prófkjör aðeins
viðhaft hjá
Alþýðuflokki
5
HAFNARFJOMHIRI KASTUOSI
f /
ALÞYDUBLAÐSINSI DAG
Flokksstjórn
Aljiýðuflokksins:
Brýnt að
samningar
um álverið
verði endur-
skoðaðir
Flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins fjallaði á mánudag siðast-
liðinn um málefni álversins i
Straumsvik. Fer samþykkt
stjórnarinnar hér á eftir:
Flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins telur brýnt að samn-
ingarnir um Alveríð i
Straumsevík verði endur-
skoðaðir og viö þá endur-
skoðun veröi lögð áherzla á
eftirtalin stefnumið:
1. Raforkuverð hækki þannig
að það verði i samræmi við
orkuverð frá nýjum virkj-
unum og sett verði i samn-
ing ákvæði sem tryggi að
svo verði i framtiðinni.
2. Skattaákvæði verði endur-
skoðuð með það að mark-
miði að skattar verði sem
minnst háðir ákvörðunum
eigenda um verðlag á
afurðum og hráefnum.
3. Sett verði i samning ákvæði
sem tryggi islensku rikis-
stjórninni eftirlits- og
ihlutunarrétt um málefni
fyrirtækisins.
4. Sett verði i samning ákvæði
um reglubundna endur-
skoðun samnings.
I samningaviðræðum
verður að halda á islenskum
málstaö af festu og framsýni.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
telur áriöandi aö yfir-
standandi deilumál Alversins
og rikisstjómarinnar verði til
lykta leidd sem fyrst, þannig
að samningar um ofantalin
meginatriði dragist ekki á
langinn.
Hallgrímur Pétursson, formaður Hlifar:
EFST I HUGA ÞAKKtÆTI TIL
ÞEIRRA KIARKMIKLtl MANNA,
SEM STOFNUDU FÉLAGIÐ
Það scm mér er efst i huga á
þessum timamótum er þakklætið
til þeirra manna, sem stóðu að
stofnun verkamannafélagsins
Hlifar i Hafnarfirði i upphafi. Það
voru engir meðalmenn, serti þar
voru á ferðinni, sagði Hallgrimur
Pétursson núverandi formaður
félagsins i viðtali við Alþýðublað-
ið i gær. Förgöngumenn félagsins
höfðu bæði kjart og þor til að beita
sér gegn atvinnurekendavaldinu,
sem leit á verkamenn þeirra daga
sem þræla sina, sagði hann.
Og ckki þarf að kvarta undan
atvinnuleysinu núna i Firðinum?
Nei, við höfum verið svo lán-
samir að vera lausir við atvinnu-
leysisbölið á undanförnum árum.
En það er styttra i atvinnuleysið
en margur heldur. Þegar
ástandið er oröið þannig að erfitt
er að selja ýmsar afurðir okkar á
erlendum mörkuðum vegna
þeirrar óðaveröbólgu, sem er aö
kollriöa öllu í þessu þjóðfélagi og
allir virðast standa úrræðalausir
gagnvart.
En hvað um starf almennra
félagsmanna i Hlif? Er mikið
virkt starf i félaginu?
Þvier ekki aö leyna, að nokkur
deyfð er i ifllu félagssttirfi. Þvi er
oft kennt um.aðþaðstafiaf alltof
löngum vinnudegi, en ég er
þeirrar skoöunar, að ástæðunnar
sé fyrst og fremst að leita í þeirri
staðreynd að áöur fyrr börðust
menn fyrir lifi sinu og tilveru og
liöu þó hungur. Þó við sveltum
ekki i dag, þá gera launin þó ekki
mdra en rétt að halda i okkur lif-
inu.
Við höfum reynt með margvís-
legum hætti aö vinna upp virkt
starf hins almenna félaga i
verkam annafélaginu Hlif.
Félagsmenn hafa leitað sér
ÚrslitJíosningaJ^iningu:
Listi Jóns Helgasonar
sigraði með yfirburðum
Stjórnarkjör i Verkaiýösfélag-
inu Einingu fór fram dagana 13.
og 14 febrúar og voru 2 listar i
kjöri: A-listi borinn fram af frá-
farandi trúnaðarmannaráði
félagsins, og B-listi, borinn fram
af Jóni Sig. Þorsteinssyni og
fieirum. A kjörskrá voru 3.415, en
atkvæðisréttar' neyttu 1.715
tJrslit urðu þau, aö A-listi hlaut
1.054 atkvæði eöa 61,45% greiddra
atkvæða, en B-listi 619 atkvæöi
eða 36.09%. A 5 seðlum voru ein-
staklingar af báöum listum
kosnir, 29 seðlar voru auðir og 8
ógildir.
Samkvæmt þessu veröur stjórn
félagsins þannig skipuð eftir
næsta aðalfund:
Formaður: Jón Helgason, Akur-
eyri Varaformaður: Sævar
Frímannsson, Akureyri Ritari:
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Akur-
eyri Gjaldkeri: Aðalheij&ur
Þorleifsdóttir, Akureyri.
Meðstjórnendur: Björn Snæ-
björnsson, Akureyri Guörún
Skarphéðinsdóttir, Dalvik, og
Agúst K. Sigurlaugsson, Ólafs-
firði.
Jón Helgason formaður Ein
ingar
I varastjórn eru: Þórarinn
Þorbjarnarson, Ólöf Jónsdóttir,
Guðlaug J ó h a n n s d ó 11 i r ,
Matthildur Sigurjónsdóttir og
Jenný Jóakimsdóttir.
Jafnframt voru kosnir 25 full-
trúar i trúnaöarmannaráöi og
jafnmargir til vara, ennfremur 2
endurskoðendur og 1 til vara.
fræöslu i félagsmálaskólanum og
fólk úr okkar röðum hefur farið á
trúnaðarmannanámskeið til að
sækja þangað aukna þekkingu.
Nú erráðgertað hafa héropið hús
og skipuleggja fræðsluerindi og
reyna þannig aö lifga upp á það
félagsstarf sem fyrir er, en að
sjálfsögðu byggist þetta allt á
þátttacu hins almenna félags-
manns. Það er staðreynd, sem
þýðir ekkertað horfa fram hjá, að
i dag hefur verkamaðurinn sem
aöriri mörghornað lita, auk þess
sem hann þarfað sjá sér og sinum
farborða. Envið verðum varir við
það, sem vinnum að verkalýsðs-
málum, aö þaö þarf venjulega
ekki mikla erfiöleika eða lang-
varandi krepputima, tii að fólk
fari að þjappa sér saman á ný.
Það er von min á þessum tima-
mdtum, sagði Hallgrimur Péturs-
son aö lokum, aö Verkamanna-
félagið Hli'f berigæfu til að standa
dyggan vwöum hagsmuni félaga
sinna og heildarsamtök verka-
fólks.
Kauplagsnefnd:
Laun hækka
um 7.51%
1. mars
Kauplagsnefnd hefur
reiknað veröbótahækkun
launa frá og með 1 mars 1982, i
samræmi við fyrirmæli i
VIII . kafla laga nr. 13/1979,
um stjórn efnahagsmála o.fl.
Þau lagaákvæöi taka nú gildi
á ný, þar eð gildistimi ákvæða
i 5. grein laga nr. 10/1981, um
ráöstafanir tii viönáms gegn
veröbólgu, rennur út i
febrúarlok 1982.
Verðbótarhækkun iauna 1.
mars 1982 reyndist vera 7,51%
samkvæmt útreikningi
Kauplagsnefndar. Hækka laun
þvi almennt um þá hundraðs-
tölu frá byrjun næsta greiðslu-
timabils. 1. mars 1982.