Tíminn - 06.01.1967, Síða 2

Tíminn - 06.01.1967, Síða 2
TÍMINN FÖSTUDAGUR 6. janúar 1967 Á fimmta hundrað var við minningarathöfnina GS—Isaíirði, fimmtudag. Mtaningarathöfn um mennina sex, sem fórust með Svani RE fór fram í dag í Kapellunni í Hitífsdal. Var hún ákafiega há- tíðleg, og stafalogn á Djúpið. Á fimmta hundrað manns úr nærliggjandi byggðarlögum var viðstatt. Athöfnin hófst kk 2 með þvi að Ragnar H. Ragnar lék Largo eftir Handel, en síð an söng Sunnukórinn Hærra, minn guð til þín. Sr. Sigurður Kristjánsson sóknarprestur las ritningargrein og Sunnukórinn söng Þín náðin drottinn nóg er mér. Þá las sr. Þorbergur Kristjánsson prestur í Bolung arvík ritningargrein og Sunmu kórinn söng sálminn Hvað bindur vom hug. Sr. Jón Ólafs son fyrrverandi sóknarprestur í Holti las ritninggrgrein, og Karlakór ísafjarðar söng sálm inn Þú Kristur ástvin alls sem lifir. Sóknanpresturinn flutti að svo búnu minningarræðu, og á eftir söng karlakórinn Víst ertiu Jesú kóngur klár, og þá flut'ti sóknarpresturinn æviat riði hinria látnu og einnig sam- úðarkiveðjur frá ýmsum aðil- um, m. a. sjávarútvegsmálaráð heíra. Að lokum söng karlakór inn Fögur er foldin, Ásgeir Kristján Karlsson skipstjóri var fæddur 29. okt. ,1941, kvæntur Jóhönnu Jóa- kimsdóttur og áttu þau tvö ung börn. Einar Jóhannes Lár usson stýrimaður var fæddur 9. jú'lí 1942, ikona hans er Finney Finnbogadóttir og áttu þau tvö börn. Friðrik Maríus son var fæddur 28. júlí, 1919 kona hans er Ingibjörg Hjartar dóttir og áttu þau fimm börn. Jóp Hálfdán Helgason var fædd ur 10. nóv. 1947, ókvæntur. Jó- el Einarsson var fæddur 29. okt. 1917 óbvæntur. Hermann Lúthersson fæddur 20. júlí 1941, unnusta/ hans er Guð- rún Karlsdóttir, systir Áis- geirs skipstjóra. Einar og Ás- geir voru systrasynir. Hríngormur í mönn- um og dýrum nyrðri EJ—Reykjavík, fimmtudag. Náutgripir á nokkrum bæjum í1 tveim hreppum í Eyjafirði hafa fengið húðsjúkdóm þann, sem nefn ist hringormur. Er þetta sveppa- sjúkdómur. sem leggst á nautgripi | og einnig á menn. Munu tveir karl menn og ein kona hafa fengið veik 1 Happdrætti Fram- sóknarflokksins í Kópavogi Framsóknarfélögin í KópavO'gi vilja vinsamlegast minna á Happ irætti Framsóknarflokksins. Þau hafa tekið að sér dreifingu og inn rieimtu í Kópavogskaupstað. Vinsamle^ast komið og gerið skil að Neðstutröð 4 Kópavogi. Opið frá kl. 5—10 hvern dag. Simi 11590. Framsóknarfélögin- ina, sem álitin er hafa borizt hing- að með dönskum fjósamanni. Sjúkdómurinn er mjög næmur og smitast einkum við beina snert ingu. Getur hann auðveldlega bor- izt með ýmsum hlutum. svo sem vinnufatnaði. Erfitt er að útrýma sj /'cdómin- um, sem er mjög langlífur. Til eru lyf við hringorminum, en mjög seinlegt er að lækna kýr til fulls. Sjúkdómur þessi mun áður hafa verið óþekktur hér, en er algeng ur í-sumum nágrannalöndum okk- ar. TVILEMBD ÆR JA—Hólmavík, fimmtudag. Þegar Jón Sigurðsson, bóndi í Stóra-Fjarðarhomi kom út í fjár- hús sín í morgun, mættu honum tvö nýborin lömb. Móðirin 'er níu vetra ær, sem alltaf hefur verið tvílembd, þar til í fyrra, að hún var geld. Lömbin, sem nú komu í heiminn, voru tveir hvítir hrútar, fullburða og hinir vænlegustu. Ásgelr Karlsson Einar Jóhannes Lárusson Jón Hálfdan Helgason Jóel Einarsson Friðrik Maríusson Hermann Lúthersson VILL HANOI-STJÓRNIN NÚ SAMNINGA VIÐRÆÐUR? NTB-París og Washington, fimmtudag. Jákvæðasta afstaða Norður-Viet nam til þessa, varðandi friðarvið ræður um Vietnam kom fram í dag. Sérlegur sendifulltrúi Hanoi stjómar í París, Mai van Bo sagði í boði fyrir erlénda sendifulltrúa að stjórn N-Vietnam myndi taka sérhverja orðsendingu og tillögu Bandarík j astj órnar til gaumgæfi legrar atíhugunar, ef Bandaríkja menn fyrst hættu algerlega öll um loftárásum á Norður-Vietnam. — Bandaríkjastjórn fór þess á leit við Hanoi-stjórnina í dag, að hún staðfesti þessi ummæli sendr fulltrúans, segir AFP-fréttastofan. Mai van Bo sagði, að loftárásir "*> aradaríkj amanna á n - - vjet -n hefði á engan há' •' r úr ■ arki og siðferðisstyi., .„...úns og ekki heldur lamað* efnahag landsins eða veikt stjórnina í Hanoi. Ef Bandarikjamenn hættu loftárásum um ailla framtíð á Norðuf-Vietniam án skilyrða og stjórnin í Washington færi síð an fram á viðræður við Hanoi- stjórnina, myndi sérhver tillaga iBandaríkjastjórnar í þeim efnum verða tekin til ítarlegrar yfirveg unar, sagði van Bo. Van Bo skoraði á Bandaríkja stjórn að samþykkja fjögurra liða áætlun Hanoi-stjórnarinnar um lausn Vietnam-málsins, en lét þess ekki getið, hvort samþykkt áætlúnarinnar væri fyrirfram skil yrði fyrir friðarvlðræðum. Áður hafði mönnum skilizt, að sú væri skoðun Hanoi-stjórnarínnar. Hins vegar ráða menn af ummælum forsætisráðlherra Norður-Vietnam/ t I' Piham Dong Lot, í viðtali viðí fréttarítara The New York Time-s! í Hanoi í gær, að stjórnin þar '. hafi nú fallið frá þessu skiiyrði. ‘ í þessu samhengi vekja ummæli| Parísarfulltrúans enn meiri at-i hygli. Van Bo vísaði á bug fyrri til-> lögum Bandarikjamanna, Breta og U Thant, framkvæmdastjóra S. Þ. um friðsamlega lausn Vietnam deilunnar og lýsti yfir þeirri skoð un Hanoi-stjórnarinnar, að Banda ríkjamenn yrðu að viðurkenna Vietcong-frelsishreyfinguna í Suð ur-Vietnam sem eina löglega máls vara fólksins í þeim landshluta. Friðarviðræður gæbu aðeins far ið fram með aðild Vietcong. Blaðaful'ltrúi Hvíta hússins, Bill Moyers sagði í dag, að Bandaríkja Framhaiö a bis. 15. FB—Reykjavík, fimmtudag. Handbók byggingamanna 1967, 2. árgangur, er komin út. Útgefand inn er Samband byggingamanna í ■Reykjavik. í formála segir ritnefnd in, að handbókin komi nú út öðru sinni, og eftir viðtökum bókarinnar í fyrra að dæma virðist full þörf fyrir slíka handbók. Efni bókarinn ar hefur verið mikið aukið og end urbætt, og notendum bókarinnar til hægðarauka er yfirlit yfir það efni, sem var í árbók 1966, en ekki er í nýju bókinni, sett inn í efnis- yfirlitið nú. Af efni bókarinnar má nefna kort yfir Fossvogshverfi. Árbæj- arhverfi, Breiðholtshverfi og hið fyrirhugaða Breiðholt. Upplýsing- ar eru um banka og sparisjóði, á- vísananotkun, leiðbeiningar um skattaframtöl. Byggingarsamþykkt Reykjavíkur, breytingar á ensku máli í metra, listi er yfir félög og félagasambönd, flóðtöflur og alls kyns formúlur eru í bókinni, lög ýmiss-a félaga og lög um iðn- fræðslu, orlof og fleira og fleira. Mikið er af faglegu efni í bókinni sem snertir hin ýmsu félög innan Sambands byggingamanna, og að lokum er að sjálfsögðu dagatal, þar sem gert er ráð fyrir, að menn skrifi vinnustundir sínar. Bókin er um 130 bls. fyrir utan almanakið. EJ—Reykjavík, fimmtudag. Um áramótin fékk bóndinn Aino Aaltonen óvænta fjölgun í fjósi sjnu. Ein kýr hans bar nefnilega fimm kálfum, og eru þeir allir hin ir hraustustu. Voru þeir 9—16.5 kíló að þyngd. Aaltonen býr í Riihimæki í Finn landi.. Kýr þessi er fjögurra ára. Ó, Sietta er indælt stríð. Leikritið fræga, Ó, þetta er in- dælt stríð, hefur nú verið sýnt 26 sinnum í Þjóðleikhúsinu. Sýning ar hafa nú legið niðri um nokkurn tíma vegna jóla-anna, en þær hefj ast aftur n.k, laugardag þann 7. þ.m. Eins og kunnugt er hefur þessi sýning Þjóðleikhússjns hlotið frá- bæra dóma og einkanlega ágæt leikstjórn Kevins Palmer, sem er mjög blæbrigðarík og hnitmiðuð. Nú eru aðeins eftir fáar sýningar á þessum leik hjá Þjóðleikhúsinu. Myndin er af Helgu Valtýsdóttur í hlutverki sínu í leiknum .

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.