Tíminn - 06.01.1967, Page 9

Tíminn - 06.01.1967, Page 9
FÖSTUDAGUR 6. janúar 1967 TÍMINN Enn hlæja menn að brellum skósmiðsins í Berlín, sem gabbaði prússneska herinn og lagði undir sig Köpernick vinnu ,og íasta vinnu gat hann ekki fengið nema hafa vega bréf. í fangelsunum hafði ekki verið miklum bókakosti fyrir að fara. Að b'iblí’ • ni und anskilinni hafði Voigt aðeins getað komizt yfir tvo bæklinga Æfingareglugerð keisaralega hersins, og Herskipulagið, en þetta las hann þar til hann kunni spjaldanna á milli, og öðlaðist þar með talsverða þekk ingu í þessum greinum. Lík- lega hefur hann fengið sína bráðsnjöllu hugmynd við þenn an lestur. Dag nokkurn keypti Voigt not aðan einkennisbúning lífvarðar foringja af skransala einum. Hann fór honum að vísu ekki vel og var töluvert snjáður, en það skipti hinn hugdjarfa skó smið ekki nokkru máli. klæddi sig í þennan skrúða og arkaði ákveðinn á svip eftir göt unni og stöðvaði herdeild nokkra, sém var á leið heim til herbúðanna af vakt undir stjórn undirforingja. Lesandinn verður að hafa það hugfast, að þetta var á þeim tímum, er menn báru takmarkalausa virð- ingu fyrir öllu því, sem keisar- ans var eða konungsins, og væri skipun gefin, var henni hlýtt án minnstu umhugsun- ar. Þess vegna datt liðþjálfan- um ekki í hug, að hreifa við mótmælum, er lífvarðarforingi hans keisaralegu hátignar skip aði deild hans að nema staðar. Hann gekk hröðum skrefum til foringjans, tók sér stöðu þremur skrefum fyrir framan hann, heilsaði virðulega og gerði grein fyrir deildinni, og hvert hún væri að halda. Nú var að duga eða drepast. Voigt „foríngi" varg að taka snialla ákvörðun, og það gerði hann á augabragði. Hann gaf deildinni skipun um að halda 01 járnbrautarstöðvarinnar, og fara með lest til Köpemic, þar sem mikilvægt verkefni biði úrlausnar. Liðþjálfinn skund- aði á sinn stað og deildin hélt hélt til járnbrautarstöðvarinn- ar. Þar fórst Voigt eins og sönn um höfðingja, hann dró fram nokkra skildinga og bauð her- mönnunum að snæða á matsölu stöðvarinnar, meðan beðið var eftir lestinni. Er 01 Köpemick kom skip aði „foringinn" að haldið skyldi 01 ráðhússins, og þangað var arkag hröðum skrefum. Voigt setti varðmenn við allar dyr þessarar virðulegu byggingar, og gekk inn hægt og hátíðlega. Fyrsta fórnardýrið var skelk aður ritari. Hann tuldraði ein- hver mótmæli, er hann var gripinn af tveimur vígalegum hermönnum, en Volgt leit valdsmannslega á hann og skipaði honum að tygja sig 01 ferðar, þag ætti að flytja hann 01 varðstöðvanna í hjarta Berl ínar. Og Voigt stonriaði á- fram eftir göngunum og her- menn hans opnuðu fyrir hon- um allar dyr. Hann lét ekki staðar numið fyrr en á skrif stofu borgarstjóra, þar sem hans háæruverðugheit trónaði í djúpum hægindastól fyrir framan geysistórt skrifborð. Þetta var mjög mikils metin persóna, bæði hjá sjálfum sér og borgurunum. Voigt sló hæl um saman, heilsaði að her- mannasið og tilkynnO síðan mynduglega, að borgarstjórinn væri tekinn höndum. Borgar- stjórinn starði þrumu lostinn á þennan óboðna gest. Hann hafði svo 01 flekklausa fortíð, og gat ómögulega skiUð á hvaða forsendum hermenn hans há- Ognar vildu handtaka hann. En staðreyndirnar töluðu sínu máli. Fyrir framan hann stóð herforingi, klæddur hinum auðkennilega einkennisbúningi lífvarðar, og að baki honum stóðu tveir vopnaðir hermenn. Enda þótt hann væri virðulegur borgarstjóri og hefði mikið sjálfsálit varð hann þó að við- urkenna sem fyrsti borgari, að frammi fyrir fulltrúa hinnar keisaralegu hátignar mátti hann sín einskis, og svo gafst hann upp. Á leið sinni 01 baka rakst Voigt á 'lögreglustjóraskrifstof- urnar- Hann hratt hurðinni upp og sá þá hvar lögreglustjórinn sjálfur sat steinsofandi við skrifborð sitt. Voigt ræskO sig, en það var ekki fyrr en hann öskraði hermannakveðju, að lögreglustjórinn vaknaði. Þeg- ar hann sá, hversu virðuleg persóna það var, sem heiðraði hann með nærveru sinni, rank- aði hann allsnarlega við sér, og bað auðmjúklega afsökunar á að hafa sofið. Voigt þrumaði, að skattborgararnir greiddu ekki fyrir það að verðir lag- anna svæfu á verðinum, og svo skipaði hann lögreglustjóranum að hypja sig út á götu og koma á ró meðal fólksfjöldans, sem safnazt hafið saman til að horfa á aðfarirnar. Lögreglustjórinn rauk af stað eins og píla og her mennirnir skemmtu sér konung lega yfir að sjá þennan virðu lega mann vera rekin út eins og hund. Þetta var svo sannar lega foringi, sem vissi hvað hann söng. Voigt óx ásmegin við þessa auðunnu sigra, og skundaði með lið sitt til skrifstofu bæjargjald kera, og skipaði starfsliðinu að gera upp kassann hið skjótasta. Á þessum bæ var allt í stök- ustu röð og reglu og tók uþp gjörið mjög skamman tíma. Ér því var lokið kvittaði Voigt fyr ir, en í kassanum voru 4042 mörk og 50 pfennig. En þetta gekk þó ekki snurðulaust fyrir sig, því að bæjargjaldkerinn neitaði að ljúka reikningshald- inu án samþykkis borgarstjór ans- Voigt gerði sér lítið fyrir og sló hann niður með kylfu, og varð hann þá hinn bljúgasti. Borj> rstjórinn óskaði eftir að fá að tala vig eiginkonu sína, og í þessari ringulreið kom bæjarráðið til að halda fund. Voigt hneppti bæjarráðið í stofufangelsi, og stóð sjálfur vörð, þar til lögregluvarðstjóri Eftir aS Köperniek var látinn laus, var litiS á hann sem nokk- urskonar þjóðhetju, m. a. fékk hann tilboS um að koma fram i hringleikahúsi í Bandarikjunum. Þessa mynd af sér áritaði hann og sendi vinum og kunningjum, er hann var á leið til Bandaríkj- anna. kom á vettvang og bauð að- stoð sína. Voigt hegðaði sér eins og staða hans bauð hon- um ,lagði hönd sína á öxl varð stjórans og fullvissaði hann um traust það, sem hann bæri til hans. Varðstjórinn ljómaði eins og sól yfir þessum heiðri, sem honum var sýndur og sagð ist fara í einu og öllu eftir skip unurn „foringjans". Voigt „for ingi“ skipaði honum nú að ná í nokkra hestvagna og safna band ingjunum saman og spurði síð an, hvort honum væri trúandi til að annast flutning þeirra til varðstöðvanna í Be.rlín. Og varðstjórinn sló saman hælun um duglega, horfði einlæglega í augu „foringjans" og sagði eins hátt og hann gat: — Sjálf sagt, skautzt síðan út eins og elding til að framkvæma skip anir sínar. Borgarstjóranum hafði vaxið kjarkur í varðhald inu, og er honum var troðið upp í hestvagninn, sem átti að flytja hann til Berlínar spurði hann Voigt ,ioringja“, hvernig á þessum handtökum stæði, og hvort hann hefði skilríki. Og sem endranær varð Voigt ekki svarafátt. — Eg held að þetta sé nægileg skilríki sagði hann og benti á sína fríðu hermenn. Og því næst skröltu vagnarnir af stað til Berlínar meg fang ana og varðstjórinn stóð vel í stöðu slnni. Voigt gaf hermönn unum leyfi tilrið halda heim, en sjálfur hvarf hann eitthvað með fjjármuni bæjarins í poka v.ndir handleggnum. En hann hafði ekki fundið það, sem hann hafði verið að sækjast eftir, nefnilega vegabréf. Öll svikin komust vitaskuld upp, þegar fangarnir vom færðir á aðal varðstöð Berlínar. Þessi skemmtilega saga barst út um víða veröld og vakti hvarvetna mjög mikla kátínu, og eins og fyrr er frá sagt er til orð í mörgum tungumálum, sem á rót sina að rekja til foringjans frá Köper nick. En hann naut ekki sigurs síns lengi. Dag nokkurn stóð hann við skilti þar sem lýst var eftir honum, og gerði af þvi mikið grín. En einmitt í sama mund var hann gripinn af vörð um laganna, og enn um skeið Framhald i bls. 15. Köpernick foringi velgir borgarstjóranum um uggana- Fyrir skömmu fluttist aldrað ur maður inn á elliheimili í Köpernick, úthverfi Austur- Berlínar. Hann hafði ekki dval izt þar lengi, er dagblöð Berlín ar tóku að birta við hann við töl og rifja upp skemmtilega sögu, Köpemick-málið, sem gerðist fyrir liðlega 60 árum. Gamli maðurinn heitir Otto Muller, er 81 árs að aldri og er sá elni, sem eftlr lifir af her mönnunum frá Köpemick, er settu borgina á annan endann dag einn í /október undir for- ystu þýzks skósmiðs frá Berlín og höfðu hinn keisaralega her að háði og spéi um víða ver- öld. Atburðurinn í Köpernick varð aðhlátursefni manna um allan heim á sínum tíma, og varð til þess að hafa að háði og spéi hinn gifurlega undirlægjuhátt fyrir hermannabúningi, og orð ið Köpernickiade hefur síðan verið tekið inn í mörg tungu mál og merkir sniðugt svindl, er dregur dár að borgaralegum hugsunarhætti. En hvað var það eiginlega, sem gerðist i Köpernick 16. október 1906, og kemur fólki enn þann dag í dag til að veltast um af hlátri. Árið 1906 bjó í Berlín skó- smiður nokkur og flækingur, Wilhelm Voigt að nafni. Hann var 57 ára að aldri, en 28 ár ævi sinnar hafði hann setið í fangelsum fyrir ýmiss konar afbrot. Þegar hér var komið sögu vildi hann gjaman leggja land undir fót og freista gæf- unnar í fjarlægum löndum, en hér var við ramman reip að draga, því að sem dæmdur mað ur gat hann ekki fengið vega bréf, nema hann hefði fasta Fyrir nokkrum árum var gerð kvikmynd um Köpernickmálið og var það hinn vinsæli gamanleik- ari Heinz Ruhnann, sem fór með hlutverk foringjans. Hér sést fiann i gervi sinu. KAPTEINNINN PERNICK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.